Fleiri fréttir

Dæmdur fyrir kannabisræktun

Tæplega þrítugur karlmaður var dæmdur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir fíkniefnalagabrot í Héraðsdómi Reykjaness í morgun.

Fara með þyrlu að skoða tökustaði

Framleiðendur kvikmyndarinnar Oblivion eru nú á leið í þyrluflug til þess að skoða væntanlega tökustaði en tökur á henni hefjast norðan heiða á næstu dögum. Stórstjarnan Tom Cruise kom til landsins með einkaþotu fyrr í dag og dvelst nú á Hilton Reykjavík Nordica hótelinu á Suðurlandsbraut. Samkvæmt heimildum mun hann síðan dvelja í glæsihýsinu Hrafnabjörgum á Vaðlaheiði ásamt fjölskyldu sinni á meðan á tökum stendur. Cruise mun fagna merkum áfanga á meðan hann dvelst hér á landi en hann verður fimmtugur þann 3. júlí næstkomandi.

"Ríkisstjórnin er að fara í kosningabaráttu“

Björn Valur Gíslason, formaður þingflokks VG, segir ábyrgð minnihlutans mikla þar sem hann hefði komið í veg fyrir að Alþingi gæti tekið afstöðu til mikilvægra mála á vorþingi.

„Alþingi er í miklum vanda“

"Alþingi er í miklum vanda," sagði Steingrímur J. Sigfússon á Alþingi í dag. Minnihlutinn á Alþingi hefði lagst gegn mikilvægum málum með málþófi og komið í veg fyrir afgreiðslu þeirra.

Tom Cruise lenti á Reykjavíkurflugvelli fyrir stundu

Kvikmyndastjarnan Tom Cruise lenti nú fyrir stundu í einkaþotu á Reykjavíkurflugvelli. Með í för er nokkurt fylgdarlið og fóru allir um borð í bílalest og óku rakleitt á brott. Í gær bárust fregnir af því að stjarnan væri komin til landsins og væri á Hilton Reykjavík Nordica. Þær fréttir virðast ekki hafa verið á rökum reistar.

Enn leitað að lottóspilaranum

Vinningshafinn í lottóinu síðustu helgi er enn ófundinn. Hann fékk fimm tölur réttar á miða sem hann keypti í Leirunesti á Akureyri og vann 73 milljónir króna.

Skólakrakkar fá 4500 fána fyrir þjóðhátíðardaginn

Skátahreyfingin og Eimskip hafa dreift litlum íslenskum handfánum ásamt bæklingi um meðferð íslenska fánans til allra grunnskólabarna í landinu sem luku 2. bekk nú í júní. "Um 4.500 börn hafa fengið fánana að gjöf og geta fagnað 17. júní með fánaveifu í hönd,“ segir í tilkynningu.

Cruise ætlar í gönguferð á afmælisdaginn

Hollywood stórstjarnan Tom Cruise sem nú dvelur á Íslandi við tökur, ætlar í gönguferð á afmælisdaginn sinn. Þetta kemur fram í viðtali við kappann sem birtist í tímaritinu People í dag. Þar ræðir hann um lífið og tilveruna og hvernig það sé að þurfa að vinna á afmælisdaginn, en Cruise verður fimmtugur þann þriðja júlí næstkomandi.

Rassskellingar á að afnema með öllu

Ég veit að börn hafa hætt í íþróttum vegna rassskellinganna,“ segir Þorlákur Helgason, framkvæmdastjóri Olweusar-áætlunarinnar gegn einelti. „Þetta er alveg eins og hvert annað ofbeldi þar sem krakkar eru að reyna að komast inn í hópana. Þetta á að afnema með öllu og það á ekki að fara neina millileið.“

Fegra umhverfið í Kópavogi með veggjalist

Ungmenni í sumarvinnu í Molanum, ungmennahúsi Kópavogs, hafa undanfarna daga fengið útrás fyrir listsköpun sína og málað graffiti myndir á stóran vegg við bílastæðið sunnan við Auðbrekku 6 í Kópavogi. Í tilkynningu frá bænum segir að veggurinn hafi áður verið mikið lýti á umhverfinu en nú sé þar nýtt listaverk að líta dagsins ljós.

Með þungar áhyggjur af stöðu háskóla

Stjórn Bandalags háskólamanna, BHM, lýsir þungum áhyggjum af stöðu háskólastigsins í íslensku menntakerfi, en Ísland er eina landið innan OECD sem ver minna fé til menntunar hvers nemanda á háskólastigi en á grunnskólastigi. En framlag á hvern nemanda á háskólastigi er 25 prósentum undir meðaltali OECD ríkjanna.

Sagðist særð, móðguð og reið

Þóra Victoria, aðstoðarflokksstjóri hjá Skrúðgarðyrkjudeild borgarinnar, hefur sent opinbert kvörtunarbréf til yfirmanna Reykjavíkurborgar þar sem hún sakar Bjarna Brynjólfsson, upplýsingafulltrúa Reykjavíkurborgar, um aðdróttanir og svívirðingar í sinn garð.

Mál starfsmannanna einstakt tilvik

Sérstakur saksóknari kærði tvo lögreglumenn sem starfað hafa hjá embættinu um margra ára skeið til Ríkislögreglustjóra fyrir brot á þagnarskyldu í apríl síðastliðnum.

Regndans sunnlenskra bænda bar árangur

Veðurguðirnir brugðust við regndansi sunnlenskra bænda í gær með því að senda þeim úrhellis rigningu með þrumum og eldingum, en langvarndi þurrkar hafa víða hægt á sprettu og þar með seinkað slætti.

Agnarsmár vágestur veldur miklum skaða

Smávaxið fiðrildi, birkikemba, hefur náð undraverðri útbreiðslu á stuttum tíma. Ummerki þessa nýbúa má víða merkja í görðum á höfuðborgarsvæðinu og víðar en skýrasta merkið um heimsókn þess eru sölnuð birkilauf sem víða eru mjög greinileg.

Tölum hreint út um spillingu og þöggun

Herdís Þorgeirsdóttir forsetaframbjóðandi var á persónulegu nótunum þegar hún kynnti framboð sitt á hádegisfundi hjá CCP á Grandagarði. Í stað þess að halda hefðbundnar ræður leggur Herdís áherslu á að setjast niður með fólki og ræða málin. Heitar umræður spunnust um forsetaembættið og framtíðarhorfur landsins yfir gúllassúpunni sem borin var á borð í starfsmannamötuneytinu.

Hæna fóstrar andarunga

Hænan Gulla á Ósbakka í Skeiða og Gnúpverjahreppi fóstrar nú þrjá stokkandarunga eftir að hrafnar réðust á andamömmu fyrir skemmstu. Frá þessu er greint í Bændablaðinu.

Alþingi veitir heimild til láns

Frumvarp Oddnýjar G. Harðardóttur, fjármálaráðherra, um heimild til fjármálaráðherra til að fjármagna göng undir Vaðlaheiði var samþykkt með 29 atkvæðum gegn 13 á Alþingi í gær. Fimm þingmenn sátu hjá við atkvæðagreiðsluna þar af þrír stjórnarþingmenn.

Eldur í plastbát í Hrísey

Eldur kom upp í plastbátnum Guðrúnu EA 58 í Hrísey á Eyjafirði í gær. Slökkvilið var kallað til og réði niðurlögum eldsins á skömmum tíma.

Sumarfríin eru ekki sjálfgefin á Alþingi

„Ef þing verður áfram í sumar er ljóst að einhverjir gætu þurft að fresta hluta af sumarfríinu. En við vitum enn ekki hvernig fyrirkomulagið verður,“ segir Hildur Eva Sigurðardóttir, formaður starfsmannafélags Alþingis, þar sem 120 manns starfa. Hildur segir óvissu um þinglok auka álag á starfsfólk og geta haft áhrif á plön fram í tímann.

Bættar samgöngur hækka fasteignamat

Bættar samgöngur hafa þau áhrif að fasteignamat á sumum stöðum á landsbyggðinni hefur hækkað mikið milli ára. Þetta segir sviðsstjóri hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga.

Íslensk heimili eru eldgildrur

Byggingafræðingur segir mikið vanta upp á að fólk geti komist út úr íbúðum sínum ef eldur kemur upp hérlendis. Kona slasaðist í nótt þegar hún stökk út um glugga á brennandi húsi í Borgarnesi.

Ögmundur sló í gegn

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra fékk fyrstu einkunn frá Magnúsi Birgissyni golfkennara þegar hann sló sitt fyrsta högg með golfkylfu fyrr í dag. Ögmundur setti sig þar í spor þeirra golfara sem ætla í næstu viku að klára það ótrúlega verkefni að leika golfbolta meðfram þjóðvegi 1 hringinn í kringum landið.

300.000 kr. miskabætur í Aratúnsmálinu

Blaðamaður DV var dæmdur til að greiða íbúa í Aratúni 300.000 króna miskabætur fyrir ærumeiðingar og 800.000 kr í málskostnað í Hæstarétti í dag.

Einfalt myndband um hlutverk forseta

Ungt fólk hefur búið til myndband sem skýrir hlutverk forseta Íslands á einfaldan hátt eins og það kemur fram í stjórnarskrá Íslands. Myndbandið er liður af verkefni sem nefnist Stjórnlög unga fólksins sem fólst í því að setja innihald stjórnarskrár Íslands fram á einfaldan hátt fyrir almenning.

Mikil aukning í framleiðslu fíkniefna

Í kjölfar efnahagsþrenginganna og bankahrunsins árið 2008 hefur framleiðsla á fíkniefnum hér á landi aukist hratt en málum vegna innflutnings á fíkniefnum heldur fækkað. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um fíkniefnaframleiðslu á Íslandi á árunum 2005 til 2011.

Þurftu að bíða í flugvélinni í 40 stiga hita í þrjá tíma

Strandaglópur á vegum Icelandair í Denver segist hafa þurft að sitja í fjörutíu stiga hita í flugvélinn í þrjá tíma áður en honum var vísað frá borði vegna vélarbilunar. Hann telur sig heppinn að hafa fengið pláss á hótelinu sem fólkinu var vísað á.

Konur beita börn oftar ofbeldi en karlmenn

Konur beita börn oftar ofbeldi en karlmenn og eru drengir oftar fórnarlömb líkamlegs ofbeldis en stúlkur. Þær eru hinsvegar oftar beittar andlegu ofbeldi.

"Þú ert drekinn!"

Skafti Þ. Halldórsson, deildarstjóri eldri deildar Álfhólsskóla í Kópavogi, skrifar opið bréf til Ármanns Kr. Ólafssonar, bæjarstjóra Kópavogs, í Fréttablaðið í dag. Tilefnið er leiðrétting á launum bæjarstjórans á dögunum.

Geta dæmt sameiginlega forsjá

Dómarar munu geta dæmt foreldrum sem skilja sameiginlega forsjá, en Alþingi samþykkti frumvarp um breytingar að barnalögum þess efnis á þriðjudag.

Allar líkur á sumarþingi

Ekkert bendir til að saman náist um þinglok og því allar líkur á að sumarþing verði kvatt saman eftir mánaðamótin eftir stutt hlé. Formenn þingflokkanna funduðu í gærkvöldi um framhaldið, og þá afgreiðslu einstakra mála, en fundi var ekki lokið þegar Fréttablaðið fór í prentun.

Segir Öryggisráðið ónýtt tæki

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra vill draga þá sem bera ábyrgð á voðaverkum í Sýrlandi fyrir alþjóðlega dómstóla. Íslendingar styðja tillögu í mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna þess efnis.

Strandveiðar stöðvaðar á einu svæði

Strandveiðar hafa verið stöðvaðar á svæðinu frá Snæfellsnesi inn í Ísafjarðardjúp þar sem kvótinn fyrir júní mánuð á svæðinu er búinn.

2.277 hundar eru skráðir í Reykjavík

Skrá yfir útgefin hundaleyfi í Reykjavík hefur nú verið gerð opinber á netinu. Samkvæmt henni eru nú 2.277 hundar á skrá í borginni. Umhverfis- og samgöngusvið Reykjavíkur óskaði álits Persónuverndar á birtingunni áður en í hana var ráðist.

Sjá næstu 50 fréttir