Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Nam 101 milljarði króna Aflaverðmæti íslenskra skipa nam rúmum 101 milljarði króna á fyrstu níu mánuðum nýliðins árs samanborið við rúma 86 milljarða á sama tímabili árið 2009, samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar. Þetta er fimmtán milljarða króna aukning á milli ára, eða 17,8 prósent. 6.1.2011 03:30
Ríkissáttasemjari að máli Sólheima „Við vorum sammála um að halda viðræðunum áfram undir handleiðslu ríkissáttasemjara og hann féllst á það,“ segir Guðmundur Ármann Pétursson, framkvæmastjóri Sólheima, um samningaviðræður við sveitarfélagið Árborg um rekstur stofnunarinnar. 6.1.2011 03:30
Regluverkið er meingallað Stefán Gíslason, umhverfisstjórnunarfræðingur hjá Umís ehf. Environice, segir að díoxín og fúrön hafi töluverða sérstöðu meðal algengustu mengunarefna vegna þess hversu alvarleg og langvinn áhrif þau geti haft á lífríkið og heilsu fólks. 6.1.2011 03:15
Ekki þörf á nýjum stjórnarsáttmála Árni Þór Sigurðsson, formaður þingflokks VG, segist ánægður með þingflokksfundinn sem haldinn var í kvöld. „Við fórum yfir stöðuna í stjórnmálum og hjá okkur og hvað hefur á dagana drifið ef svo má að orði komast,“ segir Árni. Ný efnahagsstefna sem taki við þegar AGS fer og Evrópusambandsmál. 5.1.2011 21:58
Gengislán íbúða enn í óvissu Þrátt fyrir nýsett gengislög viðskiptaráðherra virðist alger óvissa enn ríkja um hvað þúsundir heimila skulda í gengistryggð húsnæðislán. Fordæmisgefandi mál gegn Frjálsa fjárfestingarbankanum fer fyrir Hæstarétt eftir 2 vikur, niðurstaðan gæti breytt endurútreikningi á gengistryggðum húsnæðislánum. 5.1.2011 18:45
Hjólhýsi fauk á hliðina Hjólhýsi fauk á hliðina í Grafarvogi um hádegisbil í gær. Óhappið átti sér stað á bifreiðastæði við fjölbýlishús en talsvert rok var í borginni þegar þetta gerðist. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni sakaði engan en hjólhýsið er mikið skemmt. 5.1.2011 18:00
BUGL fékk tvær bifreiðar til eignar Klúbbfélagar í Lionsklúbbnum Fjörgyn afhentu Barna- og unglingageðdeild Landspítalans til eignar tvær bifreiðar, Renault Trafic og Renault Clio, sem Fjörgyn hefur haft á rekstrarleigu undanfarin 3 ár. 5.1.2011 17:43
Ofbeldismaður framseldur til Póllands Hæstiréttur staðfesti í dag úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um framsal á pólskum karlmanni til heimalands síns. Maðurinn hafði gerst sekur um líkasmárás, ásamt öðrum manni. Auk þess hótaði hann tveimur mönnum lífláti og að kveikja í húsi þeirra þannig að mennirnir óttuðust um líf sitt og heilbrigði. 5.1.2011 17:05
Forsetinn fær viðurkenningu frá Rússum Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands tók í dag við minnispeningi og heiðursviðurkenningu sem forseti Rússlands Dmitry Medvedev og sérstök minningarnefnd um síðari heimsstyrjöldina hefur ákveðið að veita forsetanum. Peninginn fær hann vegna stuðnings við viðburði og athafnir sem tengjast varðveislu sögu föðurlandsstríðsins mikla en svo nefna Rússar síðari heimsstyrjöldina. 5.1.2011 16:47
Í varðhald fyrir að hóta vitnum í hrottafengnu pyntingarmáli Karlmaður á Akureyri var úrskurðaður í gæsluvarðhald um áramótin eftir að hann hótaði vitni í þeim tilgangi að hafa áhrif á vitnisburð hans vegna hrottalegs ofbeldismáls sem verður réttað í þann 7. janúar næstkomandi. Þá hafði lögreglan einnig afskipti af manninum eftir að hann gekk í skrokk á sambýliskonu sinni og vinkonu hennar sama kvöld. 5.1.2011 16:19
Þekkið þið ræningjana | Myndir Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir mönnum sem gerðu tilraun til bankaráns í Arion banka í Árbænum í morgun. 5.1.2011 15:43
Bað fréttamenn að sýna tillitssemi Árni Þór Sigurðsson, starfandi formaður þingflokks Vinstri grænna, var lítið tilbúinn að tjá sig um efni þingflokksfundarins í samtali við fréttamann sem var á staðnum. „Það er fundarhlé," sagði hann. 5.1.2011 15:33
Réttað í fjóra daga yfir hrottum Fyrirtaka fór fram í máli þriggja manna sem ákærðir eru fyrir hrottalega árás á 64 ára gamlan karlmann, eiginkonu hans og dóttur í Reykjanesbæ í Héraðsdómi Reykjaness í morgun. Þar var meðal annars ákveðið að verja fjórum dögum í aðalmeðferð málsins, sem þykir óvanalega langur tími fyrir sakamál. 5.1.2011 15:29
Ákærður fyrir að smygla amfetamíni í skópörum Serbneskur karlmaður hefur verið ákærður fyrir tilraun til þess að smygla tæpu kílói af amfetamíni til landsins á síðasta ári. Maðurinn, sem er 34 ára gamall, kom hingað til lands 9. nóvember. Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjaness í morgun. 5.1.2011 15:12
Kristján Möller um FÍB: Ófagleg vinnubrögð Kristján Möller, sem fór fyrir viðræðum ríkisins við lífeyrissjóðina um fjármögnun vegagerðar, segir sýnda andstöðu við vegtolla ekki koma sér á óvart. Félag íslenskra bifreiðaeigenda hefur sem kunnugt er sett af stað undirskriftasöfnun þar sem vegtollunum er mótmælt og tæplega þrjátíu þúsund manns þegar skrifað undir. 5.1.2011 14:39
Meintur nauðgari flutti til útlanda - rannsókn á lokastigi Rannsókn lögreglu á nauðgun sem ungur piltur kærði karlmann um þrítugt fyrir í maí á síðasta ári er á lokastigi. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu hefur verið erfitt að ná í manninn þar sem hann fluttist búferlum erlendis í kjölfar kærunnar. Von var þó á honum til landsins nú um jólin, þar sem ráðgert var að ræða við hann. 5.1.2011 14:05
Þingmenn VG funda í hádeginu - Leysum ágreining þó það hvessi Þingflokkur Vinstri grænna fundar nú í hádeginu til að ræða þá stöðu sem upp er komin í þingflokknum eftir hjásetu þriggja þingmanna við atkvæðagreiðslu um fjárlög. Fundurinn hófst í hádeginu og þangað mættu ráðherrar og þingmenn. 5.1.2011 12:11
Reyndi að ræna Arion banka vopnaður grjóti Maðurinn sem réðst inn í útibú Arion banka rétt rúmlega níu í morgun, var vopnaður grjóti samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Hann krafðist fjármuna og braut í kjölfarið gler sem skilur að gjaldkera og viðskiptavini. 5.1.2011 11:42
Reyndi að ræna Arion banka - bankaræningjans leitað Karlmaður komst undan eftir að hafa reynt að ræna banka í Árbænum rétt rúmlega níu í morgun. 5.1.2011 11:24
Jón Gnarr fundar um ísbjörn í dag Jón Gnarr, borgarstjóri Reykjavíkur, mun funda með stjórn Fjölskyldu- og húsdýragarðsins klukkan hálf tvö í dag samkvæmt upplýsingum frá ráðshúsinu. 5.1.2011 11:12
Sonurinn lamaður fyrir neðan mitti - „Hrikalegt áfall“ Íslenskur karlmaður liggur alvarlega slasaður á sjúkrahúsi í Innsbruck í Austurríki eftir að hafa lent í slysi á gamlárskvöld. Maðurinn heitir Pétur Kristján Guðmundsson og er 24 ára gamall. Hann var á göngu í fjallshlíð með félaga sínum eftir að hafa fylgst með flugeldasýningu þegar hann féll fram af hengju. Pétur Kristján hlaut við fallið mænuskaða og er lamaður fyrir neðan mitti. 5.1.2011 11:09
Lúðustofninn bágborinn - vilja banna beinar veiðar Ástand lúðustofnsins hér við land er mjög bágborið og rannsóknir á stofninum ófullnægjandi. Þetta kemur fram í greinargerð sem Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur látið taka saman. 5.1.2011 10:10
Ríkissaksóknari: „Mér finnst þetta forkastanlegt“ „Mér finnst þetta forkastanlegt,“ segir Valtýr Sigurðsson, ríkissaksóknari, um kæru Hannesar Smárasonar á hendur honum og Helga Magnúsi Gunnarssyni, saksóknara efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjórans. 5.1.2011 10:06
25 þúsund mótmæla vegtollum Mikill fjöldi hefur bæst við á undirskriftarlista Félags íslenskra bifreiðaeigenda gegn fyrirhuguðum vegtollum umhverfis höfuðborgarsvæðið. Nú þegar um tveir sólarhringar eru liðnir frá því undirskriftasöfnunin hófst hafa tæplega 25 þúsund manns skráð sig. Í gærmorgun voru undirskriftirnar rúmlega átta þúsund. 5.1.2011 10:06
Líkbrennsla algengari - þriðji hver Reykvíkingur brenndur Líkbrennsla hefur færst í vöxt á síðustu árum og er svo komið að fimmti hver Íslendingur er brenndur eftir andlát. Þegar litið er til Kirkjugarða Reykjavíkurprófastdæma einvörðungu er hlutfallið hins vegar enn hærra, en þriðji hver sem deyr á því svæði er brenndur. 5.1.2011 09:23
Komið að skuldadögum hjá Reykjanesbæ „Eytt hefur um efni fram og nú er komið að skuldadögum,“ segir í bókun sem fulltrúar Samfylkingar lögðu fram á fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar í gær þar sem fjárhagsáætlun bæjarfélagsins fyrir árið 2011 var samþykkt af bæjarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins en minnihlutinn sat hjá. 5.1.2011 08:44
Telja fullvíst að um íkveikju hafi verið að ræða Lögreglan á Akureyri telur nú fullvíst að kveikt hafi verið í íbúðarhúsi við Eiðsvallagötu um helgina, þar sem fjögur ungmenni björguðust naumlega út, eftir að vegfarandi hafði vakið þau. 5.1.2011 07:38
Þrír ökumenn teknir vegna fíkniefnaaksturs Þrír ökumenn voru teknir úr umferð á höfuðborgarsvæðinu í nótt, allir vegna aksturs undri áhrifum fíkniefna. Einn þeirra var auk þess réttindalaus. 5.1.2011 07:26
Loðnuleit frestað vegna óveðurs Hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson sem átti að halda til loðnuleitar norður af landinu í gær, er enn í Reykjavík. 5.1.2011 07:21
Brotist inn í íbúðahús við Grettisgötu Brotist var inn í íbúðarhús við Grettisgötu í nótt og þaðan stolið verðmætum úr geymslu, meðal annars skjólfatnaði. Þjófurinn komst undan. 5.1.2011 07:19
Ökumenn tveggja bíla á slysadeild eftir árekstur Ökumenn tveggja bíla voru fluttir á slysadeild eftir harðan árekstur bílanna á mótum Hverfisgötu og Barónstígs í Reykjavík í gærkvöldi. 5.1.2011 07:17
Hannes kærir leka tveggja saksóknara Hannes Smárason hefur kært Valtý Sigurðsson ríkissaksóknara og Helga Magnús Gunnarsson, saksóknara efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra, fyrir brot gegn þagnarskyldu í opinberu starfi. Lögmaður Hannesar lagði kæruna fram í nóvember, eftir að gögn tengd rannsókn efnahagsbrotadeildar á viðskiptum FL Group voru afhent fulltrúa eins af stærri hluthöfum í fyrirtækinu. 5.1.2011 06:30
Framleiðslubann á þúsund býlum Framleiðslubann var sett á yfir þúsund þýsk sveitabýli á mánudag eftir að nokkurt magn eiturefnisins díoxíns fannst í dýrafóðri og í eggjum sem send voru í verslanir. 5.1.2011 06:00
Á ekki von á stórum tíðindum Þingflokkur Vinstri grænna hittist á fundi í dag í fyrsta sinn síðan miklar deilur blossuðu þar upp í lok árs. Fundurinn hefst klukkan tólf. Árni Þór Sigurðsson, starfandi þingflokksformaður, kveðst ekki eiga von á að þar dragi til tíðinda. Fundurinn stendur þó fram á kvöld, en tekið verður um tveggja klukkustunda hlé um miðjan dag vegna jarðarfar 5.1.2011 06:00
Hækka leikskólagjald námsmanns um 110% Þórdís Rúriksdóttir, móðir tveggja ára stúlku í Hraunvallaleikskóla í Hafnarfirði, sér nú fram á að leikskólagjald fyrir dóttur hennar hækki úr 21 þúsund krónum í 44 þúsund á mánuði. 5.1.2011 05:30
Læknar ekki fundið einkenni hjá fólki „Við verðum að vita hvað er í gangi í dýrunum áður en við leggjum mat á mannfólkið,“ segir Haraldur Briem sóttvarnalæknir um niðurstöður úr sýnatökum úr mjólk og fituvef dýra. Þær ákvarða hvort íbúar á Ísafirði og nágrenni verði skoðaðir sérstaklega með tilliti til díoxínmengunar. Hann er bjartsýnn á að þess gerist ekki þörf. 5.1.2011 05:00
Krókódílar og snákar svamla um göturnar Íbúum Rockhampton, 75 þúsund manna borgar í Queensland-fylki í Ástralíu, hefur verið ráðlagt að halda sig frá vatnselgnum sem flæðir þar um götur. Yfirvöld óttast ekki aðeins að flóðin geti hrifsað fólkið með sér, heldur stafar einnig hætta af braki, snákum og jafnvel krókódílum sem leynst geta undir yfirborðinu. 5.1.2011 04:00
Harður samningavetur fram undan Komandi kjaraviðræður milli verkalýðshreyfingar og vinnuveitenda gætu orðið með þeim harðari að mati Gylfa Arnbjörnssonar, forseta Alþýðusambanda Íslands (ASÍ) og Vilhjálms Egilssonar framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins (SA). 5.1.2011 03:15
Um 75 milljarðar tapast vegna fjársvika Eftirlitsmaður hjá Ríkisskattstjóra gerir ráð fyrir að 75 milljarðar glatist árlega á Íslandi vegna fjársvika og misferlis innan fyrirtækja. Endurskoðendur komi aðeins upp um eitt af hverjum 20 misferlistilvikum. 4.1.2011 19:25
SI og LÍÚ styðja ekki stofnun atvinnuvegaráðuneytis Samtök iðnaðarins hafa kúvent í afstöðu sinni til stofnunnar atvinnuvegaráðuneytis og styðja nú ekki lengur að ráðuneytið verði til með sameiningu þriggja ráðuneyta. Bæði fjármálaráðherra og forsætisráðherra segja að ráðuneytið verði stofnað. 4.1.2011 18:42
Fimmtugur karlmaður handtekinn eftir innbrot Karlmaður um fimmtugt var handtekinn í miðborginni í gær eftir að hafa brotist þar inn í íbúð. Maðurinn hafði tekið nokkra hluti ófrjálsri hendi og borið þá í bíl sinn þegar lögreglan kom á vettvang. 4.1.2011 17:06
Herjólfur siglir til Landeyjahafnar Gert er ráð fyrir því að Herjólfur sigli til Landeyjahafnar frá Vestmannaeyjum núna klukkan sex, samkvæmt upplýsingum frá hafnarstjóra. 4.1.2011 16:45
800 þáðu aðstoð 24. nóvember - 9 prósent háskólamenntaðir Nú liggja fyrir niðurstöður könnunar sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands gerði meðal fólks sem leitar til hjálparsamtaka eftir matarúthlutunum. 4.1.2011 15:51
Svakalegt veður undir Eyjafjöllum - Óveður á Kjalarnesi Það er aftakaveður undir Eyjafjöllum og ekkert ferðaveður að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli. Mikið grjótfok eru undir Eyjafjöllum. Varðstjóri lögreglunnar sagði veðrið svakalegt. 4.1.2011 15:19
Skotárás: Tveimur sleppt - hinir áfram í gæsluvarðhaldi Tveir karlmenn hafa verið úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 1. febrúar næstkomandi vegna skotárásar í Bústaðarhverfi á aðfangadag. Þeir hafa játað aðild sína að málinu. Lögreglan fór einnig fram á gæsluvarðhald yfir tveimur öðrum, sem hafa játað aðild sína að málinu og setið í gæsluvarðhaldi frá 25. desember, en dómari Héraðsdóms Reykjavíkur féllst ekki á þá kröfu. Þeir eru nú lausir úr haldi lögreglu. 4.1.2011 15:18