Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
BSRB: Minnisblaði ASÍ og SA harðlega mótmælt Stjórn BSRB mótmælir harðlega innihaldi minnisblaðs ASÍ og SA um stöðu lífeyrismála. Stjórnin segir að í minnisblaðinu, sem dagsett er 25. febrúar síðastliðinn, komi fram hugmyndir um skerðingu lífeyrisréttinda opinberra starfsmanna. Í ályktun stjórnar sem samþykkt var í dag er þessum áherslum er hafnað og ASÍ átalið fyrir að einbeita sér ekki að hagsmunabaráttu fyrir eigin félaga frekar en að berjast fyrir réttindaskerðingu hjá félögum annarra launþegasamtaka. „Það er umhugsunarefni á hvaða vegferð launabaráttan er þegar slík vinnubrögð eru viðhöfð.“ 18.3.2011 14:40
Stefnir DV - vill fimm milljónir í miskabætur Jón Snorri Snorrason, lektor við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, hefur ákveðið að stefna DV vegna frétta blaðsins af gjaldþroti Siguplasts, þar sem Jón var stjórnarformaður. Blaðið hélt því meðal annars fram að Jón sætti lögreglurannsókn en hann segist hafa það staðfest frá ríkislögreglustjóra að það sé ekki rétt. 18.3.2011 14:09
Bæjarstjórnin komin með matsgerðina - hafa tíu daga til að taka afstöðu Fulltrúar í bæjarstjórn Seltjarnarnesbæjar hafa fengið matsgerð tveggja dómkvaddra matsmanna sem komust að þeirri niðurstöðu að Ásgerður Halldórsdóttir, bæjarstjóri Seltjarnarnesbæjar, hafi lagt Ólaf Melsted, fyrrum framkvæmdastjóra Tækni- og umhverfissviðs hjá bænum, í einelti. 18.3.2011 14:04
Marijúana útrýmir hassinu Samkvæmt tölum frá lögreglu hefur algjör viðsnúningur orðið í neyslu kannabisefna á síðustu árum. Á árunum 2001 til 2008 var meira tekið af hassi en marijúna. Á árunum 2009 og 2010 varð hinsvegar viðsnúningur og seinna árið var hald lagt á 27 kíló af maríjuana en fimmtán kíló af hassi. Enn virðist halla á hassið því á þessu ári hafa lögreglu- og tollayfirvöld lagt hald á 12.5 kíló af marijúana en aðeins 124 grömm af hassi. 18.3.2011 13:42
Áttræður á slysadeild eftir eld í fjölbýlishúsi Eldur kviknaði í íbúð í fjölbýlishúsi í austurborginni um kvöldmatarleytið í gær en vel gekk að ráða niðurlögum hans. Karl um áttrætt býr í íbúðinni og var hann heima þegar eldurinn kom upp en maðurinn var fluttur á slysadeild til aðhlynningar. Nokkrar skemmdir urðu í eldhúsi íbúðarinnar en óljóst er með reykskemmdir. Eldsupptök eru ókunn. 18.3.2011 13:00
Fíkniefnasalar teknir í Breiðholti Tveir karlar á þrítugsaldri voru handteknir í Breiðholti í nótt eftir að lögreglan stöðvaði þar ökutæki. Hjá þeim fannst allnokkuð af fíkniefnum en mennirnir voru einnig með talsvert af peningum í fórum sínum sem grunur leikur á að séu tilkomnir vegna fíkniefnasölu. Þess má jafnframt geta að sá þeirra sem sat undir stýri hafði þegar verið sviptur ökuleyfi. 18.3.2011 12:57
Eftirlýstur karlmaður gómaður við ölvunarakstur Þrír ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíknefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu í nótt en tveir þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Kópavogi. Þetta voru tveir karlar, 40 og 55 ára, og ein kona, 17 ára. Öðrum karlinum var veitt eftirför um langan veg en viðkomandi reyndist einnig eftirlýstur fyrir aðrar sakir. 18.3.2011 12:53
Fíkniefni fundust við húsleit í Kópavogi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann fíkniefni við húsleit í íbúð í fjölbýlishúsi í Kópavogi í nótt. Um var að ræða bæði amfetamín og kannabis. Tveir karlar um fimmtugt voru handteknir í þágu rannsóknarinnar. Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann. 18.3.2011 12:50
Öll rannsókn efnahagsbrota verður í nýrri stofnun Stefnt verður að því að öll rannsókn og saksókn efnahagsbrota á Íslandi verði sameinuð í nýja stofnun að norskri fyrirmynd, segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra. Fyrsti vísirinn að slíku er sameining efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra og sérstaks saksóknara í september næstkomandi. 18.3.2011 12:24
Fyrrverandi oddviti Samfylkingarinnar segir sig úr flokknum Guðbrandur Einarsson, fyrrverandi oddviti Samfylkingarinnar og A-listans í Reykjanesbæ hefur sagt sig úr Samfylkingunni. Hann segir skoðanir sínar og flokksforystunnar ekki lengur fara saman og segir því skilið við flokkinn. 18.3.2011 12:13
Valtýr gagnrýndi Jóhönnu fyrir bein afskipti af ákæruvaldinu Ríkissaksóknari gagnrýndi forsætisráðherra harðlega í morgun fyrir afskipti af störfum ákæruvaldsins og lögreglu. Þá sagði hann Evu Joly ekkert annað en stjórnmálamann. 18.3.2011 12:09
Níu bílar skemmdust í fjórum árekstrum við Kópavogslæk Níu bílar skemmdust töluvert í morgun eftir að bíll ók utan í vegrið á Hafnarfjarðarvegi við Kópavogslækinn. Mikil hálka var á veginum en bíllinn var að koma niður brekku að Kópavogslæk og stefndi í suður. 18.3.2011 12:09
Óttast mengun frá olíuleit við Jan Mayen Umhverfisstofnun Noregs hefur lýst áhyggjum vegna fyrirhugaðrar olíuleitar við Jan Mayen. Stofnunin, sem þar kallast Loftlags- og mengunarstofnunin, óttast helst að viðbúnaður vegna bráðamengunar verði ekki nægilega öflugur. 18.3.2011 11:29
Samúðarkveðjur til fjölskyldu Magnúsar Krabbameinsfélag Íslands sendir samúðarkveðjur til vina og ættingja Magnúsar Guðmundssonar sem lést úr krabbameini, þriðjudaginn 15. mars en Magnús greindist með hvítblæði síðastliðið sumar. Magnús tókst ekki einungis á við krabbamein sjálfur heldur veitti öðrum einnig mikla hvatningu með því að taka þátt í fjáröflunarátaki Krabbameinsfélagsins, Mottumars, þar sem hann hefur safnað meiri áheitum en nokkur annar keppandi. "Daginn sem hann skráði sig í Mottumars veiktist hann og var lagður inn. Degi síðar var hann kominn á gjörgæsludeild í öndunarvél," segir Ingibjörg Ragnarsdóttir, unnusta Magnúsar. "Ég sagði honum frá því að hann væri komin yfir 300 þúsund og þá brosti hann, kinkaði kolli og var ótrúlega glaður. Hann stefndi á að fara yfir milljón," segir Ingibjörg. Krabbamein er alvarlegur sjúkdómur og Krabbameinsfélag Íslands biður landsmenn um stuðning svo hægt sé að rannsaka betur krabbamein karla og sinna frekari forvörnum, fræðslu og ráðgjöf til karlmanna. 18.3.2011 11:19
Rottweiler tíkin útötuð í saur: Lögmaður ósáttur Eigandi Rottweiler-tíkar, sem tekin var af heimili sínu í Hveragerði eftir að hún beit konu í byrjun mánaðarins, er afar ósátt við þann aðbúnað sem tíkin var vistuð við hjá dýraeftirliti Selfoss. Hún hefur ráðið sér lögmann til að leita réttar síns og tíkarinnar. 18.3.2011 10:22
Samþykktu risahöfn og alþjóðaflugvöll á Langanesi Nýtt aðalskipulag, sem gerir ráð fyrir risahöfn í Gunnólfsvík og alþjóðaflugvelli á Langanesi, var samþykkt á fundi sveitarstjórnar Langanesbyggðar á Þórshöfn í gærkvöldi. Fimm hreppsnefndarmenn samþykktu nýja aðalskipulagið í heild sinni en tveir greiddu atkvæði á móti, að sögn Gunnólfs Lárussonar sveitarstjóra. 18.3.2011 10:20
Opið í Hlíðarfjalli í dag Í dag verður skíðasvæðið í Hlíðarfjalli opið frá klukkan tíu til sjö í kvöld. Í morgun var sjös stiga frost í fjallinu, vindur mældist sjö metrar á sekúndu og sólin skín. 18.3.2011 09:55
Mottudagurinn í dag - karlmennskan ræður för Árvekniátakið Mottumars stendur nú sem hæst og í dag er sjálfur Mottudagurinn. Í tilefni af því hvetur Krabbameinsfélagið alla landsmenn, konur og karla, til að halda upp á daginn með því að leyfa karlmennskunni að skína sem aldrei fyrr. Á Mottudaginn er ráð að skarta öllum mögulegum karlmennskutáknum. "Leyfum karlmennskunni að njóta sín þennan dag og hvetjum vini, vandamenn og samstarfsfélaga að taka þátt í átakinu og ekki væri verra ef vinnan tæki sig saman og efndi til skemmtilegra leikja í tengslum við daginn! " segir í tilkynningu frá Krabbameinsfélaginu. Krabbameinsfélagið hvetur konur jafnt sem karla til að taka þátt í átakinu en Mottudagurinn er liður í Mottumars, árvekni- og fjáröflunarmánaðar Krabbameinsfélags Íslands sem er tileinkaður baráttunni gegn krabbameini hjá körlum. Félagið hvetur ennfremur alla karlmenn til að sýna samstöðu og safna yfirvaraskeggi og um leið að safna áheitum á vefsíðunni www.mottumars.is <http://www.mottumars.is>. 18.3.2011 08:59
Grásleppukarlar loksins að komast á sjó Grásleppubátarnir eru nú loks að komast á sjó eftir þrálátar brælur, en mikill hugur er í grásleppukörlum eftir gjöfula vertíð í fyrra. 18.3.2011 07:29
Mennirnir á svarta bílnum ekki hættir Tveir menn á svörtum bíl reyndu að lokka tvo drengi upp í bílinn í Engjahverfi í Grafarvogi á miðvikudag. Staðgengill skólastjóra í Engjaskóla sendi foreldrum nemenda tilkynningu um þetta í gær og bað þá um að vera vel á varðbergi. 18.3.2011 07:00
Hafnar 500 milljóna boði í brunareitshús Áætlað er að framkvæmdum við uppbyggingu á Laugavegi 4 og 6 og á brunareitnum svokallaða við Lækjartorg ljúki á næstu vikum. Í apríl verða húsin á Laugavegi tilbúin og byggingarnar á brunareitnum í maí. 18.3.2011 07:00
Fimm lögreglubílar eltu ölvaðan og dópaðan ökumann Lögreglumönnum á fimm lögreglubílum tóks um eitt leitið í nótt að stöðva ölvaðan og dópaðan ökumann í Ártúnsbrekkunni í Reykjavík, eftir að hann hafði ekið háskalega um Háaleiltishverfið. 18.3.2011 06:58
Ráðuneyti í vanskilum vegna samninga Innanríkisráðuneytið er eina ráðuneytið sem er í vanskilum við Ríkisendurskoðun, sem kallaði eftir öllum þjónustusamningum ráðuneytanna í desember. 18.3.2011 06:30
Traust á Jóhönnu fellur úr 64 í 17 prósent Verulega hefur dregið úr trausti almennings á Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra og Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra samkvæmt skoðanakönnun MMR. 18.3.2011 06:15
Belgingur fylgist með hamfarasvæðum Íslenski veðurspávefurinn Belgingur hefur síðastliðna viku reiknað veðurspár í þéttu neti fyrir átakasvæði í Tripólí, höfuðborg Líbíu, og hamfarasvæðið við Fukushima-kjarnorkuverið í Japan. 18.3.2011 06:00
Stálu glænýjum heimilistækjum Bífræfnir þjófar létu greipar sópa í nýju hesthúsi við Fluguskeið í Sörlahverfinu við Kaldárselsveg aðfaranótt miðvikudags. Meðal þess sem þjófarnir höfðu á brott með sér eru glæný og ónotuð heimilistæki. 18.3.2011 05:30
Fá sólpall og heitan pott í lóðarkaupum Akraneskaupstaður hyggst taka tilboði hjónanna Haralds Sturlaugssonar útgerðarmanns og Ingibjargar Pálmadóttur, fyrrverandi heilbrigðisráðherra, og kaupa 1.200 fermetra lóðarhluta þeirra á útvistarsvæðinu á Breið. Hjónin ætla að nota andvirðið til þess að reisa sólpall fyrir almenning. 18.3.2011 05:00
Treysta Evrópusambandinu betur en Alþingi Íslendingar treysta alþjóðlegum stofnunum eins og ESB og Sameinuðu þjóðunum mun betur en eigin stjórnvöldum. 18.3.2011 04:30
Draumurinn rættist Langþráður draumur Tryggva Jóns Jónatanssonar, fimmtán ára stráks frá Akureyri, rættist um síðustu helgi. Hann heimsótti Old Trafford, heimavöll uppáhaldsfótboltaliðsins síns, Manchester United. Og ekki nóg með það því United lagði Arsenal að velli og að leik loknum heilsaði markvörður United, Edwin van der Sar, upp á Tryggva. 18.3.2011 04:00
Alþjóðasamfélagið hefur brugðist Þingmenn úr öllum flokkum lýstu miklum áhyggjum af ástandi mála í Líbíu í utandagskrárumræðu í gær. 18.3.2011 02:00
Loðnukavíar í regnbogans litum á Raufarhöfn Kavíar úr loðnuhrognum í öllum regnbogans litum er nú framleiddur á Raufarhöfn, til að selja á sushi-veitingastaði í Evrópu og Bandaríkjunum. 17.3.2011 19:15
Hafna ósk ríkisstjórnarinnar um friðlýsingu Gjástykkis Sveitarfélögin þrjú, sem Gjástykki er í, hafna öll ósk ríkisstjórnarinnar um algera friðlýsingu. Oddviti Mývetninga kveðst ekki hafa orðið var við að heimamenn vilji friðlýsa svæðið. 17.3.2011 19:00
Lánin verða mjög óhagstæð ef Icesave leysist ekki Forstjóri Landsvirkjunar segir ljóst að Icesave-deilan sé enn að tefja fjármögnun Búðarhálsvirkjunar. Ef deilan leysist ekki þá verði lánin mjög óhagstæð og styttri. 17.3.2011 18:30
SH: Skora á þingmenn að samþykkja kjarnorkulaust Íslands Samtök hernaðarandstæðinga vilja að Alþingi bindi í lög fortakslaust bann við umferð kjarnorkuvopna á Íslandi. Í ályktun sem miðstjórn samtakanna sendi frá sér segir að kjarnorkuváin í Fukushima í Japan minnna á hættuna á slysum eða óhöppum sem geta orðið, þá ekki síst kjarnorkukafbáta. 17.3.2011 18:12
Spenna hjá Amazon: Frábært tækifæri fyrir íslenska sagnahefð Útgáfufyrirtækið Amazon Crossing telur að viðskiptavinir sínir eigi eftir að njóta þess að lesa íslenskar bókmenntir. Tíu íslenskar bækur koma út á vegum þess á næsta ári. 17.3.2011 17:30
Styttist í að efnahagsbrotadeildir verði sameinaðar Gerð frumvarps um sameiningu efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra og Sérstaks saksóknara er á lokastigi í innanríkisráðuneytinu, segir Halla Gunnarsdóttir, aðstoðarmaður ráðherra. Hún segist ekki geta upplýst um það núna hvenær sameiningin mun taka gildi. Þó hefur verið rætt um mitt næsta ár í þessu samhengi. 17.3.2011 17:26
Enn ekkert vitað hvað olli áverkunum Enn hafa engar vísbendingar fundist um hvað olli því að kona fannst með alvarlega áverka í bifreið við Einholt í Reykjavík þann 27. febrúar. 17.3.2011 16:14
Vinsældir forsetans aukast Flestir bera mikið traust til Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, ef marka má nýja könnun sem MMR gerði á trausti til stjórnmálamanna. Um 41,7% treysta Ólafi Ragnari og eykst traustið mikið frá síðustu könnun sem gerð var í maí 2010. Þá sögðust um 26,7% treysta honum. 17.3.2011 14:59
Seltjarnarnesbær braut persónuverndarlög Seltjarnarnesbær braut persónuverndarlög þegar starfsmenn bæjarskrifstofu áframsendu tölvupóst fyrrverandi starfsmanns á almennt netfang bæjarskrifstofanna. Póstur úr einkanetfangi hennar var sendur á postur@seltjarnarnes.is 17.3.2011 14:46
Lagastofnun gerir Icesave kynningarefni Alþingi samþykkti í dag að fela Lagastofnun Háskóla Íslands að gera hlutlaust og aðgengilegt kynningarefni um Icesave-samningana fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu sem verður haldin 9. apríl næstkomandi. Efnið verður sent öllum heimilum í landinu samhliða sérprentun laganna um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslna. Kostnaður við kynninguna greiðist úr ríkissjóði. 17.3.2011 14:25
Latibær fer í alla breska skóla Bresk heilbrigðisyfirvöld ætla að nýta sér Latabæ til þess að vekja athygli á mikilvægi heilbrigðs lífstíls fyrir bresk börn. 17.3.2011 14:21
Foreldrar barna í Hólabrekkuskóla fordæma sameiningu Foreldrar barna í Hólabrekkuskóla í Reykjavík eru afar ósáttir við fyrirhugaða sameiningu skólans við Fellaskóla. Á fundi sem haldinn var um málið var samþykkt ályktun þar sem sameinigin er fordæmd. Þar er meðal annars bent á að gönguleið margra barna til skólans lengist til muna og að foreldrarnir hafi áhyggjur af yngstu börnunum á þessari löngu leið. 17.3.2011 13:03
Þingmenn eigi ekki að skipta sér af því hvar Landsvirkjun virkjar Landsvirkjun á að nýta orku þar sem viðskiptatækifæri eru og þingmenn eiga ekki að skipta sér af því hvar hún ber niður, sagði Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra á Alþingi í dag. 17.3.2011 11:09
Dýralæknir vill láta lóga Rottweiler tíkinni Héraðsdýralæknir Suðurlandsumdæmis vill láta lóga Rottweiler-tík sem réðst á konu í Hveragerði í byrjun mánaðarins. Eigandi tíkarinnar er afar ósátt við þessa niðurstöðu þar sem hundurinn er "ekki hættulegur í daglegri umgengni" samkvæmt skapgerðarmati. 17.3.2011 11:01
Íslendingum á Tókýó svæðinu ráðlagt að halda suður á bóginn Utanríkisráðuneytið ræður Íslendingum frá ónauðsynlegum ferðalögum til Japan. Íslendingum sem staddir eru á Tókýó svæðinu eða þar fyrir norðan er einnig ráðlagt að flytja sig suður á bóginn. 17.3.2011 10:59