Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Innbrotaalda á Suðurnesjum Lögreglunni á Suðurnesjum hefur að undanförnu borist nokkur fjöldi tilkynninga um innbrot og tilraunir til innbrots. Að sögn lögreglu hafa innbrotin átt sér stað bæði að nóttu og degi og hafa heimili, bifreiðar og fyrirtæki orðið fyrir barðinu á innbrotsþjófum. 5.11.2010 14:14
Lög um landslén til að vernda ímynd Íslands Drög að frumvarpi til laga um landslénið .is og önnur höfuðlén sem sérstaka skírskotun hafa til Íslands er nú til umsagnar hjá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu. Meginmarkmiðið með frumvarpsdrögunum er að stuðla að gæðum, hagkvæmni og framþróun á sviði lénaumsýslu með því að setja lagaramma um lénaskráningar á Íslandi sem tryggir öryggi, skilvirkni og gagnsæi varðandi umsýslu með lén sem tilheyra landsléninu .is. Markmið þess eru aukinheldur að tryggja að um skráningu léna gildi skýrar reglur þar sem gætt er að hagsmunum almennings og að jafnræði aðila um aðgang sé tryggt. Auk þess má segja að tilgangur laga um landslénið .is sé að vernda ímynd Íslands, það er að tryggja að .is sé gæðamerki. Þetta kemur fram á vef samgönguráðuneytisins. 5.11.2010 14:09
Efast um sparnað vegna niðurskurðar í heilbrigðismálum Aðgerðahópar vegna niðurskurðar í heilbrigðismálum mótmæla harðlega þeirri skerðingu sem kynnt hefur verið í tillögum til fjárlaga næsta ársin. Aðgerðahópar frá flestum landshlutum héldu fjarfund á þriðjudag þar sem rætt var um alvarlega stöðu heilbrigðismála. Tillögur til fjárlaga ger ráð fyrir 4,7 milljarða króna niðurskurði og umtalsverðum skipulagsbreytingum með tilflutningi á þjónustu frá landsbyggðinni til Reykjavíkur og Akureyrar. Um 84% fyrirhugaðs niðurskurðar beinast að heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni. 5.11.2010 13:52
Segist ekki vera rasisti - bara hrokafullur „Ég hef aldrei hent neinu í neinn,” segir upplýsingafulltrúi ungliðahreyfingar Svíþjóðardemókrata, William Hahne, en hann var sakaður um rasíska tilburði á Ölstofunni fyrr í vikunni sem endaði á því að hann hellti vatni á barþjón sem er af palenstínsku uppruna. 5.11.2010 13:41
Ljótupeysudagur hjá STALÍN Starfsfólk Lánasjóðs íslenskra námsmanna heldur í dag svokallaðan ljótupeysudag þar sem starfsfólk mætti til vinnu í ljótustu peysunni sem það fann. Starfsmannafélag LÍN skipulagði daginn en félagið ber nafnið STALÍN. 5.11.2010 13:33
Nýi vegurinn kostaði 2,7 milljarða króna Þjóðvegurinn milli Húsavíkur og Þórshafnar styttist um 53 kílómetra á morgun, með formlegri opnun Hófaskarðsleiðar þvert yfir Melrakkasléttu. Núverandi vegur milli byggðanna norður um Sléttu er 212 kílómetra langur en með nýja veginum styttist leiðin niður í 159 kílómetra. Þá leysir vegurinn af Öxarfjarðarheiði, sem hefur aðeins verið fær á sumrin. 5.11.2010 13:01
Íslenski fjárhundurinn á risasýningu í Bandaríkjunum „Þetta er mjög mikilvæg sýning fyrir framtíðarvinsældir íslenska fjárhundsins í Bandaríkjunum,“ segir Kristina Moore, fjölmiðlafulltrúi hundasýningar Kennel-klúbbsins. 5.11.2010 13:00
Sjálfstætt starfandi skólar eru ódýrari fyrir sveitarfélögin Sjálfstætt starfandi leik- og grunnskólar eru ódýrari í rekstri fyrir sveitarfélögin en þeir opinberu. Að meðaltali fá sjálfstætt starfandi leikskólar aðeins 86% af þeim kostnaði sem sveitarfélögin leggja til eigin leikskóla. Í flestum tilvikum innheimta leikskólarnir ekki hærri skólagjöld en sveitarfélagaskólarnir og eru þannig reknir fyrir umtalsvert lægri fjárhæðir. 5.11.2010 12:45
Sigmundur Davíð: Sérkennilegt hjá Jóhönnu Formenn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks útiloka ekki að þeir taki forsætisráðherra á orðinu og leggi fram vantrauststilllögu á ríkisstjórnina á Alþingi. 5.11.2010 12:11
Guðbjartur situr enn á skipulagi Ölfuss Guðbjartur Hannesson, sem var settur umhverfisráðherra um skipulagsmál Ölfuss, eftir að Svandís Svavarsdóttir lýsti sig vanhæfa, hefur ekki enn staðfest aðalskipulag sveitarfélagsins. Ein vika er komin fram yfir þann tíma sem ráðamenn sveitarfélagsins telja stjórnsýslulög veita honum til að afgreiða málið. 5.11.2010 11:37
Lögreglan lærir um peningaþvætti Fjármunabrot og peningaþvætti tengt skipulagðri brotastarfsemi voru í brennidepli á tveggja daga námskeiði, sem haldið var í Lögregluskólanum nýverið. Rannsóknir slíkra mála eru oft mjög umfangsmiklar en á námskeiðinu var farið yfir fjölmörg atriði sem að þessu snúa. 5.11.2010 10:34
Kexinu lokað: Þetta er bara eins og golfklúbbur „Þetta er bara klúbbur, eins og golfklúbbur,“ sagði Arnar Már Þórisson, einn af eigendum klúbbsins Kex á Barónstíg en lögreglan lokaði staðnum á þriðjudagskvöldinu. 5.11.2010 10:32
Jenis og Jóhanna í kokteilboði - Ræddu ekkert saman Færeyski þingmaðurinn Jenis av Rana og Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra mættu bæði í kokteilboð sem íslenska ríkisstjórnin hélt fyrir þá þingmenn sem sóttu þing Norðurlandaráðs. Jenis er Íslendingum helst kunnur fyrir að hafa neitað að sitja til borðs með Jóhönnu og eiginkonu hennar, Jónínu Leósdóttur, þegar þær sóttu Færeyjar heim fyrir skömmu. 5.11.2010 09:18
Rasismi ungliða skók sendinefnd Svíþjóðar Ungliði úr röðum Svíþjóðardemókrata veittist að barþjóni af erlendum uppruna á Ölstofu Kormáks og Skjaldar í fyrrakvöld og kastaði í hann bjórglasi. Sendinefnd Svíþjóðar á Norðurlandaráðsþinginu hafði samband við barþjóninn í gær og óskaði eftir að fá að hitta hann svo ungliðinn gæti beðist afsökunar. 5.11.2010 08:00
Unglingar reyndu að kveikja í fjölbýlishúsi á Keflavíkurflugvelli Nokkrir unglingar gerðu tilraun til að kveikja í á þremur stöðum í fjölbýlishúsi á gamla varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli í nótt. 5.11.2010 07:51
Lögreglan í Keflavík aðstoðaði húsvilltan mann Lögreglan í Keflavík var kölluð að húsi í bænum í nótt þar sem talið var að maður væri að brjótast þar inn. 5.11.2010 07:45
Óvissuástand þegar vélarbilun varð í stórum frystitogara Óvissusástand skapaðist þegar skyndilega drapst á aðalvél í stórum frystitogara, með hátt í 30 manna áhöfn, þegar hann var staddur út af Gjögri, nyrst á Vestfjarðakjálkanum í gær. 5.11.2010 07:41
Þrír menn í haldi vegna líkamsárásar í Kópavogi Þrír menn gista nú fangageymslur lögreglunnar eftir að hafa ráðist á fjórða manninn fyrir utan veitingastað í Hamraborg í Kópavogi um miðnætti. Sá var fluttur á slysadeild til aðhlynningar en er ekki mikið meiddur. 5.11.2010 07:17
Biður fólk að dæma ekki hana Birtu sína „Það er sérstakt að fylgjast með viðbrögðum fólks þegar það sér hana fyrst af því að hún er svona hárlaus,“ segir Belinda Theriault um Sphynx-læðuna sína Birtu. Belinda og tíkin Týra voru óaðskiljanlegar í fimmtán ár þar til Týra dó haustið 2006. 5.11.2010 07:00
Vildi ekki stjórnarsamstarf með Sjálfstæðisflokknum Björgvin G. Sigurðsson vildi ekki að Samfylkingin gengi til stjórnarsamstarfs með Sjálfstæðisflokknum eftir kosningarnar 2007. Hún ætti fremur að vera áfram í stjórnarandstöðu en að mynda stjórn með höfuðandstæðingi sínum. 5.11.2010 06:45
Fréttaskýring: Tugir mála fyrnast vegna niðurskurðar Niðurskurður hjá lögregluembættum hefur hjá sumum embættum haft alvarleg áhrif á afköst að mati ríkissaksóknara. Dómum í sakamálum hefur fækkað verulega milli ára, og umtalsvert færri mál koma til ríkissaksóknara frá lögreglustjórum landsins. 5.11.2010 06:30
Mílu gert að veita Vodafone aðgang Upplýsingatækni Vodafone fær aðgang að ljósleiðara NATO sem er í umsjá og að hluta í eigu Mílu, samkvæmt nýrri ákvörðun Póst- og fjarskiptastofnunarinnar (PFS). Tengingu á helstu staði á að vera lokið fyrir 15. desember, að því er fram kemur í ákvörðuninni. Eftir 5.11.2010 06:00
Rannsókn á morðmálinu lokið Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur lokið rannsókn á manndrápinu í Hafnarfirði í ágúst síðastliðnum. Málið verður sent til ákæruvaldsins í kringum helgina. 5.11.2010 05:00
Jón Atli í viðtali: Tilfinningaklámið er úti um allt Mojito, nýtt leikrit eftir Jón Atla Jónasson, verður frumsýnt í Tjarnarbíói 17. nóvember næstkomandi. Undirliggjandi stef verksins eru afleiðingar efnahagshrunsins. Leikritið fjallar um tvo starfsmenn úr skilanefnd banka sem hittast fyrir tilviljun. Annar þeirra fer að rifja upp heimsókn sína á indversk/pakistanskan veitingastað í Reykjavík, sem endaði með ósköpum. Glös, borð og stólar voru brotin og slagsmál brutust út. 5.11.2010 05:00
Vestfirðingar slökkva ljósin Hátt í sjö hundruð manns á Vestfjörðum hðfðu síðdegis í gær skráð sig í átak á Facebook gegn ríkisstjórninni. Upphafsmaður átaksins, Guðjón M. Þorsteinsson, vill að Vestfirðingar slökkvi ljós á heimilum sínum og fyrirtækjum í eina mínútu klukkan sjö í kvöld. 5.11.2010 04:00
Bónusar verða í boði hjá báðum Icelandair og norræna flugfélagið SAS hafa samið sín á milli um margháttað samstarf, svo sem um tengingar og þjónustu flugfélaganna á milli áfangastaða og gagnkvæm réttindi fyrir vildarklúbbsfélaga. 5.11.2010 03:15
Fimmtungur ók of hratt Um 22% ökumanna reyndust aka of hratt á Höfðabakka í Reykjavík þegar að lögreglan fylgdist með eftir hádegi í gær. 4.11.2010 22:25
Elín Hirst styður Mæðrastyrksnefnd Elín Hirst fréttamaður afhenti Ragnhildi Guðmundsdóttur, formanni Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur, í dag fyrsta eintakið af DVD diski af heimildamynd sinni Síðasta ferðin, sem fjallar um íslenska vesturfara. 4.11.2010 20:24
Fimmti maðurinn handtekinn vegna fíkniefnamáls Karl á þrítugsaldri hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 11. nóvember að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Maðurinn, sem var handtekinn í gær, er grunaður um aðild að máli sem er til rannsóknar hjá lögreglu og snýr að ætlaðri framleiðslu fíkniefna, sölu þeirra og dreifingu. 4.11.2010 19:21
Misbýður endurútreikningur Lýsingar Hafdís Una Bolladóttir tók ásamt manni sínum 2 milljóna króna bílalán hjá Lýsingu árið 2006, gengistryggt og íslenskt til helminga. 4.11.2010 18:30
Herjólfur siglir á ný til Landeyja síðdegis á morgun Herjólfur byrjar á ný að sigla til Landeyja síðdegis á morgun, eftir 40 daga hlé. Vegagerðin tilkynnti síðdegis að dýpkun Landeyjahafnar gengi ágætlega enda væru aðstæður góðar. Fyrsta ferð Herjólfs í fyrramálið verður þó til Þorlákshafnar og komi ekkert óvænt upp er áformað að eftir þá ferð hefjist siglingar til Landeyja að nýju, samkvæmt áætlun. 4.11.2010 18:14
Jarðskjálftar við Kleifarvatn Jarðskjálftahrina hófst í Krýsuvík síðla nætur og var talsverður órói þar í morgun, samkvæmt mælum Veðurstofu. Flestir skjálftanna eru litlir og þeir stærstu innan við 2 stig og er ekki vitað til þess að fólk hafi fundið fyrir þeim, að sögn Þórunnar Skaftadóttur jarðfræðings á Veðurstofu. 4.11.2010 17:30
Björgunarsveitarmenn saman í bíó 25 menn úr björgunarsveitinni Suðurnes í Reykjanesbæ fóru í hópferð á heimildarmyndina Norð Vestur - Björgunarsaga, sem fjallar um snjóflóðið á Flateyri árið 1995. 4.11.2010 17:15
Dæmdur fyrir að nauðga fyrrverandi eiginkonu sinni Hæstiréttur staðfesti dóm Héraðsdóms Vesturlands yfir karlmanni sem nauðgaði fyrrverandi eiginkonu sinni. Maðurinn nauðgaði henni í bíl sínum í febrúar 2009. 4.11.2010 16:36
Flugmaður Geysisvélarinnar keypti fyrsta Neyðarkallinn Dagfinnur Stefánsson, flugmaður á flugvélinni Geysi sem fórst 1950, keypti fyrsta Neyðarkall Slysavarnafélagsins Landsbjargar þegar að sala hófst i dag. 4.11.2010 16:23
Játaði stórfelldan skartgripaþjófnað Karlmaður játaði í morgun í Héraðsdómi Reykjavíkur að hafa brotist inn í skartgripaverslun í Hafnarfirði og stolið þaðan skartgripum fyrir rúmlega tvær miljónir. Innbrotið framdi maðurinn í ágúst 2009. 4.11.2010 15:34
„Maður sem á tvö svöng börn er hættulegur“ „Það er bara spurning hvenær það sýður upp úr," sagði Sturla Jónsson vörubílstjóri sem mótmælti ríkisstjórninni á Austurvelli. Þar eru á fimmta hundrað mótmælenda. 4.11.2010 14:54
Margrét Tryggva: „Ég skammast mín“ Margrét Tryggvadóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, skammaðist sín í þingsal þegar unglingar voru þar viðstaddir og fylgdust með stjórn og stjórnarandstöðu takast á af mikilli heift. 4.11.2010 14:53
Á fimmta hundrað manns á mótmælum Á fimmta hundrað mótmælendur slá tunnur á Austurvelli. Ástæðan er sú að Alþingi er nú komið saman aftur. Mótmælendur krefjast meðal annars að þing verði rofið og utanþingsstjórn skipuð. 4.11.2010 14:39
Jóhanna manar stjórnarandstöðu til að lýsa yfir vantrausti á sig Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra skorar á stjórnarandstöðuna að leggja fram vantrauststillögu á ríkisstjórnina. Þetta gerði Jóhann í pontu á Alþingi fyrir stundu þar sem hún svaraði gagnrýni þingmanna Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks sem þykja aðgerðir ríkisstjórnarflokkanna í þágu heimilanna vera slæmar og illa útfærðar. 4.11.2010 14:29
Krabbameinsvaldandi efni á gervigrasvöllum Í dekkjakurli sem notað er á gervigrasvelli barna eru krabbameinsvaldandi efni og eiturefni sem geta verið hættuleg börnum. Læknafélag Íslands skoraði fyrir skömmu á Alþingi að láta banna notkun þessa kurls. 4.11.2010 14:28
Hótaði að sitja fyrir starfsmanni apóteks Viðskiptavinur Lyfja og heilsu við Egilsgötu í Reykjavík hótaði starfsmanni apóteksins nú skömmu eftir hádegið þegar hann þurfti að bíða eftir að fá afgreidd lyf. Maðurinn, sem er góðkunningi lögreglunnar og var heldur ölvaður, kom í apótekið með lyfseðil. Starfsmaðurinn þurfti að hringja í lækni áður en hann gat afgreitt lyfin en náði ekki sambandi og gat því ekki afhent manninum lyfin strax. Við þetta æstist viðskiptavinurinn mjög og tók að hóta starfsmanninum öllu illu, sagðist ætla að sitja fyrir honum og að hann myndi sannarlega hafa verra af vegna þessa seinagangs. 4.11.2010 14:26
Ólafur og Dorrit við útför Jonathans Motzfeldt Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff forsetafrú verða á morgun viðstödd útför Jonathans Motzfeldt, fyrrum formanns landstjórnar Grænlands. Útförin fer fram í Nuuk og verður á vegum grænlensku landstjórnarinnar, að því er fram kemur í tilkynningu frá forsetaembættinu. 4.11.2010 14:18
Bjarni: Fálmkenndar aðgerðir ríkisstjórnarinnar Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að lausnar skuldavanda heimilanna vera fálmkenndar, ómarkvissar og óskýrar. Bjarni tók fyrstur til máls eftir að Alþingi var sett fyrir stundu undir liðnum óundirbúnar fyrirspurnir. Hann beindi því til Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, að skýra hvað ríkisstjórnin ætlaði að gera til að bjarga heimilunum og gagnrýndi seinagang hennar. 4.11.2010 14:09
Barið á tunnur á Austurvelli Rúmlega hundrað manns hafa safnast saman fyrir utan Alþingishúsið til að krefjast þess að skipuð verði utanþingsstjórn. 4.11.2010 14:05