Vill peysurnar heim 7. júní 2012 11:00 Ásmundur Einar Daðason
Lagalega séð skiptir engu máli hvar íslenskar lopapeysur eru framleiddar, bara ef merkingarnar eru réttar og ekki villandi. Ásmundur Einar Daðason telur mikilvægt að íslenskar lopapeysur verði framleiddar á Íslandi. Íslenskum framleiðendum í textílgeiranum, sem láta framleiða vörur sínar erlendis, er ekki skylt að láta merkja vörur sínar með upprunalandi. Þórunn Anna Árnadóttir, sviðsstjóri neytendaréttarsviðs hjá Neytendastofu, segir hins vegar mikilvægt að þær upplýsingar sem fylgi vörunum séu réttar. Villandi merkingar varði við lög. „Það gildir almennt um vörur, hvort sem það er textíll eða eitthvað annað, að ef fólki er talin trú um að varan sé framleidd annars staðar, getur verið um villandi viðskiptahætti að ræða.“ Í kjölfar frétta Fréttablaðsins um merkingar á íslenskum lopapeysum, ætlar Neytendastofa að skoða merkingar á peysunum og í framhaldi ákveða hvort málið verði tekið til frekari meðferðar. Ásmundur Einar Daðason, þingmaður Framsóknarflokksins, segir mikilvægt að íslenskar lopapeysur séu framleiddar hérlendis. „Íslenska lopapeysan á náttúrulega að vera framleidd á Íslandi. Menn eiga ekki að vera að fara í kringum þetta og reyna með óljósri markaðssetningu að auglýsa íslenska vöru sem ekki er framleidd á Íslandi.“ Ásmundur segist ætla að kanna málið frekar. „Ég er að láta skoða þetta með lögfræðingum þingsins og vil athuga hvort það sé með einhverjum hætti hægt að skerpa á reglunum í kringum þetta,“ segir Ásmundur. Ásmundur er ósáttur við að lopapeysurnar séu framleiddar erlendis. „Íslenska lopapeysan er eitt helsta auglýsingamerki okkar Íslendinga. Þetta er íslensk hönnun, framleidd á Íslandi með aldagamla íslenska sögu og gerð af íslenskum konum til bæja og sveita.“ „Mér finnst það miður að menn skuli vera komnir á þá braut að vera að láta framleiða þetta í Kína og skuli þar með hverfa frá þeirri hugsun sem hefur verið á bak við þetta síðustu áratugi,“ segir Ásmundur. katrin@frettabladid.is
Mest lesið Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent „Mér finnst það alvarlegt“ Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis Innlent Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Innlent Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Innlent Fleiri fréttir Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Sjá meira