Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Stjórnvöld skoða aðra kosti í öflun bóluefnis Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að vandi Evrópusambandsins við öflun bóluefna valdi sér áhyggjum og því skoði íslensk stjórnvöld nú alla kosti í þeim efnum. 4.3.2021 08:56
Meirihlutinn í borginni sækir í sig veðrið Allir flokkar sem eiga fulltrúa í meirihlutanum í borginni myndu bæta við sig fylgi frá síðustu kosningum ef gengið yrði til kosninga nú, ef marka má könnun sem Gallup gerði fyrir Samfylkinguna á dögunum og Fréttablaðiið greinir frá í dag. 4.3.2021 08:48
Fólk geti lent mjög óvænt í aðstæðum sem það kemst ekki úr ef það fer inn á svæðið Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, beinir því til almennings að vera ekki á ferðinni á því svæði á Reykjanesskaga þar sem óróinn og skjálftavirknin er hvað mest. 4.3.2021 08:33
Braut rúðu í lögreglubíl Maður braut rúðu í lögreglubíl í Hafnarfirði í gærkvöldi eftir að lögregla hafði stöðvað hann vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna. 4.3.2021 07:20
Sýknaður af ákæru fyrir árás á fyrrverandi maka Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði karlmann af ákæru um ofbeldi í nánu sambandi í síðustu viku. Karlmaðurinn var ákærður fyrir að ráðast á fyrrverandi maka sinn og barnsmóður, tekið hana hálstaki og hent henni út á stétt. 3.3.2021 22:52
Dagurinn í myndum: „Þetta eru mjög spennandi tímar“ Þetta eru spennandi tímar fyrir jarðvísindin og á hverjum degi sem líður í þeim jarðhræringum sem nú standa yfir á Reykjanesi læra vísindamenn eitthvað nýtt. Þetta segir Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur. Síðast varð eldgos á svæðinu á þrettándu öld og nú er útlit fyrir að fljótlega kunni aftur að gjósa, þótt margt sé óljóst ennþá. 3.3.2021 22:11
Koma fyrir mælitækjum vegna mögulegrar gasmengunar í Vogum Búnaður til að mæla styrk brennisteinsdíoxíðs hefur verið komið fyrir í Vogum vegna möguleikans á að gos hefjist í nágrenni Keilis á Reykjanesskaga. Umhverfisstofnun ætlar að setja upp mæla á fleiri stöðum á Reykjanesi eins fljótt og mögulegt er. 3.3.2021 21:54
Um sautján hundruð jarðskjálftar mælst frá miðnætti Óróamerki er einn vel greinanalegt á Reykjanesi suður af Keili við Litla Hrút og sést óróinn best á jarðskjálftastöðvum á Reykjanesskaga, þó það hafi heldur minkað eftir klukkan fimm í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá náttúruvársérfræðingum Veðurstofunnar nú fyrir stundu. 3.3.2021 20:51
Þetta sá Kristján Már úr þyrlunni skammt frá Keili „Við erum svolítið smeykir,“ sagði Kristján Már Unnarsson fréttamaður þegar hann lýsti því sem fyrir augu bar í beinni útsendingu úr þyrlu í kvöldfréttum Stöðvar 2 fyrr í kvöld. Kristján Már var staddur ásamt Arnari Halldórssyni tökumanni auk þyrluflugmanns skammt frá Keili á Reykjanesi, þar sem líklegt þykir að mögulegt eldgos komi til með að eiga upptök sín, ef til þess kemur. 3.3.2021 20:40
Heimstorg opnað fyrir fyrirtæki í þróunarsamvinnuverkefni Heimstorg Íslandsstofu var formlega opnað í dag en það er vettvangur fyrir fyrirtæki sem vilja koma að fjárfestingum og þróunarsamvinnuverkefnum í útlöndum. Utanríkisráðherra segir mikilvægt að atvinnulífið fái tækifæri til taka þátt í þróunarsamvinnu og fái aðstoð í samskiptum við stjónvöld annarra ríkja og fjölmarga sjóði sem fyrirtæki geti leitað í. 3.3.2021 20:00
Allt á suðupunkti í deilum um byggingar á Kirkjusandi 105 Miðborg í stýringu Íslandssjóða hefur ráðið nýjan verktaka til að ljúka framkvæmdum á kirkjusandsreitnum eftir að hafa rift samningi við Íslenska aðalverktaka um byggingu þriggja húsa upp á um tíu milljarða króna. 3.3.2021 19:31
Minnir á tíma Kröflueldanna Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur segir jarðhræringarnar á Reykjanesi minna nokkuð á Kröflueldana á áttunda og níunda áratugnum. Páll var gestur í beinni útsendingu í kvöldfréttum Stöðvar 2 þar sem hann greindi stöðuna. Hann segir það ennþá vera nokkuð á reiki hvað rétt sé að kalla atburðina sem nú eru í gangi. 3.3.2021 19:25
Voru að undirbúa drónaflug yfir skjálftasvæðið þegar þær þurftu að snúa við Vísindakonurnar Ásta Rut Hjartardóttir, jarðeðlisfræðingur hjá Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands og Ester Hlíðar Jenssen, landmótunarfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, voru staddar á jarðskjálftasvæðinu við Keili síðdegis í dag þegar þeim barst tilkynning um að vart hafi orðið við gosóróa á svæðinu. Þær voru að undirbúa drónaflug yfir svæðið þegar tilkynningin barst og þurftu þá að snúa við. 3.3.2021 18:34
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Eldgos gæti hafist á Reykjanesi á næstu klukkustundum eða dögum. Klukkan tuttugu mínútur yfir tvö í dag hófst óróapúls, sem mælist í aðdraganda eldgosa, á flestum jarðskjálftamælum. Fjallað verður ítarlega um stöðu mála í kvöldfréttum Stöðvar 2 sem hefjast klukkan 18:30. 3.3.2021 18:18
Þurftu að vísa frá fólki á níræðisaldri í bólusetningu Um fimmtíu manns á níræðisaldri sem voru boðaðir í bólusetningu gegn kórónuveirunni í Laugardalshöll þurftu frá að hverfa þegar bóluefnið kláraðist í dag. 3.3.2021 18:11
Kortleggja minjar sem gætu farið undir hraun Friðaðar og friðlýstar minjar, þar á meðal bæjarstæði, hús og kirkjur, gætu farið undir hraun ef gos hæfist á Reykjanesi. Minjastofnun hefur kortlagt hvaða menningarminjar sem hún hefur á skrá séu í hættu út frá nýjasta spálíkani eldfjallafræði- og náttúruváhóps Háskóla Íslands. 3.3.2021 17:31
Stórum hluta Álfhólsskóla lokað vegna myglu Einni álmu í Álfhólsskóla í Kópavogi verður lokað vegna myglu sem fundist hefur í þaki byggingarinnar. Lokunin tekur gildi frá og með morgundeginum og er gerð í varúðarskyni til að vernda nemendur og starfsmenn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kópavogsbæ. 3.3.2021 17:21
Ólíklegt að hætta stafi af gasmengun ef til goss kæmi Litlar líkur eru á því íbúum muni stafa hætta af gasmengun ef til goss kæmi. Gert er ráð fyrir því að gasmengun geti lagt yfir höfuðborgarsvæðið en Veðurstofan mun birta spá um gasmengun samfara veðurfréttum ef af gosi verður. 3.3.2021 17:10
Þrír í lengra gæsluvarðhald vegna morðsins Þrír voru í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna vegna rannsóknar hennar á morði í Rauðagerði í Reykjavík í síðasta mánuði. 3.3.2021 16:39
Kristján Már flaug yfir Reykjanesið í þyrlu Arnar Halldórsson kvikmyndatökumaður og Kristján Már Unnarsson, fréttamaður Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar, eru nú í þyrlu Helicopter.is á sveimi yfir Reykjanesinu þar sem óróapúls hófst um klukkan 14:20 í dag. 3.3.2021 16:31
„Það er ekkert að sjá í augnablikinu og það eru engar hamfarir að gerast“ Engin merki eru um að gos sé hafið á Reykjanesi og eru núverandi hreyfingar í samræmi við fyrirliggjandi sviðsmyndir. Óróapúls mældist fyrst á þriðja tímanum í dag suður af Keili við Litla-Hrút en slík merki mælast gjarnan í aðdraganda eldgosa. 3.3.2021 16:25
Lögregla vaktar veginn við Keili Lögregla stendur nú vaktina á Reykjanesbrautinni við afleggjarann að fjallinu Keili. Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn sagði á upplýsingafundinum í dag að vísindafólk og almannavarnir þyrftu vinnufrið á svæðinu. Ekkert væri að sjá í augnablikinu, gos væri ekki hafið. 3.3.2021 16:18
Líklegast að hraun renni til suðurs Líklegast er að hraun frá eldgosi sem er mögulega að hefjast sunnan af Keili á Reykjanesi renni til suðurs. Þetta sýna útreikningar eldfjalla- og náttúruvárhóps Háskóla Íslands. 3.3.2021 15:58
Biðla til fólks að halda sig heima Björgunarsveitir á Reykjanesskaga voru kallaðar út á þriðja tímanum og eru nú í viðbragðsstöðu eftir að Veðurstofa Íslands gaf út að óróapúls hafi mælst suður af Keili við Litla-Hrút. Slík merki mælast gjarnan í aðdraganda eldgosa en ekki hefur verið staðfest að eldgos sé hafið. 3.3.2021 15:47
Heyra hvorki drunur né finna skjálfta Ásgeir Eiríksson bæjarstjóri í Vogum segir í samtali við Vísi að hann hafi ekki fundið fyrir neinum óróa. Engar drunur heyrist og jörð hafi varla skolfið frá því um hádegi í gær. 3.3.2021 15:46
Svona var upplýsingafundurinn vegna gosóróans Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og Veðurstofa Íslands boða til blaðamannafundar klukkan 16 vegna mögulegs goss á Reykjanesi. 3.3.2021 15:36
Ekið á unga stúlku á vespu Óskað var eftir aðstoð lögreglu og sjúkrabíla á þriðja tímanum vegna umferðarslyss við Bakarameistarann í Suðurveri. 3.3.2021 15:04
Skoða leiðir til að verja Suðurnesjalínu fyrir mögulegu eldgosi Landsnet býr nú starfsemi sína undir nokkrar sviðsmyndir ef til eldgoss kæmi á Reykjanesskaga. 3.3.2021 14:53
Stöðug skjálftavirkni og óróamerki áfram Óróapúls, sem Veðurstofan kallar litla vaxandi skjálfta með stuttu millibili, hófst klukkan 14:20 suður af Keili við Litla-Hrút og mælist á flestum jarðskjálftamælum. Slík merki mælast í aðdraganda eldgosa en ekki hefur verið staðfest að eldgos sé hafið. 3.3.2021 14:52
Rekstur hjúkrunarheimila Fjarðabyggðar til HSA Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) mun taka við rekstri hjúkrunarheimila í Fjarðabyggð frá og með 1. apríl næstkomandi. Er um að ræða Hulduhlíð á Eskifirði og Uppsali á Fáskrúðsfirði, en á hvoru heimili um sig eru hjúkrunarrými fyrir tuttugu íbúa. 3.3.2021 14:39
2,5 milljóna sekt fyrir endurtekin umferðarlagabrot Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt konu til að greiða 2,5 milljónir króna í sekt til ríkissjóðs fyrir endurtekin umferðarlagabrot eftir að hafa ítrekað ekið bíl, ýmist undir áhrifum ávana- eða fíkniefna eða slævandi lyfja. Ákæran var í sjö liðum, en brotin voru framin bæði í Reykjavík og á Selfossi á tímabilinu frá júní 2019 til júní 2020. 3.3.2021 14:30
Gæti verið upphaf tveggja til þriggja áratuga goshrinu Störf Alþingis gætu fljótlega markast af verulegri náttúruvá og þingmenn þurfa þá að gæta þess að vinna þverpólitískt, halda ró sinni og treysta vísindum. Þetta sagði Ari Trausti Guðmundsson, þingmaður Vinstri Grænna og jarðfræðingur, í umræðum um störf þingsins í dag. 3.3.2021 13:40
Svigrúm spítalans til að bregðast við náttúruhamförum takmarkað að sögn bráðalæknis Landspítalinn hefur nú gefið út þau skilaboð til almennings að hann leiti til heilsugæslu eða læknavaktar frekar en á bráðamóttöku ef kostur er vegna afar þungrar stöðu á bráðamóttökunni. Allar legudeildir spítalans eru yfirfullar. 3.3.2021 13:39
Loforð framkvæmdastjórans í fjölmiðlum kom milljónaskuldinni yfir á fleiri Héraðsdómur Reykjavíkur telur loforð framkvæmdastjóra félagsins Live events, sem stóð að rekstri tónlistarhátíðarinnar Secret Solstice, í fjölmiðlum um greiðslur til listamanna staðfesta ábyrgð félagsins á milljónaskuld við bandarísku hljómsveitina Slayer. 3.3.2021 13:37
„Greinilega áframhaldandi virkni“ og möguleiki á tilfærslum sléttri viku eftir stóra skjálftann Jarðskjálftavirkni á Reykjanesi hefur haldið áfram nú á áttunda degi jarðskjálftahrinunnar en vika er síðan fyrsti snarpi jarðskjálftinn upp á 5,7 gerði íbúum á Suðvesturhorninu hverft við. Jarðskjálftafræðingur segir ekki ósennilegt að jarðskjálftavirknin færist. 3.3.2021 11:49
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um jarðskjálftana á Reykjanesskaga og ræðum við Kristínu Jónsdóttur náttúruvársérfræðing hjá Veðurstofunni en snarpur skjálfti reið yfir rétt eftir klukkan ellefu í morgun. 3.3.2021 11:35
Stór skjálfti fannst á suðvesturhorninu Kraftmikill jarðskjálfti fannst vel á höfuðborgarsvæðinu og víðar á suðvesturhorninu um klukkan 11:05 í dag. 3.3.2021 11:06
Enginn greindist með veiruna innanlands Enginn greindist með kórónuveiruna innanlands í gær, fjórða daginn í röð. Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á covid.is. 3.3.2021 10:58
Sprungugos á Reykjanesskaga vart staðið lengur en í viku Algengt hraunmagn í sprungugosum sem orðið hafa á Reykjanesskaga er í kringum 0,1 rúmkílómetri í hverju einstöku gosi. Þá hefur hvert gos vart staðið lengur en í viku eða svo þótt þau hafi stundum varað lengur en þá með lítilli framleiðslu og hægri framrás helluhrauna. 3.3.2021 10:34
„Ekkert óeðlilegt í svona hrinum að virknin minnki og taki sig upp aftur“ Of snemmt er að lesa nokkuð í þá stöðu að færri stórir skjálftar hafa orðið á Reykjanesskaga síðasta tæpa sólarhringinn eða svo heldur en dagana á undan. 3.3.2021 08:10
Tveir handteknir vegna líkamsárása í nótt Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu bárust tvær tilkynningar um líkamsárásir í nótt. Annars vegar var tilkynnt um líkamsárás klukkan 00:39. Segir í dagbók lögreglu að um minniháttar hafi verið að ræða. Einn maður var handtekinn vegna málsins og gistir hann fangageymslu. 3.3.2021 07:20
Margfalt fleiri skjálftar á viku en heilu ári Enn mælist mikil skjálftavirkni á Reykjanesskaga. Nú síðdegis hefur fjöldi skjálfta á svæðinu mælst svipaður og síðustu daga en skjálftarnir verið heldur minni. Frá upphafi hrinunnar í síðustu viku hafa mælst rúmlega fjórfalt fleiri skjálftar á svæðinu en allt árið 2019. 2.3.2021 23:20
Fólki bent á að leita annað en á bráðamóttöku Landspítalinn biður fólk sem lent hefur í vægum slysum eða veikindum, eða þarfnast ekki bráðrar aðstoðar, að leita ekki á bráðamóttöku spítalans í Fossvogi. 2.3.2021 22:37
Telur ekki að lengja eigi tíma milli bólusetninga svo sem flestir fái fyrri sprautu Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir telur ekki að lengja ætti tíma milli bólusetninga við Covid-19 hjá fólki svo hægt sé að gefa sem flestum hér á landi fyrri sprautu bóluefnis. 2.3.2021 21:19
„Staðan í Fossvogsskóla er grafalvarleg“ Móðir stúlku í Fossvogsskóla er afar ósátt við að ekki eigi að bregðast við svartri skýrslu um myglu í Fossvogsskóla. Hún kennir dóttur sinni heima. Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks vill helst láta rífa skólann en borgaryfirvöld vilja ekki grípa til svo róttækra aðgerða. 2.3.2021 21:00