Fleiri fréttir

Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar
Tuttugu og einn greindist með kórónuveiruna innanlands í gær og var um helmingur í sóttkví. Í hádegisfréttum Bylgjunnar verður rætt við Þórólf Guðnason sóttvarnalækni um þróun faraldursins hér á landi en hann segist hafa miklar áhyggjur af ástandinu.

Vísbendingar um smit í samfélaginu sem ekki er búið að finna
Rögnvaldur Ólafsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, segir að þar á bæ hafi menn miklar áhyggjur af stöðunni vegna faraldurs Covid-19 hér á landi. Sérstaklega af því hve margir eru að greinast smitaðir utan sóttkvíar.

21 greindist með Covid-19 innanlands í gær
21 greindist með covid-19 innanlands í gær. Þá greindust tveir með virkt smit við skimun á landamærum. Af þeim sem greindust innanlands var yfir helmingur í sóttkví eða 13 af 21. Alls eru nú 193 í einangrun með covid-19 hér á landi og 618 eru í sóttkví. Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á vefnum covid.is.

Einn smitaður og tuttugu í sóttkví á Vestfjörðum
Einstaklingur frá Vestfjörðum sem ferðaðist til höfuðborgarsvæðisins í síðustu viku hefur reynst smitaður af Covid-19. Sá fór aftur heim og eru nú tuttugu komnir í sóttkví vegna málsins. Flestir þeirra á norðanverðum Vestfjörðum en sex sunnan Dýrafjarðarganga.

Umhleypingar í kortunum
Draga mun í dag úr þeirri suðvestanátt sem hefur ráðið ríkjum á Íslandi undanfarna sólarhringa og er von á norðlægri átt á morgun. Áfram verður éljagangur á sunnan- og vestanverðu landinu og hiti í kringum frostmark.

Furðulegt að flakið af Goðafossi finnist ekki
Í grænum bragga í Garðinum reynir Ásgeir Hjálmarsson skipstjóri að varpa ljósi á það hvar Goðafossi, skipi Eimskipafélagsins, var sökkt í síðari heimsstyrjöld. Hann sýnir líkan af Goðafossi og húsum í Garðinum, sem hann er búinn að smíða, til að fá sem nákvæmasta staðsetningu á atburði, sem reyndist mesti mannskaði Íslendinga í stríðinu.

Þriðjungur greindra smita í þriðju bylgju tengist þremur hópsýkingum
Um 2.900 manns hafa greinst smitaðir í þriðju bylgju kórónuveirufaraldursins. Þriðjung smitanna má rekja til þriggja stórra hópsýkinga á höfuðborgarsvæðinu.

Katrín og Píratar í hár saman: „Mér er eiginlega algerlega misboðið“
Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra stóð ekki á sama þegar þingmenn Pírata ræddu ummæli hennar um mögulegar heimildir til handa ríkissáttasemjara til að fresta verkföllum í umræðum um atkvæðagreiðslu á þinginu í kvöld. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir sagði þessa hugmynd Katrínar aðför að verkfallsrétti vinnandi fólks.

„Fullt af veiru þarna úti“ og mörg smit órakin
Rögnvaldur Ólafsson aðstoðaryfirlögregluþjónn segir stöðuna núna líklegast tengjast samkomum síðustu helgar. Fólk sé byrjað að slaka á í ljósi jákvæðra frétta af bóluefnaþróun og reyni að halda í jólahefðirnar, þrátt fyrir að það sé ekki ráðlegt.

Eldur kom upp í flutningaskipi milli Færeyja og Íslands
Varðskipið Þór var sent til móts við flutningaskip eftir að eldur kom upp á áttunda tímanum í kvöld. Skipið var á leið með laxeldisfóður frá Bretlandseyjum til Þingeyrar og var miðja vegu milli Færeyja og Íslands.

Bráðalæknar á nýrri samskiptamiðstöð „í beinni“ við heilbrigðisstarfsfólk út á landi
Landspítalinn hefur sett á fót samskiptamiðstöð fjarheilbrigðisþjónustu til að bregðast við því að björgunarflug Landhelgisgæslunnar verður ekki tiltækt um helgina. Læknar í Reykjavík geta aðstoðað heilbrigðisstarfsfólk úti á landi ef bráðatilfelli koma upp.

Alþingi samþykkti lög á verkfall flugvirkja
Frumvarp Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra til laga um kjaramál flugvirkja Landhelgisgæslunnar var samþykkt rétt í þessu. Með lögunum er lagt bann við vinnustöðvun flugvirkjanna.

Fimm ára heimasæta á Hurðarbaki veit allt um rúning
Rúningur stendur nú yfir víða hjá sauðfjárbændum landsins. Bóndinn á bænum Hurðarbaki í Flóa er um eina mínútu að rýja hverja kind.

Áhrifa verkfallsins muni gæta næstu mánuði
Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, segir vonbrigði að ekki hafi tekist að leysa kjaradeilu flugvirkja hjá stofnuninni með samningum. Hins vegar hafi verið nauðsynlegt að stöðva verkfall þeirra með lögum eins og dómsmálaráðherra ákvað að gera í dag. Áhrifa verkfallsins muni engu að síður gæta fram í febrúar.

„Stundum eru bara engin önnur úrræði“
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir samstöðu hafa verið innan ríkisstjórnarinnar um að setja lög á verkfall flugvirkja Landhelgisgæslunnar. Það sé þó alltaf algjört neyðarúrræði að grípa til lagasetningar vegna vinnudeilna.

Þórólfur búinn að greiða árgjaldið í World Class
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir tilgátur Björns Leifssonar, eiganda World Class, um að hann hafi fóbíu fyrir líkamsræktarstöðvum vera fjarri lagi. Hann hafi verið viðskiptavinur World Class í mörg ár og sé búinn að greiða árgjaldið í ár, þó hann hafi ekkert æft vegna faraldursins.

Fimm fámennir hópar í forgangi í bólusetningu
Tíu hópar eru í forgangi þegar kemur að bólusetningu við Covid-19 hér á landi. Ekki er gert ráð fyrir því að börn fædd eftir árið 2006 verði bólusett. Af forgangshópunum tíu eru fimm fámennir hópar sem innihalda um tuttugu þúsund einstaklinga í framlínu í baráttu við sjúkdóminn.

Kvöldfréttir Stöðvar 2
Í kvöldfréttum okkar förum við ítarlega yfir atburðarás dagsins eftir að dómsmálaráðherra ákvað að leggja fram frumvarp til að stöðva verkfall flugvirkja hjá Landhelgisgæslunni.

Refsingu frestað fyrir mótmæli í flugvél Icelandair
Landsréttur hefur komist að þeirri niðurstöðu að fresta refsingu Jórunnar Eddu Helgadóttur og Ragnheiðar Freyju Kristínardóttur og skilorðsbinda til tveggja ára.

Nagladekk spila langstærstan þátt í myndun svifryks
Greining nýrrar rannsóknar bendir til þess að nagladekkjanotkun spili langstærstan þátt í myndun svifryks frá umferð á höfuðborgarsvæðinu en aðrir áhrifaþættir eru vegyfirborð, umferðarmagn, hraði og þjónusta; söltun og skolun. Ein af niðurstöðum rannsóknarinnar er að draga þurfi verulega úr nagladekkjanotkun.

„Þetta lítur bara ekki vel út, því miður“
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segist hafa miklar áhyggjur af stöðu kórónuveirufaraldursins hér á landi í dag. Hún reiknar með að helgin fari í að ákveða hvort einhverjar breytingar verði gerðar á sóttvarnaraðgerðum þann 2. desember.

Ekki talið að andlát ungbarns hafi borið að með saknæmum hætti
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vill koma því á framfæri að andlát ungbarns í haust, sem hefur verið til umfjöllunar í fjölmiðlum í vikunni, bar ekki að með saknæmum hætti.

Uppfletting landamæravarðar í LÖKE fer fyrir Hæstarétt
Hæstiréttur hefur veitt landamæraverði áfrýjunarleyfi sem dæmdur var fyrir að brot í opinberu starfi. Þetta kemur fram á vef Hæstaréttar en rétturinn tekur fyrir minnihluta þeirra mála sem dæmd hafa verið í Landsrétti. Þá helst ef málin hafa fordæmisgildi.

Segja ríkið ætla sér það eitt að rjúfa tenginguna
Stjórn Flugvirkjafélags Ísland segir ljóst að það eina sem vaki fyrir íslenska ríkinu sé að slíta tengingu samnings flugvirkja hjá Landhelgisgæslunni vi. Formaður félagsins telur litlar líkur á því að samninganefndir flugvirkja og ríkisins nái saman fyrir 4. janúar.

Hefur áhyggjur af veldisvexti og skilar hugsanlega nýjum tillögum til ráðherra
Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, hefur miklar áhyggjur af þróun kórónuveirufaraldursins og þeim fjölda sem greinst hefur með veiruna innanlands undanfarna daga. Tuttugu greindust í gær og voru ellefu utan sóttkvíar. Ellefu greindust innanlands í fyrradag og voru átta af þeim ekki í sóttkví.

Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar
Ríkisstjórnin hefur samþykkt tillögu dómsmálaráðherra að setja lög á verkfallsaðgerðir flugvirkja hjá Landhelgisgæslunni. Við ræðum við dómsmálaráðherra í hádegisfréttum okkar á slaginu tólf.

Setja lög á verkfall flugvirkja Landhelgisgæslunnar
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra hefur lagt fram frumvarp um lög til að binda enda á verkfall flugvirkja hjá Landhelgisgæslu Íslands.

Bein útsending: Fjallað um líðan ungmenna á tímum Covid-19
Bein útsending frá hádegisfyrirlestri Háskólans í Reykjavík þar sem Þórhiildur Halldórsdóttir, lektir við sálfræðideild skólans, segir frá rannsókn um áhrif faraldursins á líðan ungmenna.

Tuttugu greindust innanlands og af þeim voru ellefu ekki í sóttkví
Tuttugu greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Ekki hafa jafnmörg smit greinst á einum sólarhring innanlands síðan 10. nóvember. Af þeim tuttugu sem greindust voru níu í sóttkví, en ellefu ekki.

Þingmenn fengu körfu hlaðna kræsingum frá Landbúnaðarklasanum
„Glæsilegar körfur frá Landbúnaðarklasanum biðu þingflokkanna í dag, fullar af spennandi vörum frá frumkvöðlum unnar úr íslensku hráefni,“ segir Gunnar Bragi Sveinsson þingflokksformaður Miðflokksins – harla ánægður.

Kári segir 20 hafa greinst í gær en nýr stofn sé ekki sjáanlegur
Tuttugu greindust með kórónuveiruna í gær. 18 hjá Íslenskri erfðagreiningu og 2 hjá Sýkla- og veirufræðideild Háskóla Íslands. Þetta segir Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar í samtali við fréttastofu.

62 nemendur og fjórtán starfsmenn í Öldutúnsskóla í sóttkví
Alls eru 62 nemendur og fjórtán starfsmenn Öldutúnsskóla í Hafnarfirði í sóttkví eftir að kórónuveirusmit kom upp í skólanum.

Gæslan segir flugvirkja ekki hafa mætt til vinnu sem hafi átt að mæta
Landhelgisgæslan segir að viðhald á TF-GRO, þyrlu Gæslunnar, hafi gengið mun hægar en vonir voru bundnar við vegna þess að ekki hafi allir flugvirkjar, sem Gæslan telur að eigi að vera við vinnu, mætt til að sinna því.

Vetrarfærð víðast hvar
Vetrarfærð er víðast hvar á landinu og ófært á nokkrum fjallvegum.

Sama lægðin stjórnar áfram veðrinu
Gular viðvaranir eru enn í gildi á suður- og vesturhelmingi landsins og verða í gildi á flestum svæðum fram á morgundaginn.

Lýsti því eins og í dýralífsþætti þegar hún horfði í augun á árásarmanninum
Kona sem varð fyrir hnífaárás í íbúð sinni við Langholtsveg í sumar segist viss um að hún hefði látið lífið í árásinni, sem leigjandi hennar til skamms tíma er ákærður fyrir, ef ekki hefði verið fyrir snör viðbrögð af hennar hálfu. Hún lýsir því að hún hafi vikið sér undan ítrekuðum atlögum mannsins og varðist einnig hnífsstungum með þvottakörfu. Atburðarásin hafi verið óraunveruleg og maðurinn ítrekað hótað henni lífláti.

Flúði undan árásarmanni inn í blokk í Hafnarfirði
Upp úr klukkan hálftvö í nótt barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynningu um óeðlilega hegðun í fjölbýlishúsi í Vallarhverfinu í Hafnarfirði.

Flugvirkjar buðu þriggja ára samning
Samninganefnd Flugvirkjafélag Íslands bauð samninganefnd ríkisins samning með tengingu við aðalkjarasamning félagsins til þriggja ára í kjaradeilu flugvirkja Landhelgisgæslunnar við íslenska ríkið, samkvæmt upplýsingum frá formanni félagsins.

Eldingar fylgja éljahryðjunum
Íbúar á höfuðborgarsvæðinu urðu margir hverjir varir við eldingu og þrumu á tólfta tímanum í kvöld.

Réttartannlæknar saka Rósu Björk um alvarlegar rangfærslur
Fjórir réttartannlæknar, sem hafa séð um aldursgreiningar flóttamanna hér á landi frá upphafi, hafa gert harðorðar athugasemdir við frumvarp Rósu Bjarkar Brynjólfsdóttur til breytinga á lögum um útlendinga. Telja þeir frumvarpið auðvelda fullorðnum að smeygja sér í raðir barna til að njóta réttarverndar sem ætluð er börnum.

Fara þurfi varlega næstu vikur svo jólin verði ekki undirlögð samfélagssmiti
Mikilvægt er að samfélagið vari varlega næstu þrjár vikurnar svo að vikan í kringum jól verði ekki undirlögð af samfélagssmitum, að því að er fram kemur í niðurlagi nýrrar rýni hóps vísindamanna sem stendur að spálíkani um þróun kórónuveirufaraldursins á Íslandi.

Þungt yfir, hvasst og lítið skyggni fyrir vestan
Það er ekkert sérstakt, veðrið á Vestfjörðum þessa stundina en Tómas Guðjartsson læknir birti fyrr í kvöld myndband af færðinni í Ketildölum.

Ari Trausti kveður þingið eftir kjörtímabilið
Ari Trausti Guðmundsson, þingmaður Vinstri grænna, hyggst ekki gefa kost á sér kosningunum á næsta ári

Saklaust kaffiboð hjá ömmu sendi nokkra í einangrun
Nokkrir hafa þurft í einangrun með kórónuveirusmit eftir kaffiboð innan fjölskyldu um síðustu helgi. Rögnvaldur Ólafsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, segir þetta sýna vel hversu lítið þurfi til að smitum fari fjölgandi.

Lagði fram sáttatillögu sem hlaut ekki hljómgrunn hjá flugvirkjum
Sáttatillöga ríkissáttasemjara í kjaradeilu flugvirkja Landhelgisgæslunnar við íslenska ríkið á sem lögð var fram á maraþonfundi í dag hlaut ekki hljómgrunn hjá Flugvirkjafélagi Íslands.