Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Gæslumenn snöggir til Kallað var á þyrlu Landhelgisgæslunnar síðdegis í gær til að sækja veikann mann, sem hafði fengið hjartaáfall í grennd við Árnes í Gnúpverjahreppi. 7.2.2011 07:09
Mildi að ekki fór verr þegar jeppi rann af stað Mannlaus jeppi, sem ekki var í gangi, rann allt í einu af stað, tók stefnuna þvert yfir götuna, þar yfir gangstétt og steyptist svo niður snarbratta hlíð sunnan og ofan við Akureyrarkirkju á tíunda tímanum í gærkvöldi. 7.2.2011 07:03
Ekki algengt að uglur stilli sér upp fyrir fólk „Þetta var mjög gaman og afar sérstakt. Ég varð rosalega hissa að sjá ugluna sitja í rólegheitum svona nálægt okkur,“ segir Anna Björg Kristbjörnsdóttir, íbúi í Gerðhömrum í Grafarvogi. Önnu brá heldur betur í brún um þrjúleytið í gærdag þegar hún kom heim til sín og sá branduglu hvíla sig á grindverki hjá heimili hennar. „Við lögðum bílnum og röltum að henni, en hún var mjög spök og lét sér hvergi bregða. Við vorum líklega í um tveggja metra fjarlægð frá henni og hún flaug ekki í burtu fyrr en ljósmyndari Fréttablaðsins smellti af henni myndum. Þá höfum við líklega farið aðeins of nálægt,“ segir Anna. 7.2.2011 06:00
Hissa á áfrýjun í máli Glitnis Kim Landsman, lögmaður meirihluta stefndu í Glitnismálinu í New York, furðar sig á þeirri ákvörðun slitastjórnarinnar að áfrýja frávísunarúrskurði dómarans ytra. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Landsman. 7.2.2011 05:00
Efast um hæfi sitt í landsdóm Landsdómur Dögg Pálsdóttir hæstaréttarlögmaður hefur sent forseta landsdóms bréf þar sem hún bendir á mögulegt vanhæfi sitt til setu í dómnum. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2 í gær. 7.2.2011 04:15
Bræðslumenn greiða atkvæði um verkfall Samninganefnd AFLs starfsgreinafélags og Drífanda stéttarfélags starfsmanna í fiskimjölsverksmiðjum hefur slitið viðræðum við Samtök atvinnulífsins um nýjan kjarasamning. Í kjölfarið verður boðað til atkvæðagreiðslu meðal starfsmanna um verkfall sem gæti hafist um miðja næstu viku. 7.2.2011 04:00
„Bjarni Ben stjórnar Sjálfstæðisflokknum í dag“ Almannatengill segir Bjarna Benediktsson hafa styrkt stöðu sína sem formaður Sjálfstæðisflokksins með því að hafa tekið ákvörðun gegn gömlu valdaklíkunni í flokknum. Ljóst sé nú, að það sé formaðurinn sem þar ráði ríkjum. 6.2.2011 18:50
HIV smit mest á meðal sprautufíkla Tuttugu og fjórir greindust með HIV smit hér á landi á síðasta ári sem er metfjöldi. Nýr sérútbúinn sjúkrabíll Rauða krossins mun auka þjónustu við sprautufíkla verulega, en smitum meðal þeirra hefur fjölgað mest. 6.2.2011 18:41
Formlegum viðræðum slitið - atkvæðagreiðsla á morgun „Það fer fram atkvæðagreiðsla á morgun, við metum það þannig að þeir hafi engan vilja til að semja, það er það sem okkur finnst vera koma út úr þessu," segir Sverrir Mar Albertsson í samninganefnd starfsmanna í loðnubræðslu. 6.2.2011 17:11
Darraðardans við Lækjargötu Óöld var í þjóðlífinu í byrjun árs 2009. Þremur mánuðum áður hafði almenningur horft upp á spilaborgina sem kallaðist fjármálakerfi hrynja til grunna og fannst ekkert hafa gerst síðan. Þolinmæðin gagnvart ráðþrota ríkisstjórn var á þrotum. Fólkið kallaði „vanhæf ríkisstjórn“ og krafðist kosninga en forystumenn stjórnarflokkanna hlustuðu ekki. Þegar Alþingi kom úr jólaleyfi 20. janúar loguðu eldar á Austurvelli en innandyra sagði Geir H. Haarde að aðgerðir úr áætlunum fyrir heimili og fyrirtæki væru smátt og smátt að koma til framkvæmda. 6.2.2011 14:00
Árekstur á Bústaðavegi Tveir bílar sem skullu saman á gatnamótum Bústaðavegar og Kringlumýrarbrautar í dag er óökufærir og þurfti dráttarbíl til að draga þá í burtu. Bílarnir lentu saman um klukkan hálf tvö í dag en enginn slasaðist alvarlega í árekstrinum. 6.2.2011 13:39
Fimmtíu þúsund undirskriftir gætu haft áhrif á afstöðu Bjarna Formaður Sjálfstæðisflokksins hefur ekki gert upp við sig hvort Icesave-samningurinn eigi að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu. Hann segir þó að vissulega hefði það áhrif á afstöðu sína ef fram kæmu 50 þúsund undirskriftir líkt og með fyrri samning. Þingmenn og fyrrum ráðherrar flokksins vilja að þjóðin eigi síðasta orðið. 6.2.2011 13:08
Mikilvægt að hefjast handa við atvinnuuppbyggingu Það er mikilvægt að hefjast sem fyrst handa við atvinnuppbyggingu í Þingeyjarsýslu og til þess ætti að nýta orkuna á svæðinu. Þetta segir formaður Samfylkingarinnar í Þingeyjarsýslu. Hann mótmælir algjörri friðun Gjástykkis. 6.2.2011 12:19
Jarðskjálftar í Vatnajökli í nótt Allmargar skjálftar mældust við Bárðabungu rétt sunnan við Kistufell á Vatnajökli í nótt. Sá stærsti mældist 2,6 á richter samkvæmt upplýsingum frá skjálftafræðingi veðurstofunnar. 6.2.2011 12:04
Opið í Bláfjöllum í dag Bláfjöll eru opin frá klukkan tíu til fimm í dag. Þar er 6 m/sek og veður gott. Í tilkynningu frá Bláfjöllum er búið að troða og er nýr snjór yfir öllu. Búið er að leggja 5 kílómetra gönguhring. Þá er skíða og brettaleiga á staðnum og einnig veitingasala. 6.2.2011 10:40
Mörg skíðasvæði opin Skíðasvæðið á Dalvík verður opið frá klukkan tíu til hálf fimm. Gott veður er á svæðinu. Logn og sex stiga frost og mjög gott skíðafæri. Þá verður opið í Hlíðarfjalli frá klukkan tíu til fjögur. Klukkan átta í morgun var sjö stiga frost og tveir metrar á sekúndu. 6.2.2011 10:13
Mótmæla algjörri friðun gjástykkis Félag Samfylkingarinnar í Þingeyjarsýslu mótmælir ákvörðun stjórnvalda um algjöra friðun gjástykkis. Þetta kom fram í ályktun frá aðalfundi flokksins sem haldinn var á Húsavík í gær. 6.2.2011 09:53
Löggan hafði rétt fyrir sér Tveir gistu fangageymslur í Reykjanesbæ í nótt. Annar aðilinn var tekinn á rölti í bænum með kannabis í fórum sínum. Vísbendingar lögreglu voru því á rökum reistar, því fyrr um kvöldið hafði lögreglan afskipti af honum og grunað að hann væri undir áhrifum fíkniefna. Hinn aðilinn gisti fangageymslu vegna ölvunar. 6.2.2011 09:42
Ungmenni tekin með gras og hvítt duft Lögreglan á Sauðárkróki stöðvaði þrjú ungmenni á Þverárfjalli í nótt en á þeim fundust fíkniefni. Eitthvað var af kannabis og einnig hvítt duft sem menn eiga eftir að rannsaka betur. Að sögn lögreglu voru ungmennin yfirheyrð og gistu fangageymslur í nótt. 6.2.2011 09:40
Leikskólastjóri: Börnin þjást vegna sameiningaráforma Leikskólastjóri á höfuðborgarsvæðinu segir fyrirhugaðar viðræður um sameiningu leikskóla sýndarleik. Hún óttast að missa vinnuna og segir þá óvissu sem nú ríki bitna á leikskólabörnum. 5.2.2011 19:56
Enginn með allar tölurnar réttar Lottópotturinn verður tvöfaldur næst en enginn var með allar tölurnar réttar. Tveir voru með 2. vinning, og fær þeir rúmlega hundrað þúsund krónur á mann en miðarnir voru keyptir í Hagkaup Smáralind og hinn var í áskrift. Einn var með fjórar jókertölur í réttri röð og fær hann hundrað þúsund krónur. 5.2.2011 19:40
Mátti ekki gefa blóð vegna kynhneigðar sinnar Nemi við Fjölbrautarskólann í Garðabæ vildi fara að fordæmi pabba síns og gerast blóðgjafi strax við 18 ára aldur. Honum var hins vegar tjáð í vikunni að það gæti hann ekki, kynhneigðar sinnar vegna. 5.2.2011 19:00
„Þýska ófreskjan" komin til Íslands Einn stærsti vaxtaræktarmaður heims, Markus Rühl, er í heimsókn á Íslandi. Markus er margverðlaunaður vaxtaræktarkappi, gengur undir nafninu „Þýska ófreskjan" og er kominn hingað til lands til að kynna fæðubótarefni í Hafnarfirði. 5.2.2011 18:26
Óska eftir upplýsingum um vörubifreið Lögreglan í Borgarfirði og Dölum óskar eftir upplýsingum um hvíta vörubifreið með eftirvagn og á vagninum var blár gámur. 5.2.2011 18:11
Ræða Bjarna Ben í heild sinni Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði á rúmlega fimm hundruð manna fundi í Valhöll í dag að íslenska þjóðin geti ekki komist undan tugmilljarða skuldbindingu í Icesave málinu. Þá sagði hann að sú niðurstaða sem nú hefur fengist í samningaferlinu væri ekki fenginn með hótunum Breta og Hollendinga gagnvart Íslendingum. 5.2.2011 16:50
Sýnir Bjarna stuðning og samstöðu „Þetta var mjög góður og öflugur fundur. Formaður flokksins flutti greinargóða skýrslu þar sem hann gerði grein fyrir sinni afstöðu í málinu," sagði Geir H. Haarde í samtali við fréttastofu eftir fundinn í Valhöll í dag. Hann lýsir yfir stuðningi við Bjarna Benediktsson, formann Sjálfstæðisflokksins. 5.2.2011 16:47
Áfrýja niðurstöðu dómstólsins í New York „Skilyrði sem dómarinn setti hafa ekki verið uppfyllt og eins teljum við rétt að láta reyna á þetta fyrir áfrýjunardómstól,“ segir Steinunn Guðbjartsdóttir, formaður slitastjórnar Glitnis sem hefur áfrýjað niðurstöðu dómstóls í New York í Bandaríkjunum um að vísa frá skaðabótamáli á hendur fyrrverandi eigendum og stjórnendum bankans og endurskoðunarfyrirtækinu Price Waterhouse Coopers. 5.2.2011 16:34
Bubbi skorar á þingmenn að hjálpa Jussanam „Hvers vegna er enginn sem vill hjálpa þessari listakonu frá Brasilíu að setjast hér að?" spyr Bubbi Morthens í pistli sínum á Pressunni. 5.2.2011 16:12
Játuðu rán í söluturn í Breiðholti Þrír piltar á aldrinum 18 til 19 ára hafa játað aðild sína að ráni í söluturni í Breiðholti á síðastliðið þriðjudagskvöld. 5.2.2011 15:31
Vinna við að hreinsa götur bæjarins Öflugur hópur vinnur í dag við snjóhreinsun í Reykjavík og notuð eru 27 stórvirk vinnutæki til verksins. Í nótt var helstu umferðargötum haldið opnum og í dag hefur verið unnið við snjóhreinsun á fáfarnari götum og húsagötum og miðar því verki vel. Jafnframt er reglulega farið yfir stofnbrautir og strætisvagnaleiðir, sem njóta forgangs, segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. 5.2.2011 15:05
Ítrekuð krafa um þjóðaratkvæðagreiðslu Bjarni Benediktsson var ítrekað hvattur til þess að beita sér fyrir því að þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram um Icesave samniginn fundi í Valhöll í dag. „Ég vil þakka Bjarna fyrir þessa ræðu, hún sæmdi formanni vel. Það eina sem ég hefði viljað væri að málstaðurinn væri skárri,“ sagði Skafti Harðarson, einn fundarmanna. 5.2.2011 14:38
,,Ég hef séð svona klapp fyrir hrun" Bjarna Benediktssyni, formanni Sjálfstæðisflokksins, var klappað lof í lófa eftir að hann hélt ræðu sína í Valhöll í dag. 5.2.2011 14:06
Komumst ekki undan tugmilljarða skuldbindingum Íslenska þjóðin getur ekki komist undan tugmilljarða skuldbindingum í Icesave málinu, sagði Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, á fjölmennum fundi í Valhöll í dag. Hann sagði að sú niðurstaða sem nú hefði fengist í samningaferlinu væri ekki fengin með hótunum Breta og Hollendinga gagnvart Íslendingum. Þær hafi vissulega verið hafðar uppi á fyrri stigum málsins, til dæmis með hryðjuverkalögum sem sett voru á Ísland og innan Alþjóðagjaldeyrissjóðsins þegar leið að endurskoðun efnahagsáælun Íslands. 5.2.2011 13:50
Húsfyllir í Valhöll þegar Bjarni útskýrir ákvörðun sína Gríðarlegur fjöldi fólks er samankominn í Valhöll, húsnæði Sjálfstæðisflokksins, þar sem Bjarni Benediktsson, formaður flokksins, ætlar að gera grein fyrir ákvörðun sinni og hluta þingflokksins um að styðja Icesave frumvarpið sem liggur fyrir þinginu. 5.2.2011 13:15
Samningurinn ekki nógu góður Krafan um að Icesavesamningurinn fari í þjóðaratkvæðagreiðslu virðist njóta æ meira fylgis í þingliði Sjálfstæðisflokksins. Formaður flokksins segist ekki hafa útilokað þann möguleika, en hann hefur boðað til fundar um málið í Valhöll í dag. Búist er við fjölmennum fundi en afar skiptar skoðanir eru um málið innan flokksins. 5.2.2011 12:13
Mikil ólga í Sjálfstæðisflokknum Mikil ólga er í Sjálfstæðisflokknum vegna afstöðu meirihluta þingflokksins til Icesavemálsins. 5.2.2011 10:03
Bundu snjóþotu aftan í bíl Það var rólegt hjá lögreglu embættum víða um land í nótt. Lögreglan á Selfossi þurfti að aðstoða marga ökumenn eftir miðnætti í gær vegna snjóþunga en það snjóaði mikið í bænum í gærkvöldi. 5.2.2011 09:59
Hlíðarfjall opið - Bláfjöll lokuð Opið verður á skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli á Akureyri í dag frá klukkan 10 til 16. Klukkan átta í morgun var þar 1 metri á sekúndu og fimm stiga frost. 5.2.2011 09:54
Innlendar vörur hefðu hækkað mikið „Það hefur fátt hjálpað íslenskum neytendum síðustu misseri eins og tollvernd,“ segir Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtakanna. Án tollverndar í landbúnaði, segir hann, er engin ástæða til að ætla annað en að bændur, aðrir framleiðendur og aðilar á markaði hefðu hækkað verð til neytenda um sextíu prósent í takt við þá hækkun sem varð á innfluttum vörum þegar krónan féll 2008. 5.2.2011 08:00
Vill nýja menn við stýrið „Þegar eigendastefnan er ekki sú sama og við höfum fylgt og ekki ljóst hvert skal stefna finnst mér að nýir menn eigi að taka við stýrinu,“ segir Finnbogi Baldvinsson, fráfarandi forstjóri fisksölufyrirtækisins Icelandic Group. 5.2.2011 07:00
Guðbjarti dauðbrá við lestur ofbeldisskýrslu Ekki hefur miðað sem skyldi við útrýmingu launamunar kynjanna og í ofbeldismálum gegn konum ættum við að vera að gera mun betur. Þetta kom fram í máli Guðbjarts Hannessonar velferðarráðherra á fjölmennu Jafnréttisþingi í gær. Ráðherrann kynnti skýrslu um stöðu og þróun jafnréttismála hér á landi. 5.2.2011 06:00
Keypti vörur fyrir 1,7 milljónir til einkanota Engin gögn eða fylgiskjöl er að finna í bókhaldi fyrir fangelsið á Kvíabryggju vegna kaupa á eldsneyti fyrir rúmlega 750 þúsund krónur. Eldsneytið var keypt með svokölluðum N1-inneignarkortum, sem forstöðumanninum var óheimilt að nota, þar sem notkun þeirra hafði verið bönnuð í mörg ár. 5.2.2011 06:00
Dómsmál margfalt áhættusamara Nýr Icesave-samningur er betri en Lárus Blöndal, fulltrúi stjórnarandstöðunnar í samninganefndinni, bjóst við. Lárus segir að verði ekki gengið frá samningi þá blasi dómsmál við. Kostnaður við nýja samninginn sé brot af kostnaði sem hlytist af töpuðu máli. Núna deili viðsemjendur ábyrgð og kostnaði. 5.2.2011 05:00
Vill stöðva aðildarviðræður vegna makríls Umhverfis- og sjávarútvegsráðherra Breta tekur undir með gagnrýnisröddum stjórnarandstöðu þar í landi og segist „alveg sammála“ því að krefjast skuli af Evrópusambandinu að aðildarviðræður Íslands verði stöðvaðar uns leysist úr makríldeilunni, að því er kemur fram á skosku vefsíðunni Press and Journal. 5.2.2011 05:00
Bændur farga dýrum vegna eiturs frá Funa Niðurstöður díoxínmælinga Matvælastofnunar staðfesta staðbundna mengun frá sorpbrennslunni Funa á Ísafirði. Díoxín greinist í mjólk, kjöti og fóðri. Fella verður búpening, allt að 400 skepnur, og bann hefur verið sett á nýtingu búfjárafurða á bæjum í Skutulsfirði. 5.2.2011 04:00
Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Innlent