Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Veiðar stöðvaðar á svæði eitt Strandveiðar á svæði númer eitt, voru stöðvaðar á miðnætti, þar sem bátarnir voru búnir að veiða heildarkvóta þessa mánaðar. Svæðið nær frá Snæfellsnesi til Bolungavíkur og er lang vinsælasta svæðið, sem sést best af því að lang flestir bátar eru skráðir til veiða þar. 10.5.2011 08:22
Reiðhjólalöggur tóku Vespu-mann úr umferð Tveir lögreglumenn á reiðhjólum tóku ökumann vespu-bifhjóls úr umferð á Akureyri í nótt þar sem hann reyndist undir áhrifum áfengis. Þetta gerðist á Mýrarvegi við Kaupvang og var Vespumaðurinn sviftur ökuréttindum til bráðabirgða. 10.5.2011 07:05
Segja bellibrögðum beitt í vínbúðarmáli Fjölmargir íbúar og húseigendur í nágrenni við vínbúð ÁTVR á Hólabraut á Akureyri mótmæla harðlega fyrirhugaðri deiliskipulagsbreytingu sem gera mun fyrirtækinu kleift að reisa viðbyggingu við húsnæði sitt. 10.5.2011 07:00
Hreindýraleyfi verði seld hæstbjóðendum Tekjur af hreindýrum á Austurlandi eru verulega minni en þær gætu verið vegna þess að veiðileyfin er seld á undirverði. Þetta segja kennarar við Háskólann á Akureyri. 10.5.2011 06:30
Aukið samstarf hjá háskólum Opinberu háskólarnir fjórir, Háskóli Íslands, Háskólinn á Akureyri, Landbúnaðarháskóli Íslands og Hólaskóli-Háskólinn á Hólum hafa gert með sér samkomulag um sameiginlega stoðþjónustu á ákveðnum sviðum. Rektorar skólanna skrifuðu undir samkomulag þessa efnis að viðstöddum mennta- og menningarmálaráðherra í dag. 9.5.2011 16:33
Helgi Seljan fór í hjartaþræðingu Helgi Seljan sjónvarpsfréttamaður gekkst undir hjartaþræðingu í fyrir fáeinum dögum. Hann er nú að jafna sig á Landspítalanum, samkvæmt heimildum Vísis. Helgi fann fyrir verki í hjarta og ákvað að leita læknisaðstoðar á bráðamóttöku Landspítalans. Fréttavefurinn Eyjan segir að þar hafi komið í ljós að ekki hafi verið um kransæðastíflu að ræða heldur bólgur í hjartavöðvum. Helgi baðst undan viðtali þegar Vísir spurði hann út í málið. 9.5.2011 15:15
Pöddur og skordýr í heimahúsum Ef þú þekkir fyrirbærið þá þarftu ekki að vera með æsing, heldur bregðast rétt við, segir Þóra Hrafnsdóttir líffræðingur. Pöddur, eins og ryklús, hambjöllur, húsamaur, silfurskottur - og svo humlur og geitungar eru yfirleitt illa séðir gestir í heimahúsum. Þóra segir að sér finnist viðbrögð við slíkum gestum oft líkjast hysteríu. Þörf sé á meiri fræðslu um slík dýr. Hún ætlar að bæta úr þessu með fyrirlestri í sal Náttúrufræðistofu Kópavogsbæjar á morgun. „Auk þess vil ég gefa innsýn í það sem mér finnst vera heillandi heimur smádýra," segir Þóra í samtali við Vísi. 9.5.2011 14:31
Herjólfur í Landeyjahöfn fram á fimmtudag Vestmannaeyjaferjan Herjólfur mun áfram sigla á milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar en siglingar til Landeyja hófust að nýju um helgina. Ferjan mun sigla þrjár ferðir á dag á hverjum degi fram á fimmtudag þegar ástand mála verður endurmetið. 9.5.2011 14:27
Umferðarslys í Hafnarfirði - leitað að vitnum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðarslysi sem varð á mótum Reykjavíkurvegar og Hraunbrúnar í Hafnarfirði um klukkan 16 fimmtudaginn 5. maí. Að sögn lögreglu var grænum pallbíl, með húsi yfir palli, ekið á reiðhjólamann sem var á leið yfir götuna umferðarljós eru á gatnamótunum. 9.5.2011 14:18
Skarst illa á hendi í Ólafsvík Maður slasaðist á Ólafsvík fyrir hádegið þegar hann fór með hendina í fiskvinnsluvél. Skarst maðurinn svo illa að kallað var á þyrlu Landhelgisgæslunnar sem sótti manninn. Þyrlan kom til Reykjavíkur um klukkan eitt var maðurinn lagður inn á Landspítalann í Fossvogi. 9.5.2011 13:43
Ríkissaksóknari beitir sér ekki vegna ísbjarnardráps Ríkissaksóknari hyggst að óbreyttu ekkert aðhafast vegna ísbjarnardrápsins á Hornströndum í síðustu viku. Dýrafræðingur telur að lagaákvæði um friðun hvítabjarna hafi verið brotin. Samkvæmt lögum eru hvítabirnir friðaðir á Íslandi. Þó má fella hvítabjörn, sem gengið hefur á land, ef fólki og búfénaði er talin stafa hætta af. 9.5.2011 13:36
Lögreglan leitar að eiganda myntsafns Lögreglan lýsir á Facebook síðu sinni eftir eiganda myntsafns sem er í hennar vörslu. Safnið er í möppu og er merkt „Íslenzkar myntir“. Þeir sem telja sig kannast við safnið geta haft samband við lögregluna í Hafnarfirði. 9.5.2011 13:10
Pétur Kristján fékk myndavélina Pétri Kristjáni Guðmundssyni varð að ósk sinni þegar hann fékk afhenta glæsilega Canon myndavél auk linsu og minniskorts í gær en Pétur lamaðist fyrir neðan mitti þegar hann féll niður kletta í Austurríki um síðustu áramót. 9.5.2011 13:03
Aukin aðstoð við innflytjendur Innflytjendur geta nú sótt ráðgjöf og upplýsingar um réttindi sín og skyldur í Þjónustumiðstöð Breiðholts í Mjódd. Í tilkynningu frá borginni segir að boðið sé upp á almenna ráðgjöf, til að mynda um dvalarleyfi og ríkisborgararéttindi, réttindamál ýmis konar, sem og upplýsingar um menntunarmöguleika og frístundir, auk lögfræðilegrar ráðgjafar. 9.5.2011 12:53
Lagt til að bann við herskyldu fari í stjórnarskrá Stjórnlagaráð hefur birt ellefu greinar til kynningar í mannréttindakafla nýrrar stjórnarskrár, þar sem meðal annars er bannað að innleiða herskyldu á Íslandi. Þriðjungur er liðinn af skipunartíma ráðsins. 9.5.2011 12:16
Fjórir vilja fá hvítabjörninn Fjórir aðilar hafa sent Náttúrufræðistofnun erindi þar sem óskað er eftir því að fá hvítabjörninn sem var skotinn á Hornströndum í síðustu viku til varðveislu. Þar af eru þrír aðilar á Vestfjörðum, eftir því sem fram kemur á vef Bæjarins besta. 9.5.2011 11:30
Sigríður verður ekki á tvöföldum launum Sigríður J. Friðjónsdóttir, ríkissaksóknari og saksóknari Alþingis, hefur óskað eftir samtölum við skrifstofustjóra Alþingis um að laun vegna starfa hennar fyrir Alþingi verði lækkuð. Þetta staðfestir Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri þingsins, í samtali við Vísi. 9.5.2011 11:04
Gáfu fæðingardeildinni fullkominn blóðþrýstingsmæli Soroptimistaklúbbur Árbæjar gaf fæðingardeild 23A á Landspítala fullkominn stafrænan blóðþrýstingsmæli á standi með súrefnismettunarmæli, að verðmæti um 450.000 krónur. Tækið kemur sér afar vel við umönnun kvenna í fæðingu, til dæmis ef þær eru með mænurótardeyfingu, blóðþrýstingsvandamál eða þarfnast sérstaks eftirlits eftir keisaraskurð eða aðrar aðgerðir. Tækið var afhent 2. maí 2011. 9.5.2011 10:11
Ráðherrar víki sæti á Alþingi Þingmenn þriggja stjórnmálaflokka hafa lagt fram frumvarp um heimild ráðherra til að víkja tímabundið af þingi á meðan þeir gegna ráðherraembætti. Fyrstu umræðu þingsins um frumvarpið er lokið og verður það til umræðu í allsherjarnefnd í dag. 9.5.2011 09:38
Amfetamín á Austfjörðum Lögreglan á Eskifirði, í samvinnu við lögregluna á Seyðisfirði lagði í fyrrinótt hald á 25 grömm af amfetamíni, sem talið er að hafi verið ætlað til dreifingar og sölu á Austfjörðum. Lögreglumenn fréttu af þekktum fíkniefnasala á svæðinu og höfðu upp á honum með þessum árangri. Hann var handtekinn, en sleppt að yfirheyrslum loknum. Fíkniefnahundur frá Seyðisfirði var notaður við aðgerðina. 9.5.2011 08:36
Launin margföld í Noregi Íslenskir læknar og hjúkrunarfræðingar fara í miklum mæli til Noregs og Svíþjóðar til að vinna þar í stuttan tíma í senn. Fólk hefur þá ýmist óskað eftir launalausu leyfi frá vinnu hér á landi eða notar sumarleyfi og vaktafrí til þess að fara á hálfgerða vertíð í þessum nágrannalöndum. Launin eru miklu hærri. 9.5.2011 07:00
Ammoníakleki á Suðurnesjum Tveimur reykköfurum í eiturefnabúningum tókst í gærkvöldi að stöðva mikinn ammoníakleka í húsnæði Slægingarþjónustu Suðurnesja í Sandgerði, og varð engum meint af lekanum. Í ljós kom að ammoníakrör hafði sprungið þannig að efnið lak út. 9.5.2011 06:54
Kona höfuðkúpubrotnaði Kona höfuðkúpubrotnaði þegar hún féll niður tröppur húss í Biskupstungum aðfaranótt sunnudags. Konan var flutt til Reykjavíkur og liggur á gjörgæsludeild Landspítalans. Engin vitni voru að slysinu. 9.5.2011 06:00
Hætta vegna lengri boðleiða Breytingar á lögreglustjóraembættum samkvæmt nýju frumvarpi mæta mikilli andstöðu hjá sveitarstjórn Rangárþings eystra. 9.5.2011 05:30
Kemur íslenskri matarmenningu á kortið Skorað hefur verið á Íslendinga að bjóða sig fram á ný til stjórnarsetu í Heimssamtökum matreiðslumanna, eða WACS, fyrir kjörtímabilið 2012 til 2016. Þeir Gissur Guðmundsson, Hilmar B. Jónsson og Helgi Einarsson sitja í núverandi stjórn en um tíu milljónir matreiðslumanna í 100 löndum eru meðlimir í WACS. 9.5.2011 05:15
Fréttir vikunnar: Hvítabjörn skotinn og Næturvaktin á BBC4 Vikan byrjaði með frídegi verkalýðsins þann 1. maí. Dagurinn var svolítið skrítinn að því leytinu til að jörð var alhvít. Þetta var í fyrsta sinn síðan 1993 sem jörðin er alhvít í júní. 8.5.2011 20:00
Jóhanna þrýstir á Ólaf Ragnar Forsætisráðuneytið hefur ítrekað þrýst á forseta Íslands til að setja sér siðareglur en mælst er til þess í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis. Ekkert hefur orðið af því og skilja má af bréfasamskiptum embættanna tveggja að forsetanum finnist forsætisráðuneytið vera með of mikla afskiptasemi. 8.5.2011 18:47
Ögmundur segist ekki hafa verið í hættu Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, segir að hann og fjölskylda sín hafi ekki verið í hættu þegar ráðist var að húsi hans aðfaranótt laugardags og rúður brotnar. Glerbrotum rigndi yfir ráðherrann sem sat í stofunni ásamt eiginkonu sinni. 8.5.2011 18:40
Í götubolta í góðu veðri Það var margt um að vera í góða veðrinu í dag. Fólk stytti sér stundir við róður, reiðtúra, körfuknattleik og fleira. Vilhelm Gunnarsson ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis var á ferð um miðborgina í dag og smellti myndum af fólki í sumarskapi. 8.5.2011 18:03
ESB samningur tilbúinn á næsta ári Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður Samfylkingarinnar, telur að hægt verði að ljúka aðildarviðræðum við Evrópusambandið á einu ári. Eiginlegar viðræður munu hefjast í júní en rýnivinnu vegna aðildarumræðunnar lauk á dögunum. "Gangi samningsviðræður ágætlega held ég að svona eftir ríflega ár geti samningur verið að koma heim," segir Björgvin G. Sigurðsson í samtali við Vísi. 8.5.2011 17:38
Útrásarjeppi til sölu Útrásin er ekki dauð úr öllum æðum. Hún er staðsett á Höfðabakka skammt frá Gullinbrú. Þar er í það minnsta þessi forláta Daihatsubifreið sem ber einkanúmerið Útrásin. Bíllin er 1998 árgerð og er ekin tæpa 200 þúsund kílómetra. Það má segja að útrásin fáist á spottprís, eða einungis um 500 þúsund krónur. 8.5.2011 16:48
Nýta veðrið í strandferðir og Esjugöngur Fjöldi fólks hefur nýtt blíðviðrið sem nú er á höfuðborgarsvæðinu í útivist það sem af er degi. Töluverður fjöldi fólks hefur nýtt daginn til þess að ganga á Esjuna. Þar á meðal voru Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Dorrit eiginkona hans sem voru þar á göngu með hundinn sinn. 8.5.2011 15:12
Ráðist að heimili Ögmundar Ráðist var að heimili Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra í fyrrinótt. Fjölmennt lið lögreglu var kallað á staðinn þar sem talið var að um umsátur væri að ræða. Öryggi ráðherrans var tryggt með aðgerðum lögreglunnar. 8.5.2011 13:01
Mistök að samþykkja umsókn í ESB Ögmundur Jónasson segist hafa gert mistök þegar hann studdi umsókn Íslendinga í Evrópusambandið. Hann vill flýta samningaviðræðunum og leggja málið í dóm kjósenda. 8.5.2011 12:23
Kvótinn ekki eina ástæða fólksfækkunar Það er mikil einföldun að halda því fram að kvótakerfið sé eina ástæða fólksfækkunar á landsbyggðinni. Þetta segir Halldór Halldórsson, formaður Sambands Íslenskra sveitarfélaga og fyrrverandi bæjarstjóri á Ísafirði. 8.5.2011 12:08
Ekki hvatt til bólusetningar Þórólfur Guðnason, yfirlæknir á Sóttvarnasviði, segir Sóttvarnarlækni ekki hafa hvatt landsmenn sérstaklega til að láta bólusetja sig fyrir svínaflensu að undanförnu. Veikin hafi ekki náð sér á strik hér á landi þar sem stór hluti þjóðarinnar fór í bólusetningu á sínum tíma. 8.5.2011 09:50
Slökkviliðið sótti kött upp á þak Slökkviliðsmenn sóttu kött upp á þak húss í miðborg Reykjavikur snemma í gærkvöld. Varðstjóri hjá slökkviliðinu segir að kisi hafi tekið vel á móti slökkviliðsmönnunum þegar að þeir komu til að sækja hann og hafi verið feginn því að komast niður af húsþakinu. Slökkviliðið segir að yfirleitt komist kettir niður af húsþökum af eigin rammleik, en einstaka sinnum berist útköll eins og þetta. 8.5.2011 09:33
Hundur í óskilum Þessi krúttlegi hundur varð viðskila við eiganda sinn. Sá sem hýsir hundinn nú býður eigandanum að hringa í síma 8689495 til að nálgast hann. 7.5.2011 20:02
Vill stykkilsber frekar en sprautunálar Öskjuhlíðardagurinn var haldinn hátíðlegur í fyrsta skipti í dag. Kynnt var samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar, Háskólans í Reykjavík og Skógræktarfélags Íslands um útivistarperluna Öskjuhlíð. Markmið verkefnisins er að gera Öskjuhlíðina að lifandi og skemmtilegu útivistarsvæði í Reykjavík. 7.5.2011 19:19
Fjórhjólamaður keyrði á barn og stakk af Um fimmleytið í dag varð umferðaróhapp á Garðagrund á Akranesi á móts við verslunina Samkaup, eða Grundaval. Þar var fjórhjóli ekið á barn sem var á reiðhjóli. Við þetta slasaðist barnið lítillega. Ökumaður fjórhjólsins fór af vettvangi án þess að huga að barninu eða tilkynna um óhappið. Þeir sem geta veitt upplýsingar um umferðaróhappið eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna á Akranesi í síma 4440111. 7.5.2011 19:15
Tengsl milli bólusetningar og drómasýki Tengsl eru á milli svínaflensubólusetningar og drómasýki hjá ungmönnum í Finnlandi. Hér á landi hefur tilfellum sýkinnar fjölgað en orsökin eru ókunn. 7.5.2011 19:00
Saksóknari telur líkur á sakfellingu Saksóknari Alþingis segir líklegt að Geir H.Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, verði sakfelldur fyrir vanrækslu í starfi. Hann verður ákærður í næstu viku. 7.5.2011 18:53
Fá hótanir vegna málefna útlendinga Mikill viðbúnaður var hjá Útlendingastofnun vegna fundarins sem átti að eiga sér stað með hælisleitandanum Mehdi Pour á föstudaginn. Forstjóri Útlendingastofnunar segir það breyta stöðu Mehdi að hann sé kominn í hendur heilbrigðisyfirvalda. Starfsfólk hafi oft fengið hótanir vegna málefna hælisleitenda. 7.5.2011 18:42
Hælisleitandinn skildi eftir sjálfsmorðsbréf Hælisleitandinn Mehdi Pour afhenti vinkonu sinni sjálfsmorðsbréf áður en hann fór upp í Rauða kross hús þar sem hann reyndi að kveikja í sér. Hann hefur verið úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald á viðeigandi stofnun. 7.5.2011 18:30
Handtekinn fyrir árás á kærustu sína Karlmaður um tvítugt var handtekinn og færður á lögreglustöð um fimmleytið í gær eftir að hann hafði veist að unnustu sinni og tekið hana hálstaki á lóð við Hamraskóla. Skýrsla var tekinn af karlmanninum og honum síðan sleppt. Að sögn lögreglunnar verður svo skýrsla tekin af stúlkunni eftir helgi og hún þarf þá að taka ákvörðun um það hvort hún vill kæra atvikið. 7.5.2011 18:03