Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Of miklar kröfur gerðar til ungra barna í skýrslutökum Mun meiri líkur eru á því að kynferðisbrotamenn verði ákærðir fyrir kynferðisofbeldi gegn börnum, þegar framburður barnanna er greinargóður og þau geta greint skýrlega frá ofbeldinu. Aldur barnanna hefur mikil áhrif á ákæru og varða þær langflestar börn á aldrinum 12 til 14 ára. Einungis er ákært í 16 prósentum mála þegar börn á aldrinum 3 til 5 ára eiga í hlut. 7.4.2011 09:30
Ámælisvert að hunsa álit ESA Viðbrögð stjórnvalda við áliti ESA, eftirlitsstofnun EFTA, um stöðu Ríkisútvarpsins (RÚV) á fjölmiðlamarkaði eru með eindæmum daufleg, að mati Ara Edwald, forstjóra 365 miðla. „ESA krefst þess að stjórnvöld setji inn í fjölmiðlalögin, ekki bara lög um RÚV, grundvallarreglur sem gæta þarf að varðandi samkeppnisstöðu á fjölmiðlamarkaði,“ segir hann. 7.4.2011 09:00
Gæsluvarðhald framlengt yfir stórsmyglara Gæsluvarðhald yfir karlmanni sem tekinn var með mikið magn af LSD og e-töflum á Keflavíkurflugvelli í síðasta mánuði, var framlengt í Héraðsdómi Reykjaness í gær til 20. apríl. Maðurinn situr í einangrunarvist. 7.4.2011 08:30
Faðir og frændi neita báðir sök Mennirnir tveir, sem setið hafa í gæsluvarðhaldi vegna gruns um gróft kynferðislegt ofbeldi gagnvart dreng á áttunda ári sættu yfirheyrslum hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í allan gærdag. Þeir neita báðir sök í málinu. 7.4.2011 08:00
Bensínþjófur enn á ferð á Akureyri Bensínþjófur var enn á ferð á Akureyri í nótt og líkt og þjófarnir í fyrrinótt, leitaði hann fanga í vélsleðum. 7.4.2011 07:58
Sáu fastan bíl í vefmyndavél Vegagerðarinnar Ökumaður fólksbíls hringdi í lögregluna á Akureyri í nótt og sagðist vera fastur í snjó á Öxnadalsheiði. 7.4.2011 07:55
Aðeins ein flugvél til afnota hjá Gæslunni Landhelgisgæslan hefur nú aðeins eina flugvél til afnota, sem stórskerðir möguleika á björgunarstörfum á hafi úti. 7.4.2011 07:52
Áhöfnin á Málmey óhress með að geta ekki kosið um Icesave Áhöfnin á frystitogaranum Málmey frá Sauðárkróki veltir því fyrir sér hvort þjóðaratkvæðagreiðslan um Iceve samninginn verði ekki ólögleg, þar sem ákveðnum hópi kjósenda sé gert ókleift að taka þátt í henni. 7.4.2011 07:49
Tveir karlmenn brutust inn og síðan út úr verslun Tveir karlmenn, sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í nótt eru sekir um bæði innbrot og útbrot, auk þjófnaðar. 7.4.2011 07:38
Umsagnir stöðva ekki sameiningarnar í bili Mikill meirihluti af umsögnum sem borgaryfirvöldum barst vegna fyrirhugaðra breytinga í skólakerfi Reykjavíkur er neikvæður gagnvart framkomnum hugmyndum. Umsagnirnar voru til umræðu á borgarstjórnarfundi á þriðjudag og var tillögu minnihlutans um að draga tillögurnar til baka vísað frá. 7.4.2011 07:00
Meirihlutinn hafnar Icesave Meirihluti landsmanna ætlar að hafna Icesave-samningunum í þjóðaratkvæðagreiðslunni á laugardag samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. Alls sögðust 54,8 prósent þeirra sem afstöðu tóku ætla að hafna lögunum en 45,2 prósent sögðust ætla að samþykkja þau. 7.4.2011 06:30
Mesta veltan í rúmlega þrjú ár Fasteignamarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu tók kipp í síðasta mánuði þegar 409 kaupsamningum var þinglýst. Samkvæmt tölum Þjóðskrár Íslands er þetta mesti fjöldi í einum mánuði frá febrúar 2008. 7.4.2011 04:00
„Hér skulu blása ferskir vindar“ Fyrsti formlegi fundur stjórnlagaráðs fór fram að Ofanleiti 2 í Reykjavík í gær. Ómar Ragnarsson, aldursforseti ráðsins, stýrði fundinum. „Hér skulu blása ferskir vindar,“ sagði hann í ræðu sinni. „Við lítum á okkur sem hlekk í keðju kynslóðanna og framvindu sögunnar.“ 7.4.2011 00:00
Húkka sér bílfar á netinu Þótt enn megi sjá stöku ferðalang standa með útréttan þumal við þjóðveginn húkka flestir nútíma puttalingar bílfar á netinu. Á sama tíma sækjast ferðamenn á bílaleigubílum eftir farþegum með sér. 6.4.2011 22:30
Stuðningur við ríkisstjórnina hríðfellur Stuðningur við ríkisstjórnarflokkanna hríðfellur samkvæmt skoðanakönnun MMR og hefur tekið afar miklum breytingum frá kosningunum í apríl 2009. Líkt og fram kom fram fyrr í kvöld er Sjálfstæðisflokkurinn sá stjórnmálaflokkur sem nýtur nú langmest stuðnings. 6.4.2011 21:19
100 stór páskaegg gefins Í tilefni tíu ára afmælis Fréttablaðsins kynnir blaðið skemmtilegan afmælisleik til sögunnar. Það eina sem þátttakendur þurfa að gera er að svara einni laufléttri spurningu og skrá sig á slóðinni visir.is/frettabladid. 6.4.2011 21:00
Starf stjórnlaganefndar gekk furðu vel „Furðu vel verð ég að segja. Ég held að við höfum rennt alveg blint í sjóinn þegar að við hófum þetta starf og ekki gert okkur grein fyrir hvað beið okkar,“ segir Guðrún Pétursdóttir, formaður stjórnlaganefndar, um vinnu og tillögur nefndarinnar sem lagðar voru fyrir stjórnlagaráð í dag á fyrsta formlega fundi ráðsins. Stjórnlagaráð hefur það verkefni að undirbúa frumvarp um breytingar á stjórnarskránni. Rætt var við Guðrúnu í Kastljósi í kvöld. 6.4.2011 20:53
Ég skil ekki af hverju hann drap hana út af 19 þúsund krónum 24 ára Íslendingur, Lárus Freyr Einarsson hefur verið dæmdur í 14 ára fangelsi fyrir morð sem hann framdi í smábæ skammt frá Horsens í Danmörku. Hann og samverkamaður hans, sem fékk 12 ára fangelsi, hafa áfrýjað dómnum. 6.4.2011 19:46
Pabbinn verði áfram í varðhaldi Lögreglan hyggst fara fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir manni sem grunaður er um að hafa misnotað átta ára gamlan son sinn. Mikil vinna bíður lögreglu sem ætlar að rannsaka mörg þúsundir ljósmyndir sem fundust í tölvu mannsins. 6.4.2011 18:48
Meirihlutinn vill fella Icesave Icesave samningarnir verða felldir í þjóðaratkvæðagreiðslu á laugardag. Tæplega fimmtíu og sjö prósent þjóðarinnar ætla að segja nei samkvæmt nýrri könnun Stöðvar 2. Algjör umsnúningur hefur orðið í afstöðu fólks til málsins á nokkrum vikum. 6.4.2011 18:30
90% synjað um hæli Aðeins fimm hælisleitendur af 51 fengu hæli hér á landi í fyrra. Hælisleitandi sem beðið hefur í 15 mánuði eftir endanlegu svari segir að Ísland loki á fólk sem sé í vanda statt. 6.4.2011 20:01
Jóhanna og Dagur gefa flokksmönnum línuna „Hafni íslenska þjóðin samningnum mun það ekki verða til þess að deilan hverfi heldur eru allar líkur á því að deilan harðni og að framtíðarhagsmunum þjóðarinnar verði þar með stefnt í tvísýnu,“ segja Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, og Dagur B. Eggertsson, varaformaður Samfylkingarinnar, í tölvubréfi til flokksmanna. 6.4.2011 19:38
Kara fundin Kara Dröfn Ásgeirsdóttir sem lögregla lýsti eftir fyrr í dag er komin í leitirnar, en ekki var vitað um ferðir hennar síðustu þrjár vikurnar. 6.4.2011 19:12
Alþingi á ekki að gerast dómari í eigin sök Fyrsti formlegi fundur stjórnlagaráðs var haldinn í dag en ráðið hefur það verkefni að undirbúa frumvarp um breytingar á stjórnarskránni. Ómar Ragnarsson, aldursforseti ráðsins, setti fundinn en gert er ráð fyrir því að ráðið starfi í tvo til fjóra mánuði. 6.4.2011 18:57
Framsóknarflokkur og Samfylking með svipað fylgi Sjálfstæðisflokkurinn fengi 40% fylgi ef gengið yrði til þingkosninga í dag, ef marka má skoðanakönnun MMR. Framsóknarflokkurinn bætir við sig fylgi og mælist nú með 16%, Samfylkingin mælist með 17% fylgi, Vinstri græn með 12,8% og og Hreyfingin með 4,7%. 602 tóku þátt í könnunni en 64% þeirra tóku afstöðu. 6.4.2011 18:33
700 manns fylgdust fyrsta fundi stjórnlagaráðs Alls fyldust 700 manns með fyrsta fundi stjórnlagaráðs sem fór fram í dag. Allir fundir ráðsins verða sýndir í beinni útsetningu á netinu. 6.4.2011 18:09
Tafir í Grafarvogi vegna umferðarslyss Umferðarslys varð á við Hallsveg í Grafarvogi á sjötta tímanum í dag. Búast má við umferðartöfum í grennd við Gullinbrú, Strandveg og Hallsveg í einhvern tíma vegna þessa, að sögn lögreglu. Ekki fást frekari upplýsingar um málið að svo stöddu. 6.4.2011 17:59
Bubbi horfir fram á veginn „Að eiga fjölskyldu og vini er það eina sem skiptir máli í þessu lífi, það finnst mér,“ segir tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens og horfir fram á veginn en í byrjun vikunnar greindi hann frá því að Hrafnhildur Hafsteinsdóttir, eiginkona hans, hefði nýverið fætt andvana barn. Þau komust að því þegar að þau fóru í 20 vikna sónar að barnið væri látið. 6.4.2011 17:48
Fyrir næstu kynslóðir Stjórnlagaráð var sett í dag en það var aldurforsetinn Ómar Ragnarsson sem setti fyrsta fund ráðsins. Stjórnlaganefnd afhenti fulltrúunum hugmyndir sínar um breytingar á stjórnarskránni en tillögurnar eru í tveimur bindum sem telja samtals 700 blaðsíður. Verkefni ráðsins er að fara yfir hugmyndirnar og koma með tillögu að endurbættri stjórnarskrá. Stjórnlaganefnd sem kjörin var af Alþingi 16. júní í fyrra og Guðrún Pétursdóttir veitti forystu hefur þar með lokið störfum. 6.4.2011 17:26
Skoðanakönnun um Icesave í kvöld Fréttastofa Stöðvar 2 og Vísis hefur látið framkvæma skoðanakönnun þar sem almenningur er spurður út í afstöðu sína til Icesave en nú styttist í þjóðaratkvæðagreiðslu um málið sem Alþingi samþykkti en forseti synjaði undirskriftar. Könnunin var framkvæmd í gær og varpar hún ljósi á afstöðu almennings til þessa umdeilda máls. Greint verður frá niðurstöðunum í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan hálfsjö. 6.4.2011 17:00
Bjarni Harðarson: Ég kann á Outlook Bjarni Harðarson, upplýsingafulltrúi í landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneytinu, sendi póst á alla fjölmiðla í dag sem ætlaður var samstarfsmanni í ráðuneytinu. Efni póstsins var ábendingar vegna fréttatilkynningar sem til stóð að birta á vef ráðuneytisins. Þetta er í annað sinn sem Bjarni sendir póst á fjölmiðla óafvitandi. Í fyrra skiptið var um að ræða póst um Valgerði Sverrisdóttur sem átti að fara á aðstoðarmann hans og síðan úr óþekktu netfangi á fjölmiðla. 6.4.2011 16:43
Töluvert magn af fölsuðum rakvélablöðum tekið Tollgæslan lagði hald á töluvert magn af fölsuðum Gillette Fusion Power rakvélablöðum á dögunum. Um var að ræða hraðsendingu frá Hong Kong. Þetta er í fyrsta skipti sem tollgæslan hér á landi leggur hald á fölsuð rakvélablöð, en talið er líklegt að rakvélablöðin hafi verið ætluð til sölu hér á landi. 6.4.2011 15:49
Varað við bílastæðavanda vegna körfuboltaleiks Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu beinir þeim tilmælum til ökumanna sem eiga leið um vesturbæ Reykjavíkur að virða rétt gangandi vegfarenda og leggja ekki á gangstéttir eða á göngustígum. Þeir ökumenn sem leggja ólöglega mega búast við sektum. 6.4.2011 15:25
Allt að 75 prósenta verðmunur á umfelgun Nú nálgast vorið og þá fara ökumenn að huga að því að skipta yfir á sumardekkin. Þann 15. apríl eiga vetrardekkin að vera horfin undan bifreiðum landsmanna og af því tilefni hefur verðlagseftirlit ASÍ gert verðkönnun á skiptingu, umfelgun og jafnvægisstillingu hjá 36 hjólbarðaverkstæðum víðsvegar um landið. Könnunin var gerð á mánudaginn var og var þjónusta könnuð fyrir nokkrar tegundir fólksbíla og var allt að 75 prósenta verðmunur á milli verkstæða. 6.4.2011 15:11
Hænur lokaðar í búri alla ævi "Næstum öll egg sem eru framleidd eru á Íslandi koma undan hænum sem eru hafðar í búri alla ævi. Ég held að neytendur geri sér ekki grein fyrir hvernig er búið að dýrum hér á landi. Ég held að þeir haldi að ástandið sér betra en það er. Okkur langar til að vekja fólk til meðvitundar um ástandið og reyna að bæta það," segir Sif Traustadóttir, dýralæknir og félagi í nýjum samtökum um aukna velferð búfjár á Íslandi, Velbú. Unnið hefur verið að stofnun samtakanna síðustu mánuði og verður formlegur aðalfundur innan tíðar. 6.4.2011 15:10
Vélarvana bátur skammt frá Óðinsboða Björgunarskipið Húnabjörg frá Skagaströnd er nú á leiðinni að aðstoða vélarvana bát skammt frá Óðinsboða. Báturinn er 23. tonna stálbátur og er áætlað að Húnabjörg verði komin að honum um klukkan 15:30. Um töluvert langa siglingu er að ræða, um 50 sjómílur, og því reiknað með að bátarnir verði komnir aftur til Skagastrandar um og eftir miðnættið. Veður er þokkalegt á þessum slóðum. 6.4.2011 14:27
Játar að hafa myrt mömmu Leifs Tuttugu og fimm ára gamall karlmaður, sem grunaður er um að myrða mömmu hins íslenska Leifs Magnúsar Grétarssonar í bænum Mandal Noregi, hefur játað að bera ábyrgð á andláti hennar. Aftenposten segir að hann hafi játað við yfirheyrslur í morgun. Hann gengst hins vegar ekki við því að hafa framið morðið að yfirlögðu ráði. 6.4.2011 14:20
Íslendingur dæmdur í fjórtán ára fangelsi fyrir morð Tuttugu og fjögurra ára gamall íslenskur karlmaður, Lárus Freyr Einarsson, hefur verið dæmdur í fjórtán ára fangelsi fyrir morð sem hann framdí í Horsens í Danmörku á síðasta ári. 6.4.2011 13:07
Lögreglan lýsir eftir Köru Dröfn Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir, Köru Dröfn Ásgeirsdóttur. Hún er fædd þann 16.09.1993. Hún er um 170, sentimetrar á hæð og 55 kílógrömm. Hún er með dökkt skolleitt hár. Ekki vitað um klæðnað. Lögreglan segir að ekki hafi heyrst frá Köru í um þrjár vikur. 6.4.2011 12:10
Framkvæmdastjóri Becromal hættur störfum Framkvæmdastjóri Becromal Iceland sagði upp störfum í gær og tók uppsögnin gildi samdægurs. Samningur framkvæmdastjórans var tímabundinn og hefði að óbreyttu lokið fyrir áramót. Í fréttatilkynningu frá stjórn félagsins kemur fram að auglýst verði eftir framkvæmdastjóra á næstu dögum og verður þá farið í formlegt ráðningarferli. 6.4.2011 11:34
Pabbinn og frændinn yfirheyrðir í allan dag Mennirnir tveir sem sitja í gæsluvarðhaldi, grunaðir um að hafa beitt 7 ára dreng grófu kynferðislegu ofbeldi, verða yfirheyrðir í allan dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er búist við að yfirheyrslur standi fram á kvöld. Mennirnir sem um ræðir eru faðir drengsins og frændi hans. Tekin verður ákvörðun um það í fyrramálið hvort farið verður fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir mönnunum. Varðhaldið rennur út á morgun, en ekki í dag eins og greint var frá í Fréttablaðinu. Faðir drengsins á að bak langan sakaferil og hefur meðal annars hlotið dóm fyrir árás á móður drengsins. Móðirin sagði í samtali við fréttastofu í gær að hún óttaðist mjög mennina tvo. Vegna þessa hefur hún flúið heimili sitt, ásamt drengnum, eiginmanni sínum og börnum þeirra. Meðal þess sem lögreglan rannsakar nú eru tölvugögn sem lagt var hald á við húsleit hjá mönnunum þann 31. mars, en grunur leikur á að mennirnir hafi myndað ofbeldið sem þeir beittu drenginn. 6.4.2011 11:26
Lögreglan minnir á bingóbann um páskana Skemmtanir, svo sem dansleikir eða einkasamkvæmi á opinberum veitingastöðum eða á öðrum stöðum sem almenningur hefur aðgang að, eru bannaðar á ákveðnum tíma um bænadaga og páska. Hið sama gildir um opinberar sýningar og skemmtanir þar sem happdrætti, bingó eða önnur spil fara fram. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni sem minnir á umrætt bann. Tekið skal fram að listsýningar, tónleikar, leiksýningar og kvikmyndasýningar eru undanþegnar banni um helgidagafrið á föstudaginn langa en slíkir viðburðir mega þó ekki hefjast fyrr en klukkan 15:00 umræddan dag. Miðvikud. 20. apríl - Opið til kl. 03:00 eða 05:30 skv. leyfi Fimmtud. 21. apríl Skírdagur - Opið til miðnættis Föstud. 22. apríl Föstudagurinn langi - Lokað en má opna á miðnætti og vera opið til kl. 03:00 eða 05:30 Laugard. 23. apríl - Opið til kl. 03:00 Sunnud. 24. apríl Páskadagur - Lokað en má opna á miðnætti og vera opið til kl. 03:00 eða 05:30 Mánud. 25. apríl Annar í páskum - Opið til kl. 01:00 6.4.2011 11:07
Dæmd fyrir að kýla snyrtifræðing Rúmlega tvítug kona hefur verið dæmd í þriggja mánaða fangelsi og til greiðslu rúmlega 200 þúsunda króna í skaðabætur fyrir að kýla aðra konu í andlitið. Hin síðarnefnda hlaut glóðarauga og blóðnasir. 6.4.2011 10:15
Hætt við fækkun öldrunarrýma á Barmahlíð Hætt hefur verið við fækkun öldrunarrýma á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Barmahlíð í Reykhólahreppi. Þetta er hluti af aðgerðapakka ríkisstjórnarinnar til eflingar atvinnu og byggðar á Vestfjörðum sem kynntur var í gær. Þá var haldinn ríkisstjórnarfundur á Ísafirði og samþykkt 16 verkefni sem snúa að eflingu fjórðungsins. Velferðarráðuneytið tilkynnti hjúkrunarforstjóra Barmahlíðar í febrúar á þessu ári að heimilinu væri gert að fækka öldrunarrýmum úr 14 í 12 á árinu. Hreppsnefnd Reykhólahrepps sagði rekstrargrundvöll heimilisins þar með brostinn. Tvö rými á heimilinu samsvara 14,4 milljóna króna framlagi frá ríkinu, eða um 15% af heildarframlagi til heimilisins. Vegna þessa taldi hreppsnefndin að ekki væri lengur forsenda til að reka heimilið. Nú hefur ríkisstjórnin kallað þennan niðurskurð til baka og mun heimilið starfa áfram í óbreyttri mynd. 6.4.2011 10:00
Stjórnlagaráð sett í dag - almenningur velkominn Stjórnlagaráð verður sett í dag klukkan tvö. Á setningunni fá fulltrúar í stjórnlagaráði afhenta skýrslu stjórnlaganefndar, sem Guðrún Pétursdóttir hefur stýrt, þar sem koma fram tillögur nefndarinnar um breytingar á stjórnarskránni. Stjórnlaganefnd sem kjörin var af Alþingi 16. júní í fyrra hefur þar með lokið störfum. Að setningu lokinni verður efni skýrslunnar kynnt fjölmiðlum. Setningin er opin almenningu á meðan húsrúm leyfir, en aðsetur stjórnlagaráðs eru í Ofanleiti 2 í Reykjavík. Í Stjórnlagaráði sitja 25 fulltrúar og er þeim ætlað að taka við og fjalla um skýrslu stjórnlaganefndar, undirbúa frumvarp að endurbættri stjórnarskrá og hafa til hliðsjónar við þá vinnu niðurstöður Þjóðfundar sem haldinn var í fyrra. 6.4.2011 08:45