Innlent

Hirtu hundrað kannabisplöntur

Myndin er úr safni.
Myndin er úr safni.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun á tveimur stöðum í Reykjavík í gær og lagði hald á samtals um 100 kannabisplöntur.

Karl og kona voru yfirheyrð í tengslum við rannsóknina en talið er að málin tengist.

Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál.

Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×