Fleiri fréttir

Grímuklætt par rændi söluturn í Breiðholti

Ungt par rændi peningum úr söluturni í Breiðholti í gærkvöldi. Parið snaraðist þar inn rétt fyrir klukkan hálf tólf, en þá er söluturninum að venju lokað. Bæði voru grímuklædd og vopnuð bareflum.

Ók á staur á Hringbraut

Ölvaður ökumaður ók bíl sínum á ljósastaur við Hringbraut um klukkan hálf fjögur í nótt. Bíllinn skemmdist svo mikið að hann var óökufær, en lögregla greip ökumanninn undir stýri á vettvangi. Staurinn var það mikið laskaður að lögregla kallaði út starfsmenn Orkuveitunnar til að aftengja hann.

Rafmagn fór tvisvar af hjá Hurts

Hljómsveitin Hurts heldur tónleika í Vodafone höllinni í kvöld. Eitthvað virðist tæknin vera að stríða tónleikahöldurum því tvisvar sinnum hefur hljómsveitin þurft að gera hlé vegna þess að rafmagn hefur farið af í húsinu. Vísir hefur ekki fengið upplýsingar um það hvað veldur rafmagnsleysinu.

Fréttir vikunnar: Legókubbaperrar og kynferðisleg áreitni í sýndarheimi

Vikan hófst með víðtækum aðgerðum efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjórans þegar þeir handtóku fimmtán stjórnendur og starfsmenn Byko hf. og Húsasmiðjunnar hf., vegna meint ólöglegs verðsamráðs. Mennirnir voru færðir til yfirheyrslu. Þá hefur einn starfsmaður verið boðaður til frekari yfirheyrslu. Aðgerðirnar nú eru framhald af húsleit í húsnæði Byko hf., Húsasmiðjunnar hf. og Úlfsins, sem fram fóru þann 8. mars síðastliðinn og yfirheyrslna í kjölfarið.

Skattahækkanir þjarma að garðyrkjustöð

Sú garðyrkjustöð landsins, sem er með víðfeðmustu gróðurhúsin, er ekki á Suðurlandi heldur skammt sunnan Húsavíkur. Hlutafélagið er yfir eitthundrað ára gamalt, talið það næstelsta hérlendis, en nú er svo komið að skattaálögur þjarma að rekstrinum.

Arnar og Bjarki reisa raðhús á Langanesi

Smíði sex raðhúsa er að hefjast á Þórshöfn á Langanesi, fimmtán árum eftir að íbúðarhús var síðast byggt þar. Það eru knattspyrnutvíburarnir Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir sem ríða á vaðið.

Eldur á Bústaðabletti

Eldur kviknaði í húsi á Bústaðabletti, rétt við Bústaðarkirkju, fyrir stundu. Gríðarlegan reyk leggur frá húsinu segir fréttamaður Vísis sem er á staðnum. Allt tiltækt lið slökkviliðsins var kallað út til að fást við eldinn. Reykkafarar fóru samstundis inn í húsið til að kanna aðstæður. Frekari upplýsingar hafa ekki borist enn að sinni.

Framsóknarkonur segja niðurskurð bitna illa á stöðu kvenna

Stjórn Landssambands framsóknarkvenna lýsir yfir vanþóknun sinni á aðgerðir hinnar norrænu velferðar- og jafnréttisstjórnar sem þær segja að hafi bitnað illa á stöðu kvenna í íslensku samfélagi. Þetta kemur fram í ályktun sambandsins.

Betur fór en á horfði á Hvolsvelli

Ökumaður var fluttur með sjúkrabíl á spítala eftir að hafa lent í árekstri rétt austan við Hvolsvöll í dag. Þá lentu jepplingur og fólksbíll í árekstri en alls voru þrír í bílunum.

Opnuðu undirskriftavef vegna breytinga á skólakerfinu

Samstarfshópur íbúa Reykjavíkurborgar opnaði undirskriftavef á fundi á þaki Æsufells 4 í Breiðholti eftir hádegið í dag vegna fyrirhugaðra breytinga á leik- og grunnskólakerfi borgarinnar. Borgarfulltrúar og varaborgarfulltrúar voru boðaðir á fundinn og mætti hluti þeirra. Að fundinum stóð áhugahópur um samstarf hagsmunaaðila um framtíðarstefnu Reykjavíkurborgar í menntamálum. Hópurinn samanstendur af hagsmunaaðilum úr öllum hverfum borgarinnar.

Harður árekstur á Suðurlandsvegi

Harður árekstur milli tveggja bíla varð á Suðurlandsvegi fyrir stundu og var einn fluttur með sjúkrabíl til Reykjavíkur. Loka þurfti annari akgreininni vegna slyssins og má búast við umferðartöfum af þem sökum. Nánari upplýsingar um slysið hafa ekki fengist.

Á gjörgæsludeild eftir brunann

Einn maður var fluttur á sjúkrahús með töluverða reykeitrun eftir að eldur kviknaði í verkstæði við Smiðjuveg í Kópavogi í nótt. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu barst fljótlega tilkynning um að maður væri inni í húsinu. Reykkafarar fundu hann því strax og fóru með hann út og á slysadeild. Maðurinn hefur nú verið fluttur á gjörgæsludeild og mun verða þar eitthvað áfram samkvæmt upplýsingum fréttastofu.

Ríkissaksóknari tjáir sig ekki um kröfu forsætisráðherra

Valtýr Sigurðsson, ríkissaksóknari, ætlar ekki tjá sig um kröfu Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra, að hann þurfi að rökstyðja mál sitt vegna ummæla hans um forsætisráðherra eða draga ummælin til baka. Hann sagði við fréttastofu í morgun að hann ætlaði að kynna sér það sem forsætisráðherra hefði sagt og síðan meta hvort ástæða væri fyrir sig að tjá sig um kröfu forsætisráðherra.

Töluverðar skemmdir eftir brunann

Töluverðar skemmdir urðu á húsnæðinu við Smiðjuveg í Kópavogi þegar eldur kom upp í nótt. Allt tiltækt lið slökkviliðsins var kallað á staðinn og rjúfa þurfti þakið á húsinu. Þú getur skoðað myndir frá vettvangi í eftirfarandi myndskeiði.

Efast um krónuna til langs tíma

Árni Þór Sigurðsson, þingflokksformaður VG, segir að krónan verði gjaldmiðill Íslendinga næstu árin. Hann telur hins vegar að miklar breytingar verði á myntkerfi í heiminum í framtíðinni og ekki sé sjálfgefið að Íslendingar verði með krónuna til langs tíma.

Samstöðufundur fyrir Rottweilertíkina

Meira en 500 manns sýna Rottweilertíkinni Christal stuðning á fésbókarsíðu sem stofnuð var til að vekja athygli á málstað hennar. Dýravinir hafa efnt til mótmæla í Garðheimum í dag til að krefjast þess að tíkin fái að halda lífi. Christel komst í fréttirnar um daginn eftir að hún beit gestkomandi í húsi í Hveragerði þar sem hún var bundin fyrir utan húsið. Eftir það tók dýraeftirlitsmaður hana í vörslu sína og héraðsdýralæknir metur stöðuna svo að lóga beri tíkinni.

Einn fluttur á slysadeild eftir bílveltu

Jeppi valt á Gaulverjabæjarvegi rétt fyrir klukkan fimm í nótt. Fimm voru í bílnum og var einn fluttur með minniháttar meiðsl á sjúkrahús til aðhlynningar. Lögreglan segir að slæm aksturskilyrði hafi verið á veginum þegar slysið varð, hálka og snjór, og sennilega megi rekja óhappið til þess.

Eldur á bifreiðaverkstæði

Töluverður eldur kom upp í bifreiðarverkstæði á Smiðjuvegi um sexleytið í morgun. Eldurinn kviknaði í bíl sem var inni á verkstæðinu og náði að læsa sig í þaki á húsinu þannig að rjúfa þurfti hluta af þakinu. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu tók allt tiltækt lið slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu þátt í slökkvistarfinu.

Skuggahverfi í milljónasta veldi

Þótt veldisstærðarmunur sé á Íslandi og Kína segir Andri Snær Magnason sláandi líkindi á milli landanna. Óli Kristján Ármannsson tók Andra tali, en hann sótti Kína heim í fyrsta sinn í byrjun þessa mánaðar. Honum var boðið á bókmenntahátíð, flutti erindi um hagbóluna íslensku og færði grunnskólabörnum í Sichuan-héraði Ópal. Hann gæti vel hugsað sér að búa í Kína.

Gott að fá næði til að hugsa

Hilmir Snær Guðnason er einn afkastamesti leikari Íslands. Um þessar mundir er hann við æfingar á ruslóperunni Strýhærða Pétri en hann fer með hlutverk sögumanns í þessu óvenjulega verki. Hann gaf sér tíma til að hitta Sigríði Björgu Tómasdóttur yfir kaffibolla einn hráslagalegan morgun í vikunni og sagði henni frá starfi, leik og skáldsögunni í skúffunni.

Fálkasetur stofnað í Ásbyrgi

Fálkasetur Íslands hefur verið stofnað í Ásbyrgi. Stofnendur telja þennan tignarlega fugl skipa sérstakan sess, hann hafi verið í skjaldarmerki Íslands og talinn konungsdjásn. Það eru Vatnajökulsþjóðgarður, Náttúrustofa Norðausturlands, Atvinnuþróunarfélag Þingeyinga og samtökin Fuglastígur á Norðausturlandi sem standa að Fálkasetrinu og verður það til húsa í þjóðgarðsmiðstöðinni í Ásbyrgi, Gljúfrastofu.

Segir orð Valtýs fráleitar dylgjur

Forsætisráðherra segir ríkissaksóknara fara með fráleitar dylgjur og hvetur hann til að draga orð sín um afskipti hennar af ákæruvaldinu til baka.

Vilja að hagræðingarhugmyndir í skólum verði endurskoðaðar

Foreldrar leik- og grunnskólabarna í Laugardal, Háaleiti og Bústaðahverfi skora á borgarstjórn Reykjavíkur að endurskoða fyrirhuguð sameiningar- og breytingaráform í leikskólum, grunnskólum og frístundaheimilum borgarinnar. Þetta kemur fram í ályktun opins fundar sem haldinn var um málið í Réttarholtsskóla í dag.

Ákæruvaldið láti orð ráðherra ekki hafa áhrif

Sigurður Líndal, fyrrverandi prófessor við lagadeild Háskóla Íslands, segir að saksóknarar eigi ekki að þurfa að láta ummæli ráðherra hafa nein áhrif á sig. Valtýr Sigurðsson ríkissaksóknari sagði í gær að Jóhanna hefði haft óbein áhrif á ákæruvaldið með ummælum sínum meðal annars um handtökur útrásarvíkinga og í máli nímenninganna.

Safna fyrir heimilislausa í kvöld

Tónleikar verða haldnir í Háskólabíó til styrktar Kaffistofu Samhjálpar í kvöld klukkan átta. Tugir manna koma á kaffistofuna á hverjum degi til að fá sér kaffisopa að vild og meðlæti. Flestir hafa gestir kaffistofunnar verið 130 á einum degi. Í fyrra fékk Kaffistofan 45 þúsund heimsóknir.

Ásakanir ríkissaksóknara svakalega þungar

Ásakanir Valtýs Sigurðssonar ríkissaksóknara um að Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hefði haft bein áhrif á ákæruvaldið eru svakalega þungar, segir Vigdís Hauksdóttir, fulltrúi Framsóknarflokksins í allsherjarnefnd Alþingis.

Opnuðu Air d'Islande í París

Opnunarhóf menningarhátíðarinnar Air d'Islande fór fram í sendiherrabústað Íslands í París í gærkvöldi.

Orð innanríkisráðherra umdeild

„Við vorum rænd," sagði Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra á málstofu um rannsókn og saksókn efnahagsbrota og stöðu ákæruvaldsins í gær, en þar vísaði ráðherrann til bankahrunsins.

Flýði menn á leigubíl

Sjö ára stúlka flýði tvo menn á dökkum bíl með Taxa merki á toppnum í Hjaltabakka á fimmtudaginn í Neðra-Breiðholti í Reykjavík. Að sögn móður stúlkunnar flýði stúlkan mennina tvo sem keyrðu fram og til baka, brostu til hennar og bökkuðu síðan að henni en þá hljóp hún burt og faldi sig bak við blokk. Síðan kom annar mannanna með hendur fyrir aftan bak gangandi á eftir stúlkunni fyrir aftan blokkina þangað sem hún flýði og reyndi að ná tali af henni en hún hafði vit á því að forða sér. Mennirnir voru dökkhærðir miðað við lýsingar stúlkunnar.

Opið í Bláfjöllum í dag

Það verður opið í Bláfjöllum í dag frá tíu til fimm. Þessa stundina er vindstyrkurinn þar um 5 metrar á sekúndu og frostið ein gráða, snjómugga, og alskýjað. Þá er opið í dag frá klukkan tíu til fjögur í Hlíðafjalli. Þar er átta gráðu frost, fimm metrar á sekúndu og snjókoma.

Ég var í Wuhan segir Gunnar

Hjálmar Hjálmarsson, bæjarfulltrúi Næst besta flokksins, hefur lagt fram fyrirspurn í bæjarráði Kópavogs um það hvort Gunnar I. Birgisson, fyrrverandi bæjarstjóri, hafi þegið boð Landsbankans á fótboltaleik í London.

Friðarsúla fyrir Japan í neyð

Kveikt verður á friðarsúlu japönsku listakonunnar Yoko Ono í Viðey annað kvöld á vorjafndægrum. Ferðin til Viðeyjar á morgun er tileinkuð fórnarlömbum hamfaranna í Japan að því er segir á vef Reykjavíkurborgar.

Bera ekki nægilegt traust til réttarkerfis

Þolendur kynferðisofbeldis og stuðningssamtök þeirra bera ekki nægilegt traust til réttarkerfisins og brýnt er að á þeim vanda sé tekið. Þetta sagði Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra á fundi ríkissaksóknara og Ákærendafélags Íslands í Þjóðminjasafninu í gær.

Suðurnesjamenn áhyggjufullir

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra minntist ekki á álver í Helguvík þegar hún taldi upp fyrirhugaðar stórframkvæmdir hér á landi á Alþingi í vikunni. Vakti ræða Jóhönnu áhyggjur á Suðurnesjum.

Afhentu LSH hágæslubúnað

Taugalækningadeild Landspítala - háskólasjúkrahúss hefur fengið góða gjöf þar sem MND-félagið, Parkinsonsamtökin, MG-félagið og Heilaheill afhentu deildinni tækjabúnað. Um er að ræða hágæslubúnað sem eykur fagmennsku og öryggi á deildinni, eins og segir í fréttatilkynningu.

Málum sérstaks saksóknara fjölgar enn

Níu mál komu inn á borð sérstaks saksóknara í síðustu viku. Heildarfjöldi mála er þar með orðinn 119 en þar af teljast 89 virk. Talan mun að öllum líkindum halda áfram að hækka á næstu misserum en tugir mála eru til skoðunar hjá Fjármálaeftirlitinu. Þetta var meðal þess sem kom fram á fundi embættis ríkissaksóknara og Ákærendafélagsins í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins í gær. Rætt var um stöðu embættis sérstaks saksóknara og framtíð efnahagsbrotarannsókna á Íslandi.

Aðgerðaáætlun í burðarliðnum

Skúli Helgason, þingmaður Samfylkingarinnar, mælti á miðvikudag fyrir þingsályktunartillögu um menntun og atvinnusköpun ungs fólks. Flutningsmenn ásamt Skúla eru fjórtán þingmenn allra flokka.

Nagladekkjum fækkað um helming á níu árum

Nagladekkjum hefur fækkað um helming á 9 árum í Reykjavík. Í mars árið 2002 voru 67% bifreiða á nagladekkjum en nú eru 34% á nöglum. Þetta kemur fram á vefsíðu Reykjavíkurborgar.

Kópavogur greiðir málskostnað vegna einkamáls

Bæjarráð Kópavogs hefur samþykkt að greiða málskostnað vegna einkamáls þriggja bæjarfulltrúa úr bæjarsjóði. Hópur bæjarbúa hefur ráðið lögfræðing og hyggst kæra málið ef niðurstaðan verður staðfest í bæjarstjórn.

Flóknar "alvöruviðræður" við Alcoa um Bakka

Lausafjárstaða Landsvirkjunar hefur aldrei verið sterkari. Forstjórinn segir að áherslan verði nú á Þingeyjarsýslur og staðfestir að samningaviðræður standi yfir við Alcoa.

Þjóðvegurinn lokaður milli Stóru Tjarna og Kross

Vegna ófærðar, óveðurs og umferðaróhappa er þjóðvegur 1 við Ljósavatn, milli Stóru Tjarna og Kross, lokaður og verður það líklega allt til hálf átta. Þarna hafa orðið í það minnsta þrjú umferðaróhöpp. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni urðu slys á fólki en ekki er vitað hve alvarleg.

Fara til Bandaríkjanna í staðgöngumæðrun

Að minnsta kosti tvö nýleg dæmi eru um að íslensk pör hafi eignast börn með aðstoð bandarískra staðgöngumæðra. Í Fréttatímanum kemur fram að pörin komu með tvö börn hvort til landsins. Annað parið er skráð sem foreldrar barnanna á bandarísku fæðingavottorði. Það greiddi um 20 milljónir króna fyrir staðgönguna. Þá greinir Fréttatíminn frá því að Nokkur íslensk pör undirbúa för til Bandaríkjanna þar sem þau hyggjast eignast börn með þessum hætti.

Kynnt framkvæmdaáætlun Reykjavíkurborgar á Útboðsþingi

Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs, kynnti framkvæmdaáætlun Reykjavíkurborgar á Útboðsþingi í dag. Áætlunin gerir ráð fyrir að 6,5 milljörðum verði varið í nýframkvæmdir og stærri viðhaldsverkefni. Í máli Dags kom fram að við forgangsröðun verkefna hefði verið horft til þess að framkvæmdir væru vinnuaflsfrekar og jafnframt að þær hefðu sem minnst áhrif til hækkunar á rekstrarkostnaði Reykjavíkurborgar. Einnig var horft til þeirra framkvæmda sem líklegt er að leiði af sér auknar tekjur í framtíðinni. Dagur kynnti einnig Framkvæmdasjá, en þar má finna nánari upplýsingar um framkvæmdir Reykjavíkurborgar.

Engar uppsagnir á leikskólum Reykjavíkur um þessi mánaðamót

Það verða engar uppsagnir um næstu mánaðamót, segir Ragnhildur Erla Bjarnadóttir, sviðsstjóri Leikskólasviðs. Vegna áformaðra hagræðingaraðgerða á Leikskólasviði má búast við því að segja þurfi upp starfsmönnum. Hagræðingaraðgerðirnar hafa hins vegar ekki verið samþykktar á æðstu stöðum í borgarkerfinu.

Sjá næstu 50 fréttir