Fleiri fréttir

Rauði krossinn vill fá 3000 til að ganga til góðs

Rauði kross Íslands óskar eftir 3.000 sjálfboðaliðum um allt land laugardaginn 2. október til að Ganga til góðs. Í tilkynningu frá Rauða krossinum segir að markmiðið sé að virkja tæplega 1 prósent af íslensku þjóðinni til að sameinast um eitt málefni og leggja sitt að mörkum til að byggja betri heim.

Búist við ákæru þegar rannsókn er lokið

Rannsókn er komin langt á veg í máli mannsins sem hélt samnemendum sínum í gíslingu í herbergi á nemendabústöðunum á Hvanneyri í síðustu viku. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Borgarnesi er búið að taka skýrslur af að minnsta kosti þremur árásarþolum. Búist er við því að ákæra verði gefin út þegar rannsókninni er lokið.

Smyglarinn laus úr haldi lögreglu

Maðurinn sem lögregla veitti eftirför á sjöunda tímanum í morgun er laus úr haldi lögreglu. Hann verður boðaður í skýrslutöku síðar og er málið í rannsókn bæði hjá lögreglu og Tollgæslunni. Samkvæmt upplýsingum frá Tollgæslunni er maðurinn íslenskur og á „miðjum aldri".

Bæjarráð fundaði um Landeyjahöfn

Bæjarráð Vestmannaeyja kom saman nú í hádeginu til að fjalla um málefni Landeyjahafnar en þangað verður ekki siglt á næstu dögum vegna sandburðar og gosefna úr Eyjafjallajökli. Dýpkunarskipið Perlan er væntanlegt úr slipp í næstu viku en ölduspá er ekki hagstæð til dýpkunar að sögn Siglingastofnunar og því má búast við að hreinsun innsiglingarinnar taki nokkurn tíma.

Össur: Mugabe um miðja nótt, mækinn lengi tottar

Eftir ríkisstjórnarfund í morgun var Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra spurður út í mynd af honum sem var tekin á leiðtogaþingi Sameinuðu þjóðanna í síðustu viku og vakti athygli víða.

Svefnmótmæli við Alþingishúsið

Hópur fólks ætlar að leggjast út við Alþingishúsið á fimmtudagskvöld og sofa þar í svefnpokum eða umvafin teppum. Með því vill hópurinn vekja stjórnvöld til lífsins um það sem í vændum sé þegar fjöldi Íslendinga missi heimili sín.

Þórunn greiðir ekki atkvæði með ákærum

Þingflokksformaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi umhverfisráðherra mun ekki greiða atkvæði með því að fyrrverandir ráðherrum verði stefnt fyrir landsdóm. Þór Saari þingmaður Hreyfingarinnar telur réttast að þegar verði boðað til kosninga.

Skipverji tekinn með smygl á Bústaðarvegi

Maðurinn sem starfsmenn Tollgæslunnar veittu eftirför á sjöunda tímanum í morgun sem endaði með árekstri á gatnamótum Búastaðarvegar og Háaleitisbrautar var með „talsvert magn af smyglvarningi“ í bifreið sinni, að því er fram kemur í tilkynningu frá Tollgæslunni.

Hæstiréttur vísar úrskurði um níumenninga frá dómi

Hæstiréttur hefur vísað frá dómi kröfu Ragnars Aðalsteinssonar, lögmanns níumenninganna svokölluðu sem ákærðir eru fyrir árás á Alþingi í Búsáhaldabyltingunni. Ragnar krafðist þess að máli þeirra yrði vísað frá þar sem settur ríkissaksóknari, Lára V. Júlíusdóttir, væri í ákveðnum trúnaðartengslum við kærandann, það er að segja Alþingi. Lára situr í bankaráði Seðlabanka Íslands og er þangað kosin af Alþingi.

Kannabisfíklum fækkar á Vogi

Nýjar tölur frá sjúkrahúsinu Vogi sýna að kannabisfíklum sem þangað sækja fækkaði á síðasta ári miðað við árin á undan. Fækun í þessum hópi hefur mælst síðustu fjögur ár og það á einnig við um fólk yngra en 20 ára sem leggst inn á Vog. Nýir kannabisfíklar hafa raunar ekki verið færri í 11 ár.

Kengúra í óskilum

Ökukennara í Danmörku brá heldur en ekki í brún þegar hann var á ferð með nemanda sínum við Ringsted. Hann þurfti að nauðhemla þegar kengúra stökk í veg fyrir bílinn. Það tók kennarann nokkra stund að sannfæra lögregluna um hvað hann hefði séð en eftir nokkra leit á svæðinu fannst kengúran. Enginn veit þó enn hver á dýrið og því hefur lögreglan í Ringsted lýst eftir kengúrueigandanum.

Margir sektaðir í Hlíðunum

25 bíleigendur voru sektaðir í nótt í Hlíðahverfi í Reykjavík fyrir að leggja bílum sínum ólöglega, og þá einkum upp á gangstéttir.

Mótorhjólamaður slapp með skrekkinn á Akureyri

Ökumaður á stóru mótorhjóli slapp með skrekkinn þegar hann ók upp á umferðareyju og hafnaði á ljósastaur á Akureyri í gærkvöldi. Hann sá of seint hvar viðgerðarmenn voru búnir að loka götu, sem hann ók eftir, og missti því stjórn á hjólinu. Það skemmdist mikið, en hann slapp ómeiddur.

Engin flóð þrátt fyrir úrhelli

Aftur gerði úrhellis rigningu í Landeyjum og í Þórsmörk í gærkvöldi. Um tíma var óttast að Svaðbælisá ryfi veginn við brúnna, en það slapp til og er farið að sjatna í henni aftur.

Eftirför Tollgæslumanna endaði með árekstri

Jeppi og strætisvagn lentu í hörðum árekstri á mótum Bústaðavegar og Háaleitisbtrautar á áttunda tímanum í morgun og voru ökumenn beggja bílanna fluttir á Slysadeild.

Náðu til Keflavíkur á síðustu dropunum

Tveir erlendir flugmenn lendu í mikilli tvísýnu í eins hreyfils Bonanza vél sinni, á leið sinni frá Grænlandi til Íslands í nótt, en þeir náðu til Keflavíkurflugvallar á síðustu bensíndropunum og lentu þar heilu og höldnu. Þeir höfðu hreppt meiri mótvind en þeir bjuggust við og lent í ísingu, þannig að mjög gekk á eldsneytið.

Flestir vilja ljúka viðræðum og kjósa

Tæplega tveir af hverjum þremur sem afstöðu tóku í skoðanakönnun Fréttablaðsins vilja frekar að aðlidarviðræðum við Evrópusambandið verði lokið og málið lagt í dóm þjóðarinnar.

Fimmti hver piltur tekur tóbak í vörina

Sprenging hefur orðið í sölu neftóbaks hér á landi síðustu ár. Samkvæmt sölutölum ÁTVR seldust í fyrra 23,8 tonn af neftóbaki, sem er rúm tvöföldun frá árinu 2003 þegar 11,6 tonn seldust.

Braut bein í andliti konu

Karlmaður á sextugsaldri hefur verið dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi, þar af þrjá mánuði á skilorði, fyrir að slá konu og brjóta bein í andliti hennar. Var honum gert að greiða henni 400 þúsund í skaðabætur.

Kínverjar vildu stöðva sýningar

Embættismenn úr kínverska sendiráðinu kölluðu Hrönn Marinósdóttur, framkvæmdastjóra kvikmyndahátíðarinnar RIFF, á fund til sín á dögunum og óskuðu eftir því að hún tæki úr sýningu heimildarmyndina When The Dragon Swallowed The Sun, um málefni Tíbeta og samskipti þeirra við Kína.

Vilja grafa hella og ísgöng í Langjökul

Ísgöng og hellar í Langjökli gætu orðið nýjasta aðdráttaraflið fyrir ferðamenn á Vesturlandi ef hugmyndir aðila í ferðaþjónustunni verða að veruleika.

Beðið mælinga á borholu

HS orka bíður nú lokaniðurstöðu úr tilraunaborun á Reykjanesi, en um næstu mánaðamót ætti að verða ljóst hvort hægt verði að nota borholuna til orkuöflunar fyrir væntanlega stækkun Reykjanesvirkjunar.

Missti öndvegisfolald úr hóstapest

„Ég missti þarna mjög fallegt folald, sem hugsað var sem reiðhestsefni,“ segir Sigurður Grímsson í Fossmúla, sem varð fyrir þeim skaða að missa vel ættað folald úr hestahóstanum á laugardaginn.

Alvarlega slösuð eftir árekstur

Ríflega sextug kona var flutt með alvarlega innvortis áverka á gjörgæsludeild Landspítalans seinni partinn í gær eftir harðan árekstur tveggja jeppa við afleggjarann af Suðurlandsvegi inn að Dyrhólaey.

Strandaglópar komnir heim

Strandaglópar í Þórsmörk komust allir til síns heima í gær eftir að sljákkaði í ám á svæðinu. Eins og komið hefur fram voru 120 manns fastir í Þórsmörk eftir að ár flæddu yfir bakka sína í úrhellisrigningum.

Senda farsíma í endurvinnslu

Í stað þess að henda gömlum eða ónothæfum farsímum í ruslið geta eigendur þeirra nú skilað þeim í söfnunarkassa sem komið hefur verið fyrir í verslunum Vodafone.

Telur makrílveiðar Íslands og Færeyja óviðunandi

„Einhliða makríl-kvótar Færeyinga og Íslendinga eru ekkert minna en óviðunandi,“ sagði Maria Damanaki, sjávarútvegsstjóri ESB, á blaðamannafundi eftir að sjávarútvegsráðherrar ESB-ríkjanna höfðu rætt makríldeiluna á fundi í gær.

Sigurplast í þrot - 17 missa vinnuna

Plasverksmiðja Sigurplast hefur óskað eftir því fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur að fyrirtækið verði tekið til gjaldþrotaskipta.

Styttist í atkvæðagreiðslu um ákærur

Meirihluti Atlanefndarinnar leggur enn til að þrír til fjórir fyrrverandi ráðherrar verði ákærðir til Landsdóms. Minnihluti Sjálfstæðismanna í nefndinni telur engar efnislegar forsendur vera til ákæru á hendur ráðherrunum. Atkvæðagreiðsla um málið fer í fyrsta lagi fram á morgun.

Gríðarleg fjölgun á opinberum starfsmönnum í kreppu

Opinberum starfsmönnum hefur fjölgað um þrjú þúsund og fimm hundruð frá hruni meðan um tuttugu þúsund störf hafa tapast á einkamarkaði segir framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. Hann telur stjórnvöld ekki sníða sér stakk eftir vexti. Atvinnuleysi verði ekki leyst með því að ráða fleiri til hins opinbera.

Eldur í bíl og ekið á vélhjólamann

Mikill erill hefur verið hjá slökkviliði og sjúkraflutningamönnum í dag. Slökkviliðið var meðal annars kallað upp í Grafarvog í dag vegna elds í vélarhúddi bíls. Um minniháttar atvik var að ræða.

Slökkviliðið kallað í Hátún

Allt tiltækt slökkvilið hefur verið kallað að Hátúni 6 í Reykjavík en tilkynnt var um reyk á þaki hússins sem er fjölbýlishús. Nánari upplýsingar er ekki að hafa frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins í augnablikinu.

Gústav Axel er Matreiðslumaður ársins

Gústav Axel Gunnlaugsson matreiðslumaður á Fiskfélaginu vann í gær titilinn Matreiðslumaður ársins 2010 en sigurvegarinn var kynntur við hátíðlega athöfn í Vetrargarðinum í Smáralind í gær þegar Matardögunum 2010 lauk. „Annað sætið hreppti Ólafur Ágústsson og það þriðja Sigurður Kristinn Haraldsson en þeir starfa báðir á VOX,“ segir í tilkynningu en það er Klúbbur Matreiðslumeistara sem hefur haft veg og vanda af skipulagningu Matardaga 2010.

Stálu útivistarfatnaði við Geysi

Þjófar brutust inn í ferðamannaverslunina við Geysi í Haukadal á þriðja tímanum aðfaranótt laugardags. Þjófarnir voru þrír og huldu andlit sín að því er fram kemur í tilkynningu. Þeir létu greipar sópa og höfðu á brott með sér talsvert magn af verðmætum útvistarfatnaði. „Þjófarnir létu ekki þar við sitja heldur komu aftur tæpri klukkustund síðar og tóku meira af fatnaði sem að megninu til er frá 66° Norður,“ segir ennfremur.

„Þetta er ekki loðmulla, háttvirtur þingmaður“

Pétur Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokks, er ekki hrifinn af skýrslu þingmannanefndar um rannsóknarskýrsluna. Pétur kallaði niðurstöðu nefndarinnar loðmullu og lét þannig í ljós að honum fyndist nefndin sýna linkind í afstöðu sinni.

Bjarni Ben: Trúnaðargögnum haldið frá þingmönnum

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, tók til máls á Alþingi í dag þar sem hann gagnrýndi málflutning þingmannanefndar um rannsóknarskýrsluna þar sem því er borið við að stór hluti þeirra gagna sem nefndin notaðist við í vinnu sinni sé trúnaðarmál og því ekki hægt að opinbera þau.

Þeim fjölgar sem vilja afturkalla veiðiheimildir

Markaðsrannsóknafyrirtækið MMR hefur birt niðurstöður könnunar þar sem spurt var um álit fólks á því að afturkalla fiskveiðiheimildir. 70,9% svarenda sögðust vera frekar eða mjög hlynntir því að stjórnvöld afturkalli með einum eða öðrum hætti gildandi fiskveiðiheimildir og úthluti þeim að nýju með breyttum reglum. 18,8% eru andvígir hugmyndunum og 10,3% sögðust hvorki vera hlynnt né andvíg málinu. „Þetta er nokkur breyting frá könnun MMR í febrúar 2009 þegar 61% svarenda sögðust fylgjandi afturköllun og endurúthlutun fiskveiðiheimilda,“ segir í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Sjá næstu 50 fréttir