Innlent

Reiðir strandaglópar á flugvellinum í Denver

Nokkrir Íslendingar sem eru strandaglópar á flugvellinum í Denver eru æfir af reiði út í Icelandair.

Þeir áttu bókað flug til Íslands en því var aflýst þar sem flugvélin bilaði. Segjast þeir þurfa að bíða í sólarhring eftir nýju flugi.

Þór Kristjánsson einn af farþegunum segir að reiðin sé ekki síst vegna þess að þeir nái engu sambandi við talsmenn flugfélagsins þrátt fyrir ítrekaðar tilraunar. Þeir hafi þurft að bíða í þrjá klukkutíma í flugvélinni í 35 stiga hita meðan reynt var að gera við hana. Síðan hafi þeir fengið miða á hótel og verið vísað út úr flugstöðinni.

Þór segir að framkoma Icelandair í þeirra garð sé fyrir neðan allar hellur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×