Myndband af flugdólgnum komið á netið: "Þessi á eftir að dúsa lengi í fangelsi“ 9. janúar 2013 11:32
Myndband af flugdólgnum sem farþegar Icelandair yfirbuguðu með þeim afleiðingum að hann var reyrður við sæti sitt, er komið á netið. Meðal annars hefur AP fréttastofan birt myndbandið. Það má einnig finna á myndbandavefnum Youtube, en þar sést hvernig farþegi í sætaröð fyrir aftan dólginn tekur myndbandið upp og segir meðal annars: "Þessi náungi á eftir að dúsa mjög lengi í fangelsi." Myndbandið er nokkuð óhugnanlegt, við vörum fólk við því, en þar má sjá dólginn hálfgrátandi og bugaðan með límband fyrir munninum. Dólgurinn vakti nokkurn ótta farþega í fluginu, en fréttastofan ræddi við Bandaríkjamann síðasta föstudag, þann sama og tók myndina af honum, en hann sagðist hafa verið óttasleginn við manninn sem sat í sömu sætaröð. Flugdólgurinn var ekki kærður þegar hann kom til Bandaríkjanna á föstudaginn, heldur var hann fluttur á spítala vegna áfengisneyslu sinnar. Icelandair hefur þó tilkynnt að hann verði kærður hér á landi, en refsing við broti hans getur varðað allt að sex ára fangelsi. Eins og kunnugt er þá var hann yfirbugaður eftir að hann tók mann hálstaki, hrækti á farþega og hrópaði að flugvélin væri að hrapa. Dólgurinn, sem er Íslendingur á fimmtugsaldrinum búsettur á Barbados, hefur vakið heimsathygli, þá helst fyrir að hafa verið límdur með límbandi við sæti sitt. Það er staðlaður búnaður að því er virðist í íslenskum flugvélum. Samkvæmt fréttastofunni CNN þá eru handjárn í bandarískum flugvélum.Uppfært klukkan 12:07: Myndbandið hefur nú verið tekið af YouTube en hér fyrir neðan má sjá myndbandið hjá ABC-fréttastofunni.
Mest lesið Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Innlent Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Innlent Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Innlent Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Innlent Fjölmiðlanefnd sektar Þórarinn um hálfa milljón Innlent Hvað gerist ef það verður jafnt? Innlent Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Erlent Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Erlent Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Erlent Fleiri fréttir Flaggað í hálfa stöng í bandaríska sendiráðinu Bein útsending: Kristrún með ávarp vegna atkvæðagreiðslunnar Fjölmiðlanefnd sektar Þórarinn um hálfa milljón Mikill munur á trausti til fjölmiðla í aðdraganda atkvæðagreiðslu Hvað gerist ef það verður jafnt? Eins og að hafa fimmtán menn inni á vellinum Svona verður atkvæðagreiðslan á laugardaginn Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Tvöfalt fleiri andvígir loðdýrarækt á Íslandi en hlynntir Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Starfsfólkinu boðin lakari kjör Grindavík á varaafli Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Sjá meira