Fleiri fréttir Bruggari handtekinn á Akranesi Lögreglan á Akranesi lagði hald á liðlega 200 lítra af gambra og 17 lítra af landa í vikunni. Vísbendingar höfðu borist um að bruggun stæði yfir í íbúð í bænum. 12.4.2011 08:35 Borgin greiðir ekki fyrir börn alkóhólista Reykjavíkurborg stöðvaði allar greiðslur til SÁÁ um síðustu áramót vegna þjónustu fyrir fjölskyldur áfengis- og vímuefnasjúklinga. Engar greiðslur hafa komið frá borginni til göngudeildar SÁÁ vegna þessarar þjónustu en stærsti hluti fjárveitingarinnar fór í sálfræðiþjónustu fyrir börn áfengis- og vímuefnasjúklinga sem sýna einkenni um álag og streitu. Þessi börn eru fæst byrjuð að nota vímuefni og eru á aldrinum 8-14 ára. Þau eru í mestri áhættu allra að eiga í erfiðleikum vegna vímuefna í framtíðinni. Þetta kemur fram í frétt á vef SÁÁ en fyrirsögnin þar er: „Reykjavíkurborg hættir að greiða fyrir börn alkóhólista.“ Þar segir að á árunum 2008-2010 var í gildi samstarfssamningur milli Reykjavíkurborgar og SÁÁ um þjónustu fyrir fjölskyldur áfengis- og vímuefnasjúklinga. Ekkert bólar á nýjum samstarfssamningi eða þjónustusamningi. Forráðamenn SÁÁ bíða og halda úti óskertri þjónustu en nú alfarið á reikning SÁÁ. Fréttin á vef SÁÁ. 12.4.2011 08:35 Garðyrkjumenn gegn ESB Aðalfundur Sambands garðyrkjumanna lýsir andstöðu sinni við aðild Íslands að Evrópusambandinu og stuðningi við stefnu Bændasamtakanna í því máli. 12.4.2011 08:06 Femínistar gagnrýna VG Það er ekki í anda fæðingarorlofslaga að víkja Guðfríði Lilju Grétarsdóttur úr embætti þingflokksformanns þegar hún koma til baka úr fæðingarorlofi og hlýtur að vera á skjön við stefnu Vinstri grænna í jafnréttismálum, segir í ályktun Femínistafélags Íslands. 12.4.2011 08:04 Minnka á magndrykkju Í nýju frumvarpi fjármálaráðherra til breytinga á lögum um Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins er lagt til að stofnunin verði án stjórnar og heyri beint undir fjármálaráðherra. 12.4.2011 08:00 Vilja lög gegn dýrakynlífi Stjórnmálamenn og dýraverndunarsamtök í Danmörku hafa kallað eftir löggjöf gegn kynlífi með dýrum eftir umdeilda heimildarmynd sem sýnd var nýverið í sjónvarpi. 12.4.2011 08:00 Fréttaskýring: Eftirlitsstofnun bíður svars Íslands við áminningarbréfi Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, fullyrðir að ESA hafi ekkert sagt um Icesave sem mark sé á takandi. Frumniðurstöður ESA eru þegar komnar fram og eru þvert á fullyrðingar íslenskra stjórnvalda. 12.4.2011 07:00 Jafnmargir hlynntir og andvígir hernaði Svipað hlutfall landsmanna styður hernaðaríhlutun aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins (NATO) í Líbíu og er andvígt hernaðinum, samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins. 12.4.2011 07:00 Óvæntur stormur og eldingum laust niður „Þetta er svolítið vetrarlegt,“ viðurkennir Þorsteinn Jónsson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, spurður um harðar sviptingar í veðrinu síðustu daga. 12.4.2011 07:00 Nefnd þingmanna móti öryggisstefnu Nefnd tíu þingmanna allra flokka sem sæti eiga á Alþingi verður falið að móta þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland nái þingsályktunartillaga sem utanríkisráðherra hefur lagt fyrir Alþingi fram að ganga. 12.4.2011 06:00 Hópur fjárfesta kaupir MP Banka „MP Banki er það lítill að hann þarf ekki að fara út í meiri háttar tiltektir. Hann hefur ekki þegið styrki eða fyrirgreiðslu frá hendi ríkisins. Það finnst mér skipta miklu máli,“ segir fjárfestirinn Skúli Mogensen, aðaleigandi MP Banka. 12.4.2011 06:00 Lífeyrissjóðsstjóri átti rétt á að fá gögn Synjun Fjármálaeftirlitsins (FME) um afhendingu umbeðinna gagna til Ingólfs Guðmundssonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra Lífeyrissjóðs verkfræðinga, skorti lagastoð að mati umboðsmanns Alþingis. 12.4.2011 05:00 Húsaleigumál 200 talsins á árinu Neytendasamtökunum hafa borist í kringum 200 fyrirspurnir og erindi vegna húsaleigumála það sem af er ári. Samkvæmt tilkynningu frá samtökunum svarar þetta til um 800 erinda á ári, sem er helmingi meira heldur en var í fyrra. Árið 2009 voru rúmlega 200 fyrirspurnir af þessum toga. 12.4.2011 04:00 Óþægilegt að vera bendlaður við svona mál Lögreglan hefur á tæpum tveimur mánuðum fengið 23 tilkynningar um að óprúttnir aðilar hafi reynt að lokka börn upp í svartan bíl. Ekki eru allar þessar ábendingar á rökum reistar eins og leigubílstjóri hér í borg komst að fyrir helgi. 11.4.2011 21:22 Þorvarður Davíð sendi bróður sínum bréf og baðst afsökunar Þorvarður Davíð Ólafsson, sem var dæmdur í 14 ára fangelsi fyrir helgi fyrir að veitast að föður sínum, Ólafi Þórðarsyni, tónlistarmanni, var haldinn miklum ranghugmyndum um föður sinn. 11.4.2011 20:52 Braut gegn misþroska ungum manni á afskekktum stað á þessu ári Ágúst Magnússon, margdæmdur barnaníðingur, á yfir höfði sér ákæru fyrir að hafa brotið gegn ungum misþroska manni kynferðislega á þessu ári. Þetta kom fram í Kastljósi í kvöld. 11.4.2011 19:53 Getur ekki gengið að ráðherrastólnum vísum eftir fæðingarorlof Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra getur ekki gengið að ráðherrastólnum sem vísum eftir fæðingarorlof, samkvæmt lögfræðiáliti sem hún lét gera fyrir sig. 11.4.2011 19:12 Slagkraftur í að sannfæra bandarísku fyrirtækin að lækka ekki Ísland Már Guðmundsson, seðlabankastjóri, segir að stjórnvöld vinni að því hörðum höndum að sannfæra bandarísku lánshæfisfyrirtækin um að lækka ekki lánshæfiseinkunn íslenska ríkisins. 11.4.2011 18:55 Kínverjar hyggjast sigla til Íslands um Norðurpólinn Kínversk stjórnvöld áforma að senda ísbrjót yfir Norðurheimskautið til Íslands í sumar og yrði þetta í fyrsta sinn sem skip kæmi þessa leið frá Kyrrahafinu til Íslands. Jafnframt gæti leiðangurinn orðið heimssögulegur viðburður. 11.4.2011 18:45 Skammar ríkisstjórn Bretlands fyrir að níðast á Íslendingum Erlendir fjölmiðlar héldu áfram að fjalla um Icesave málið í dag. Forseti Íslands var harðorður um matsfyrirtækið Moodys í viðtali við Bloomberg fréttastöðina. 11.4.2011 18:34 Sjö innbrot í bíla um helgina Brotist var inn í sjö bíla í Reykjavík um helgina. 11.4.2011 17:44
Sjá næstu 50 fréttir
Bruggari handtekinn á Akranesi Lögreglan á Akranesi lagði hald á liðlega 200 lítra af gambra og 17 lítra af landa í vikunni. Vísbendingar höfðu borist um að bruggun stæði yfir í íbúð í bænum. 12.4.2011 08:35
Borgin greiðir ekki fyrir börn alkóhólista Reykjavíkurborg stöðvaði allar greiðslur til SÁÁ um síðustu áramót vegna þjónustu fyrir fjölskyldur áfengis- og vímuefnasjúklinga. Engar greiðslur hafa komið frá borginni til göngudeildar SÁÁ vegna þessarar þjónustu en stærsti hluti fjárveitingarinnar fór í sálfræðiþjónustu fyrir börn áfengis- og vímuefnasjúklinga sem sýna einkenni um álag og streitu. Þessi börn eru fæst byrjuð að nota vímuefni og eru á aldrinum 8-14 ára. Þau eru í mestri áhættu allra að eiga í erfiðleikum vegna vímuefna í framtíðinni. Þetta kemur fram í frétt á vef SÁÁ en fyrirsögnin þar er: „Reykjavíkurborg hættir að greiða fyrir börn alkóhólista.“ Þar segir að á árunum 2008-2010 var í gildi samstarfssamningur milli Reykjavíkurborgar og SÁÁ um þjónustu fyrir fjölskyldur áfengis- og vímuefnasjúklinga. Ekkert bólar á nýjum samstarfssamningi eða þjónustusamningi. Forráðamenn SÁÁ bíða og halda úti óskertri þjónustu en nú alfarið á reikning SÁÁ. Fréttin á vef SÁÁ. 12.4.2011 08:35
Garðyrkjumenn gegn ESB Aðalfundur Sambands garðyrkjumanna lýsir andstöðu sinni við aðild Íslands að Evrópusambandinu og stuðningi við stefnu Bændasamtakanna í því máli. 12.4.2011 08:06
Femínistar gagnrýna VG Það er ekki í anda fæðingarorlofslaga að víkja Guðfríði Lilju Grétarsdóttur úr embætti þingflokksformanns þegar hún koma til baka úr fæðingarorlofi og hlýtur að vera á skjön við stefnu Vinstri grænna í jafnréttismálum, segir í ályktun Femínistafélags Íslands. 12.4.2011 08:04
Minnka á magndrykkju Í nýju frumvarpi fjármálaráðherra til breytinga á lögum um Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins er lagt til að stofnunin verði án stjórnar og heyri beint undir fjármálaráðherra. 12.4.2011 08:00
Vilja lög gegn dýrakynlífi Stjórnmálamenn og dýraverndunarsamtök í Danmörku hafa kallað eftir löggjöf gegn kynlífi með dýrum eftir umdeilda heimildarmynd sem sýnd var nýverið í sjónvarpi. 12.4.2011 08:00
Fréttaskýring: Eftirlitsstofnun bíður svars Íslands við áminningarbréfi Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, fullyrðir að ESA hafi ekkert sagt um Icesave sem mark sé á takandi. Frumniðurstöður ESA eru þegar komnar fram og eru þvert á fullyrðingar íslenskra stjórnvalda. 12.4.2011 07:00
Jafnmargir hlynntir og andvígir hernaði Svipað hlutfall landsmanna styður hernaðaríhlutun aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins (NATO) í Líbíu og er andvígt hernaðinum, samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins. 12.4.2011 07:00
Óvæntur stormur og eldingum laust niður „Þetta er svolítið vetrarlegt,“ viðurkennir Þorsteinn Jónsson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, spurður um harðar sviptingar í veðrinu síðustu daga. 12.4.2011 07:00
Nefnd þingmanna móti öryggisstefnu Nefnd tíu þingmanna allra flokka sem sæti eiga á Alþingi verður falið að móta þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland nái þingsályktunartillaga sem utanríkisráðherra hefur lagt fyrir Alþingi fram að ganga. 12.4.2011 06:00
Hópur fjárfesta kaupir MP Banka „MP Banki er það lítill að hann þarf ekki að fara út í meiri háttar tiltektir. Hann hefur ekki þegið styrki eða fyrirgreiðslu frá hendi ríkisins. Það finnst mér skipta miklu máli,“ segir fjárfestirinn Skúli Mogensen, aðaleigandi MP Banka. 12.4.2011 06:00
Lífeyrissjóðsstjóri átti rétt á að fá gögn Synjun Fjármálaeftirlitsins (FME) um afhendingu umbeðinna gagna til Ingólfs Guðmundssonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra Lífeyrissjóðs verkfræðinga, skorti lagastoð að mati umboðsmanns Alþingis. 12.4.2011 05:00
Húsaleigumál 200 talsins á árinu Neytendasamtökunum hafa borist í kringum 200 fyrirspurnir og erindi vegna húsaleigumála það sem af er ári. Samkvæmt tilkynningu frá samtökunum svarar þetta til um 800 erinda á ári, sem er helmingi meira heldur en var í fyrra. Árið 2009 voru rúmlega 200 fyrirspurnir af þessum toga. 12.4.2011 04:00
Óþægilegt að vera bendlaður við svona mál Lögreglan hefur á tæpum tveimur mánuðum fengið 23 tilkynningar um að óprúttnir aðilar hafi reynt að lokka börn upp í svartan bíl. Ekki eru allar þessar ábendingar á rökum reistar eins og leigubílstjóri hér í borg komst að fyrir helgi. 11.4.2011 21:22
Þorvarður Davíð sendi bróður sínum bréf og baðst afsökunar Þorvarður Davíð Ólafsson, sem var dæmdur í 14 ára fangelsi fyrir helgi fyrir að veitast að föður sínum, Ólafi Þórðarsyni, tónlistarmanni, var haldinn miklum ranghugmyndum um föður sinn. 11.4.2011 20:52
Braut gegn misþroska ungum manni á afskekktum stað á þessu ári Ágúst Magnússon, margdæmdur barnaníðingur, á yfir höfði sér ákæru fyrir að hafa brotið gegn ungum misþroska manni kynferðislega á þessu ári. Þetta kom fram í Kastljósi í kvöld. 11.4.2011 19:53
Getur ekki gengið að ráðherrastólnum vísum eftir fæðingarorlof Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra getur ekki gengið að ráðherrastólnum sem vísum eftir fæðingarorlof, samkvæmt lögfræðiáliti sem hún lét gera fyrir sig. 11.4.2011 19:12
Slagkraftur í að sannfæra bandarísku fyrirtækin að lækka ekki Ísland Már Guðmundsson, seðlabankastjóri, segir að stjórnvöld vinni að því hörðum höndum að sannfæra bandarísku lánshæfisfyrirtækin um að lækka ekki lánshæfiseinkunn íslenska ríkisins. 11.4.2011 18:55
Kínverjar hyggjast sigla til Íslands um Norðurpólinn Kínversk stjórnvöld áforma að senda ísbrjót yfir Norðurheimskautið til Íslands í sumar og yrði þetta í fyrsta sinn sem skip kæmi þessa leið frá Kyrrahafinu til Íslands. Jafnframt gæti leiðangurinn orðið heimssögulegur viðburður. 11.4.2011 18:45
Skammar ríkisstjórn Bretlands fyrir að níðast á Íslendingum Erlendir fjölmiðlar héldu áfram að fjalla um Icesave málið í dag. Forseti Íslands var harðorður um matsfyrirtækið Moodys í viðtali við Bloomberg fréttastöðina. 11.4.2011 18:34
Nafn mannsins sem lést Maðurinn sem lést í banaslysinu, sem varð á Langadal í gærmorgun hét Daniel Krzysztof Sakaluk. Hann var fæddur 1993 og til heimilis að Hólsgötu 6 Neskaupstað. 11.4.2011 17:40
Fíkniefnasali handtekinn í Hafnarfirði Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann fíkniefni við húsleit í Hafnarfirði á föstudaginn. Karl um þrítugt var handtekinn í þágu rannsóknarinnar og viðurkenndi hann að fíkniefnin, 20 grömm af amfetamíni, hefðu verið ætluð til sölu. 11.4.2011 17:19
Lee Buchheit fékk 86 milljónir frá íslenska ríkinu Lögfræðistofa Lee Buchheit fékk rúmlega 86 milljónir króna greiddar fyrir störf í samninganefnd vegna Icesave III, sem kosið var um helgina og þjóðin hafnaði. 11.4.2011 17:06
Hluti Bankastrætis lokaður í fyrramálið Lokað verður fyrir umferð niður Bankastræti, neðan Skólastrætis, í fyrramálið vegna framkvæmda á gatnamótum Austurstrætis og Lækjargötu. Yfirborð og snjóbræðsla hefur verið endurnýjuð á helmingi gatnamótanna og í fyrramálið hefst vinna við seinni helminginn. Áhersla er lögð á að þessi vinna taki skamman tíma og verður henni lokið fyrir páska. Endurgerð gatnamótanna er hluti af því að breyta Austurstræti í göngugötu. Vegfarendur eru beðnir velvirðingar á truflun vegna framkvæmdanna, en eru jafnframt beðnir um að sýna aðgát og virða afmörkun vinnusvæða. 11.4.2011 16:04
Lítið að frétta af kjaraviðræðum Engin niðurstaða varð af fundarhöldum Samtaka atvinnulífsins og Alþýðusambands Íslands en forystumenn þeirra hittust á fundi í hádeginu þar sem næstu skref í kjaraviðræðum voru rædd. Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri SA segir að á fundinum hafi menn borið saman bækur sínar en að engin sérstök niðurstaða hafi fengist. 11.4.2011 16:02
Ungmenni lækka meðalaldurinn á borgarstjórarfundi Á morgun munu fulltrúar Reykjavíkurráðs ungmenna sitja borgarstjórnarfund í Ráðhúsi Reykjavíkur ásamt borgarfulltrúum. Fundurinn fer fram í fundarsal borgarstjórnar og hefst kl. 14. Fundurinn verður sendur beint út á vef Reykjavíkurborgar. Þrátt fyrir að meðalaldur borgarstjórnar í Reykjavík hafi lækkað talsvert síðustu áratugina mun hann lækka verulega þriðjudaginn 12. apríl næst komandi en þá taka fulltrúar í Reykjavíkurráði ungmenna sæti á fundi með borgarstjórn sem fram fer í Ráðhúsi Reykjavíkur. Fundarefnið eru málefni ungs fólks og ræddar verða tillögur frá ungmennaráðum í Reykjavík sem fulltrúar Reykjavíkurráðsins munu flytja á fundinum. Átta fulltrúar Reykjavíkurráðs ungmenna sitja fundinn ásamt sjö borgarfulltrúum og því má segja að ungt fólk myndi tímabundið meirihluta í stjórn borgarinnar. Ungu fólki liggur ýmislegt á hjarta og á fundinum verða ræddar tillögur sem snúa að aðstöðu til íþróttaiðkunar og félagsstarfs, baráttunni gegn einelti og vanlíðan, bættum strætósamgöngum og einfaldari gjaldskrá, málefnum Vinnuskólans, veggjalist og tónlistarnámi, auk þess sem fyrir fundinum liggur tillaga um að tillögur ungs fólks um málefni sem þau varða verði betur fylgt eftir af hálfu borgarstjórnar. Fundur Reykjavíkurráðs ungmenna og borgarstjórnar er orðinn að árvissum viðburði og í ár er tíundi fundurinn á dagskrá. Með þessu móti er ungu fólki gefið tækifæri á að koma tillögum sínum og ábendingum um eigin málefni milliliðalaust til þeirra sem stýra borginni á hverjum tíma. Reykjavíkurráð ungmenna er samráðsvettvangur ungmennaráða í Reykjavík en alls starfa átta ungmennaráð í hverfum borgarinnar. 11.4.2011 15:33
Íshellir hrundi á mann Maður var fluttur á slysadeild með þyrlu um hádegisbilið eftir að þak á manngerðum íshelli féll á hann. Slysið átti sér stað í Bláfellshálsi á Kili og sinnti lögreglan á Selfossi útkallinu. Þá voru kallaðar til björgunarsveitir og þyrla Landhelgisgæslunnar. Um var að ræða hóp kvikmyndagerðarmanna sem var við tökur á Kili. Þar höfðu þeir búið til íshelli og var maðurinn inni í hellinum þegar hluti þaksins hrundi yfir hann. Mögulegt er talið að maðurinn sé hryggbrotinn og jafnvel með innvortis blæðingar. 11.4.2011 15:19
Ásmundur Einar: "Ótrúleg vinnubrögð" Ásmundur Einar Daðason þingmaður VG er ekki sáttur við vinnubrögð félaga sinna í þingflokki VG en í gær var Guðfríður Lilja Grétarsdóttir sett af sem þingflokksformaður. Árni Þór Sigurðsson var kjörinn formaður í hennar stað en Guðfríður Lilja var að snúa til baka úr fæðingarorlofi. 11.4.2011 14:58
Bíða eftir myndum úr kjúklingabúum Matfugls Starfsfólk Matfugls vinnur nú hörðum höndum að því að svara hópi áhugafólks um velferð dýra sem hefur á Facebook-síðu Matfugls óskað eftir myndum sem teknar eru inni í kjúklingabúum Matfugls til að neytendur geti betur áttað sig á aðstæðum á íslenskum kjúklingabúum. Sirrý Svöludóttir, markaðsstjóri Yggdrasils ehf., setti fyrst inn fyrirspurn til Matfugls þar sem hún sagðist vilja sjá aðstæður með eigin augum þar sem umræðan um verksmiðjubúskap hefur verið hávær að undanförnu. Fjöldi fólks hefur í kjölfarið tekið undir með Sirrý og óskað eftir bæði upplýsingum og myndum. Sigurveig Káradóttir, matgæðingur sem gert hefur úttekt á gæðum hráefnis í mötuneytum skóla, leggur einnig orð í belg. „Hef líka áhuga á að vita meira um hvernig málum er háttað hér á landi. Og að fá almennt frekari upplýsingum frá framleiðendum um aðbúnað dýra og eins þau aukaefni sem sett eru í matinn og af hverju þau eru sett. Hér er að vakna upp hópur sífellt kröfuharðari neytenda, og í raun kjörið tækifæri fyrir þá framleiðendur sem vilja fylgja þeirri jákvæðu þróun eftir að vakna strax til meðvitundar og koma til móts við þann hóp," segir hún. Sirrý heldur úti vefsíðu sem hún kallar „Lífrænt vottað blogg" þar sem hún greinir frá fyrirspurn sinni til Matfugls. http://svoludottir.wordpress.com/2011/04/09/kjuklingabu-a-facebook/ Facebook-síðu Matfugls má finna hér en þar kemur fram að búist er við að þeir séu að vinna að svörum og búist við að birta þau á síðunni á morgun. http://www.facebook.com/#!/pages/Matfugl-ehf/468525455393 11.4.2011 14:47
Icesave hefur engin áhrif á aðildarviðræður við ESB Synjun Icesave-samkomulagsins í þjóðaratkvæðagreiðslunni á laugardag hefur engin áhrif á aðildarviðræður Íslendinga við Evrópusambandið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Stefan Fule stækkunarstjóra sambandsins og Michel Barnier framkvæmdastjóra innri markaðar bandalagsins. „Niðurstaða kosninganna hefur ekki áhrif á aðildarviðræðurnar sem nú standa yfir og framkvæmdastjórn Evrópusambandsins styður heilshugar. 11.4.2011 13:48
Fjögur umferðaróhöpp á Vestfjörðum Í vikunni sem var að líða voru fjögur umferðaróhöpp tilkynnt til lögreglunnar á Vestfjörðum. Miðvikudaginn 6. apríl varð útafakstur á Holtavörðuheiðinni, um að ræða minniháttar óhapp og ekki slys á fólki. Fimmtudaginn 7. apríl varð óhapp í Vestfjarðargöngunum með þeim hætti að ekið var utan í vinnulyftu Vegagerðarinnar þar sem unnið var við viðgerð á ljósum. Ekki urðu miklar skemmdir og ekki slys á fólki. Föstudaginn 8. apríl varð bílvelta á Súðavíkurhlíð, þar hafnaði bifreið utan í vegriði með þeim afleiðingum að hún valt. Ökumaður og farþegi voru fluttir með sjúkrabíl á sjúkrahúsið á Ísafirði til skoðunar, um minniháttar meiðsl að ræða. Sunndaginn 10. apríl hafnaði bifreið út fyrir veg á veginum um Þröskulda, um minniháttar óhapp var að ræða og ekki slys á fólki. Sjö ökumenn voru stöðvaðir fyrir of hraðan akstur í umdæminu í vikunni. Einn ökumaður var stöðvaður á Ísafirði fyrir of hraðan akstur, þrír í nágreni við Hólmavíkur og þrír á Holtavörðuheiðinni. Sá sem hraðast ók, var mældur á 120 km/klst., þar sem leyfilegur hámarkshraði er 90 km/klst. 11.4.2011 13:10
Kannanir MMR reyndust nærri úrslitunum Niðurstöður kannana MMR í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar um Icesave þann 9. apríl síðastliðinn reyndust mjög nærri úrslitum kosninganna. Í tilkynningu frá MMR segir að þannig hafi niðurstöður beggja kannana MMR sem birtust í vikunni fyrir kosningarnar verið innan vikmarka frá niðurstöðum kosninganna. Kannanir MMR voru jafnframt þær fyrstu sem sýndu fram á meirihlutastuðning við "nei" atkvæði. 11.4.2011 13:01
Eldingu laust niður í Hellisheiðarvirkjun Eldingu laust niður í Hellisheiðarvirkjun í morgun og olli umtalsverðu tjóni. Raforkuframleiðsla datt niður í um klukkutíma en er nú aftur komin í gang. 11.4.2011 12:15
Ævintýrið heldur áfram hjá loðdýrabændum Verð fyrir íslensk minkaskinn hækkaði um fimm til sjö prósent á uppboði í Kaupmannahöfn í morgun og hefur aldrei í sögunni verið jafn hátt. Verðið hefur tífaldast frá því það var lægst fyrir tuttugu árum. 11.4.2011 12:14
Fautaárás á Selfossi - tólf yfirheyrðir Tilkynnt var um kröftug slagsmál við skemmtistaðinn Hvíta húsið á Selfossi um klukkan fjögur á sunnudagsmorgun. Lögreglumenn sem voru skammt frá fóru þegar á staðinn og er þangað kom var hópur fólks skammt frá skemmtistaðnum. 11.4.2011 12:11
Jafnréttisstofa telur mál Guðfríðar Lilju á gráu svæði Árni Þór Sigurðsson, nýkjörinn þingflokksformaður VG vísar því alfarið á bug að brotin hafi verið jafnréttislög þegar hann tók við stöðu þingflokksformanns Vinstri grænna í stað Guðfríðar Lilju Grétarsdóttur sem gegndi embættinu, áður en hún fór í fæðingarorlof. Jafnréttisstofa telur málið á gráu svæði. 11.4.2011 12:10
Breytingar á stjórnarsamstarfi útilokaðar Nær útilokað er talið að breytingar verða á skipun stjórnarsamstarfsins. Þá hefur Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn skilning á þeirri stöðu sem upp er komin og unnið er að því að sannfæra lánshæfisfyrirtækin um að lækka ekki lánshæfið. 11.4.2011 12:09
Brotnar bílrúður í Borgarfirðinum Óveður raskaði ferðum fjölda fólks síðdegis og í gærkvöldi. Nokkur hópur fólks þurfti að bíða af sér óveðrið á Hótel Brú en ökumenn lentu í grjótfoki á Borgarfjarðarbrúnni svo nokkrar rúður fóru í mask eins og sjá má á meðfylgjandi myndbandi. Fleiri hundruð manns gistu til dæmis í Hrútafirðinum í nótt, eftir að norðurleiðin lokaðist vegna ofsaveðurs. 11.4.2011 12:07
Ísland fær tvo mánuði til þess að svara ESA Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, hefur óskað eftir því að íslensk stjórnvöld svari áliti ESA frá því í maí, innan tveggja mánaða, vegna niðurstöðu þjóðatkvæðagreiðslunnar um Icesave. 11.4.2011 10:58
Forsetinn í freyðivíns-fjölmiðlabaði "Mér fannst hann vera í svolitlu freyðivíns-fjölmiðlabaði. Ég verð að segja eins og er," segir Atli Gíslason, þingmaður utan þingflokka og meðlimur Vinstri grænna, um Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, sem hélt blaðamannafund í gær um niðurstöðu Icesave-kosninganna. "Hann var eitthvað svo glaður, barnslega glaður, og hann var í mjög sterkum pólitískum málflutningi," segir Atli. Atli var gestur þáttarins Í bítið í morgun á Bylgjunni þar sem hann og Ragnheiður Ríkharðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, ræddu niðurstöðu kosninganna. Atla finnst Ólafur Ragnar hafa gengið mun lengra en fyrir forsetar þegar kemur að pólitískum afskiptum. "Hann var að tala mjög pólitísk og gekk lengra en fyrirrennarar hans hafa gert," segir Atli. "Hann var í díalóg við ríkisstjórn, hann var í deilu við forystumenn atvinnulífsins. Hann gekk mjög langt," segir hann. Ragnheiður segir það afar sérstakt að forsetinn hafi boðað til blaðamannafundar daginn eftir kosningarnar, sem voru haldnar í framhaldi af því að hann sjálfur neitaði að staðfesta Icesave-samninginn. Ragnheiður benti á að Icesave hefur klofið þjóðina í tvær fylkingar. "Mér fannst þetta persónulega ekki eiga við," segir Ragnheiður. Henni hefði fundist fara betur á því að ef forsetinn ætlaði að halda blaðamannafund um málið, að hann héldi hann síðar, en Ólafur Ragnar hélt sinn fund skömmu eftir að blaðamannafund ríkisstjórnarinnar. Þannig fannst Ragnheiði blasa við að ekkert samstarf hefði verið á milli skrifstofu forsetans og forsætisráðuneytisins. "Margt af því sem hann sagði var hins vegar mjög gott," segir hún. Umræður þeirra Atla og Ragnheiðar Í bítinu má hlusta á heild sinni með því að smella á tengilinn hér að ofan. 11.4.2011 10:24
Gróðurhús við Norræna húsið fauk út í veður og vind Flytja verður athöfn vegna undirritunar Háskóla Íslands, Reykjavíkurborgar og Norræna hússins, um að gera Vatnsmýrina að opinni rannsóknastofu, á annan stað en fyrirhugað var, þar sem gróðurhúsið við Norræna húsið, þar sem til stóð að undirrita samkomulagið, fauk út í veður og vind í gærkvöldi. 11.4.2011 08:13
Bílrúður sprungu og fjárhús fauk - tjónið víða en hvergi alvarlegt Tvö hundruð björgunarsveitarmenn, hið minnsta, sinntu á fjórða hundrað beiðnum um aðstoð á Suðurnesjum, á höfuðborgarsvæðinu og á Vesturlandi frá því síðdegis í gær og langt fram á kvöld. 11.4.2011 08:08
Ofurölvi ökumaður festi bílinn í óveðri Ofurölvi ökumaður missti bíl sinn út af veginum í Villingaholtshreppi, austan við Selfoss á tólfta tímanum í gærkvöldi og festi bílinn. 11.4.2011 08:05
Einn féll útbyrðis og annar fótbrotnaði Einn skipverji á hvalaskoðunarbátnum Knerri féll útbyrðis í nótt og ofkældist á meðan annar skipverji brotnaði illa á öðrum fæti. Hvalaskoðunarbáturinn var að draga skútuna Áróru, sem er upprunalega frá Ísafirði, til Húsavíkur þegar atvikið átti sér stað. 11.4.2011 08:02