Fleiri fréttir

Afhenda lista til Alþingis

Íbúar á Suðurlandi hafa nú hafið undirskriftasöfnun til að mótmæla fyrirhuguðum niður­skurði í heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni.

Telja að gæði skólastarfs muni skerðast

SAMFOK, samtök foreldra grunnskólabarna í Reykjavík, lýsa yfir áhyggjum af fyrirhuguðum niðurskurði á menntasviði Reykjavíkurborgar þriðja árið í röð. Guðrún Valdimarsdóttir, formaður SAMFOK, segir helsta áhyggjuefnið vera að fjárveitingar til skólanna muni vart duga til að fylgja ákvæðum grunnskólalaga að fullu.

Ungur piltur með barnaklám

Piltur á átjánda ári hefur verið dæmdur í Héraðsdómi Norðurlands eystra í þrjátíu daga skilorðsbundið fangelsi fyrir vörslu barnakláms.

Hækka viðmið um 20 til 25%

Tekjuviðmið vegna gjafsóknar verða hækkuð um 20 til 25 prósent í kjölfar fjölmargra ábendinga um að viðmiðið sé of lágt, sagði Ögmundur Jónasson, dómsmála- og mannréttindaráðherra, á Alþingi í gær.

Vill betra flæði á upplýsingum

Elliði Vignisson bæjar­stjóri í Vestmannaeyjum hefur lýst yfir óánægju með upplýsingaflæði vegna ferða Herjólfs, en ferð til lands féll niður í gærmorgun sökum óhagstæðra veðurskilyrða.

Veltir fyrir sér að loka Bláfjöllum

Ýmsar sparnaðarleiðir eru til skoðunar hjá Reykjavíkurborg en alls þarf að stoppa upp í 4,5 milljarða króna gat hjá borginni en fjárlagagerð stendur nú yfir og stendur til að ljúka henni fyrir jól.

Kísilver undirbúin í Þorlákshöfn, Helguvík og Grindavík

Tvær kísilmálmverksmiðjur eru nú í undirbúningi í landinu, í Þorlákshöfn og Helguvík, og jafnframt er verið að undirbúa kísilhreinsiverksmiðju við Grindavík. Þær gætu lent í samkeppni við álver í Helguvík um þá orku sem verður í boði á næstunni en jafnframt er líklegt að Landsvirkjun hugi að neðri Þjórsá til að mæta orkuþörfinni.

„Íslandsvinur“ höfuðpaur í smyglmáli

Hæstiréttur staðfesti framlengingu á gæsluvarðhaldi yfir austur-evrópskri konu sem kom hingað til lands, ásamt annarri konu, með um tuttugu lítra af amfetamínbasa falda í eldsneytistanki bílsins. Með réttri úrvinnslu efnisins var hægt að framleiða um 150 kíló af amfetamíni.

Ráðinn aðstoðarforstjóri Landspítalans

Benedikt Olgeirsson hefur verið ráðinn í nýtt starf aðstoðarforstjóra Landspítala. Eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá Landspítalanum mun aðstoðarforstjóri mun hafa með höndum margþætt verkefni sem snúa meðal annars að innleiðingu á stefnu spítalans, framþróun starfseminnar til að

Ríkislögreglustjóri kannar hvort njósnað er um Íslendinga

Ögmundur Jónasson dómsmálaráðherra hefur fundað með ríkislögreglustjóra og farið þess á leit við hann að kannað verði hvort Bandaríkjamenn hafi fylgst með ferðum almennra borgara við sendiráðiið á Laufásvegi. Þetta sagði Ögmundur við upphaf þingfundar í dag.

Slökkviliðið kallað að Hallakri

Lögregla og slökkvilið voru kölluð að Hallakri í Garðabæ nú á fjórða tímanum vegna þess að pottur gleymdist á eldavél. Töluverður reykur myndaðist í íbúðinni og vinnur lögreglan nú að því að reykræsta.

Varað við vafasömum humarsölumönnum

Óprúttnir aðilar brutust inn á veitingastaðinn Humarhúsið í nótt og stálu þaðan nærri hundrað kílóum af humri og dýru áfengi. Ottó Magnússon, annar eigenda Humarhússins, sagði að um sex til átta kassar af humri hefðu verið teknir og vegur hver kassi um 12 kíló.

Sakaði fréttakonu Rúv um heimsku og vanþekkingu

Fréttakonan Linda Blöndal á Rúv lenti í orðaskaki við finnska verðlaunaskáldið Sofi Oksanen á afhendingu norrænu bókmenntaverðlaunana í síðustu viku. Rithöfundurinn Eiríkur Örn Norðdahl segir dónaskap Sofi Oksanen endurspegla það metnaðarleysi og skort á fagmennsku sem einkenni íslenska menningarumfjöllun.

Landlæknir vill banna transfitusýrur

Landlæknisembættið er hlynnt því að notkun transfitusýra í matvælum verði bönnuð. Geir Gunnlaugsson, landlæknir segir mikilvægt að stjórnvöld séu vel vakandi fyrir þáttum sem geti haft jákvæð og neikvæð áhrif á heilsu. Í því skyni þurfi að skoða mjög vel hvaða möguleikar séu í stöðunni hvað varðar matvæli.

Mannránið á Akureyri upplýst: Menn voru bara að fá sér

Gínuþjófnaðurinn á Akureyri sem Vísir sagði frá fyrr í dag hefur verið upplýstur. „Mannræningjarnir", Kristófer og Róbert höfðu samband við Vísi og lýstu ábyrgðinni á hendur sér. Þeir hafa nú komið japönsku gínunni sem mun vera í eigu Friðriks Þórs Friðrikssonar, kvikmyndaleiksstjóra, til lögreglunnar á Akureyri.

Jónas frægasta byttan

Það er full ástæða til þess að íslenskir fjölmiðlar taki til alvarlegrar meðferðar áhrif drykkjumanna á Íslandssöguna síðustu 20, 30 eða 40 árin, segir Illugi Jökulsson rithöfundur.

Körfuboltamenn á kafi í snjó

Björgunarsveit var kölluð út í gærkvöldi til að aðstoða heilt körfuboltalið frá Sauðárkróki, sem sat fast í rútubíl uppi á Þverárfjalli, á milli Blönduóss og Sauðárkróks, eftir glæstan sigur á liði Breiðabliks í bikarkeppninni.

Ráðherra skammar eigin ríkisstjórn

Einn af ráðherrum ríkisstjórnarinnar, Jón Bjarnason, gagnrýnir eigið fjárlagafrumvarp í grein í Fréttablaðinu um helgina, og segir að niðurskurðartillögur frumvarpsins auki á misrétti landshluta og skerði búsetuskilyrði í litlum samfélögum.

Gagnrýnir ummæli Árna Páls

Það kostar svipað mikið að fara leið Hagsmunasamtaka heimilanna um almenna leiðréttingu skulda og að skera niður alla yfirveðsetningu af húsnæðisskuldum, segir stjórnarmaður í samtökunum. Yfirskuldsetning stefni í 175 milljarða. Hann gagnrýnir efnahags- og viðskiptaráðherra harðlega fyrir ummæli um að millistéttin þurrkist út verði farið í almennar aðgerðir.

Sakaður um barnaníð: „Þær eru á höttunum eftir peningum"

Ægir Geirdal, frambjóðandi til stjórnlagaþings, segir ekkert hæft í ásökunum tveggja kvenna um að hann hafi misnotað þær þegar stúlkurnar voru á unglingsaldri. Hann segir málið snúast um peninga og ætlar í mál við netmiðil sem birti fyrstu fréttir af málinu.

Sigurbjörn sópar að sér verðlaunum

Sigurbjörn Bárðarson var útnefndur íþróttaknapi ársins, skeiðknapi ársins og knapi ársins á Uppskeruhátíð hestamanna sem fram fór á laugardaginn. Aldrei áður hefur sami knapi hlotið jafnmörg verðlaun á Uppskeruhátíð og nú, að því er fram kemur í tilkynningu frá Landssambandi hestamanna.

Allar reglur brotnar við sölu Vestia

Allar verklagsreglur sem lagt var upp með við sölu eigna bankanna voru brotnar þegar að Landsbankinn seldi eignarhaldsfélagið Vestia til Framtakssjóðs lífeyrissjóðanna, segir Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.

Þjófar gripnir í Skorradal

Lögreglumenn úr Borgarnesi handtóku undir morgun tvo unga menn, sem höfðu brotist inn í að minnstakosti fjóra sumarbústaði í Skorradal og stolið talsverðum verðmætum úr þeim.

Sveitarstjórn Borgarbyggðar með áhyggjur af Bifröst

Sveitarstjórn Borgarbyggðar lýsir miklum áhyggjum af hugmyndum um samruna Háskólanna að Bifröst og í Reykjavík. Í yfirlýsingu sveitarstjórnarinnar segir að fjöldi starfsmanna muni flytjast frá Bifröst til Reykjavíkur og að héraðið muni missa einn af sínum mikilvægustu vinnustöðum.

Barnshafandi flutt með þyrlu frá Eyjum

Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti í gærkvöldi barnshafandi konu til Vestmannaeyja þar sem læknar töldu öruggara að hún fæddi barn sitt á fæðingadeildinni í Reykjavík.

Bílþjófur gómaður

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í nótt mann á bíl, sem stolið var fyrir nokkrum dögum. Hann hafði skipt um númeraplötur á honum til að villa um fyrir lögreglu. Annar ökumaður var tekinn úr umferð í nótt fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna.

Brotist inn um hábjartan dag

Þjófar brutust inn í íbúðarhús við fjölfarna götu í Keflavík um miðjan dag í gær og létu greipar sópa. Þeir stálu sjónvörpum, hljómflutningstækjum, myndavélum tölvum og fleiru.

Er rólegri en vill ekki borða

Útselskópurinn Golli sem gekk á land við beituskúr í Breiðdalsvík í síðustu viku er kominn til Vestmannaeyja þar sem starfsmenn á Fiska- og náttúrugripasafninu fóstra hann. Kópurinn er ungur, enn á mjólkurstigi, og verður í Eyjum þar til hann er orðinn nógu stór til að vera sleppt á haf út. „Hann hefur það ágætt greyið þannig séð en er tregur til að borða og það er erfitt að koma fæðu ofan í hann þar sem hann er nautsterkur,“ segir Georg Skæringsson, starfsmaður safnsins og „fósturmamma“ Golla í

Útskrifa lögfræðinga án grunnþekkingar

„Ég hef áhyggjur af því hvort menntun lögfræðinga sé í öllum tilvikum nógu góð,“ segir Brynjar Níelsson, hæstaréttarlögmaður og formaður Lögmannafélags Íslands.

Hagkvæmari fyrir sveitarfélög

Sjálfstætt starfandi leikskólar fá að meðaltali 86 til 94 prósent af þeim kostnaði sem sveitarfélögin leggja til eigin leikskóla. Í flestum tilvikum innheimta einkareknu leikskólarnir ekki hærri skólagjöld en leikskólar sveitar­félaganna og eru þannig reknir fyrir umtalsvert lægri fjárhæðir.

Íslensku þjóðgildin eru jafnrétti og frelsi

„Áhugavert er að sömu gildi eru fundarmönnum efst í huga á tveimur þjóðfundum,“ segir Gunnar Hersveinn, rithöfundur og heimspekingur, sem greint hefur niðurstöður þjóðfundanna tveggja. „Ef til vill má kalla þau hin íslensku þjóðgildi sem ríkja um þessar mundir.“

Neyta sjaldnar áfengis

Unglingar í 10. bekkjum grunnskóla segjast neyta mun sjaldnar áfengis nú heldur en fyrir 12 árum. Í könnunum sem Rannsóknir og greining hafa framkvæmt árlega meðal tíundubekkinga síðastliðin tólf ár sést að áfengisneysla hefur dregist verulega saman. Árið 1998 sögðust 42 prósent unglinga hafa orðið ölvuð einhverntímann síðustu 30 daga, en 14 prósent árið 2010.

Sáttmáli skrifaður fyrir Íslendinga

Jafnrétti, lýðræði, mannréttindi, heiðarleiki og réttlæti eru á meðal þeirra helstu gilda sem fundargestir vilja að lögð verði til grundvallar í nýrri stjórnarskrá. Helstu niðurstöður Þjóðfundar um stjórnarskrá sem haldinn var á laugardag voru kynntar á blaðamannafundi í gær. Fundargestir voru um 950 talsins af landinu öllu.

Styrjaldir morgundagsins verða háðar á internetinu

Fréttaskýring: Hvernig mun öryggis- og viðbragðsteymi gegn tölvuárásum sem stjórnvöld hafa ákveðið að stofna verja netkerfi landsins? „Oft er sagt að styrjaldir morgundagsins verði háðar á internetinu," segir Þorleifur Jónsson, forstöðumaður tæknideildar Póst- og fjarskiptastofnunar.

Samstarfið gengur vel

„Jón er borgarstjóri og hann stendur sig mjög vel, en þetta er líka hópvinna. Við erum ekki bara ein í Samfylkingunni og Besta flokknum að stjórna. Við gerum það með stórum hópi harðsnúinna starfsmanna Reykjavíkurborgar og síðan viljum við líka vinna með þeim sem eru í hinum flokkunum,“ segir Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs, aðspurður hvort hann sé hinn raunverulegi borgarstjóri í Reykjavík.

Ísland verði miðstöð millilandaflugs frá Grænlandi

Íslandsstofa bindur vonir við að Ísland verði miðstöð millilandaflugs frá Grænlandi, en hingað til hafa Grænlendingar alltaf flogið í gegnum Kaupmannahöfn. Sendinefnd frá Íslandsstofu fer til Grænlands í vikunni til að kynna verkefnið.

Hugnast samstarf háskólanna í Borgarfirði

Sveitarstjórn Borgarbyggðar lýsir yfir miklum áhyggjum af framkomnum hugmyndum um innlimun Háskólans á Bifröst í Háskólann í Reykjavík. Tillögurnar fela í sér að háskólanám á Bifröst muni leggjast af og það nám sem eftir stendur mun veikjast verulega, að því er fram kemur í yfirlýsingu frá sveitarstjórn Borgarbyggðar. Sveitarstjórnin fagnar framkomnum hugmyndum um aukið samstarf háskólanna í Borgarfjarðarhéraði og mun leggja sitt af mörkum til þess að háskólarnir vaxi og dafni.

Orðspor fjórflokksins lélegt

„Íslendingar hafa sýnt aðgerðarleysi ríkisstjórnar Samfylkingar og VG gríðarlegt langlundargeð. Það orsakast af því hvað hinir hlutar fjórflokksins hafa lélegt orðspor," segir í ályktun sem miðstjórn Frjálslynda flokksins samþykkti og sendi frá sér í dag.

Ferðir Herjólfs falla niður

Vegna veðurs mun Herjólfur ekki fara fleiri ferðir í dag milli lands og Vestmannaeyja. Farnar voru ferðir í morgun en hádegisferð sem var áætluð féll niður. Áætlað er að Herjólfur muni sigla frá Vestmannaeyjum klukkan 7:30 á morgun og frá Landeyjahöfn klukkan 9.

Sjá næstu 50 fréttir