Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Umfangsmikið vandamál Slysa- og ofbeldisdauði hefur aukist hér á landi. Hann er margfalt algengari hjá körlum en konum en hefur engu að síður aukist hjá konum og í aldurshópnum 67 ára og eldri. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í niðurstöðum rannsóknar hjúkrunarfræðingsins Kristínar Bergsdóttur. 14.2.2012 17:00
Nýr meirihluti tekur formlega við í Kópavogi Nú stendur yfir fundur í bæjarstjórn Kópavogs þar sem nýr meirihluti mun formlega taka við. Mikið hefur gengið á í bæjarfélaginu síðustu vikur eftir að meirihluti Samfylkingarinnar, VG, Lista Kópavogsbúa og Næstbesta flokksins sprakk með hvelli. Að lokum náðu Sjálfstæðismenn samkomulagi við Lista Kópavogsbúa og Framsóknarflokk um myndun meirihluta. 14.2.2012 16:30
Finnskur fræðingur segir ekki um Lagarfljótsorminn að ræða Myndbandið af Lagarfljótsorminum sem farið hefur eins og eldur í sinu um Netheima er enn í umræðunni. Blaðamenn Discovery News virðast fullvissir um að ekki sé um orminn fræga að ræða. Þeir byrja á því að útlista að ekki geti verið um snák að ræða, því vatnið sé allt of kalt fyrir þá. Þá segja þeir að þótt fyrirbærið virðist synda gegn straumnum í myndbandinu þá geti verið um sjónvillu að ræða. Máli sínu til halds og trausts hefur vefsíðan samband við finnska konu sem sérhæfir sig í því að afhjúpa mál af þessu tagi. 14.2.2012 15:57
Með marijúana í kvennafangelsinu í Kópavogi Tuttugu og tveggja ára kona var í dag dæmd í átta mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir fíkniefnalagabrot, þjófnað, fjársvik og umferðarlagabrot. Konan á nokkurn afbrotaferil að baki en á meðal þess sem hún var dæmd fyrir var að hafa marijúana í herbergi sínu í kvennafangelsinu í Kópavogi. Þá stal hún einnig ilmvatni úr apóteki, sveik út vörur fyrir rúmlega 120 þúsund krónur hjá N1, í félagi við annan mann, og keyrði bíl undir áhrifum fíkniefna. Konan játaði brot sín í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun en hún var einnig svip ökuréttindum í tvö ár. 14.2.2012 15:49
Telja villandi að fjalla um kynhneigð níðingsins Það er varhugavert að einblína á kynhneigð mannsins sem dæmdur var í síðustu viku fyrir kynferðismök við barn, segir í yfirlýsingu frá Samtökunum ´78. Maðurinn mun hafa greitt barninu, að minnsta kosti einu sinni, fyrir mök. 14.2.2012 15:30
Orkustefna fyrir Ísland lögð fram Oddný G Harðardóttir, iðnaðarráðherra lagði í dag fram á Alþingi skýrslu um heildstæða Orkustefnu fyrir Ísland en í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá því í maí 2009 er kveðið á um að mótuð verði stefna þar um. Í tilkynningu frá iðnaðarráðuneyti segir að orkustefnunni sé ætlað að vera grundvöllur og viðmið ákvarðana er varða orkumál og skulu ákvarðanir stjórnvalda jafnan vera í sem bestu samræmi við stefnuna. 14.2.2012 14:57
Forvirkar rannsóknarheimildir yrðu einskorðaðar við alvarlegustu brotin Persónuvernd telur að gæta þurfi ítrustu varfærni þegar metið verður hvort lögfesta eigi heimildir um forvirkar rannsóknarheimildir. Beiting slíkra heimilda myndi fela í sér viðamikla skerðingu á friðhelgi einkalífsins. Þetta kemur fram í umsögn Persónuverndar til allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis um þingsályktunartillögu um forvirkar rannsóknarheimildir. 14.2.2012 14:55
Tugir athugasemda gerðar við ástand mannréttinda á Íslandi Tugir athugasemda voru gerðar við ástand mannréttindamála á Íslandi í reglubundinni yfirferð Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna en skýrsla þess efnis var birt í gær. "Þótt mörg ríki lykju lofsorði á stöðu mannréttinda og þá ekki síst í jafnréttismálum, lýstu mörg aðildarríki áhyggjum yfir ástandi fangelsismála, vægum dómum og fáum kærum í kynferðisafbrotamálum, kynbundnu launamisrétti, trúfrelsismálum og seinagangi við að staðfesta alþjóðlega mannréttindasáttmála,“ segir í frétt á heimasíðu upplýsingaskrifstofu SÞ. 14.2.2012 14:25
Vill láta rassskella Steingrím "Ég held að þingforseti ætti að setja hæstvirtan formann VG á kné sér og rasskella hann,“ sagði Gunnar Bragi Sveinsson, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, á Alþingi í dag. 14.2.2012 14:07
Þorsteinn Guðmundsson leitar að konum Leikarinn góðkunni Þorsteinn Guðmundsson er nú í óða önn að undirbúa kynningarátak Krabbameinsfélagsins, Mottumars. Til stendur að framleiða nýjar auglýsingar þar sem hann verður í hlutverki vinalega mannsins undir teppinu sem hvetur íslenska karlmenn til að læra að þekkja einkenni krabbameins og alla þjóðina til að heita á þá. 14.2.2012 13:10
Tekur ekki ábyrgð á "klaufalegum misskilningi“ Hjálmars Bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Kópavogi segist ekki taka ábyrgð á því sem hann kallar klaufalegan misskilning bæjarfulltrúa Næstbestaflokksins sem leiddi til þess að meirihlutinn riðaði til falls. 14.2.2012 12:35
Kannast ekki við að kennurum hafi verið sagt upp vegna trúarskoðana Formaður Félags grunnskólakennara kannast ekki við að kennurum hafi verið sagt upp störfum vegna trúarskoðana. Menntamálaráðherra telur ekki rétt að takmarka málfrelsi kennara með lagasetningu. 14.2.2012 12:15
Stefna að kosningum um stjórnarskrárfrumvarp í sumar Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis vill að kosið verði um tillögur stjórnlagaráðs samhliða forsetakosningum í sumar. Valgerður Bjarnadóttir, formaður nefndarinnar, lagði tillögu þessa efnis fram á nefndarfundi í morgun og samþykkti meirihluti nefndarinnar það. 14.2.2012 12:14
Gerir ekki athugasemdir við setu Benedikts í dómnum Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari hefur ekki gert athugasemdir við setu Benedikts Bogasonar í Hæstarétti í máli ákæruvaldsins gegn Baldri Guðlaugssyni fyrrverandi ráðuneytisstjóra. Þetta segir Sigríður í skriflegu svari við fyrirspurn Vísis. Benedikt og Karl Axelsson, verjandi Baldurs, eru vinir og DV greindi frá því um daginn að þeir hefðu sést opinberlega saman eftir að málið gegn Baldri var dómtekið í Hæstarétti. 14.2.2012 11:17
ESB fær upplýsingar um íslenska PIP púða Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur verið gert viðvart um háá lekatíðni falsaðra PIP brjóstafyllinga hér á landi. Í tilkynningu frá velferðarráðuneyti segir að Lyfjastofnun hafi sent upplýsingarnar utan en búið er að ómskoða 105 konur hér á landi með slíkar fyllingar og hefur leki greinst í púðum hjá 71 konu eða um 68% þeirra sem hafa verið skoðaðar. 14.2.2012 10:42
Landsmönnum fjölgaði um 1123 Landsmönnum fjölgaði um 1123, eða um 0,4%, á síðasta ári. Samkvæmt tölum Hagstofunnar voru þeir rétt tæplega 320 þúsund þann 1. janúar síðastliðinn. Konum fjölgaði nokkuð meira en körlum á síðasta ári eða um 0,5% á móti 0,2%. 14.2.2012 09:14
Tæplega 90% Íslendinga ferðast innanlands Tæplega níu af hverjum tíu Íslendingum ferðuðust innanlands í fyrra, sem er svipað og árin á undan. Tæplega tveir þriðju aðspurðra ferðuðust til útlanda á árinu 2011, eða 63,3%, en var 56,3% í sambærilegri könnun fyrir ári síðan. 14.2.2012 08:50
Þjóðin fái að kjósa um stjórnarskrána Formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar vill að drög að nýrri stjórnarskrá verði borin undir þjóðina í sumar. Málið verður að klárast í mars eigi að kjósa samhliða forsetakosningum. Ekki í samræmi við yfirlýsingar varaformanna. 14.2.2012 08:00
Þingið mun fjalla um rammaáætlun Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra sagði að þingheimur muni fá færi til að fjalla um þingsályktunartillögu um rammaáætlun um vernd og nýtingu náttúrusvæða. Málið muni fá þinglega meðferð líkt og önnur. 14.2.2012 08:00
Virkni lyfs kemur í ljós mun fyrr en áður Íslenskur vísindamaður, doktor Kristinn B. Gylfason, er einn þriggja vísindamanna við Konunglega Tækniháskólann í Stokkhólmi, sem hlotið hafa 3,8 milljónir sænskra króna í styrk frá Sænska rannsóknaráðinu, jafngildi um 70 milljóna íslenskra króna, til þess að þróa nýja tækni við lyfjarannsóknir. Með nýju tækninni, svokallaðri míkró- og nanótækni, verður hægt að sjá hvernig hver einstök fruma bregst við lyfjagjöf, að sögn Kristins. 14.2.2012 08:00
Matís þróar vinnslu og veiðar í Tansaníu Starfsmenn Matís aðstoða íbúa við Tanganyika-vatn í Tansaníu við að nýta fiskmeti betur. Verkefnið er svar stofnunarinnar við niðurskurði í fjárveitingum. 14.2.2012 07:30
Semja um stofnun jarðvangs á Reykjanesi Sveitarfélögin Garður, Grindavíkurbær, Reykjanesbær, Sandgerðisbær og Sveitarfélagið Vogar hafa skrifað undir samkomulag um stofnun jarðvangs á Reykjanesi. 14.2.2012 07:30
Jón Þórarinsson tónskáld látinn Jón Þórarinsson tónskáld er látinn 94 ára að aldri. Hann var fæddur hinn 13. september 1917. 14.2.2012 07:30
Hæðnistónn Össurar dregur dilk á eftir sér Hæðnistónn Össurar Skarphéðinssonar utanríkisráðherra í garð Vigdísar Hauksdóttur þingmanns Framsóknarflokksins á Alþingi í gærdag dró dilk á eftir sér. 14.2.2012 07:28
Loðnufrysting hafin í Vestmannaeyjum Mjög góð loðnuveiði er nú við Hrollaugseyjar vestan við Höfn í Hornafirði og eru mörg skip að veiðum á litlu svæði alveg upp undir ströndinnni. 14.2.2012 07:04
Furða sig á vægum barnavændisdómi Lögfræðingur Barnaverndarstofu segir tólf mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm manns sem keypti vændi af fjórtán ára dreng vekja furðu. Mikið tillit er tekið til aðstæðna mannsins sem missti vinnuna og hefur leitað sér hjálpar. 14.2.2012 07:00
Dæla koltvísýringi ofan í jörðina Niðurdæling á koltvísýringi við Hellisheiðarvirkjun hófst í lok janúar. Hugmyndin er að þessi gróðurhúsalofttegund bindist basalti í hraunlögum neðanjarðar og varðveitist sem steintegund um alla framtíð. 14.2.2012 07:00
Steingrímur hóflega bjartsýnn á árangur í makrílviðræðum Steingrímur J. Sigfússon sjávarútvegsráðherra segist í viðtali við netsíðuna Fish-Update, vera hóflega bjartsýnn á viðunandi árangur af fundi strandríkja um makríl, sem hefst í Reykjavík í dag. 14.2.2012 06:48
Skyndibílar verða jafnvel komnir á göturnar í haust Bílaleigur, olíufélög og bílaumboð funduðu með fyrirtækjum sem hafa áhuga á að kaupa þjónustu skyndibíla. Aðstandendur verkefnisins segja viðbrögðin hafa verið jákvæð og bílaleigur segja verkefnið spennandi. 14.2.2012 06:30
Spurt um málfrelsi kennara Sigmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingarinnar, spurði Katrínu Jakobsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra, hvort setja ætti málfrelsi kennara skorður. Tilefni væri til að staldra við þegar grunnskólakennarar töluðu með þeim hætti að gæti verið særandi fyrir nemendur. 14.2.2012 06:30
Talinn ógna hagsmunum almennings Héraðsdómur Suðurnesja framlengdi á föstudag gæsluvarðhald yfir rúmlega tvítugum manni sem talinn er hafa veitt öðrum manni alvarlega áverka með hnífi í Kópavogi aðfaranótt 3. febrúar. 14.2.2012 06:30
Bjargaði lífi 17 ára dóttur sinnar Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir var aðeins 17 ára þegar hún fékk hjartastopp á heimili sínu fyrir rúmu ári, en þökk sé réttum viðbrögðum föður hennar, Gísla Arnar Gíslasonar, hélt hún lífi. Í Íslandi í dag í kvöld var talað við feðginin og sögðu þau frá því hvernig röð tilviljana varð til þess að Sigurbjörg er á lífi í dag. Einnig var átakanleg upptaka af því þegar móðir Sigurbjargar hringdi í Neyðarlínuna spiluð. 13.2.2012 21:30
Contraband efst á lista yfir vinsælustu myndir ársins Contraband, nýjasta kvikmynd leikstjórans Baltasars Kormáks, er vinsælasta mynd ársins. Alls hefur myndin halað inn rúmlega 73 milljón dollurum á heimsvísu eða tæplega 9 milljörðum íslenskra króna. 13.2.2012 19:54
Þór og Mjölnir slá í gegn í Kóreu Íslenska teiknimyndin Hetjur Valhallar - Þór var frumsýnd í Suður- Kóreu fyrir helgina og hafa móttökurnar verið "hreint út sagt æðislegar,“ að sögn aðstandenda. "Myndin varð vinsælasta erlenda myndin í kvikmyndahúsum Suður-Kóreu þessa helgina og sló út ekki slakari myndir en Star Wars í þrívídd, War Horse, Tinker Tailor Soldier Spy og Happy Feet 2.“ 13.2.2012 16:39
Steingrímur við Sigmund Davíð: Æ, þegiðu Það kastaðist í kekki milli Steingríms J. Sigfússonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, og stjórnarandstæðinga þegar Steingrímur var að stíga úr pontu í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi í dag. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, var að spyrja Steingrím út í afstöðu hans til Evrópumála og barst talið meðal annars að deilu Íslendinga við Evrópusambandið vegna makrílstofnsins. 13.2.2012 15:23
Tveir grunaðir um að hafa keypt vændi af 14 ára pilti Tveir fullorðnir karlmenn eru enn til rannsóknar vegna gruns um að hafa keypt vændi af fjórtán ára dreng. Þriðji maðurinn var fyrir helgina dæmdur fyrir að kaupa vændi af drengnum. Móðir piltsins telur þann dóm of vægan. 13.2.2012 18:48
Snorri ætlar að blogga og predika í leyfinu Snorri Óskarsson, grunnskólakennari á Akureyri, hefur verið sendur í hálfs árs launað leyfi vegna ummæla hans um samkynhneigð. Snorri ætlar að nýta leyfið til að predika. 13.2.2012 18:45
Sex þúsund sóttu um niðurfellingu skulda Heildarkostnaður Íbúðalánasjóðs vegna 110% leiðarinnar er um 7,4 milljarðar króna. Um sex þúsund umsóknir bárust um niðurfellingu á skuldum, sem er um þriðjungi minna en áætlað var í upphafi. Framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs segir vinnuna hafa gengið vel, en viðvarandi mikil verðbólga sé mikið áhyggjuefni. 13.2.2012 18:35
Kísilver í Helguvík í óvissu Áform um kísilver í Helguvík eru í uppnámi og gæti svo farið að samningum verði rift á næstu dögum og hætt við verkefnið. Ástæðan er krafa bandarískra fjárfesta um afslátt frá orkuverði. Til stóð að 150 manns fengju vinnu við smíði kísilversins, sem átti að hefjast í Helguvík í fyrrasumar. Það bólar hins vegar ekkert á framkvæmdum. 13.2.2012 18:20
Eldsneytisskattar hafa hækkað 100.000 kr á ári „Ég hef áhyggjur af því að þetta sé verða einhver lúxus að eiga bifreið." Þetta sagði Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í viðtali í Reykjavík síðdegis í dag. 13.2.2012 17:35
Snorri í leyfi vegna ummæla um samkynhneigða Snorri Óskarsson, kennari á Akureyri sem oftast er kenndur við Betel, hefur verið sendur í tímabundið leyfi frá störfum vegna ummæla sinna um samkynhneigða á bloggsíðu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Akureyrarbæ. 13.2.2012 16:43
Löggan stöðvaði 430 ökumenn - þrír voru ölvaðir Fjögur hundruð og þrjátíu ökumenn voru stöðvaðir í miðborginni í umferðareftirliti lögreglunnar um helgina. Að sögn lögreglu reyndust þrír ökumenn ölvaðir við stýrið og eiga þeir ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Fjórum til viðbótar var gert að hætta akstri sökum þess að þeir höfðu neytt áfengis en voru þó undir leyfilegum mörkum. Nokkra athygli vakti að ljósabúnaði allmargra ökutækja var ábótavant. 13.2.2012 16:35
Ólafur Elíasson vill bæta lífsgæði milljóna með sólarknúnum lampa Ólafur Elíasson segir listsköpun hafa sýnt sér hversu mikil áhrif hægt er að hafa á heiminn. Hann hefur nú stofnað fyrirtæki sem selur ódýrar sólarknúnar vörur til landa þar sem rafmagn er munaðarvara. 13.2.2012 16:00
Sara nýr formaður Stúdentaráðs Sara Sigurðardóttir var kjörin nýr formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands á skiptafundi ráðsins í dag og hefur hún nú tekið við störfum af Lilju Dögg Jónsdóttur, fráfarandi formanni. Sara er oddviti Vöku sem vann meirihluta í Stúdentaráði fyrr í þessum mánuði. Hún er nemi við stjórnmálafræðideild og stefnir á að útskrifast vorið 2013. 13.2.2012 15:34
Eignarhald á íslenskum fjölmiðlum tekið saman Hin nýstofnaða Fjölmiðlanefnd hefur nú birt lista yfir eignarhald á Íslenskum fjölmiðlum. Lögum samkvæmt þurfa fjölmiðlar sem ekki eru leyfisskyldir að skrá sig auk þess sem allir leyfisskyldir og skráðir fjölmiðlar eiga að veita fjölmiðlanefnd upplýsingar um eignarhald. 13.2.2012 15:30