Fleiri fréttir

Útreikningar gengislána í uppnámi

Útreikningar á tugum þúsunda ólöglegra gengislána eru í uppnámi eftir að Hæstiréttur dæmdi nú síðdegis að óheimilt hafi verið að reikna seðlabankavexti afturvirkt á lán hjóna hjá Frjálsa fjárfestingarbankanum. Mikill sigur, segir Formaður hagsmunasamtaka heimilanna sem ásamt talsmanni neytenda furðar sig á klúðri alþingis við lagasetningu um endurútreikninga.

Álver á Bakka aftur til skoðunar

Álver á Bakka er aftur komið til skoðunar og hefur Landsvirkjun hafið viðræður við svissneskt fyrirtæki sem vill reisa 180 þúsund tonna álver við Húsavík. Ráðamenn fyrirtækisins flugu til Norðurlands í gær á einkaþotu til að skoða aðstæður.

Viðbrögð við dómi Hæstaréttar

Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis fundaði nú klukkan fimm vegna niðurstöðu Hæstaréttar. Á fundinn voru kallaðir fulltrúar Seðlabanka, Fjármálaeftirlitsins og Efnahags- og viðskiptaráðuneytisins en Helgi Hjörvar formaður nefndarinnar hafði fyrir mánuði síðan óskað eftir að þessar stofnanir myndu reikna út áhrif þess að dómurinn félli á þennan veg.

"Dómurinn kom á óvart"

Steingrímur J. Sigfússon, atvinnuvegaráðherra, sagði að dómur hæstaréttar hafi komið sér á óvart.

"Við viljum auka flæði bíla í borginni"

Karl Sigurðsson, formaður Umhverfis- og samgönguráðs Reykjavíkur, var gestur í útvarpsþættinum Reykjavík síðdegis í dag. Hann var spurður út í áætlaðar hækkanir á stöðumælagjaldi.

Vigdís vill ríkisstjórnina burt

"Lagasetningin fór gegn lögum og stjórnarskrá og ríkisstjórnin hefur í enn eitt skiptið fengið dóm hæstaréttar yfir sig,“ sagði Vigdís Hauksdóttir, þingkona Framsóknarflokksins, í útvarpsþættinum Reykjavík síðdegis í dag.

DV: Ásakanir Bjarna alvarlegar

Ritstjórar DV segir að ásakanir Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, um að blaðið væri að ganga erinda Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs, séu alvarlegar og vega að trúverðugleika blaðsins. DV hefur fjallað ítarlega um aðkomu Bjarna að lánveitingum Milestone og Glitnis, auk sölu hans á hlutabréfum í Glitni árið 2008. Blaðið segir að umfjöllunin byggi á fjölda staðreynda og gagna.

"Nú þarf að reikna allt upp á nýtt“

Guðmundur Andri Skúlason hjá samtökum lánþega segir að nýfallinn dómur Hæstaréttar sé gríðarlegt fagnaðarefni en fjölskipaður dómur komst að þeirri niðurstöðu í dag að samningsvextir skuli gilda á erlendum lánum, en ekki vextir Seðlabankans eins og áður hafði verið ákveðið.

Vítisenglar áfram í varðhaldi

Héraðsdómur Reykjaness framlengdi í dag gæsluvarðhald yfir fjórum einstaklingum sem grunaðir eru um alvarlega líkamsárás í Hafnarfirði 22. desember síðastliðinn. Þá var ráðist á konu í Vallahverfi og gengið í skrokk á henni. Hún var flutt alvarlega slösuð á slysadeild en hún mun hafa verið meðvitundarlaus þegar að henni var komið.

Nöfn þeirra sem sátu í dómnefndinni

"Niðurstaðan var að fá samþykki hjá öllum þeim sem sátu í dómnefndinni," segir Páll Magnússon, útvarpsstjóri. Ákveðið hefur verið að birta nöfn þeirra sjö aðila sem sátu í dómnefndinni í Söngvakeppni Sjónvarpsins á laugardaginn síðastliðinn.

Gréta Salóme: Þvæla að lagið sé stolið

"Ég var tólf ára þegar þetta lag var samið og ég var að heyra það í fyrsta skiptið núna,“ segir Gréta Salóme Stefánsdóttir, höfundur og annar flytjandi lagsins Mundu eftir mér, sem sigraði Söngvakeppni Sjónvarpsins á laugardaginn. Aðstandendur vefsíðunnar Nýtónlist.net halda því fram að lagið sé sláandi líkt laginu Álfakóngurinn, sem kom út árið 1998. Höfundur lagsins segir lögin ekki lík.

Keflavíkurflugvöllur veitti bestu þjónustuna

Keflavíkurflugvöllur veitti besta þjónustu evrópskra flugvalla með undir 2 milljónum farþega á ári að mati þátttakenda í könnun alþjóðasamtaka flugvalla, Airports Council International. Í tilkynningu frá Isavia segir að flugvöllurinn hafi raunar fengið flest heildarstig allra evrópskra flugvalla líkt og árið 2009 en taldist nú í nýjum flokki smærri flugvalla sem ekki koma til álita í fyrsta sæti allra flugvalla.

Tæplega 300 létust í fangelsisbruna

Að minnsta kosti 272 eru látnir eftir stórbruna í fangelsi í Hondúras. Sumir fanganna náðu að bjarga sér með því að rjúfa gat á þak fangelsins og stökkva af þakinu. Tugir fanga voru hinsvegar lokaðir inni í klefum sínum og áttu sér því enga undankomu auðið.

Felldu niður fasteignagjöld á eldri borgara

Bæjarráð Vestmannaeyja ákvað á fundi sínum í gær að fella niður fasteignagjöld á Vestmannaeyinga sem náð hafa 70 ára aldri. Í fundargerð bæjarráðs segir að þetta sér gert vegna sterks reksturs bæjarsjóðs á síðasta ári sem hafi búið til aukið svigrúm til að lækka álögur á eldri borgara með það fyrir augum að gera þeim kleift að búa sem lengst í eigin húsnæði. Í fundargerðinni er tekið fram að þetta nái einungis til þeirrar íbúðar sem viðkomandi býr í og gildir þegar annað hjóna eða sambúðaraðili hefur náð 70 ára aldri.

Ræktaði kannabis í blokk

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í fjölbýlishúsi í Garðabæ í fyrradag. Eftir húsleit var lagt hald á 20 kannabisplöntur og nokkra tugi gramma af marijúana. Karl á þrítugsaldri var yfirheyrður í þágu rannsóknarinnar og játaði hann aðild sína að málinu.

Reynt að bjarga kísilveri í Helguvík

Stefnt er að því að drög að breyttum orkusamningi við Íslenska kísilfélagið verði lögð fyrir stjórnarfund Landsvirkjunar á föstudag í því skyni að bjarga verkefninu, en lokafrestur, sem Landsvirkjun veitti bandarískum fjárfestum, rennur út í dag.

Sakargiftir voru fyrndar

Ástæða þess að Sigríður J. Friðjónsdóttir ákvað að fella niður sakamál gegn lögreglunni eftir að hún fór með myndatökumenn Kastljóss í húsleit í heimahúsi á höfuðborgarsvæðinu var fyrning sakargiftanna. Sigríður segir að Vilhjálmi H. Vilhjálmssyni hæstaréttarlögmanni hefði átt að vera þetta ljóst hefði hann lesið bréf ríkissaksóknara frá 27. janúar síðastliðinn.

Lömdu mann með felgulykli í höfuðið

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í morgun tvo menn á þrítugsaldri í 12 mánaða fangelsi fyrir alvarlega árás á annan mann á bensínstöð Olís við Skúlagötu í Reykjavík í júlí 2009. Níu mánuðir af dómnum eru skilorðsbundnir.

Vilja hækka stöðumælagjaldið

Til stendur að hækka stöðumælagjaldið í miðborg Reykjavíkur og lengja gjaldskyldan tíma. Umhverfis- og samgönguráð Reykjavíkurborgar samþykkti í gær að beina þessum tillögum til borgarráðs.

Milljónir barna munu líða fyrir vannæringu

Áætla má að 450 milljónir barna í heiminum muni líða fyrir líkamlegan og andlegan vanþroska af völdum vannæringar á næstu 15 árum fari stjórnvöld ríkja í heiminum ekki að standa við skuldbindingar sínar um að sporna við matvælakreppu. Þetta eru niðurstöður skýrslu Barnaheilla - Save the Children sem kynnt verður í dag.

Tveir þriðju til útlanda í fyrra

FerðamálUm níu af hverjum tíu Íslendingum ferðuðust innanlands í fyrra, samkvæmt könnun sem MMR vann fyrir Ferðamálastofu. Hlutfallið er svipað og síðustu ár.

Læknafélagið snýr út úr ummælum

Þorbjörn Jónsson, formaður Læknafélags Íslands (LÍ), snýr út úr ummælum staðgengils skattrannsóknarstjóra ríkisins, Gunnars Thorberg, í bréfi til embættisins á föstudaginn. Þetta er mat Bryndísar Kristjánsdóttur skattrannsóknarstjóra sem greint var frá í fréttum Bylgjunnar í gær.

Smáralind heimtar turn upp eða niður

Eigendur Smáralindar vilja að Kópavogsbær þvingi kröfuhafa Norðurturnsins til að ljúka við að reisa turninn eða rífa hann. Þrotabú turnsins telur Smáralind hins vegar skulda því 1,3 milljarða króna. Lausn virðist ekki í augsýn á næstunni.

Auðlindasjóður og nýting í 25 til 30 ár

Stofna á auðlindasjóð og leigja orkuauðlindir í 25 til 30 ár samkvæmt orkustefnu Íslands. Auka á vægi endurnýjanlegra orkugjafa. Flutt var inn jarðefnaeldsneyti fyrir 44 milljarða 2010. Gæti hækkað raforkuverð til almennings.

Knýja á um fullvinnslu hérlendis

Brýnt er að knýja á um frekari fullvinnslu afla hér á landi, að því er fram kemur í tilkynningu Samtaka fiskframleiðenda og útflytjenda (SFÚ). Skorað er á Steingrím J. Sigfússon sjávarútvegsráðherra að beita sér fyrir því að aðgerðir úr samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnarflokkanna til að knýja á um frekari fullvinnslu komist til framkvæmda.

Jónas H. Haralz látinn

Jónas Halldór Haralz, hagfræðingur og fyrrverandi bankastjóri, er látinn á 93. aldursári. Hann fæddist í Reykjavík 6. október árið 1919.

Atvinnuleysi minnkaði lítillega í janúar

Atvinnuleysi mældist 7,2 prósent í janúar og lækkaði um 0,1 prósentustig frá því í desember. Þetta kemur fram í nýjum tölum Vinnumálastofnunar um ástand á vinnumarkaði.

„Maðurinn haldi sig til hlés á þessum helga stað“

„Tillagan snýst um lágmarks rask í gjánni og hefur það sjónarmið að maðurinn skuli halda sig til hlés á þessum helgum stað,“ segir í tillögu Studio Granda og verkfræðistofunnar Eflu sem fékk fyrstu verðlaun í samkeppni Þingvallanefndar um gönguleið niður í Almannagjá eftir að sprunga opnaðist þar óvænt í fyrra.

3.400 hafa sótt um 1.009 dýr

Um 3.400 umsóknir um leyfi til hreindýraveiða höfðu borist til Umhverfisstofnunar í gær. Umsóknarfrestur um hreindýraveiðileyfi rennur út í dag. Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfrestur rennur út komast ekki í pottinn.

Lífsánægja samkynhneigðra unglinga er margfalt minni

Samkynhneigðir unglingar eru mun líklegri til að hugsa um sjálfsvíg en gagnkynhneigðir jafnaldrar þeirra. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn. Prófessor gagnrýnir bloggskrif grunnskólakennara á Akureyri.

Lánin 23 milljörðum hærri

Skattahækkanir ríkisstjórnarinnar og gjaldbreytingar hafa hækkað verðtryggð lán íslenskra heimila um 23 milljarða króna frá 1. febrúar 2009 til 1. janúar 2012. Þetta kemur fram í svari efnahags- og viðskiptaráðherra við fyrirspurn Margrétar Tryggvadóttur, þingmanns Hreyfingarinnar.

Þjórsá verði tær stangveiðiperla

Orri Vigfússon, formaður NASF, verndarsjóðs villtra laxastofna, varpar fram þeirri hugmynd hvort gerlegt sé að draga úr framburði í Þjórsá og breyta ánni í veiðiparadís. Fyrsta skrefið að mati Orra er alltaf að kalla saman hóp sérfræðinga til að rannsaka vatnasvæðið með þessa hugmynd bak við eyrað.

Þúsundir spila golf á ferðalagi

Könnun Ferðamálastofu meðal innlendra ferðamanna sýnir að 12,7% keyptu sér golfhring á ferðalagi um Ísland. Sama könnun sýnir að 90% Íslendinga 18 ára og eldri ferðuðust um landið og því má ætla að 27 þúsund Íslendingar hafi farið í golf á ferðalagi um landið.

Ármann kjörinn bæjarstjóri Kópavogs

Ármann Kr. Ólafsson hefur nú formlega tekið við bæjarstjórastólnum í Kópavogi. Hann var kjörinn á fundi bæjarstjórnar í Kópavogi í kvöld.

Sakar ríkissaksóknara um að hvítþvo lögreglu

Hæstaréttarlögmaður sakar ríkissaksóknara um að hvítþvo lögreglu ítrekað og fella niður mál um meint brot hennar í starfi. Öfugt við ríkissaksóknara, komst Héraðsdómur að þeirri niðurstöðu í dag að lögregla hefði brotið lög þegar hún hleypti myndatökumanni Kastljóss inn á einkaheimili við húsleit. Húsráðendum voru dæmdar skaðabætur.

Árni kom Snorra til varnar

Árni Johnsen varði málfrelsið á Alþingi í dag og sagði skólayfirvöld í Brekkuskóla ráðast á Snorra Óskarsson með ofbeldi. Hann telur málið lykta af pólitík og komi samkynhneigð ekkert við.

Hundaeigandi sakaður um stórkostlegt gáleysi

Hundaeigandi hefur verið ákærður fyrir að hafa sýnt af sér stórkostlegt gáleysi með þeim afleiðingum að sautján hundar í hans umsjá réðust á og stórslösuðu konu, sem telur óvíst hvort hún jafni sig nokkurn tímann eftir lífsreynsluna.

Barnshafandi konur láta fjarlægja PIP-sílíkonpúða

Þrjár barnshafandi konur eru á leið í aðgerð til að láta fjarlægja PIP-sílíkonpúða. Reynt verður að staðdeyfa konurnar þar sem þungaðar konur eru ekki svæfðar nema brýna nauðsyn beri til.

Sjá næstu 50 fréttir