Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Með ólíkindum að enginn ráðherra standi vörð um hagsmuni neytenda Framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu segir það lýsa ótrúlegu skeytingarleysi gagnvart hagsmunum neytenda að engir ráðherrar hafi beitt sér fyrir því að heimila innflutning á kjöti á sama tíma og skortur er í verslunum. 13.8.2011 18:45
Ódýrar indverskar sprautunálar ollu vandræðum á Landspítalanum Dæmi eru um að Landspítalinn hafi fengið ónýtar indverskar sprautunálar sem ekki virkuðu sem skyldi og lyfjabrunna sem ekki stóðust gæðakröfur því hagkvæmasta tilboði var tekið í útboði til að spara peninga. Þetta olli bæði sjúklingum og starfsfólki óþægindum. 13.8.2011 18:30
Alvarlega slasaður og haldið sofandi í öndunarvél Farþegi í bíl sem ökumaður missti stjórn á við Geirsgötuna í Reykjavík í gærkvöldi, liggur enn alvarlega slasaður á slysadeild. Samkvæmt upplýsingum frá vakthafandi lækni á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi er honum haldið sofandi í öndunarvél. 13.8.2011 16:54
Veiddu í soðið við Sæbrautina Makríll spókaði sig í þúsundatali í sjávarmálinu við Sæbrautina í dag og nýttu margir tækifærið og tóku upp veiðistöngina. Heyrst hefur um svipaðar torfur víða um land undanfarna daga. Þorsteinn Sigurðsson, sviðsstjóri nytjasviðs Hafrannsóknarstofnunar, sagði í fréttum Stöðvar 2 í fyrra dag að makríllinn fari upp á mjög grunnt vatn og leitar að fæðu. 13.8.2011 15:09
65 prósent Íslendinga á móti aðild að ESB Um 65 prósent Íslendinga eru á móti aðild að Evrópusambandinu, samkvæmt niðurstöðum könnunar sem Capacent-Gallup gerði fyrir Heimssýn, samtök sem berjast gegn aðild að ESB. 13.8.2011 15:00
Bernaisesósuís í Hveragerði Hvergerðingar búast við um 15 þúsund manns í bæinn í dag en Ísdagurinn verður haldinn hátíðlegur þar. Þar gefst gestum og gangandi kostur á að smakka ýmsar furðulegar tegundir af ís og má þar nefna sláturís, bearnaisesósuís, hvítlauksís, og hverarúgbrauðsís svo eitthvað sé nefnt. Ísdælurnar voru opnaðar klukkan 13:30 og Ingó úr Veðurguðunum og nokkrir íbúar Latabæjar byrja að skemmta fólki klukkan 14. 13.8.2011 13:47
Fjör á Dönskum dögum í Stykkishólmi Karlmaður um tvítugt var tekinn grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna í Stykkishólmi í gærkvöldi en þar fara fram Danskir dagar. Þá var karlmaður tekinn ölvaður undir stýri í nótt í bænum. 13.8.2011 13:26
Ófremdarástand á leigumarkaðnum Ófremdarástand er á leigumarkaðnum og dæmi eru um að 40 fermetra íbúðir séu leigðar á yfir 150 þúsund krónur. Starfsmaður hjá Leigumiðlun segir mikilvægt að bankarnir komi inn á leigumarkaðinn enda séu hundruðir íbúða í eigu bankanna auðar. 13.8.2011 12:04
Heimilislaus piltur reyndi að ræna verslun með hamri Nítján ára gamall piltur reyndi að fremja vopnað rán í 10-11 verslun í Glæsibæ í nótt. Hann kom grímuklæddur inn í verslunina og var vopnaður klaufhamri. Öryggisvörður var í versluninni og tilkynnti hann ránið til lögreglu í gegnum talstöð. Pilturinn var svo yfirbugaður léttilega, eins og varðstjóri orðar það, inni í verslunni nokkrum mínútum síðar. 13.8.2011 10:50
Fleiri sýkjast af kampýlóbakter Fjöldi kampýlóbaktersýkinga í mönnum hefur aukist síðastliðnar vikur samkvæmt upplýsingum frá sýklafræðideild Landspítala, að því er fram kemur á heimasíðu landlæknisembættisins. 13.8.2011 10:19
Hittumst á Hlemmi Hópur leikmanna sem kallar sig Urban United mun lífga upp á svæðið umhverfis Hlemm í dag undir yfirskriftinni Hittumst á Hlemmi með alls kyns tilraunainnsetningum og viðburðum. Þar hefst dagskrá klukkan 11 og stendur til klukkan fjögur, en á meðal þess sem til stendur eru innsetningar og gjörningar, auk þess sem boðið verður upp á rakstur undir berum himni og gamlir bílar verða til sýnis. Verkefnið er hluti af Torg í biðstöðu hjá Reykjavíkurborg. 13.8.2011 10:06
Bílslys í miðbænum: Haldið sofandi í öndunarvél Einn af þeim sem var í bílnum, sem ökumaður missti stjórn á Geirsgötunni í Reykjavík í gærkvöldi, er haldið sofandi í öndunarvél, samkvæmt upplýsingum frá vakthafandi lækni á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi. 13.8.2011 09:37
Priyanka dúxaði „Ég vissi að ég myndi fá ágætar einkunnir, enda lagði ég hart að mér, en ég bjóst aldrei við þessu,“ segir Priyanka Thapa, 23 ára Nepali, sem dúxaði í verk- og raunvísindadeild háskólabrúar Keilis en útskriftin fór fram í gær. 13.8.2011 09:00
Verðið hækkar í kjötskorti Tollar á erlendar landbúnaðarvörur hækkuðu mikið við kerfisbreytingu sem gerð var árið 2009. Þá var hætt að miða tolla við magn og farið að miða við verð. Umboðsmaður Alþingis hefur úrskurðað að heimildir ráðherra til undanþágu á tollum stangist á við stjórnarskrá. 13.8.2011 07:30
Hjá okkur er komið nóg segir forstjóri LSH Landspítalinn mun þurfa að skera niður þjónustu og hætta að veita vissa þjónustu ef halda á áfram að skera niður. Þetta skrifaði Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans, í pistli á vefsíðu spítalans í gær. 13.8.2011 07:00
700 óeirðaseggir þegar ákærðir í London Lögregla í stærstu borgum Bretlands hafði mikinn viðbúnað á götum úti í gær vegna möguleika á að ólætin sem geisuðu í upphafi vikunnar gætu hafist á ný. 13.8.2011 04:00
Bæklingur gefinn út á sama tíma og könnun var framkvæmd Rio Tinto Alcan gaf út viðamikinn upplýsingabækling um fyrirtækið á sama tíma og Félagsvísindastofnun stóð fyrir könnun á viðhorfi Hafnfirðinga til álversins. í könnunninni kemur fram að meirihluti Hafnfirðinga vill ekki stækkun álversins þrátt fyrir kreppu. 13.8.2011 20:00
Skuldir íslenska ríkisins fylla átján flutningabíla Átján flutningabíla þyrfti til að flytja skuldir ríkisins á milli staða í reiðufé, en skuldir Bandaríkjanna í seðlum gætu fyllt Frelsisstyttuna margfalt. 12.8.2011 20:45
Gróðursetja ávaxtatré í íslenskum almenningsgörðum Áhugamenn um ávaxtatrjárækt hyggjast gróðursetja um tvöhundruð ávaxtatré í almenningsgörðum hér á landi áður en árið er á enda. Möguleikarnir á ávaxtaræktun hér á landi eru fleiri en flestir halda. 12.8.2011 20:15
Segir fulltrúa Íslands hafa andmælt tillögu gegn spillingu Íslenskir embættismenn, í umboði sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, lögðust gegn því að studd yrði óbreytt tillaga sem átti að sporna gegn spillingu á ársfundi Alþjóðahvalveiðiráðsins. Þetta segir formaður umhverfisnefndar Alþingis. Formaður íslensku sendinefndarinnar vísar þessu á bug. 12.8.2011 18:45
Meirihluti Hafnfirðinga vill ekki sjá álverið stækkað Meira en helmingur Hafnfirðinga telja neikvæð áhrif vera af álverinu í Straumsvík. Þar vega mengun og áhrif þess á umhverfið þyngst. Meirihluti Hafnfirðinga vill ekki stækkun álversins og í ljósi könnunarinnar telur Hafnarfjarðarbær ekki tilefni til nýrra íbúakosninga. 12.8.2011 18:41
Fjölmargar íbúðir í eigu fjármögnunarfyrirtækja standa auðar Þrettán hundruð og sextíu íbúðir í eigu fjármögnunarfyrirtækja standa auðar á Íslandi. Sjö hundruð og fimmtíu eru leigðar út en alls eiga fjármögnunarfyrirtækin meira en tvö þúsund og eitt hundrað íbúðir um allt land. 12.8.2011 18:19
Kæra Sjálfstæðisflokksins uppfyllti ekki skilyrði um opinbera rannsókn Efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra hefur ítrekað gefið Sjálfstæðisflokkinum kost á því að bæta úr annmörkum kæru sinnar, en úr þeim hefur enn ekki verið bætt. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem Ríkislögreglustjóri gaf út í kjölfar ummæla lögmanns flokksins í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins í gær. 12.8.2011 17:49
Eldur í bíl á Miklubraut Slökkviliði barst tilkynning um að kviknað hefði í bíl við Miklubraut nú fyrir stuttu. Viðbrögð voru snögg og hafa slökkviliðsmenn nú ráðið niðurlögum eldsins. 12.8.2011 17:13
Steindi Jr. hleypur til styrktar Rauða krossinum Grínistinn Steindi Jr. er búinn að skrá sig í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka og ætlar að hlaupa til styrktar Rauða krossinum. Steindi er óvanur hlaupum, svo vægt sé til orða tekið, og skráði hann sig því í skemmtiskokkið sem er þrír kílómetrar. Fyrsta æfingin var í dag og gekk heldur brösulega, en Ísland í dag fékk að fylgjast með tilþrifunum. Brot úr þætti kvöldsins má sjá í meðfylgjandi myndskeiði þar sem greinilegt er að Steindi þarf nokkuð að herða sig við æfingarnar, en maraþonið fer fram laugardaginn 20. ágúst. Rauði kross Íslands hvetur félaga og velunnara sína að heita á eða hlaupa fyrir Rauða krossinn í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka laugardaginn 20. ágúst. Hægt er að heita á hlaupara með því að smella á hlaupastyrkur.is <http://hlaupastyrkur.is>. Öll áheit félagsins í Reykjavíkurmaraþoninu munu renna í Sómalíusöfnun Rauða krossins til kaupa á bætiefnaríku hnetusmjöri fyrir vannærð börn. Rauði krossinn dreifir matvælum daglega til þúsunda fjölskyldna í Mið- og Suður Sómalíu, þvert á átakalínur meðan stríð geisar þar. Á næstu vikum og mánuðum munu Rauði krossinn og Rauði hálfmáninn veita um 50.000 börnum aðstoð á næringarmiðstöðvum hreyfingarinnar, og dreifa matvælum til um einnar milljónar manna. 12.8.2011 16:08
Engar tölur til yfir meðalbiðtíma farþega Forsvarsmenn Isavia vilja koma því á framfæri að ekki hafa verið gerðar neinar rannsóknir á biðtíma í Leifsstöð. Það sé hins vegar yfirlýst markmið starfsmanna að biðtíminn sé aldrei lengri en sjö til tíu mínútur. Oftar en ekki er biðtíminn hins vegar mun styttri þó það komi einnig fyrir að hann sé lengri. Vísir vitnaði fyrr í dag í vefinn Túristi.is þar sem sagt var að samkvæmt athugun sem gerð var fyrr á þessu ári á meðal biðtíma á flugvöllum á Íslandi og hinum Norðurlöndunum, hafi komið í ljós að farþegar á Keflavíkurflugvelli þurfi að bíða þrefalt lengur en farþegar á Kastrup í Kaupmannahöfn. Hjördís Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi Isavia sem rekur Keflavíkurflugvöll, tekur fram að ekki sé rétt með farið hver meðalbiðtíminn er á Keflavíkurflugvelli, einfaldlega því það hefur aldrei verið rannsakað. Þá ítrekar hún að þær tölur sem hún gaf Túrista upp sé það markmið sem starfsmenn hafi sett sér. 12.8.2011 15:35
Styðja kjarabaráttu leikskólakennara Aðildarfélög Kennarasambands Íslands, önnur en Félag leikskólakennara, hafa sent frá sér tilkynningu þar sem þau lýsa yfir stuðningi við kjarabaráttu leikskólakennara. Félögin sem um ræður eru Félag grunnskólakennara, Félag framhaldsskólakennara, Skólastjórafélag Íslands, Félag stjórnenda í framhaldsskólum, Félag stjórnenda leikskóla og Félag tónlistarskólakennara. „Í leikskólum fer fram metnaðarfullt starf sem hefur það markmið að leggja grunn að alhliða þroska og færni nemenda. Starfið er sérlega ábyrgðarmikið og því löngu tímabært að meta það að verðleikum. Framangreind aðildarfélög Kennarasambands Íslands hvetja samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga til að ganga strax til samninga við leikskólakennara áður en til verkfalls kemur," segir í yfirlýsingunni. Leikskólakennarar hafa boðað til verkfalls ef ekki nást samningar fyrir mánudaginn 22. ágúst. 12.8.2011 14:37
Íslenskur piltur hryggbrotnaði á Benidorm Nítján ára íslenskur menntaskólanemi hryggbrotnaði í fyrrinótt á Benidorm þar sem hann er á skólaferðalagi. Fréttavefurinn Bæjarins besta greinir frá því að pilturinn, sem er nemandi við Menntaskólann á Ísafirði, hafi fallið töluverða hæð þegar hann var á leið á hótelið sem hópurinn gistir á. Móðir hans segir í samtali við Bæjarins besta að betur hafi farið en á horfðist og enginn skaði hafi orðið á mænu. Hann fékk sprungu í hryggjaliði og kemur til með að liggja á sjúkrahúsi í nokkra daga, og síðan koma heim til Íslands á börum. Sjá fréttina á vef Bæjarins Besta. 12.8.2011 14:18
Ríkislögreglustjóri rannsakaði víst meintar iðnnjósnir Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri segir Kára Stefánsson, forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar, fara með rangt mál þegar hann segir að embætti ríkislögreglustjóra hafi ekki rannsakað hvort kínversk stjórnvöld stunduðu iðnnjósnir á sviði erfðagreiningar og læknisfræðilegra rannsókna á Íslandi. Í tilkynningu sem Haraldur hefur sent frá sér segir að í marsmánuði 2011 sendi ríkislögreglustjóri forráðamönnum Íslenskrar erfðagreiningar bréf þar sem fram kom að aflað hefði verið upplýsinga um mál þetta. Niðurstaða þeirrar könnunar væri þess eðlis að ekki þætti ástæða til frekari viðbragða og teldist rannsókn málsins lokið. Jafnframt var forráðamönnum Íslenskrar erfðagreiningar boðið að snúa sér til embættis ríkislögreglustjóra hefðu þeir áhuga á sérfræðilegri aðstoð varðandi öryggisþætti starfseminnar. Kári segir í samtali við Fréttablaðið í dag að embætti ríkislögreglustjóra hafi á engan veg brugðist við beiðni Íslenskrar erfðagreiningar þess efnis að kannað væri hvort staðhæfingar um að ættu við rök að styðjast. Orðrétt hefur Fréttablaðið eftirfarandi eftir Kára Stefánssyni: "Þeir gerðu ekkert í þessu og, það sem meira er, hæstvirtur innanríkisráðherra gaf út yfirlýsingu um að þetta skipti ekki máli, því menn ættu ekki að vera með svona leyndarmál!" Þá rekur Haraldur tildrög rannsóknarinnar í tilkynningunni, en þann 8. desember 2010 ritaði Íslensk erfðagreining ríkislögreglustjóra bréf þar sem þess var farið á leit að embætti ríkislögreglustjóra rannsakaði sannleiksgildi upplýsinga frá bandarískum yfirvöldum þess efnis að kínversk yfirvöld stunduðu iðnaðarnjósnir á Íslandi þ.m.t. hjá fyrirtækjum sem störfuðu á sviði erfðavísinda. Tilefni þessa bréfs var frétt í Fréttablaðinu þessa efnis og sagði í henni að þessar upplýsingar væri að finna í skjölum bandarískra yfirvalda sem vefsíðan WikiLeaks hefði birt. 12.8.2011 14:06
Vatnið aftur tekið af í efra Gerðahverfi Viðgerðum á stofnlögn í efra Gerðahverfi á Akureyri verður haldið áfram í dag. Vegna þess var vatnið tekið af í hverfinu um hádegisbilið en vonir standa til að hægt verði að hleypa því aftur á síðdegis, eigi síðar en fyrir kvöldmat Norðurorka, sem sér um viðgerðirnar, bendir viðskiptavinum sínum á að gæta vel að því að allir kranar séu lokaðir þegar vatn kemur á aftur eftir lokunina á morgun. Eins er viðskiptavinum bent á að huga að hitakerfum sínum, dælum á gólfhitalögnum, varmaskiptum og öðrum slíkum búnaði. Jafnframt er mjög gott að lofttæma ofnakerfi eftir að vatnið er komið á. Hafi viðskiptavinir ekki þekkingu á búnaði sínum er nauðsynlegt að hafa samband við píplagningameistara til þess að huga að kerfinu og búnaði þess 12.8.2011 14:05
Ókeypis í Strætó á Menningarnótt Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu hafa ákveðið að bjóða frítt í strætó á Menningarnótt. Þetta var ákveðið á stjórnarfundi Strætó bs. í morgun. Með því að veita almenningi ókeypis strætisvagnaferðir er stuðlað að fækkun einkabíla, greiðari umferð, minni slysahættu og mengun, og auknu öryggi gesta í miðborginni meðan á dagskránni stendur. Áætlaður kostnaður vegna ókeypis ferða á Menningarnótt er um 3,5 milljónir króna eða svipuð upphæð og í fyrra. Menningarnótt hefur um árabil verið ein fjölsóttasta fjölskylduhátíð landsins. Í gegnum tíðina hafa verið gerðar ýmsar ráðstafanir til þess að greiða fyrir bílaumferð og fjölga bílastæðum til að auðvelda aðkomu gesta. Hins vegar hefur það sýnt sig að með því að fjölga ferðum almenningsvagna á Menningarnótt hafa sífellt fleiri nýtt sér þann umhverfisvæna samgöngumáta til að komast í miðbæinn. Um 80.000 farþegar tóku strætó á Menningarnótt í fyrra, sem er með því mesta sem almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu hafa flutt á einum degi frá upphafi 12.8.2011 13:36
Drengurinn fundinn Fimmtán ára drengurinn sem lýst var eftir í gær er kominn í leitirnar. Lögreglan þakkar aðstoðina. 12.8.2011 13:24
Sala á nautakjöti dregst saman Sala á nautakjöti dróst saman um rúmlega sjö prósent í síðasta mánuði, samkvæmt samantekt bændasamtakanna. Ef litið er 12 mánuði aftur í tímann, nemur samdrátturinn tæplega tveimur prósentum. Á sama tímabili hefur innflutningur á nautakjöti aukist um 314 prósent, en ekki kemur fram hvort bændur hafi dregið úr framleiðslunni, eða hvort birgðir af óseldu nautakjöti eru að hlaðast upp 12.8.2011 12:33
Sló stúlku og hrækti framan í hana Rúmlega tvítugur karlmaður var í gær dæmdur í eins mánaðar skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás sem átti sér stað á Húsavík fyrir tæpu ári. Maðurinn játaði að hafa slegið stúlku í andlitið með þeim afleiðingum að hún hlaut eymsli og bólgu yfir hægra kinnbeini. Auk þess hrækti maðurinn framan í stúlkuna. Maðurinn hefur ekki áður sætt öðrum refsingum en sekt fyrir umferðarlagabrot. Í dómsorði er tekið fram að málið hafi tafist í meðförum dómsins vegna dvalar sakbornings erlendis. Héraðsdómur Norðurlands dæmdi í málinu. 12.8.2011 11:59
Fjögurra bíla árekstur - engin slys á fólki Fjögurra bíla árekstur varð á Höfðabakkabrú við Elliðaárnar fyrir stundu. Engin slys urðu á fólki en bílarnir eru talsvert skemmdir. 12.8.2011 11:15
Öryggisleitin í Leifsstöð seinvirkari en í nágrannalöndum Öryggisleit í Leifsstöð er mun ítarlegri og seinvirkari en í nágrannalöndunum, þar sem farþegar þurfa ekki að fara á sokkaleistunum í gegnum skoðunina. 12.8.2011 11:03
Bifröst stefnir að sjálfbærni Miðað við þær umsóknir sem nú liggja fyrir í Háskólanum á Bifröst er útlit fyrir að aðsókn verði hátt í 40 prósentum meiri í ár miðað við árið í fyrra. Þetta segir Bryndís Hlöðversdóttir, rektor Háskólans á Bifröst. 12.8.2011 10:15
Bjóða upp á pizzaís og rúgbrauðsís Sláturís, bernaissósuís og rósaís er meðal þess sem verður á boðstólnum á hinum árlega ísdegi Kjöríss sem haldinn verður hátíðlegur í Hveragerði á morgun. Þá færir Kjörís hluta starfseminnar út á bílaplan og gestum er boðið upp á ókeypis ís og skemmtiatriði. Gestirnir fá að taka þátt í vöruþróun fyrirtækisins með því að smakka hátt í tuttugu óvenjulegar ístegundir. Þá kjósa þeir besta ísinn og dæmi eru um að verðlaunaísinn hafi farið í almenna framleiðslu. "Þetta er skemmtilegasti dagur ársins hjá okkur í Kjörís og í raun hápunktur sumarsins. Stemmningin er frábær og gaman að fá svona margar fjölskyldur í ísrúnt til Hveragerðis sama daginn", segir Guðrún Hafsteinsdóttir, markaðsstjóri Kjöríss. Ísdagurinn er haldinn í samstarfi við Blómstrandi daga bæjarins en búist er við miklum fjölda gesta enda verðurspáin góð. Árlega hafa um tvö tonn af ís runnið niður í gesti bæjarhátíðarinnar í Hveragerði. Opnað verður fyrir ísdælurnar klukkan hálf tvö en Ingó úr Veðurguðunum og nokkrir íbúar Latabæjar byrja að skemmta fólki upp úr klukkan tvö. Þær ístegundir sem verða í boði fyrir gesti og gangandi á Ísdeginum eru: · Ís ársins 2011 - Kókosís · Perubrjóstsykursís · Cappucino · Jógúrtís · Bragðarefur · Ís ársins 2010 - Súkkulaðibitakökuís · Tyggjóís · Seytt Hverarúgbrauðsís · Pizzaís · Eucalyptusís · Sláturís · Mandarínuís - Sumarmjúkís 2011 · Royal súkkulaðibúðingsís · Hvítlauksís · Rósaís · Bernaisesósuís · Malteser'sís · Súkkulaðiís með chili og chilisósu Í fullorðinshorninu: · Irish Coffee ís (Jameson) · Koníaksís 12.8.2011 10:14
Líkamstjáning og daður á námsskránni Þeir sem vilja komast í fast samband en reynist það erfitt, hvort sem það er vegna slæmrar reynslu, óframfærni eða af öðrum ástæðum, geta nú farið á sérstakt námskeið hjá Kvíðameðferðarstöðinni fyrir fólk í makaleit. "Víða erlendis eru til fyrirtæki sem sérhæfa sig í að auðvelda fólki fólki í makaleit að kynnast öðrum en á Íslandi hefur þetta vantað. Þetta námskeið er viðleitni okkar til að veita fólki þau tæki og tól sálfræðinnar sem geta nýst á þessum vettvangi. Suma langar ekkert að vera í sambandi og það er hið besta mál. En þeir sem eiga sér þennan draum heitastan geta nú nýtt sér þekkingu sálfræðinnar á þessu sviði og unnið markvisst að þessu málefni," segir Sóley D. Davíðsdóttir sálfræðingur hjá Kvíðameðferðarstöðinni. Með haustinu fer hún, ásamt dr. Gyðu Eyjólfsdóttur, af stað með nýtt námskeið þar sem hugræn atferlismeðferð er nýtt til að gera fólki makaleitina auðveldari. Hjá Kvíðameðferðarstöðinni eru ýmis námskeið í boði, svo sem fyrir fólk með félagsfælni, svefnvanda eða ofsakvíða. Þær Sóley og Gyða segja að í starfi sínu sem sálfræðingar hafi þær rekist á fólk sem hefur verið einhleypt lengi, langar að finna sér maka en gengur erfiðlega að komast í gott samband. Á námskeiðinu verður meðal annars farið í samskipti kynjanna, öflugar samskiptaleiðir, hvar og hvernig má kynnast öðrum, áhrif hugarfars, viðhorfa og sjálfsmyndar á makaleit. Þá verður einnig farið yfir líkamstjáningu, daður og kynlíf, svo eitthvað sé nefnt. Hugræn atferlismeðferð er viðurkennt meðferðarform sem meðal annars getur hjálpað fólki að breyta líðan sinni og hafa áhrif á hugarfar og hegðun. Gyða segir að markmiðið með námskeiðinu sé að fólk verði framfærnara, sáttara við sig og betur í stakk búið til að vinna markvisst að makaleitinni. Þá tekur Sóley fram að árangur af námskeiðum sem stöðin býður upp á sé mældur, og það sama verði gert með þetta. Sóley og Gyða segjast ekki vita til þess að boðið hafi verið upp á viðlíka námskeið hér á landi á vegum sálfræðinga. Þær benda á að á þessu sviði sem og öðrum, séu til áhrifaríkar aðferðir sem auðvelda fólki að ná markmiðum sínum. Sjá vefsíðu Kvíðameðferðarstöðvarinnar www.kms.is <http://www.kms.is> 12.8.2011 09:27
Eldur á Akureyri Eldur kviknaði í feitipotti á eldavél í raðhúsi á Akureyri í gærkvöldi og munaði minnstu að illa færi. Þegar unglingur á heimilinu sá rjúka úr eldi í pottinum, skvetti hann vatni í pottinn, en þá breiddist eldurinn út. 12.8.2011 08:40
Næturfrost á þremur stöðum Næturfrost mældist á þremur stöðum á láglendi í nótt, en þó ekki mikið. Það var að Reykjum í Fnjóskadal, Torfum og Möðruvöllum. Dæmi eru um að næturfrost hafi skaðað kartöflugrös undanfarnar nætur, en hætt er við næturfrosti þegar veður er heiðskýrt. 12.8.2011 08:24
Jörð skalf við Krýsuvík í nótt Jarðskjálfti upp á tæplega þrjá á Richter varð um sjö kílómetra norðaustur af Krýsuvík um klukkan fjögur í nótt og fannst hann greinilega á höfuðborgarsvæðinu og víðar. Margir vægari skjálftar fylgdu í kjölfarið, en þetta er þekkt skjálftasvæði og er skjálftinn ekki talinn fyrirboði frekari tíðinda á svæðinu. 12.8.2011 08:21
Úr klóm talíbana og tígra í ró upp á Skaga Indverski ævintýramaðurinn Somen Debnath lagði af stað hjólandi frá heimabæ sínum Bengali á Indlandi í maí 2004 og hvílir sig nú hjá vinafólki á Akranesi eftir að hafa farið íslenskra landshorna á milli undanfarna daga. 12.8.2011 08:00
Meintar iðnnjósnir ekki enn kannaðar Ríkislögreglustjóri aðhafðist ekkert þegar hann var beðinn að rannsaka meintar iðnnjósnir kínverskra aðila innan Íslenskrar erfðagreiningar, að sögn Kára Stefánssonar forstjóra fyrirtækisins. 12.8.2011 07:30
Árekstur: Talið að ökumaðurinn hafi fengið aðsvif Árekstur varð á mótum Suðurlandsbrautar og Reykjavegar í morgun og er Suðurlandsbrautin lokuð til vesturs af þeim sökum. Óhappið varð með þeim hætti að fólksbíl var ekið af fullum krafti aftan á annan og telur lögregla líklegt að ökumaðurinn hafi fengið aðsvif af einhverju tagi. Fyrst var greint frá því að sorphirðubíll hefði lent í árekstrinum en það er ekki rétt. Sá bíll kom hinsvegar að óhappinu og tilkynnti lögreglu um það. Þrír voru í bílunum og voru allir fluttir á slysadeild til aðhlynningar. Líklegast verður hægt að opna veginn á allra næstu mínútum. 12.8.2011 07:02