Baráttan fyrir fækkun dauðaslysa skilar árangri Jón Hákon Halldórsson skrifar 5. júlí 2012 09:56 Umferð í miðbæ Reykjavíkur. mynd/ valli.
Ísland er fimmta landið í röð þeirra sem eru með lægstu dánartíðni í umferðinni þegar tíðnin er borin saman við 28 önnur Evrópulönd. Þetta sýnir ný athugun sem Umferðarstofa segir frá. Samkvæmt útreikningum Umferðarstofu létust að jafnaði 40,6 einstaklingar í umferðinni á Íslandi á hverja milljón íbúa á tímabilinu. Best er þó staðan í Hollandi en þar létust aðeins 37,6 einstaklingar, en á eftir þeim kemur Bretland með 38,8, Svíþjóð með 39, Malta með 39,8 og síðan Ísland með 40,6 eins og fyrr sagði. Í Litháen létust 131,8 einstaklingar á hverja milljón íbúa en þar er fjöldi fórnarlamba mestur. Athugað var meðaltal fimm ára tímabils, 2007-2011. Þegar þessar tölur eru skoðaðar nánar kemur í ljós mikill árangur á undanförnum 5 árum í fækkun banaslysa í flestum Evrópulöndum. Ef skoðuð eru 5 ár á undan fyrrnefndum samanburðartíma kemur í ljós að á tímabilinu 2002 til 2006 létust að meðaltali 84,4 einstaklingar á hverja milljón íbúa hér á landi eða rúmlega helmingi fleiri en fimm ára tímabil þar á eftir, frá 2007 til 2011. Þótt sjá megi lækkun dánartíðni í flestum öðrum Evrópulöndum þá er árangurinn mun meiri hér á landi en hjá flestum öðrum Evrópulöndum þar sem Ísland hefur færst úr níunda sæti upp í það fimmta. Innan Evrópusambandsins lést að jafnaði 71,4 á hverja milljón íbúa. Það er því ljóst að árangurinn í umferðaröryggismálum er umtalsverður hvað banaslys varðar hér á landi. Þær Evrópuþjóðir þar sem fæstir látast í umferðinni eru öllu jöfnu með lægstu tíðni banaslysa á heimsvísu og því má leiða getum að því að dánartíðnin hér á landi sé með því allra lægsta sem þekkist. Þrátt fyrir þennan árangur eru dauðsföll hér á landi af völdum umferðarslysa ein algengasta dánarorsök ungs fólks á aldrinum 16 - 24 ára.
Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Erlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Fleiri fréttir Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Stakk af frá fargjaldi leigubíls Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Sjá meira