Fleiri fréttir

Mokað um helgina og hverfastöðvar opnar

Hverfastöðvar og símaver Reykjavíkurborgar verða með vaktir yfir helgina milli kl. 10:30 - 15:00 bæði laugardag og sunnudag. Íbúar geta sótt sand og salt á hverfastöðvarnar og símaver veitir upplýsingar og tekur við ábendingum í síma 411 11 11. Þetta kemur fram í tilkynningu frá borginni.

Afturköllun málshöfðunar rædd á þingi

Tillaga Bjarna Benediktssonar formanns Sjálfstæðisflokksins þess efnis að Alþingi afturkalli málshöfðun á hendur Geir H. Haarde fyrrverandi forsætisráðherra fyrir Landsdómi verður tekin til fyrri umræðu í dag. Þingfundur hefst klukkan hálfellefu og er þetta eina málið á dagskrá. Hér á Vísi getur þú fylgst með í beinni.

Sigurður Árni í biskupsframboð

Dr. Sigurður Árni Þórðarson, Neskirkjuprestur, hefur ákveðið að bjóða sig fram til biskupsþjónustu. Í yfirlýsingu sem Sigurður sendi frá sér í dag segir að hann muni beita sér fyrir breytingum og eflingu þjóðkirkjunnar.

Kjarasamningarnir halda

Samtök atvinnulífsins og Alþýðusamband Íslands hafa ákveðið að nýta ekki uppsagnarákvæði kjarasamninga hinn 31. janúar næstkomandi. Þetta segir í yfirlýsingu þeirra beggja og segir þar að þetta hafi verið ákveðið „þrátt fyrir að stjórnvöld hafi ekki efnt fyrirheit sem gefin voru í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar í tengslum við kjarasamningana 5. maí 2011.“

Meirihlutaviðræður hafnar í Kópavogi

Viðræður eru hafnar milli bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Næst besta flokksins og Lista Kópavogsbúa um myndun meirihluta í Kópavogi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá oddvitum flokkanna í bæjarstjórn.

Ekkert skyggni á Vesturlandsvegi - ökumenn varaðir við

Lögregla vekur athygli á því að mjög blint er á Vesturlandsvegi, milli Mosfellsbæjar og Hvalfjarðarganga. Að sögn lögreglu hafa ökumenn lent í vandræðum og ekið út af. Búið er að kalla eftir aðstoð björgunarsveita. Að sögn lögreglu er ekki um ófærð að ræða, heldur er skyggnið einfaldlega ekkert.

Risastórt grjót fyrir utan Alþingi - fleygur rekinn í steininn

Það hafa eflaust einhverjir rekið upp stór augu þegar þeir komu auga á risastórt grjót sem stendur á Austurvelli fyrir framan Alþingi. Um er að ræða listaverkið Svarta keilan, minnisvarði um borgaralega óhlýðni, sem samanstendur af 180 senímetra háum steindranga. Um er að ræða gjörning á vegum spænska andófslistamannsins Santiago Sierra.

Leggja fram frávísunartillögu

Þingmenn allra flokka að Sjálfstæðisflokki undanskildum hafa nú lagt fram tillögu til rökstuddrar dagskrár þar sem lagt er til að Alþingi samþykki að vísa frá tillögu Bjarna Benediktssonar um að afturkalla málshöfðun á hendur Geir Haarde fyrrverandi forsætisráðherra.

Lýst eftir rafstöð

Lögreglan lýsir eftir rafstöð og kerru sem var stolið úr geymslu í Víðinesi á tímabilinu 30. desember til 11. janúar.

Varað við slæmu skyggni á Hellisheiðinni og víðar

Snjókoma verður fram yfir hádegi sunnan- og suðvestanlands samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni. Sums staðar verður talsverður bylur og vindur 12-15 m/s með skafrenningi og slæmu skyggni, s.s. á Hellisheiði, í Þrengslum og á Mosfellsheiði.

Bresk barnaverndaryfirvöld vilja svipta móður Ellu Dísar forræði

Barnaverndaryfirvöld í Bretlandi vilja svipta Rögnu Erlendsdóttur, móður Ellu Dísar, forræði yfir dóttur sinni. Ragna fór fyrir rétt í London, þar sem hún er búsett, í gær. Hún segir í viðtali við DV að hún hafi tvívegis mætt fyrir dóm og nú hafi málinu verið vísað til Royal High Court og þar verði málið tekið fyrir næsta þriðjudag.

Við kunnum ekki að tala saman

Skýra þarf reglur markaðarins og færa ábyrgðina frá ríkisvaldinu að mati Árna Páls Árnasonar. Hann telur mikið skorta á samræðuhefð í stjórnmálum og þar sé Samfylkingin ekki undanskilin. Hann vill breyta því en segir ráðherrametnaði sínum fullsvalað.

Veitti verjanda Baldurs ráðgjöf

Róbert Ragnar Spanó, lagaprófessor og forseti lagadeildar Háskóla Íslands, veitti verjendum Baldurs Guðlaugssonar, fyrrverandi ráðuneytisstjóra, ráðgjöf eftir að ákæra var gefin út á hendur honum fyrir innherjasvik.

Jóhann Ingi kominn í leitirnar

Jóhann Ingi Margeirsson, fimmtán ára drengurinn sem lögreglan á Akranesi lýsti eftir á miðvikudaginn, er fundinn. Að sögn lögreglu var hann færður í umsjón barnaverndaryfirvalda í gærkvöldi.

Landhelgisgæslan fær nýja þyrlu

Búið er að undirrita leigusamning til 12 mánaða um leigu á þyrlu fyrir Landhelgisgæsluna. Þyrlan er af gerðinni Super Puma eða sömu tegundar og TF LÍF og TF GNÁ.

Tæpt að kjósa í einu um forseta og stjórnarskrá

Mögulega er orðið of seint að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um drög að nýrri stjórnarskrá samhliða forsetakosningum í júní, að mati Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra. Þetta sagði hún á Alþingi í gær.

Oddný segir misskilning á ferð

Oddný Sturludóttir, formaður skóla- og frístundaráðs Reykjavíkurborgar, segir það misskilning að hún hafi hafnað því að funda um fyrirhugaðar breytingar á skólahaldi með foreldum í Hamraskóla.

Kyrrsetningin stenst skoðun

Eignir athafnamannsins Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og Lárusar Welding, fyrrverandi forstjóra Glitnis, hér á landi verða áfram kyrrsettar að kröfu slitastjórnar bankans. Hæstiréttur kvað upp úr með það í gær að kyrrsetningin stæðist lög þrátt fyrir mótmæli tvímenninganna sem hafa í hálft annað ár reynt að fá henni hnekkt.

Læknanemi bloggar sig gegnum háskóla

Kristján Már Gunnarsson læknanemi kveðst fá 400 þúsund krónur á mánuði í tekjur með því að halda úti bloggi um heilsu, næringu og lífsstíl. Þetta geti hann samhliða þungu námi. Þetta sé frábært dæmi um nýsköpun í kreppunni.

Kynferðisbrotamál í kerfinu tvöfalt fleiri

Gríðarleg breyting hefur orðið á meðferð kynferðisbrota gegn börnum frá því fyrir fimmtán árum. Tvöfalt fleiri mál koma til kasta kerfisins og þrefalt fleiri mál rata til ákæruvaldsins. Bæði um vitundarvakningu og fleiri mál að ræða.

Biður Vigdísi að treysta þjóðinni

Alþingi„Treystu nú þjóðinni til að meta það hvort hún telji það rétt eða rangt að Ísland gangi í ESB.“ Svo mælti Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra við Vigdísi Hauksdóttur, þingkonu Framsóknarflokksins, á Alþingi í gær.

Kínverjar vilja leggja allt að 7 milljarða í heilsuþorp

Kínverska fyrirtækið CSST International á í viðræðum um aðkomu að uppbyggingu heilsuþorps á Flúðum. Enn of snemmt að segja til um hvort af verði en viðræður halda áfram segir stjórnarformaður Heilsuþorps.

Brotist inn í bakarí

Brotist var inn í bakarí við Álfabakka í nótt og þaðan stolið skiptimynt úr peningakassanum, eða sjóðsvélinni, en bakkelsið látið vera.

Þriggja bíla árekstur á Gullinbrú

Engin slasaðist alvarlega þegar þrír bílar lentu í árkestri, eða árekstrum, á Gullinbrú í Grafarvogi seint i gærkvöldi, en bilarnir skemmdust mikið.

Foringi Hells Angels verður áfram í haldi

Héraðsdómur Reykjavíkur féllst í gær á kröfu lögreglu um framlengingu gæsluvarðhalds yfir Einari Marteinssyni, forsprakka Hells Angels á Íslandi, og þremur öðrum sem grunaðir eru um að tengjast hrottalegri árás á konu í Kópavogi fyrir jól. Þeir munu sitja í haldi til 16. febrúar.

Keyrði pallbíl gegnum hurð í innbroti

Þjófur braust inn í verkstæði Brimborgar að Krókhálsi um klukkan hálf tvö í nótt. Þar stal hann stórum Ford-F 150 pallbíl og ók honum á fullri ferð í gegnum hurðina á innkeyrsludyrunum , sem splundruðust.

Enn er óvissa um lögmæti tillögunnar

Frávísunartillaga kemur fram í dag vegna tillögu Bjarna Benediktssonar um afturköllun ákæru á hendur Geir H. Haarde. Margir þingmenn telja að verði málinu ekki vísað frá þurfi þingnefnd að ganga í störf Landsdóms. Skýrt kemur fram í skýringum með lögum um Landsdóm að með ákæru sé málið úr höndum Alþingis.

Vel gengur að frysta loðnu

Þegar hafa um 2.800 tonn af loðnu verið fryst í uppsjávarfrystihúsi HB Granda á Vopnafirði. Markaður fyrir þessa afurð er í ýmsum Austur-Evrópulöndum og nú í vikunni var skipað út alls um 1.800 tonnum af afurðum í erlent flutningaskip.

Gögnin um Geir gætu endað í skjalageymslu

Allt bendir til þess að málsgögn saksóknara Alþingis komi ekki fyrir sjónir almennings í langan tíma, fari svo að landsdómsmálið verði fellt niður. Alþingi hefur því í hendi sér hvort uppgjör stjórnmálanna við hrunið fer fram eður ei.

Kaþólskir vilja lóð fyrir kirkju

Bæjaryfirvöld í Árborg hafa tekið vel í umsókn kaþólsku kirkjunnar um lóð fyrir kirkju og safnaðarheimili á Selfossi. Þetta hefur Sunnlenska fréttablaðið eftir Gunnari Erni Ólafssyni, starfsmanni á skrifstofu kaþólska biskupsins á Íslandi.

Hitti rúmenska ráðherra í gær

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra fundaði í gær með Teodor Baconschi, utanríkisráðherra Rúmeníu, í Búkarest, höfuðborg landsins. Þar að auki hitti Össur Petru Filip, forseta rúmenska þingsins, og Leonard Orban, Evrópumálaráðherra landsins.

Kjarasamningum ekki sagt upp

Endurskoðunarákvæði gildandi kjarasamninga verður ekki virkjað að þessu sinni. Ákveðið var á formannafundi Alþýðusambandsins (ASÍ) og fundi stjórnar Samtaka atvinnulífsins (SA) í gær að standa vörð um frið á vinnumarkaði.

Norðurál sátt við niðurstöðu Hæstaréttar

Norðurál fagnar niðurstöðu í máli varðandi tryggingarbætur til Þórarins Björns Steinssonar. Þórarinn slasaðist við það að bjarga samstarfskonu sinni er hún varð undir bakskautaklemmu við vinnu.

Sleðahundakeppni Íslands haldin á laugardaginn

Sleðahundakeppni Íslands verður haldin í Kjarnaskógi um helgina en mjög hefur fjölgað í sportinu undanfarin ár. Forsvarsmenn keppninnar búast við miklu fjöri og jafnvel að hjartastuðtæki verði notað á síðustu metrunum.

Kodak tapaði baráttunni við stafrænar ljósmyndir

Tímamót urðu í sögu ljósmyndatækninnar í dag þegar Kódak fyrirtækið í Bandaríkjunum óskaði eftir greiðslustöðvun. Atvinnuljósmyndari segist ekki sakna þeirra tíma þegar allar ljósmyndir voru teknar á filmu.

Meintum ofbeldismanni úthýst af heimili sínu á Akureyri

Heimilisfaðir, sem talinn er hafa ráðist á sambýliskonu sína á Akureyri um helgina, hefur verið fluttur af heimili sínu og bannað að koma þangað í fjórar vikur. Þetta er í annað skiptið sem ofbeldismanni er vísað á brott af heimili sínu, eftir að slíkt úrræði var lögleitt fyrir hálfu ári. Á sama tíma hafa 60 konur leitað til Kvennaathvarfsins.

Guðni vill hafa Ólaf Ragnar áfram á Bessastöðum

Guðni Ágústsson, fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins og fyrrverandi landbúnaðarráðherra, hefur ásamt öðrum stofnað hreyfingu sem ætlað er að safna undirskriftum og skora á Ólaf Ragnar Grímsson að bjóða sig fram til forseta Íslands á ný.

Listi Kópavogsbúa vill ekki starfa áfram með Samfylkingunni

Listi Kópavogsbúa ætlar ekki að halda áfram samstarfi sínu við Samfylkinguna í bæjarstjórn Kópavogs. Þetta segir Rannveig Ásgeirsdóttir oddviti Samfylkingarinnar í samtali við RÚV. Hún segir ljóst að flokkurinn ætli ekki að taka þátt í þeim meirihlutaviðræðum sem nú standa yfir en að öðru leyti vildi hún ekki tjá sig um ástæður þeirrar ákvörðunar. Von er á yfirlýsingu frá flokknum síðar í kvöld.

Sjá næstu 50 fréttir