Innlent

Lögreglustjóri tók á móti börnum

BBI skrifar
Stefán og æskan.
Stefán og æskan. Mynd/facebooksíða lögreglunnar
Starf lögreglunnar er ekki samfelld glíma við forherta glæpamenn heldur á það sér líka sínar björtu hliðar. Í dag leit hópur leikskólabarna frá leikskólanum Dal í Kópavogi við á lögreglustöðinni. Stefán Eiríksson, lögreglustjóri, tók vel á móti þeim, fræddi þau um helstu merki lögreglunnar, leyfði þeim að máta lögregluhúfu og stillti sér svo upp á mynd með þeim í lokin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×