Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Unnið að því að útfæra viðbrögð við landgöngu hvítabjarna Viðbragðsteymi vegna landgöngu hvítabjarna var kallað saman í morgun og fór yfir stöðu mála vegna tilkynningar í gær um að hugsanlega hafi hvítabjörn gengið á land. Viðbragðsteymið var skipað af umhverfisráðherra árið 2012 og í því sitja fulltrúar Landhelgisgæslunnar, Ríkislögreglustjóra, Matvælastofnunar og Umhverfisstofnunar. Hlutverk teymisins er m.a. að samræma viðbrögð þessara aðila að því er fram kemur í tilkynningu frá Umhverfisstofnun. 5.7.2012 16:22
Samþykktu stóraukna flokkun pappírsefna Borgarráð samþykkti í dag tillögu umhverfis- og samgönguráðs um stóraukna flokkun og hirðingu pappírsefna og skildaskyldra umbúða. Frá og með 1. október mun ekki verða leyft að setja pappírsefni og skilaskyldar umbúðir með í ílát fyrir almennt heimilissorp. 5.7.2012 16:04
Hver er þessi Sveddi tönn? Þræðir liggja víða Það er óhætt að segja að Sverrir Þór Gunnarsson, eða Sveddi tönn, eins og hann er kallaður, sé nokkurskonar huldumaður undirheima Íslands. Eins og fram hefur komið var hann handtekinn í Ríó de Janeiro í vikunni eftir að unnusta hans var handtekinn á alþjóðaflugvelli þar í borg með hátt í 50 þúsund E töflur. Sverrir er fæddur árið 1972 en brotaferill hans hófst þegar hann var sextán ára gamall. Þá voru brot hans nokkuð hefðbundin, ef svo má að orði komast, hann var dæmdur fyrir minniháttar fíkniefnabrot og umferðalagabrot. Sverrir fékk viðurnefnið Sveddi tönn út af tannlýti. 5.7.2012 15:55
Aflahæstu dagar strandveiðanna í sumar Júlímánuður hefst með glæsibrag hjá strandveiðimönnum því fyrstu dagar veiðanna voru aflahæstu dagar sumarsins. Þann 3. júlí veiddust 352 tonn og á mánudaginn 2. júlí veiddust 343,7 tonn. 5.7.2012 14:21
Óbyggðanefnd berast kröfur ráðherra varðandi Norðvesturland Fjármálaráðherra hefur fyrir hönd ríkisins afhent Óbyggðanefnd kröfur sínar um þjóðlendur á Norðvesturlandi. Kröfurnar varða eignaréttarlega stöðu lands í Húnavatnssýslu vestan Blöndu ásamt Skaga. 5.7.2012 14:03
Páll Gísli með rifinn liðþófa Páll Gísli Jónsson, markvörður ÍA, verður frá næstu 4-5 vikurnar en hann gekkst í morgun undir aðgerð vegna hnémeiðsla. 5.7.2012 13:46
Lögreglan lýsir eftir gráum Golf Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir gráum Volkswagen Golf með skráningarnúmerið MV-K12, en bílnum var stolið frá bílaleigu við Vatnsmýrarveg í Reykjavík í síðasta mánuði. Þeir sem geta gefið upplýsingar um hvar bíllinn er niðurkominn eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000 eða senda tölvupóst á netfangið abending@lrh.is 5.7.2012 13:12
Bílar springa ekki Bílar springa ekki eins og í amerískum bíómyndum þegar það kviknar í þeim. Þetta segir deildarstjóri hjá Slökkviliðinu en fimm bílar voru inni á bílaverkstæðinu sem brann í Kópavogi í fyrrinótt. 5.7.2012 12:45
Blómamerki UMFÍ prýðir Selfoss Ný blómaskreyting á hringtorgi á Selfossi hefur vakið lukku. Skreytingin myndar landsmótsmerki UMFÍ, en torgið var skreytt í tilefni af Unglingalandsmóti sem fram fer á Selfossi um verslunarmannahelgina. 5.7.2012 12:42
Ekki víst að hvítabjörninn verði felldur Þyrla Landhelgisgæslunnar hélt í morgun áfram leit sinni hvítabirninum sem menn telja sig hafa séð á Húnaflóa í gær. Skytta er um borð í vélinni en tekið verður mið af aðstæðum hvort dýrið verði fellt, finnist það á annað borð. 5.7.2012 12:10
Lögreglustjóri tók á móti börnum Starf lögreglunnar er ekki samfelld glíma við forherta glæpamenn heldur á það sér líka sínar björtu hliðar. Í dag leit hópur leikskólabarna frá leikskólanum Dal í Kópavogi við á lögreglustöðinni. Stefán Eiríksson, lögreglustjóri, tók vel á móti þeim, fræddi þau um helstu merki lögreglunnar, leyfði þeim að máta lögregluhúfu og stillti sér svo upp á mynd með þeim í lokin. 5.7.2012 11:49
Vinnuskólakrakkar mála ljóð á gangstéttar Hressir krakkar úr Vinnuskóla Reykjavíkur vinna í dag að því að mála ljóð á gangstétt á Austurstræti, Laugavegi. Um klukkan ellefuleytið í dag höfðu þau klárað búta úr þremur ljóðum, sem eru skrifuð bæði á íslensku og ensku. Vonast er til þess að textinn haldist á gangstéttinni út sumarið. Það er Höfuðborgarstofa sem stendur fyrir þessum atburði en Vinnuskólinn framkvæmir eins og áður segir. 5.7.2012 11:46
Utanríkisráðuneytið varar Birgittu við að fara til Bandaríkjanna Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, segist hafa fengið þau skilaboð frá utanríkisráðuneytinu hér á landi að henni væri ekki óhætt að ferðast til Bandaríkjanna vegna tengsla sinna við WikiLeaks. 5.7.2012 11:31
Sjálfboðaliðar reisa íþróttahöll í Hveragerði Fjöldi sjálfboðaliða kom saman í Hveragerði í gær og hjálpaði til við að reisa nýja íþróttahöll fyrir bæinn. Mæting sjálfboðaliða var framar vonum og telur Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri, að rúmlega 50 manns hafi lagt hönd á plóg. Að sögn ríkti gleði og fjör í hópnum. 5.7.2012 11:27
Innbrotahrina á höfuðborgarsvæðinu Hrina innbrota virðist hafa riðið yfir höfuðborgarsvæðið í nótt, en tilkynning um þau barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu um áttaleytið í morgun. Brotist var inn í tvær rútur í Kópavogi en ekki er vitað hvort eða þá hverju var stolið. Þá er ekki vitað um skemmdir á rútunni. 5.7.2012 11:22
Það er glerbrot í gúrkusalatinu Kaupás, í samráði við Matvæla- og heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur innkallað 550 gr First Price agúrkusalat. 5.7.2012 10:57
Skyttur í viðbragðsstöðu að Geitafelli Skyttur fóru að Geitafelli við Húnaflóa í gær til þess að vera í viðbragðsstöðu ef björn finnst á svæðinu. Eins og kunnugt er tilkynntu erlendir ferðamenn í gær að þeir hefðu séð dýr í flóanum sem talið er að hafi verið bjarndýr. Þá fundust spor í Vatnsnesi sem talin eru vera eftir björn. Þyrla Landhelgisgæslunnar flaug í gær yfir svæðið en fann ekkert. Ráðgert var að halda leit áfram í dag. Leitarmenn fundu í gær spor neðan við Geitafell og er talið nær öruggt að þau séu eftir bjarndýr. Gert var hlé á leitinni í nótt, en búist er við því að hún hefjist fljótlega aftur. 5.7.2012 10:23
Baráttan fyrir fækkun dauðaslysa skilar árangri Ísland er fimmta landið í röð þeirra sem eru með lægstu dánartíðni í umferðinni þegar tíðnin er borin saman við 28 önnur Evrópulönd. Þetta sýnir ný athugun sem Umferðarstofa segir frá. 5.7.2012 09:56
Leitin að hvítabirninum heldur áfram í dag Leitin að hvítabirninum sem menn telja sig hafa séð á Húnaflóa í gær verður haldið áfram í dag. Þyrla Landhelgisgæslunnar leitaði á svæðinu fram til að ganga tólf í gærkvöldi og er reiknað með að leit hefjist að nýju um klukkan tíu í dag. 5.7.2012 06:48
Sveddi tönn tekinn höndum í Brasilíu Sverrir Þór Gunnarsson, einn höfuðpauranna í stóra fíkniefnamálinu, handtekinn í Rio de Janeiro vegna smygls á 46.000 e-töflum. Gaf upp falskt nafn. 5.7.2012 06:00
Meiri líkur á að vinna í lottói en að finna ísbjörninn Kjartan Sveinsson, sem gerir út selskoðunarbátinn Brimil á Hvammstanga, segir að hverfandi líkur séu á því að ísbjörninn sem menn urðu varir við fyrir norðan í gær sé hér ennþá. Kjartan var á leið í selskoðun með sextán ferðamenn þegar Vísir sló á þráðinn til hans í dag. 5.7.2012 14:19
Hafnarfjörður gerir auknar kröfur til dýraeigenda Hafnarfjarðarbær setti sér í gær samþykkt um húsdýrahald og gæludýrahald fyrir bæjarfélagið. Að sögn Guðmundar H. Einarssonar, framkvæmdastjóra heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar, er þetta víðtækasta samþykkt sinnar tegundar sem sett hefur verið á landinu öllu. 5.7.2012 13:41
Fimmtán ára stúlka tekin undir stýri Fimmtán ára stúlka var undir stýri þegar lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði bifreið í bænum í nótt. Hún er eins og gefur að skilja ekki með bílpróf en þar sem hún er orðin fimmtán ára má hún búast við sekt fyrir athæfið. 5.7.2012 07:14
Þangið í fangið og svo í andlitið Sprotafyrirtækið Marinox hefur hannað húðkrem úr íslenskum sjávarþörungum. Húðkremið, sem meðal annars dregur úr hrukkumyndun, kom á markað í síðustu viku. 5.7.2012 07:00
Verne greiði ríkinu 220 milljónir Verne gagnaver þarf að endurgreiða íslenska ríkinu 220 milljónir króna, samkvæmt ákvörðun ESA, Eftirlitsstofnunar EFTA. Stofnunin segir að um ríkisaðstoð hafi verið að ræða sem brjóti í bága við EES-samninginn og gerir ríkinu að endurheimta féð. 5.7.2012 06:30
Íslensk selalátur gætu lokkað sundfima hvítabirni Staðfesting sem fékkst á síðasta ári á ótrúlegu sundþreki ísbjarna sýnir að þeir geta synt milli Íslands og Grænlands, jafnvel fram og til baka, án þess að stoppa. Vísindamenn fylgdust þá með birnu í hafinu norður af Alaska synda látlaust nærri sjöhundruð kílómetra leið á níu dögum án þess að nærast. 5.7.2012 06:00
Nýtt gæðakerfi í ferðaiðnaðnum Fjögur ferðaþjónustufyrirtæki fögnuðu því í gær að hafa lokið innleiðingu á Vakanum, nýju gæða- og umhverfiskerfi. 5.7.2012 06:00
Krefjast rökstuðnings fyrir gjaldi á farþega Eigendur Sjóferða Hafsteins og Kiddýjar efast um lögmæti 44,50 króna gjalds sem lagt er á farþega í Ísafjarðarhöfn. Hafnarstjórinn segir ekki óeðlilegt að greidd séu afkomutengd gjöld í farþegasiglingum eins og gerist með fiskiskip. 5.7.2012 05:30
Frágangur vegriða víða dauðagildra Frágangi vegriða á Íslandi er mjög ábótavant að mati Ólafs Guðmundssonar, fulltrúa EuroRAP á Íslandi. Sé ekki rétt gengið frá þeim geta þau verið dauðagildra. Stjórnvöld fylgjast ekki nógu vel með þróuninni í nágrannalöndunum. 5.7.2012 05:00
Fjarðaál flutti út vörur fyrir 95 milljarða Alcoa Fjarðaál flutti á síðasta ári út vörur fyrir 95 milljarða íslenskra króna. Ekkert annað fyrirtæki á Íslandi flytur út meira magn af vörum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Fjarðaáli um helstu tölur úr rekstri fyrirtækisins á síðasta ári. 5.7.2012 05:00
Blíðan varnaði því að eldurinn bærist víðar Bílaverkstæði í Kópavogi gereyðilagðist í eldi. Mildi þykir að eldurinn hafi ekki náð að læsa sig í nálæg hús. Reykskemmdir urðu í nágrenninu og íbúar þurftu að loka gluggum og kynda heimili sín. Rannsókn er hafin á eldsupptökunum. 5.7.2012 04:30
Bæjarstjóri lætur fjarlægja slysagildru Húsið þar sem Bryndísarsjoppa var starfrækt til ársins 2008 stendur yfirgefið við Hringbraut 16 í Hafnarfirði. Mikill sóðaskapur er á lóðinni þar sem sjoppan stóð og húsið sjálft er í niðurníðslu og útkrotað. 5.7.2012 04:30
Aukin hætta með gjaldi í Silfru „Gjaldtaka í Silfru breytir engu um öryggi og eykur það ekki, heldur þvert á móti getur stuðlað að því að rekstraraðilar fari að spara við sig starfsmenn og auki þar með hættu á slysum frekar en að draga úr henni,“ segir Anna María Einarsdóttir, gjaldkeri Sportkafarafélags Íslands. 5.7.2012 04:00
Ágæt ávöxtun lífeyrissjóða það sem af er ári Hrein eign íslenskra lífeyrissjóða nam 2.241 milljarði króna í lok maí. Hækkaði eign þeirra um tæpa 4 milljarða frá því í apríl eða um 0,2%. 5.7.2012 04:00
Samið við alla háskólana Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra hefur nú undirritað samninga við alla háskóla í landinu. Nú síðast voru gerðir samningar við Háskólann á Akureyri, Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri og Hólaskóla. 5.7.2012 03:30
Játa aðeins sök að hluta til Þrír Pólverjar sem sæta ákæru fyrir að hafa flutt til landsins tæp níu kíló af amfetamíni í sjampóbrúsum neita þeim sökum sem bornar eru á þá í ákæru. Þetta kom fram við þingfestingu málsins í gær. 5.7.2012 03:30
"Finnst hvorki tangur né tetur af bangsa" Lögreglan á Blönduósi hefur hætt leit að hvítabirninum í Húnaflóa. Þyrluáhöfn Landhelgisgæslunnar er farin í hvíld en leit verður haldið áfram á morgun. 4.7.2012 23:45
Ísbirnir geta ofhitnað séu þeir eltir uppi Grænlensk stjórnvöld banna mönnum að elta uppi hvítabirni. Þetta kemur fram í reglum sem kynntar voru í síðasta mánuði til að koma í veg fyrir að ísbirnir væru skotnir að óþörfu. Sérstaklega var varað við að birnir væru hraktir á brott á miklum hraða á vélknúnum tækjum þar sem þeir gætu hæglega ofhitnað og drepist. 4.7.2012 23:30
Át 68 pylsur á 10 mínútum Bandaríkjamaðurinn Joey Chestnut sannaði á ný ágæti sitt í pylsuáti í dag. Hann torgaði 68 pylsum og bætti þar með sitt eigið met. 4.7.2012 23:10
Segir hvítabirni friðaða og lögbrot að drepa þá Ævar Petersen dýrafræðingur segir hvítabirni friðaða og telur það lögbrot að skjóta alla birni sem koma til Íslands. Þetta kom fram í viðtali í fréttum Stöðvar 2 í fyrravor en þar sagði Ævar að Ísland væri hluti af eðlilegu lífsmunstri hvítabjarna. Það væri því röng stefna að drepa þá. 4.7.2012 22:15
"Þjóðhátíðin er að breytast" Skipuleggjendur Þjóðhátíðarinnar í Vestmannaeyjum þurfa nú að horfast í augu við breytta tíma. Á síðustu árum hefur hátíðin vaxið ört og þessar breyttu aðstæður kalla á nýjar áherslur. 4.7.2012 22:15
Bjartsýn á góða niðurstöðu fyrir Mannréttindadómstóli "Ég er náttúrulega rosalega fegin og mjög spennt," segir Björk Eiðsdóttir, blaðamaður, en mannréttindadómstóll Evrópu mun kveða upp dóm í máli hennar og Erlu Hlynsdóttur, kollega hennar, á þriðjudaginn. 4.7.2012 21:30
Spor fannst í sandinum "Við erum bara að leita, þetta er sannarlega stórt svæði." Þetta segir varðstjóri lögreglunnar á Blönduósi en leit stendur nú yfir að ísbirni á Húnaflóa. 4.7.2012 21:10
Íslenskur maður handtekinn í Brasilíu Íslenskur karlmaður hefur verið handtekinn í höfuðborg Rio de Janeiro í Brasilíu. Hann er grunaður um að vera viðriðin stórt fíkniefnamál. 4.7.2012 19:22
Sjávarútvegsráðherrar funduðu um brottkast Matvælastofnun Sameinuðu Þjóðanna áætlar að brottkast fiskafla í heiminum gæti numið rúmlega 7 milljónum tonna á ári hverju. Þetta kom fram á fundi sjávarútvegsráðherra Norður-Atlantshafsríkjanna í gær. 4.7.2012 22:30