"Þjóðhátíðin er að breytast" Kjartan Hreinn Njálsson skrifar 4. júlí 2012 22:15 Frá Þjóðhátíð 2011. Mynd/Óskar Friðriksson
Skipuleggjendur Þjóðhátíðarinnar í Vestmannaeyjum þurfa nú að horfast í augu við breytta tíma. Á síðustu árum hefur hátíðin vaxið ört og þessar breyttu aðstæður kalla á nýjar áherslur. „Þjóðhátíðin er að breytast," segir Páll Scheving Ingvarsson, formaður Þjóðhátíðarnefndar. „Ákveðin útvíkkun hefur átt sér stað og nú er boðið upp á fjölbreyttari tónlistarflóru en áður hefur verið gert." Páll segir að sá mikli fjöldi fólks sem nú sæki Vestmannaeyjar heim þegar Verslunarmannahelgi gengur í garð kalli á meiri breidd. Því hafi Þjóðhátíðarnefndin ákveðið að horfa til Hróarskelduhátíðarinnar. „Við heimsóttum Hróarskelduhátíðina í fyrra og við höfum fylgst með henni. Við fórum þangað til að víkka sjóndeildarhringinn og þar fengum við að kynnast þeirra starfsemi." Töluverð breyting hefur orðið á þeim tónlistarmönnum sem koma fram á hátíðinni. Til dæmis mun írski tónlistarmaðurinn Ronan Keating koma áfram ásamt hollensku rapphljómsveitinni Dope DOD. Páll segir að þetta sé gert til að höfða til stærri hóps hátíðargesta. „Nú er rými fyrir þyngri tónlist og rapp," segir Páll. „Við höfum heyrt talað um Litlu Hróarskeldu í gagnrýnistóni en mér finnst það ekki endilega vera neikvætt. Það hlýtur að vera jákvætt að við bjóðum upp á breidd í dagskránni. Við viljum bara að fólk finni eitthvað fyrir sitt hæfi." Hægt er að nálgast allar upplýsingar um Þjóðhátíðina hér.
Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Erlent Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Erlent Fleiri fréttir Stakk af frá fargjaldi leigubíls Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Sjá meira