Fleiri fréttir

Banna gamla fólkinu að fóðra villikattaher

„Í fyrra var þetta orðin alger plága svo við fengum meindýraeyði og hann tók tólf stykki. Þetta voru allt saman kolvitlausir villikettir,“ segir Björgvin Þórðarson, húsvörður hjá Hrafnistu í Hafnarfirði, um kattaplágu í hrauninu við hjúkrunarheimilið.

Boða aukna samvinnu í atvinnumálum

Fréttaskýring: Ríkisstjórn kynnti í gær verkefni til að örva atvinnulíf á Suðurnesjum. Til greina kemur að flytja Landhelgisgæsluna til Keflavíkur og Þróunarfélagið verður eflt. Ekkert er ákveðið um stóriðju eða einkasjúkrahús. Sveitarstjórnarfólk er ánægt með samstarfsvilja stjórnar.

Vegagerð fyrir tugi milljarða í sjónmáli

Mjög hefur dregið saman með kröfum ríkisins og lífeyrissjóðanna um vexti í viðræðum um fjármögnun sjóðanna á vegaframkvæmdum fyrir á fjórða tug milljarða króna.

Lagst gegn friðlýsingu hluta Geysissvæðisins

Áætlun um að friða þann hluta Geysissvæðisins sem er í eigu ríkisins hefur verið gerð hjá Umhverfisstofnun. Bláskógabyggð leggst gegn friðun á svæðinu þar til samkomulag næst milli allra sem eiga þar land.

Með myndavélar og skartgripi

Tveir menn, á þrítugsaldri, voru í gær úrskurðaðir í viku langt gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Þeir eru grunaðir um innbrot og þjófnaði úr heimahúsum í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum, sem handtók þá í fyrradag.

Stofnunin lánaði ekki skúffufyrirtækjum

Stjórnendur Byggðastofnunar telja að „nokkuð vel“ hafi tekist að gæta hagsmuna stofnunarinnar vegna lána til fyrirtækja í rækjuiðnaði. Þetta kemur fram í svari sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra við fyrirspurn Marðar Árnasonar Samfylkingunni.

Stjórnvöld styrki stjórnsýslu

Fyrstu mánuðirnir af aðildarviðræðum Íslands við Evrópusambandið hafa gengið vel, og ekkert óvænt komið upp, segir Timo Summa, sendiherra Evrópusambandsins á Íslandi. Hann kynnti fyrstu framvinduskýrslu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um Ísland í gær.

Hirtu hundrað kannabisplöntur

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun á tveimur stöðum í Reykjavík í gær og lagði hald á samtals um 100 kannabisplöntur.

Da Vinci fléttan: Unnu náið með fórnarlambinu

Í bæklingi frá Universal Sacred Music kemur fram að Helga Ingvarsdóttir gengdi stöðu gjaldkera í stjórn félagsins. Forseti samtakanna er Roger Davidson og unnusti Helgu, Vickram Bedi er varaforseti.samtakanna sem snúast um trúarlega klassíska tónlist.

Barnaverndarstofa vottar verklagsreglur Vottanna

Verklagsreglur Votta Jehóva á Íslandi um meðferð kynferðisbrotamála sem upp kunna að koma innan safnaðarins eru í lagi, segir Bragi Guðbrandsson, forstöðumaður Barnaverndarstofu.

Myndband Hjaltalín frumsýnt á Vísi

Myndbandið við lagið Suitcase Man með Hjaltalín er komið í loftið á Vísi. Upptakan fór fram á tónleikum Hjaltalín með Sinfóníuhljómsveit Íslands undir stjórn Daníels Bjarnasonar í sumar. Myndbandið er hluti af Alpanon, DVD-disk og plötu með tónleikunum, sem kemur út á næstu dögum.

Óvissustigi aflýst vegna Grímsvatna

Almannavarnir hafa nú aflýst óvissustigi, sem sett var á 1. nóvember vegna atburða í Grímsvötnum en Grímsvatnahlaup, sem hófst í lok október, er nú lokið án þess að eldgos hafi fylgt hlaupinu.

Setur reglur um transfitusýrur

Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur ákveðið að setja reglur um hámarksmagn transfitusýra í matvælum. Reglur á Íslandi verða að danskri fyrirmynd samkvæmt tilkynningu frá ráðuneytinu.

Ók inn í DV húsið

Kona ók bifreið sinni upp á stétt og inn í hús á gatnamótum Geirsgötu og Tryggvagötu. Dagblaðið DV er til húsa á efri hæðinni en þar var LÍÚ áður með skrifstofur.

Ráðherra skipar samráðshóp um heildstæða húsnæðisstefnu

Guðbjartur Hannesson, félags- og tryggingamálaráðherra, hefur skipað samráðshóp sem falið er að móta heildstæða húsnæðisstefnu til framtíðar. Markmiðið er að tryggja landsmönnum fjölbreytta og örugga valkosti í húsnæðismálum. Efla þarf varanlega leigu- og búseturéttarkosti og stuðla að jöfnuði milli búsetuforma.

Blaðamannafundurinn í Víkingaheimum

Nýtt safn um hersetu á Íslandi og flutningur Landhelgisgæslunnar á Miðnesheiði er á meðal þess sem rætt er um að gert verði til þess að byggja upp atvinnu á Reykjanesi. Ríkisstjórnin fundaði í Víkingaheimum í Reykjanesbæ í morgun. Þeir sem misstu af fundinum geta séð hann hér á Vísi.

Úttekt: Jón Gnarr á mannamáli

Margir áttu erfitt með að átta sig á öllu sem Jón Gnarr sagði í viðtali við Brynju Þorgeirsdóttir í Kastljósinu í gær. Hann virðist hafa ruglað saman kvikmyndunum Ghost og Sixth Sense, líkti Besta flokknum við svikahrapp, sjálfum sér við geimveru og viðurkenndi að hafa lagt samstarfsmenn sína í einelti.

Þjóðfundur kostaði 92 milljónir

Þjóðfundurinn sem haldinn var á laugardag kostaði 91,7 milljónir króna. Þetta var upplýst á fundi allsherjarnefndar Alþingis í gær. Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, vakti máls á þessu í byrjun þingfundar í dag.

Góð tilfinning að vera alveg sammála Ögmundi

Einar K. Guðfinnsson, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra, segir það óskaplega góða tilfinningu og kærkomna tilbreytingu að geta sagt að hann væri alveg sammála Ögmundi Jónassyni samgönguráðherra. Það gerðist ekki á hverjum degi og þess vegna væri um að gera að njóta þess andartaks.

Vill flugvöllinn áfram í Reykjavík

Miðstöð innanlandsflugs á áfram að vera á Reykjavíkurflugvelli um langa framtíð. Þetta er skoðun nýs samgönguráðherra, Ögmundar Jónassonar, sem kvaðst á Alþingi í gær vonast til að fá niðurstöðu um smíði samgöngumiðstöðvar á fundi með borgarstjóranum í Reykjavík á fimmtudag.

Ríkisstjórnin vill hersetusafn og flutning Gæslunnar

Nýtt safn um hersetu á Íslandi og flutningur Landhelgisgæslunnar á Miðnesheiði er á meðal þess sem rætt er um að gert verði til þess að byggja upp atvinnu á Reykjanesi. Ríkisstjórnin fundaði í Víkingaheimum í Reykjanesbæ í morgun.

Tuttugu prósent pilta skoða klám á hverjum degi

Einn af hverjum fimm íslenskum unglingspiltum skoðar klám á internetinu á hverjum degi. Yfir helmingur íslenskra pilta viðurkennir að skoða klám á netinu að minnsta kosti í hverri viku.

Ríkisstjórnin mætir til fundar í Víkingaheimum

Ríkisstjórnin heldur í dag vikulegan fund sinn en að þessu sinni er hann haldinn í Víkingaheimum í Reykjanesbæ. Á meðfylgjandi myndskeiði má sjá ráðherrana koma til fundar en á eftir hefst bein útsending frá blaðamannafundi ríkisstjórnarinnar á Vísi.

Björn vildi fangelsi á Bústaðarveg

Björn Bjarnason, fyrrverandi dómsmálaráðherra, vildi að nýtt fangelsi yrði reist á Bústaðarveginum. Rætt hefur verið um byggingu nýs fangelsis í fjölda ára. Á þriðja hundrað manns eru á biðlista eftir að afplána refsidóma og gæsluvarðhaldsrýmið á Litla Hrauni svarar ekki þörf.

Faðir Helgu: „Ég trúi á sakleysi hennar"

Ingvar J. Karlsson, faðir Helgu Ingvarsdóttur, sem er í haldi í Bandaríkjunum í tengslum við risavaxið fjársvikamál segist trúa á sakleysi dóttur sinnar og að sannleikurinn í málinu muni koma fram.

Fékk Benzinn aftur og blóðugar sprautunálar í kaupbæti

Fréttablaðið sagði frá því um helgina að Benz-bifreið kvikmyndagerðarmannsins Heimis Sverrissonar hafi verið stolið fyrir utan heimili hans í síðustu viku. Bíllinn er nú fundinn, en glöggur lesandi rakst á hann á bak við Austurbæjarskóla á laugardag.

Brák bar lítilli kvígu

Kýrin Brák bar í gærmorgun myndarlegri rauðbröndóttri kvígu í Fjölskyldu og húsdýragarðinum í Reykjavík.

Leggur til 400 tonna rækjukvóta í Arnarfirði

Hafrannsóknarstofnun hefur lagt til að 400 tonna hámarksafli af rækju verði leyfður í Arnarfirði í vetur. Er þetta svipaður kvóti og gefinn hefur verið út á síðustu árum.

„Fljúgandi furðuhlutur“ í Árbænum

Lesandi Vísis sendi ritstjórninni þetta athyglisverða myndband þar sem sjá má blikkandi ljós á næturhimninum. Myndbandið var tekið klukkan 18:45 í Árbænum í gærkvöld þegar myndatökurmaðurinn var að koma heim úr vinnunni.

Hitaveitan 80 ára í dag

Áttatíu ár eru liðin í dag frá því heitu vatni var hleypt á Laugaveituna, fyrstu hitaveituna í Reykjavík.

Ríkisstjórn í Reykjanesbæ: Bein útsending á Vísi

Reglulegur ríkisstjórnarfundur verður haldinn fyrir hádegi, en að þessu sinni í Víkingaheimum í Reykjanesbæ. Víkingaheimar eru meðal annars skjólshús víkingaskips, sem smíðað var hér á landi samkvæmt fornri hefð, fyrir all nokkrum árum. Blaðamannafundur að fundinum loknum verður í beinni útsendingu á Vísi.

Bílvelta á Akureyri

Þrír sluppu nær ómeiddir þegar bíll valt á hvolf á Miðhúsabraut, rétt ofan við Skautahöllina á Akureyri í gærkvöldi.

Arnaldur: Næstum sjö milljónir seldar

Arnaldur Indriðason hefur nú selt næstum því sjö milljónir eintaka af bókum sínum á heimsvísu, samkvæmt upplýsingum frá útgáfufyrirtæki hans hér á landi, Vöku Helgafell. Það þýðir að hann hefur tekið fram úr strákunum í Sigur Rós; hefur selt fleiri eintök af bókum sínum en fjórmenningarnir hafa selt af plötum sínum. Arnaldur á þó langt í land með að ná Björk Guðmundsdóttur.

Da Vinci fléttan: Var „lífvörður“ erfingjans á tónleikum

Hið ótrúlega fjárkúgunarmál sem upp er komið í Bandaríkunum og tengist Íslandi á þann hátt að annar hinna grunuðu fjárkúgara er íslensk kona, hefur vakið mikla athygli. Á Youtube má sjá myndband frá árinu 2006 þar sem fórnarlambið Roger Davidson, milljónamæringur og þekktur píanóleikari heldur tölu á tónleikum sem hann skipulagði. Á bakvið Davidson stendur Vickram Bedi ábúðarfullur en hann taldi Davidson meðal annars á að ráða sig sem lífvörð.

Deilir ekki átjándu aldar sýn

Hlutfall lögfræðinga frá Háskólanum í Reykjavík (HR) sem í fyrstu tilraun stóðust réttindapróf til að starfa sem héraðsdómslögmaður er í ár hærra en hlutfall útskrifaðra lögfræðinga frá lagadeild Háskóla Íslands (HÍ). Tæp 69 prósent útskrifaðra nemenda HR stóðust prófið í fyrstu tilraun á móti tæpum 65 prósentum frá HÍ.

Leita nýrra nemenda í þrjá bekki

Landakotsskóli leitar nýrra nemenda á miðjum vetri. Fjölmargir foreldrar hafa fengið bréf frá skólanum undanfarna daga þar sem börnum er boðið að skipta um skóla frá næstu mánaðamótum. Starfsmenn skólans hafa borið bréfið út í sjálfboðavinnu, segir Sölvi Sveinsson skólastjóri, og þeir séu ekki hálfnaðir við útburðinn.

Segist ekki spá í gang himintunglanna

Það er forseta Íslands að ákveða hvort hann skjóti Icesave-málinu til þjóðarinnar öðru sinni, sagði Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra á Alþingi í gær.

Sjá næstu 50 fréttir