Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Björn nýr formaður Starfsgreinasambandsins Björn Snæbjörnsson hefur tekið við formennsku í Starfsgreinasambandi Íslands eftir að Kristján Gunnarsson tilkynnti um afsögn sína fyrr í dag. 4.2.2011 16:41
Díoxínmengað kjöt og mjólk í Skutulsfirði Matvælastofnun, MAST, hefur fengið niðurstöður mælinga á díoxíni og díoxínlíkum efnum úr búfjárafurðum og fóðri, sem tekin voru á Vestfjörðum og í Öræfum. Þessi sýnataka fór fram í kjölfar gruns um díoxínmengun sem kom fram við sýnatöku MS í desember síðastliðnum á bæ í Skutulsfirði. 4.2.2011 15:52
Breytingar á dreifikerfi póstsins Íslandspóstur hefur gert breytingar á dreifingu bréfapósts sem mun leiða til mikillar hagræðingar í rekstri. Breytingin hefur lítil sem engin áhrif á viðtakendur. Meginbreytingin er sú að magnpóstur frá stórnotendum verður framvegis borinn út í færri en stærri skömmtum en hingað til. 4.2.2011 15:29
Sautján svínaflensutilfelli á sex vikum Sautján manns hafa greinst með Svínaflensu á síðustu sex vikum samkvæmt upplýsingum á vef landlæknaembættisins en eftir áramótin varð nokkur aukning á fjölda þeirra sem leituðu læknis með inflúensulík einkenni. Fjórir greindust síðustu vikuna í janúar. 4.2.2011 15:21
Ók á dæluhús Orkuveitu Reykjavíkur Rúmlega tvítug kona var dæmd í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í dag fyrri fjölmörg afbrot. Konan var meðal annars dæmd fyrir að svíkja út vörur með stolnum kortum auk þess sem hún var dæmd fyrir fíkniefnamisferli. Konan ók einnig margsinnis undir áhrifum fíkniefna. 4.2.2011 15:14
Könnun ASÍ: Útsvar og álagning eftir sveitarfélögum Verðlagseftirlit ASÍ skoðaði breytingar á útsvari og álagningu fasteignagjalda í fjölmennustu sveitarfélögum landsins. Útsvarsprósentan er óbreytt frá árinu 2010 í 13 sveitafélögum af 15 en mesta hækkun er á Seltjarnarnesi úr 12,1 í 12,98%. Þrettán af þeim 15 sveitarfélögum sem skoðuð voru, innheimta hámarks leyfilegt útsvar 13,28%. Lægst er útsvarið 12,46% í Garðabæ. 4.2.2011 15:12
Nítján ára sveik út flatskjá og uppþvottavél Nítján ára gamall piltur var dæmdur í tveggja mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir fjársvik í Héraðsdómi Reykjaness í dag. Pilturinn játaði skýlaust að hafa svikið út flatskjá og uppþvottavél í Elko í ágúst á síðasta ári. 4.2.2011 15:08
Nóróveira í frosnum hindberjum Aðföng hafa tilkynnt matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur um innköllun á Alletiders frosnum hindberjum. Um er að ræða varúðarráðstöfun þar sem Aðföngum hefur borist tilkynning frá A Frost A/S í Danmörku um að þar hafi greinst nóróveira í vörunni. Þetta er í annað skiptið sem hindber eru innkölluð af þessari ástæðu. Matvælastofnun innkallaði einnig hindber frá Euroshopper á síðasta ári vegna ótta við Nóróveiruna. 4.2.2011 14:45
Innbrotsþjófi vísað úr landi - útilokaður frá Íslandi í 3 ár Tvítugum innbrotsþjófi sem er af erlendu bergi brotinn hefur verið vísað burt úr landi. Hann mun ekki eiga afturkvæmt til Íslands næstu þrjú árin. 4.2.2011 14:28
Vilhjálmur ánægður með afsögn: Fagnar því að menn axli ábyrgð „Þetta er bara skynsamleg ávörðun hjá Kristjáni og það ber að fagna því að menn axli ábyrgð," segir Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, en hann kallaði eftir því í fréttatíma Ríkisútvarpsins í hádeginu í dag að Kristján segði af sér sem formaður Starfsgreinasambandsins og úr stjórn Festu-lífeyrissjóði. 4.2.2011 14:27
Vonar að mál Jóels leiði til þess að staðgöngumæðrun verði leyfð Einar Þór Færseth, faðir Jóels Færseth, sem fæddist á Indlandi með hjálp staðgöngumóður, segir að fjölskyldan sé himinlifandi með að vera komin heim til Íslands. Jóel kom í heiminn í desember og var honum veittur íslenskur ríkisborgararéttur fyrir áramót. Málið flæktist þó í kerfinu og var fjölskyldan föst á Indlandi þar til fyrir tveimur dögum að þau flugu til Frankfurt í Þýskalandi eftir að Jóel hafði fengið útgefið vegabréf. Fjölskyldan kom svo heim til Íslands síðdegis í gær. 4.2.2011 14:23
Uppboð sýslumanns á húsbúnaði og veiðigræjum Ýmis konar húsbúnaður og heimilistæki, antik orgel og veiðigræjur eru meðal þess varnings sem boðinn verður upp af Sýslumanninum í Reykjavík á morgun, laugardaginn 5. febrúar, í Vörumiðstöð Samskipa við Kjalarvog. 4.2.2011 14:20
Bjarni boðar til fundar um Icesave í Valhöll Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hefur boðað til fundar um Icesave-málið á morgun, laugardaginn 5. febrúar, í Valhöll. Fundurinn hefst klukkan eitt eftir hádegi en Friðrik Sophusson verður fundarstjóri. 4.2.2011 14:14
Áttatíu stöðvaðir í umferðareftirliti Rúmlega áttatíu ökumenn voru stöðvaðir í umferðareftirliti lögreglunnar í miðborginni í gærkvöld. Einn ökumaður reyndist ölvaður við stýrið og var hann sviptur ökuréttindum til bráðabirgða. Annar ökumaður var líka látinn hætta akstri en sá hafði sömuleiðis neytt áfengis en var þó undir leyfilegum mörkum. Sem fyrr var ljósabúnaði nokkurra ökutækja áfátt en lögreglan hvetur ökumenn til að hafa hann alltaf í lagi. 4.2.2011 14:12
Segir af sér sem formaður Starfsgreinasambandsins Kristján Gunnarsson hefur sagt af sér sem formaður Starfsgreinasambands Íslands og dregið sig út úr stjórnarstörfum fyrir ASÍ og Festu-lífeyrissjóði. Þetta kemur fram í tilkynningu sem hann birti á heimasíðu Starfsgreinasambandsins í dag. 4.2.2011 13:50
Skrímslið til sýnis í Hafnarfirði Markus Ruhl, einn stærsti vaxtarræktarmaður í heimi, er væntanlegur til landsins á morgun. Hann á að baki líflegan feril í vaxtarræktinni, hefur hlotið fjölda titla og var síðast Herra Ólympía árið 2009. Þetta er sami titill og Arnold Schwarzenegger landaði ótal sinnum á sínum tíma. 4.2.2011 13:34
Reglustika lögð yfir Reykjavík: „Þetta er kuldaleg kveðja“ „Þetta er kuldaleg kveðja sem leikskólastjórnendur fá fyrir hátíðisdag leikskólanna um að það eigi kannski að leggja stöðuna þeirra niður," segir Ingibjörg Kristleifsdóttir, formaður Félags stjórnenda leikskóla. Stjórnendur á leikskólum, grunnskólum og frístundaheimilum sem hugmyndir eru uppi um að sameina fengu í gær bréf þar sem hugmyndirnar voru kynntar af hálfu starfshóps um greiningu tækifæra til endurskipulagningar á skóla- og frístundastarfi. 4.2.2011 13:25
Jóel litli kominn heim Jóel Færseth, sem fæddist á Indlandi með hjálp staðgöngumóður og hefur verið fastur þar í landi frá því fyrir jól er kominn heim til Íslands. Ríkisútvarpið greinir frá þessu og hefur eftir Helgu Sveinsdóttur móður drengsins að það sé ólýsanleg tilfinning að vera komin heim. 4.2.2011 12:50
Úrslitin koma Vökumönnum á óvart Kjörsóknin í Stúdentaráðskosningunum var aðeins um 30% og telur Vaka að breyting á skipulagi Stúdentaráðs geti aukið áhuga nemenda á háskólapólítíkinni. 4.2.2011 12:16
Iðnir innbrotsþjófar - „Með því stærra sem við höfum séð" Árni Þór Sigmundsson aðstoðaryfirlögregluþjónn segir að innbrotsþjófarnir þrír sem játað hafa á sig um 70 innbrot á höfuðborgarsvæðinu séu með þeim stórtækari sem lögreglan hefur náð í. Fyrstu brotin voru framin fyrir um tveimur árum síðan. Innbrotum af þessu tagi fækkaði eftir að mennirnir voru settir í gæsluvarðhald. Óhætt er að segja að þetta sé eitt stærsta mál sinnar tegundar hér á landi. 4.2.2011 12:13
Bjarni fær kaldar kveðjur frá Davíð Mikil ólga er hinnan Sjálfstæðisflokksins vegna Icesave-málsins en Bjarni Benediktsson, formaður flokksins, fær kaldar kveðjur frá Davíð Oddssyni, fyrrverandi formanni, í leiðara Morgunblaðsins í dag og kallar Davíð hann vikapilt Steingríms J. Sigfússonar, fjármálaráðherra. 4.2.2011 12:07
Oddný: Ekki tímabært að opinbera hugmyndirnar Stjórnendur í leikskólum, grunnskólum og frístundaheimilum í Reykjavík, sem hugmyndir hafa komið fram um að verði sameinaðir öðrum skólum, fengu í gær bréf þar sem hugmyndirnar voru kynntar. 4.2.2011 11:41
Aðfararbeiðni í Eldkristal Eld Gyðju hafnað Héraðsdómur Reykjaness féllst ekki á aðfararbeiðni Hulduheims-ræktunar í hvolpinn Eldkristal Eld Gyðju sem er af Siberian Husky kyni í dómi sem féll í morgun. 4.2.2011 11:39
Tónlistarsala á Netinu: Besta árið hingað til Tónlist.is hefur nú lokið uppgjöri fyrir árið 2010 en það er besta ár í sölu stafrænnar tónlistar frá upphafi. Í tilkynningu segir að aukning á sölu tónlistar milli árana 2009 og 2010 sé 27% en sú aukning er mun meiri en aukning á sölu stafrænnar tónlistar í heiminum á árinu sem leið. „Einnig stækkar hópurinn sem kýs að vera með tónlist í áskrift, greiða fast gjald og hlusta á allt efni sem er í boði á Tónlist.is. Íslenskir tónlistarmenn leið söluna eins og undanfarin ár, 80% sölunnar er íslenskt efni.“ 4.2.2011 11:38
Rýnt í hugmyndir um sameiningu leikskóla Verið er að kynna fyrir leikskóla- og grunnskólastjórum og stjórnendum frístundastarfs í borginni hugmyndir um sameiningu skólastofnana og frístundaheimila. Alls er um að ræða á sjötta tug hugmynda sem eru afrakstur af vinnu starfshóps um um greiningu tækifæra til sameiningar stofnana í lærdómsumhverfi barna og samráðsferlis undanfarinna mánaða meðal stjórnenda, foreldra og starfsfólks leikskóla, grunnskóla og frístundastarfs. Nú rýna 120 manns í 12 rýnihópum foreldra og starfsfólks sömu hugmyndir. Starfshópur um greiningu tækifæri til sameiningar stofnana í lærdómsumhverfi barna, hóf störf í nóvember og skilar hann tillögum sínum síðar í þessum mánuði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. 4.2.2011 11:24
Snjómokstur í Reykjanesbæ kostar milljón á dag Hver dagur í snjómokstri hjá Reykjanesbæ getur kostað um eina milljón króna þegar „allur flotinn“ er kallaður út samkvæmt frétt sem birtist á vef Víkurfrétta, vf.is. Guðlaugur H. Sigurjónsson, framkvæmdarstjóri umhverfis- og skipulagssviðs Reykjanesbæjar, segir í samtali við Víkurfréttir að menn hafi verið heppnir með veðurfar að undanförnu. 4.2.2011 11:17
Nýsköpun hluti byggðastefnu ESB Þótt Ísland njóti nú þegar flestra kosta menningar- og listasamstarfs við Evrópusambandið í gegnum EES-samninginn, gæti aðild landsins skipt hinar skapandi greinar máli að öðru leyti, segir formaður samninganefndar Íslands í aðildarviðræðunum, Stefán Haukur Jóhannesson. 4.2.2011 11:00
Standa fast við kröfu um 200 þúsund króna lágmarkslaun Sökum hægagangs í kjaraviðræðum hefur Framsýn í Þingeyjarsýslum afturkallað samningsumboð sitt frá Starfsgreinasambandi Íslands (SGS). 4.2.2011 11:00
Þremenningar játa sjötíu innbrot - tveir þeirra eru 17 ára Þrír útlendingar sem búa á landsbyggðinni hafa játað að hafa framið um sjötíu innbrot hér á landi á síðustu mánuðum. 4.2.2011 10:55
RÚV neitar að biðja afkomendur Steinþóru afsökunar Barnabarn Steinþóru Eyjólfsínu Steinþórsdóttur, skrifar grein í Fréttablaðið í dag þar sem hún gagnrýnir RÚV harðlega fyrir frétt um ömmu sína. 4.2.2011 10:45
Vonandi hægt að opna í Bláfjöllum á morgun Vonast er til að hægt verði að opna í Bláfjöllum á morgun. Snjótroðarar voru á fullu í alla nótt að færa til og fanga snjóinn sem hefur fallið síðustu daga. Starfsmenn skíðasvæðisins segja því að þetta sé allt að koma. Í dag er töluverður vindur í fjöllunum og snjókoma. 4.2.2011 10:37
Aldrei fleiri erlendir gestir í janúar Erlendir gestir hafa aldrei verið jafn margar í janúar og í ár, frá því Ferðamálastofa hóf talningar í Leifsstöð. Í tilkynningu frá Ferðamálastofu segir að um 22 þúsund erlendir gestir hafi farið landinu í nýliðnum janúarmánuði og er um að ræða 3.500 fleiri brottfarir en á árinu 2010. Erlendum gestum fjölgaði því um 18,5% í janúarmánuði á milli ára. 4.2.2011 10:21
VÍS undirritar Jafnréttissáttmálann VÍS hefur gerst aðili að Jafnréttissáttmála UN Women og UN Global Compact. Í því felst að VÍS skuldbindur sig siðferðilega til að vinna að jafnréttismálum í sínum ranni, sýna samfélagslega ábyrgð og hafa frumkvæði í jafnréttismálum. Haft er að leiðarljósi að fyrirtækið hafi á að skipa fjölbreyttum og hæfileikaríkum hópi starfsfólks sem eykur samkeppnishæfni þess. Skuldbindingar um samfélagslega ábyrgð og sjálfbærni eru í heiðri hafðar og stuðlað að efnahagslegum og félagslegum aðstæðum sem veita öllum jöfn tækifæri. 4.2.2011 10:03
Hreindýraland, tónleikar á Skálholti og Þórbergssetur tilefnd Eyrarrósin, árleg viðurkenning fyrir framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni, verður afhent í sjöunda sinn á Bessastöðum 13. febrúar næstkomandi. Þrjú verkefni hafa verið tilnefnd úr hópi umsækjenda: 700IS Hreindýraland á Egilsstöðum, Sumartónleikar í Skálholti og Þórbergssetur á Hala í Suðursveit. 4.2.2011 09:58
Stöð 2 með allar tilnefningarnar til leikins sjónvarpsefnis Stöð 2 á allar þættina sem Edda tilnefnir til leikins sjónvarpsefnis í ár en þættirnir Réttur 2, Hlemmavídeó og Mér er gamanmál voru tilefndir í ár. 4.2.2011 09:53
Marel gerir samstarfssamning við Víkina Marel er einn af máttarstólpum Víkurinnar – Sjóminjasafnsins í Reykjavík næstu þrjú árin en félögin gerðu nýverið með sér þriggja ára samstarfssamning. 4.2.2011 09:41
Nöfn og myndir af sölunum í Hörpu Salirnir í Hörpu hafa nú fengið sín formlegu nöfn. Nöfn fjögurra stærstu salanna verða Eldborg, Norðurljós, Silfurberg og Kaldalón. 4.2.2011 09:33
Logi Geirsson á Kanann Handboltahetjan Logi Geirsson hefur verið ráðinn sem sölu- og markaðsstjóri útvarpsstöðvarinnar Kanans, sem er meðal annars í eigu eigu Einars Bárðarsonar, eitt sinn kallaður umboðsðmaður Íslands. 4.2.2011 09:19
Alþjóðlegi krabbameinsdagurinn í dag Um allan heim er fjórði febrúar ár hvert nýttur til að vekja athygli á vörnum gegn krabbameinum og heilbrigðis- og félagslegri þjónustu þeirra sjúklinga sem greinast með krabbamein. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin bendir á að krabbamein eru eitt algengasta dánarmeinið í veröldinni en um 84 milljónir munu látast af völdum krabbameina á árabilinu 2005-2015, ef ekkert er að gert. 4.2.2011 08:51
Hægri sveifla í Háskólanum Hægri sveifla virðist vera meðal nemenda í Háskóla Íslands, því framboðslisti Vöku til stúdentaráðs, fékk fimm menn kjörna í nýafstöðnum kosningum, en Röskva , listi vinstrisinnaðra stúdenta, þrjá menn. 4.2.2011 07:48
Ungir Sjálfstæðismenn gegn Icesave Ungir Sjálfstæðismenn í Suðurkjördæmi skora á þingmenn flokksins að greiða ekki atkvæði með Icesave frumvarpinu. 4.2.2011 07:46
Loðnuveiðar hafnar að nýju eftir óveðrið Loðnuskipin, sem lágu i vari á meðan óveðrið gekk yfir, eru nú öll byrjuð veiðar. 4.2.2011 07:42
Björgunarsveitir fundu 10 ára dreng eftir stutta leit Björgunarsveitir hófu í gærkvöldi leit að tíu ára dreng, sem strauk frá heimili sínu austan Þjórsár í gærkvöldi. 4.2.2011 07:32
Þrír fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu Þrír voru fluttir á sjúkrahús eftir að bíll valt út af Grindavíkurvegi í gærkvöldi. 4.2.2011 07:29
Fé drapst á nokkrum bæjum Kindur hafa drepist á að minnsta kosti sjö bæjum undir Eyjafjöllum af völdum lungnapestar sem herjað hefur á sauðfé á svæðinu, að sögn Þorsteins Ólafssonar, sérgreinadýralæknis nautgripa- og sauðfjársjúkdóma hjá Matvælastofnun. 4.2.2011 05:00
Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Innlent