Fleiri fréttir

Ásta Ragnheiður tók við áskorunum frá sjúkraflutningamönnum

Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn afhentu Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur, forseta Alþingis, undirskriftalista í dag til að hvetja alþingismenn til að styðja þingsályktunartillögu um ætlað samþykki við líffæragjafir. Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn koma iðulega fyrstir á slysstað og þekkja mikilvægi þess að taka ákvarðanir hratt og örugglega þegar mannslíf eru í húfi. Þeir telja að umrædd tillaga gæti flýtt fyrir ákvörðunum þegar bjarga þarf mannslífum, fjölgað líffæragjöfum verulega og stytt langa bið eftir líffærum.

Boðar til mótmæla gegn útgerðarmönnum

Boðað hefur verið til annarra mótmæla klukkan fjögur í dag. Það er Andri Sigurðsson hönnuður sem stendur fyrir mótmælunum en á Facebook, þar sem mótmælin eru auglýst, hafa um 700 manns boðað komu sína. Mótmælin fara því fram samhliða mótmælum útgerðarmanna og sjómanna.

Segir laun sjómanna geta lækkað

Guðmundur Kristjánsson, útgerðarmaður í Brimi, segir að ræða verði laun sjómanna upp á nýtt verði fiskveiðistjórnarfrumvörp stjórnvalda að veruleika. "Ef skip veiðir 10 fiska í dag þá taka sjómenn fjóra fiska og útgerð sex fiska. Ef ríkið ætlar að fara að taka marga fiska þá þarf að ræða skiptinguna upp á nýtt," segir Guðmundur og gefur þannig í skyn að laun sjómanna muni lækka.

Bað Jón afsökunar á ummælum um áfengisdrykkju

Björn Valur Gíslason bað Jón Gunnarsson, þingmann Sjálfstæðisflokksins, afsökunar í morgun á því að hafa sakað hann um að vera drukkinn í þingsal í nótt. Nokkurt uppnám varð í þingsal þegar Björn Valur bar honum það á brýn í nótt að vera undir áhrifum áfengis en Jón neitaði. "Dreg ég því þessi orð mín til baka og bið háttvirtan þingmann afsökunar á þessum orðum mínum,“ sagði Björn Valur.

Æfa viðbrögð við bruna um borð í hvalaskoðunarskipi

Almannavarnanefnd Þingeyinga og embætti Lögreglustjórans á Húsavík standa fyrir sjóslysaæfingu á Skjálfanda og á Húsavík laugardaginn 9. júní nk. í samstarfi við almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og Landhelgisgæsluna.

Kona á áttræðisaldri ók bíl á öfugan vegarhelming

Kona á áttræðisaldri lenti í verulegum vandræðum í umferðinni í gær en hún ók bíl sínum á öfugum vegarhelmingi á Hafnarfjarðarvegi. Vegfarandi kom konunni til aðstoðar og hringdi í lögregluna. Laganna verðir fóru strax á vettvang og hjálpuðu konunni að snúa bílnum við. Til öryggis var henni síðan fylgt á fyrirhugaðan áfangastað og gekk það áfallalaust. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni var konan allsgáð en hún hafði óvart tekið "ranga beygju" með fyrrgreindum afleiðingum.

Valtari á topplista víða um heim

Nýjasta stúdíó plata Sigur Rósar, Valtari, kom út á mánudag. Platan náði strax 1. sæti á íslenska listanum. Platan hefur einnig hlotið góðar viðtökur erlendis. Samkvæmt upplýsingum frá útgefandanum hér á landi, Smekkleysu, hefur hljómsveitin náð sínum besta árangri hingað til á sölulistum í eftirtöldum löndum:

Framsóknarmenn um borð í Fjölni frá Grindavík

„Það er þungt í þeim hljóðið," sagði þingflokksformaður Framsóknarflokksins sem er nú um borð í línubátnum Fjölni SU frá Grindavík ásamt flokkbróður sínum Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanns Framsóknarflokksins.

Ungmenni tóku út refsinguna með því að hreinsa rusl

Það er óhætt að segja að sveitastjórn Svalbarðarstrandshrepps séu ekki refsiglöð stjórn. Þannig var það sveitarstjórinn sjálfur, Jón Hrói Finnsson, sem kallaði á lögregluna aðfaranótt síðasta laugardags, eftir að þrjú ungmenni brutust inn í sundlaugina á Svalbarðseyri. Í frétt vikublaðsins Akureyri kemur fram að lögreglan hafi handtekið ungmennin eftir dálítið uppþot.

Vill peysurnar heim

Lagalega séð skiptir engu máli hvar íslenskar lopapeysur eru framleiddar, bara ef merkingarnar eru réttar og ekki villandi. Ásmundur Einar Daðason telur mikilvægt að íslenskar lopapeysur verði framleiddar á Íslandi.

Pappírstunna fyrir Mosfellinga

Mosfellingar fá nú bláa pappírsruslatunnu við hvert heimili. Framvegis munu íbúar hafa tvær tunnur við heimili sín. Bláa tunnan er fyrir allan pappírsúrgang, s.s. dagblöð, tímarit, fernur o.fl. Fyrsta blátunnan var afhent í byrjun vikunnar. Markmiðið er að auka þjónustu við íbúa, auka endurvinnslu og draga úr úrgangi sem fer til urðunar.

Dómur í Exeter kveðinn upp í dag

Dómur verður kveðinn upp í Exetermálinu svokallaða í dag. Um er að ræða fyrsta málið sem sérstakur saksóknari ákærði í. Í málinu voru þeir Ragnar Z. Guðjónsson, fyrrverandi forstjóri Byrs, Jón Þorsteinn Jónsson, fyrrverandi stjórnarformaður bankans, og Styrmir Bragason, fyrrverandi forstjóri MP banka, sakaðir um umboðssvik.

Líklega strandveiðarnar sem gera kerfið ásættanlegt

Össur Skarphéðinsson telur að reglur um strandveiðar hafi leitt til þess að Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna segir nú fiskveiðistjórnunarkerfi Íslendinga ásættanlegt og hefur lokað málinu.

Ólafur Ragnar segist víst styðja réttindabaráttu samkynhneigðra

"Fyrir tveimur vikum var áróðurinn að ég væri á móti konum. Síðustu daga hefur áróðurinn verið að ég væri á móti Samkynhneigðum,“ skrifar Ólafur Ragnar Grímsson forseti á Facebook-síðu sína, og svarar þar því sem hann kýs að kalla áróður vefritsins Smugunnar. Þar var því haldið fram í gær að forsetinn hefði virt réttindabaráttu samkynhneigðra að vettugi. Meðal annars var vitna í stöðufærslu Hrafnkels Tjörva Stefánssonar, sem um árabil var framkvæmdastjóri Samtakanna '78, á Facebook, þar sem hann skrifaði:

Ráðuneytisstjóri stýrir makrílviðræðum

Sjávarútvegsráðherra hefur falið Sigurgeir Þorgeirssyni ráðuneytisstjóra í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu að leiða viðræðunefnd Íslands um skiptingu makrílstofnsins. Að viðræðunum koma auk Íslands hin strandríkin Færeyjar, Noregur, Evrópusambandið og Rússland sem veiðir sinn makríl á úthafinu. Viðræðunefndina munu einnig skipa fulltrúar frá utanríkisráðuneytinu, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu og frá útvegsmönnum, auk þess sem sérfræðingar frá Hafrannsóknarstofnuninni verða til ráðgjafar. Tómas Heiðar fór áður fyrir samninganefnd Íslands, en hann var kallaður til annarra starfa fyrir utanríkisráðuneytið.

Vill eftirlit eftir afplánun

Ögmundur Jónasson segir í aðsendri grein til DV að eftirlit með dæmdum mönnum geti verið nauðsynlegt eftir afplánun. Hann stefnir á að leggja fram frumvarp um málið á haustþingi.

Björn Valur sakaði þingmann um að vera drukkinn í þingsal

Björn Valur Gíslason, þingflokksformaður VG, sakaði samþingmann sinn um að vera undir áhrifum áfengis í þingsal þegar þingfundur stóð yfir rétt eftir klukkan eitt í nótt. Verið var að ræða frumvarp um veiðigjöld. "Sýnist mér einn þeirra þingmanna sem hér fer mikinn í þingsal í kvöld vera undir áhrifum áfengis og myndi vilja að forseti þingsins kannaði það frekar,“ sagði Björn Valur. Jón Gunnarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins fullyrti þá að Björn Valur hefði átt vð sig.

Neyðaraðstoð Íslendinga í Gambíu

Rauði krossinn á Íslandi hefur nú í júní dreifingu á matvælum og útsæði til þeirra 50.000 manna sem verst þjást af matarskorti í Gambíu, einu fátækasta ríki heims. Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í landinu í kjölfar meiriháttar uppskerubrests. Uppskerubrestur og matvælaskortur í líkingu við ástandið nú hefur ekki verið í Gambíu í um 15 ár. Síðasta hrísgrjónauppskera, aðalfæða landsmanna, hrundi um nær 80% og aðaltekjulindin, jarðhneturækt, um nær 70%.

Þriðjungur of feitur í Fellaskóla

Mikill munur er á fjölda barna í ofþyngd eftir hverfum á höfuðborgarsvæðinu, samkvæmt könnun sem gerð var fyrir nokkrum árum á sextán þúsund börnum á grunnskólaaldri. Þetta kom fram í þætti Ingu Lindar Karlsdóttur, Stóru þjóðinni, á Stöð 2 í gærkvöldi.

Fundu sprautur í nágrenni leikskóla

Notaðar sprautunálar fundust við göngustíg í Hafnarfirði í gær. Í næsta nágrenni við fundarstaðinn eru leikskólinn Arnarberg, Iðnskólinn í Hafnarfirði og íþróttamiðstöðin Björk.

Fjárveitingar duga ekki fyrir viðhaldi

Bjarni Stefánsson hjá Vegagerðinni segir fjárveitingar í endurnýjun vegakerfisins ekki nægilegar til að sinna brýnum verkefnum. Vegagerðin eyðir rúmlega 600 milljónum í endurnýjun vega. Reykjavíkurborg eyðir 300 milljónum í götur.

Kvótafrumvarp gæti eyðilagt fiskmarkaðina

Samtök fiskframleiðenda og útflytjenda, sem sækja hráefni sitt að verulegu leiti á fiskmarkaði, óttast að ef frumvarp ríkisstjórnarinnar um stjórn fiskveiða verði að lögum, muni fiskmarkaðir leggist af.

Falun Gong í Kongens Have

Forseti Kína, Hu Jintao, mun heimsækja Danmörku í næstu viku. Meðlimir Falun Gong eru nú þegar byrjaðir að skipuleggja mótmæli í Kaupmannahöfn, nánar tiltekið í Kongens Have. Frá þessu er greint á vef danska dagblaðsins Politiken.

Ferðamönnum fjölgar áfram

Ríflega 45 þúsund ferðamenn fóru frá Íslandi um Leifsstöð í maímánuði, um átta þúsundum fleiri en í maí 2011 sem þó var metmánuður. Samkvæmt tölum Ferðamálastofu hefur ferðamönnum um Leifsstöð fjölgað um 20,7 prósent frá áramótum miðað við sama tíma í fyrra.

Segja fleiri dæmi um leyndarhjúp

Fulltrúar Sjálfstæðisflokks í minnihluta borgarstjórnar vilja að stjórn Orkuveitu Reykjavíkur (OR) geri opinberar fjárhæðir allra fjárfestinga, fjárframlaga og lána fyrirtækisins til Gagnaveitu Reykjavíkur ehf. og Línu.nets hf. Bókun þar að lútandi var lögð fram á síðasta fundi borgarstjórnar.

Cothran á batavegi

Keith Cothran, sem lék með Stjörnunni í körfuknattleik í vetur, er á batavegi eftir að hafa verið skotinn í höfuðið í síðustu viku. Hann er nú farinn að standa upp úr rúmi sínu og gengur um á spítalanum sem hann dvelur á. Læknar eru vongóðir um að hann nái sér að fullu.

Vill gefa forsetaframbjóðendum frið

Í tæpa hálfa öld hefur Alþingi ávallt lokið störfum að minnsta kosti fjórum vikum fyrir forsetakosningar og stundum mun fyrr. Í dag eru hinsvegar tuttugu og fjórir dagar í forsetakjör og ekkert útlit fyrir að þingmenn komist að samkomulagi.

Hefur hótað lögmanninum áður

Tveir menn réðust inn á lögmannsskrifstofu við Lækjartorg í dag og veittust að eiganda hennar. Ofbeldismennirnir höfðu áður haft í hótunum við starfsfólkið.

Dani og Finnar skipta með sér 103 milljónum

Enginn Íslendingur var með 1. vinning í Víkingalottóinu í kvöld heldur skipta tveir Finnar og einn dani með sér um 103 milljónum króna. Einn Íslendingur var þó með fimm jókertölur í réttri röð og fær hann tvær milljónir í sinn hlut. Fimm voru með fjórar í réttri röð og fá þeir 100 þúsund krónur.

Guðbjartur deilir áhyggjum af svartri atvinnustarfsemi

Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra, deilir áhyggjum vinnumálastofnunar af svartri atvinnustarfsemi. Hann tekur undir athugasemdir Vinnumálastofnunar um að efla beri eftirlit og endurskoða löggjöf og segist munu fylgja þeim tillögum eftir.

Mæðgin tekin fyrir framleiðslu fíkniefna

Kona á sextugsaldri hefur viðurkennt að hafa staðið að framleiðslu og sölu fíkniefna. Hún játaði sök við yfirheyrslu eftir að lögreglan hafði stöðvað kannabisræktun á heimili hennar í vesturbæ Reykjavíkur í síðustu viku en þar var einnig að finna talsvert af tilbúnu marijúana. Sonur konunnar var einnig yfirheyrður í þágu rannsóknarinnar en hann mun hafa komið að sölu fíkniefnanna. Konan, sem upplýsti að kannabisræktunin hefði staðið yfir í nokkurn tíma, var mjög ósátt með afskipti lögreglu og taldi að laganna verðir ættu frekar að einbeita sér að þeim sem væru stórtækir við framleiðslu og sölu fíkniefna. Sjálf væri hún ekki í þeim hópi.

Sjá næstu 50 fréttir