Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ráðning rædd í næstu viku Ráðning nýs framkvæmdastjóra Íbúðalánasjóðs var ekki tekin fyrir á fundi stjórnar sjóðsins í gær. Annar stjórnarfundur verður hins vegar haldinn í næstu viku þar sem ráðning nýs forstjóra er á dagskrá. 20.8.2010 03:15
Barátta sem skilaði árangri Niyamgiri-fjöllin, eða Fjöllin helgu, í Orissa-fylki við austurströnd Indlands eru auðug af báxíti, sem er grunnmálmgrýtið sem ál er unnið úr. Þar hefur breska námufyrirtækið Vedanta viljað grafa og eytt í það hátt í milljarði Bandaríkjadala nú þegar. En fjöllin eru heilög í augum Dongaria Kondh ættbálksins, sem telur 7.952 sálir og er einn af 62 ættbálkum á svæðinu. Óheft báxítvinnsla þar hefði að líkindum gjörbreytt lífsstíl Kondha og skemmt náttúrulegt vistkerfi þeirra. 20.8.2010 03:00
Hrossapest geti smitast í menn Grunur leikur á að hrossapestin, sem herjað hefur á hesta hér á landi undanfarið, smiti menn, hunda og ketti. Þetta kom fram í fréttum RÚV í gær. 20.8.2010 02:45
Fjögur útköll á fimmtán tímum Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út fjórum sinnum á tímabilinu frá klukkan sjö á mánudagkvöldið til klukkan tvö daginn eftir. 20.8.2010 02:15
Kaflaskipt veiði sem af er ágúst Síldveiðin hefur verið kaflaskipt eftir að veiðar hófust á ný hjá skipum HB Granda. Á heimasíðu fyrirtækisins segir að eftir frí um verslunarmannahelgina veiddist lítið en góðar torfur gáfu tímabundið góðan afla. Dálítið er af makríl í síldaraflanum en þegar Ingunn AK hætti veiðum var hún komin hátt í 200 mílur austur af Vopnafirði. 20.8.2010 02:15
Atvinnuleysið var ofmetið Gert er ráð fyrir að atvinnuleysi aukist í haust og vetur og fari hæst í níu prósent á fyrstu þremur mánuðum næsta árs. Þetta kemur fram í Peningamálum, ársfjórðungsriti Seðlabankans. Það kom út samhliða vaxtaákvörðun í gær. 20.8.2010 02:00
1.800 mótmæla skipulagstillögu Um 1.800 Akureyringar skrifuðu undir lista til að mótmæla fyrirhuguðum breytingum á miðbæjarskipulagi bæjarins og hvetja bæjarstjórn til að varðveita götumynd við Hafnarstræti. 20.8.2010 01:00
Eldur í álverinu í Straumsvík Slökkvliðið frá tveimur slökkviliðstöðum á höfuðborgarsvæðinu takast á við eld í kjallara steypuskála í álverinu í Straumsvík. Samkvæmt varðstjóra slökkviliðsins er aðkoman erfið og því hafa slökkvistörf gengið hægt. 19.8.2010 22:38
Tryggvi Þór vildi slátra 2500 bankamönnum og Hreiðari Má Tryggvi Þór Herbertsson, þá efnahagslegur ráðgjafi Geirs H. Haarde forsætisráðherra, sagði í júlí - ágúst árið 2008, að Davíð Oddsson væri ómögulegur seðlabankastjóri. Þetta kemur fram í skýrslu Björns Jóns Bragasonar um fall Landsbankans og má finna á vef Björgólfs Thors Björgólfssonar, btb.is. 19.8.2010 21:38
Forstjóri OR og faðir stjórnarformanns fengu umdeildar verktakagreiðslur Faðir Haralds Flosa Tryggvasonar, stjórnarformanns Orkuveitu Reykjavíkur (OR), og nýráðinn forstjóri Orkuveitunnar, Dr. Helgi Þór Ingason, sátu saman í stjórn eignarhaldsfélagsins Nordica ráðgjöf. 19.8.2010 19:57
Morðið í Hafnarfirði: Fjölskyldan biðlar til þjóðarinnar - myndband Fjölskylda Hannesar Þórs Helgasonar sem fannst myrtur á heimili sínu um hádegisbil á sunnudag, biður alla þá sem einhverjar upplýsingar geta veitt um andlátið að hafa samband við lögreglu. Hún þakkar þann samhug sem hún hefur fundið fyrir í kjölfar þessa hræðilega atburðar. 19.8.2010 16:14
Sundlaugadómur markar tímamót vegna verðtryggðra lána Lögfræðingar segja niðurstöðu héraðsdóms um forsendubrest vegna óvæntrar verðbólgu marka tímamót. Dómurinn varpi nýju ljósi á mál skuldara með verðtryggð lán. 19.8.2010 18:49
Vatn á Þingvöllum ekki neysluhæft vegna seyruvökva Vatn á Þingvallasvæðinu er ekki neysluhæft eftir að seyruvökva úr rotþróm var dælt á vatnsverndarsvæði, en saurkólígerlar fundust í vatninu. 19.8.2010 18:44
Yfirheyrslum yfir Sigurðuri Einarssyni lokið - framhald á morgun Yfirheyrslum yfir Sigurður Einarssyni, fyrrverandi stjórnarformanns Kaupþings, er lokið. Þær hófust klukkan níu í morgun og hafa staðið yfir í allan dag. 19.8.2010 18:14
Verkfallsaðgerðir gætu skyggt á menningarnótt Verkfallsaðgerðir slökkviliðsmanna gætu skyggt á hátíðarhöldin á menningarnótt. Þetta segir aðstoðarslökkviliðsstjóri Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins. 19.8.2010 18:58
Landspítalinn þjónustar sjúklinga frá Færeyjum Landspítalinn hefur gert tímamótasamning um þjónustu við sjúklinga frá Færeyjum. Samkvæmt samningnum verður sjúklingum sem Færeyingar þurfa að senda til annarra landa alla jafna vísað til Landspítalans en til þessa hafa sjúklingar í Færeyjum aðallega verið sendir til Danmerkur og Svíþjóðar. Þetta er fyrsti samningurinn sem gerður er við annað land um alhliða sjúkrahúsþjónustu á Íslandi, að því er fram kemur í tilkynningu frá Landspítalanum. 19.8.2010 16:00
Haldin þunglyndi og dauðahugsunum eftir nauðgun Karlmaður á sextugsaldri var í Héraðsdómi Norðurlands eystra í dag dæmdur í átján mánaða fangelsi fyrir nauðgun. 19.8.2010 15:26
Dómari neitar að víkja sæti Pétur Guðgeirsson, dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur, hefur hafnað kröfu fjögurra af níumenningunum, sem ákærðir eru fyrir árás gegn Alþingi, um að víkja sæti. 19.8.2010 15:13
Sigurður enn í yfirheyrslum Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, er enn í yfirheyrslum hjá sérstökum saksóknara samkvæmt upplýsingum Vísis. Þar hefur hann verið frá því klukkan níu í morgun, en tveggja klukkustunda langt hlé var tekið á yfirheyrslum í hádeginu. 19.8.2010 17:16
Elvar bestur í þuklinu | Myndir Íslandsmeistaramótið í hrútadómum var nýverið haldið í áttunda sinn á Ströndum og var það Bolvíkingurinn Elvar Stefánsson sem fór með sigur af hólmi í flokki vanra þuklara. Hann hefur keppt í þuklinu svo til frá upphafi og náði meðal annars öðru sæti árið 2005. Þrátt fyrir mikla rigningu hafa áhorfendur og keppendur aldrei áður verið fleiri, að því er fram kemur í tilkynningu. 19.8.2010 15:18
Reykjavíkurborg kaupir Ísaksskóla Borgarráð samþykkti í dag heimild Reykjavíkurborgar til þess að kaupa fasteignir Skóla Ísaks Jónssonar fyrir tæpar 292 milljónir króna. Kaupverðið er greitt með yfirtöku á áhvílandi skuldum sem nema tæplega 254 milljónum króna og fjármögnun nauðsynlegra viðhaldsframkvæmda 19.8.2010 14:43
Björgólfur Thor: Icesave og Landsbankann ekki blórabögglar „Það, að stjórnmálamenn kjósi nú að gera Icesave og Landsbankann að blóraböggli, er á engan hátt eðlilegt, einkum þegar haft er í huga að formleg ábyrgð íslenska ríkisins á Icesave skuldbindingum kom til eftir að ríkisvaldið tók yfir Landsbankann og stjórnmálamenn hófu bein afskipti að málefnum bankans," segir Björgólfur Thor Björgólfsson í ávarpi á vefsíðu sem opnaði í dag þar sem hann birtir gögn yfir öll hans viðskipti hér á landi aftur til ársins 2002. 19.8.2010 14:28
Fá áheyrnarfulltrúa í nefndir Bæjarstjórn Seltjarnarness samþykkti á fundi sínum í gær tillögu bæjarfulltrúa Neslistans og Samfylkingarinnar um að framboðinn eigi þess kost að skipa áheyrnarfulltrúa í þær nefndir sem þau eiga ekki aðalfulltrúa. Þetta verður gert til reynslu í tæpt ár eða til 30. júní 2011. 19.8.2010 14:24
Sigurður kominn aftur í yfirheyrslu Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, mætti til yfirheyrslu hjá sérstökum saksóknara á Laugavegi klukkan tvö eftir hádegishlé. Sigurður Einarsson kom til landsins frá Bretlandi í gær og mætti svo til yfirheyrslu í morgunsárið. Interpol gaf út handtökuskipun á Sigurð í vor en hún var felld úr gildi í fyrradag. 19.8.2010 14:18
Bassaleikari HAM aðstoðar Jón Gnarr tímabundið S. Björn Blöndal varaborgarfulltrúi er aðstoðarmaður Jóns Gnarr borgarstjóra nú tímabundið á meðan Heiða Kristín Helgadóttir er í sumarfríi. S. Björn er framkvæmdastjóri Besta flokksins auk þess að vera bassaleikari hljómsveitarinnar HAM. Hann skipaði níunda sætið á lista Besta flokksins í vor og mun gegna starfinu til mánaðarmóta þegar að Heiða tekur aftur við starfinu. 19.8.2010 13:59
Tillaga Hönnu Birnu um aukna samvinnu samþykkt Tillaga Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, forseta borgarstjórnar, um aukna samvinnu og samráð borgarfulltrúa var samþykkt á fundi borgarráðs í morgun. Þar er lagt til að sameiginlegir vinnufundir allra borgarfulltrúa verði fastur liður í starfsáætlun borgarstjórnar. Hanna Birna segir að tilgangur tillögunnar sé fyrst og síðast að bæta störf borgarstjórnar og tryggja góðar lausnir fyrir borgarbúa. 19.8.2010 13:44
Gamli söluturninn fluttur aftur á Lækjatorg Borgarráð samþykkti á fundi sínum í morgun flutning gamla söluturnsins sem nú stendur í Mæðragarðinum aftur á Lækjartorg þar sem hann mun lífga upp á ásýnd miðborgarinnar. Á meðfylgjandi mynd má sjá hvar turninum 19.8.2010 13:28
Hafnarstræti helgað gangandi og hjólandi vegfarendum Borgarráð samþykkti á fundi sínum í morgun að Hafnarstræti verði tímabundið lokað fyrir bílaumferð og helgað gangandi og hjólandi vegfarendum. 19.8.2010 13:27
Rauði krossinn fjórfaldar neyðarbeiðni vegna flóðanna í Pakistan Alþjóða Rauði krossinn fjórfaldaði í dag neyðarbeiðni sína vegna flóðanna í Pakistan og kallar nú eftir 8.2 milljörðum íslenskra króna til hjálparstarfsins. Neyðaraðstoð Rauða krossins og Rauða hálfmánans mun ná til um 900 þúsund íbúa á flóðasvæðunum. 19.8.2010 13:20
Glæpamenn stálu flatskjá af gamalmennum Eldri borgarar á Álftanesi urðu fyrir því óláni að á þriðjudagsmorgun var brotist inn í félagsaðstöðu þeirra og flatskjá sem var í þeirra eigu stolið. Guðrún Jónsdóttir, formaður Félags eldri borgara á Álftanesi, segir að þetta sé tilfinnanlegt tjón fyrir þau. Sérstaklega í ljósi þess að staða sveitarfélagsins Álftaness sé það bágborin að engin tök séu á því að kaupa nýjan flatskjá. 19.8.2010 13:00
Sigurður Einarsson: Góð samvinna milli manna Hlé hefur verið gert á yfirheyrslu sérstaks saksóknara yfir Sigurði Einarssyni, fyrrverandi stjórnarformanni Kaupþings, sem hófst í morgun. Um er að ræða um klukkustundarlangt hádegishlé. Þegar Sigurður yfirgaf húsnæði embættis sérstaks saksóknara ásamt lögmanni sínum vildi hann lítið ræða við fjölmiðla. Sigurður sagði þó að góð samvinna væri milli manna. Hann vildi ekki svara því hvort hann teldi sérstakan saksóknara hafa farið of hart fram í málinu. 19.8.2010 12:47
Gagnrýna lífsýnatöku úr Bobby Fischer Gagnrýnt er hvernig staðið var að lífsýnatöku úr stórmeistaranum Bobby Fischer. Rannsókn á lífsýnunum leiddi í ljós að stúlka sem taldi sig vera dóttir hans, er honum óskyld. Lögmenn hennar munnhöggvast í erlendum fjölmiðlum. 19.8.2010 12:18
Ófyrirsjáanleg verðbólga valdi forsendubresti Talsmaður neytenda segir að ef ófyrirsjáanleg verðbólga veldur forsendubresti gagnvart verktaka, þá gildi hið sama gagnvart neytendum. Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt að mögulegt sé að víkja samningi verktaka til hliðar vegna efnahagshrunsins. 19.8.2010 12:11
Erlendur réttarmeinafræðingur rannsakar morðið Erlendur réttarmeinafræðingur er kominn hingað til lands til þess að rannsaka líkið af Hannesi Þór Helgasyni sem myrtur var á heimili sínu aðfaranótt sunnudags. Lögregla hefur sleppt karlmanni sem hafði verið í haldi frá því í gær. 19.8.2010 12:00
Yfirmenn lögreglunnar féllu á prófinu Ráðist var á Björgvin Björgvinsson, fyrrverandi yfirmann kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, af miklu ofstæki eftir að hann tjáði sig um kynferðisbrotamál í DV á dögunum. Þetta segir Brynjar Níelsson, formaður Lögmannafélags Íslands í pistli á Pressunni. 19.8.2010 11:39
Kynnir rannsóknarskýrsluna fyrir þingforsetum Páll Hreinsson, hæstaréttardómari og formaður rannsóknarnefndar Alþingis, gerir grein fyrir störfum nefndarinnar á árlegum fundi forseta þjóðþinga Norðurlanda og Eystrasaltsríkja sem fer fram í Reykjavík í dag. Í erindi sínu mun Páll fara yfir hvernig staðið var að rannsókn á aðdraganda og orsökum falls íslensku bankanna haustið 2008. 19.8.2010 11:07
Morðið í Hafnarfirði: Maðurinn laus úr haldi Lögregla mun ekki fara fram á að maðurinn sem handtekinn var í gær í tengslum við morðið á Hannesi Þór Helgasyni verði úrskurðaður í gæsluvarðhald. Hann var látinn laus fyrir stundu. 19.8.2010 10:44
Sigurður mætir til yfirheyrslu - myndskeið Sigurður Einarsson fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings mætti til yfirheyrslu hjá Sérstökum saksóknara í morgun. Hann svaraði nokkrum spurningum blaðamanna á leið sinni til saksóknara og myndskeið af því má sjá hér. 19.8.2010 10:41
Morðið í Hafnarfirði: Ákvörðun um varðhald liggur ekki fyrir Ekki hefur verið tekin ákvörðun um það hvort óskað verði eftir gæsluvarðhaldi yfir karlmanni sem handtekinn var í gær og grunaður er um aðild að dauða Hannesar Þórs Helgasonar. Að loknum yfirheyrslum í gærkvöldi var ákveðið að halda manninum í fangageymslu í nótt. 19.8.2010 10:14
Færðu svæfingadeildinni gjafir Kvenfélagið Hringurinn færði svæfingadeild Landspítala Hringbraut veglegar gjafir í byrjun vikunnar. Um var að ræða fjóra súrefnismettunarmæla til þess að mæla súrefnismettun hjá börnum. Mælarnir eru mjög nákvæmir og byggja á nýrri tækni. 19.8.2010 09:57
Fyrirtöku í máli Eiðs Smára frestað Fyrirtöku í máli Eiðs Smára Guðjohnsen, sem átti að fara fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun, var frestað. DV fjallaði um fjármál Eiðs Smára og fjárfestingar undir lok síðasta árs. Eiður Smári mótmælti umfjölluninni í bréfi sem Heimir Örn Herbertsson, lögmaður hans, sendi ritstjórum DV. Taldi hann umfjöllunina ólöglega. 19.8.2010 09:57
Svandís mæti á fund þingnefndar Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, vill að Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, komi á fund umhverfisnefndar Alþingis og ræði áform um stækkun friðlands í Þjórsárverum og rammaáætlun Norðlingaölduveitu. Áður höfðu fjórir þingmenn úr þremur flokkum óskað eftir því að Svandís og Katrín Júlíusdóttur, iðnaðarráðherra, kæmu á fund iðnaðarnefndar. 19.8.2010 09:35
Hafró: Vélstjórar boða til vinnustöðvunar Boðað hefur verið til vinnustöðvunar vélstjóra á skipum Hafrannsóknarstofnunar. Kjarasamningur vegna starfa vélstjóra á skipum stofnunarinnar rann út þann 31. mars 2009 og í samningaviðræðum hafa viðsemjendur Félags vélstjóra og málmtæknimanna ekki verið til viðræðu um leiðréttingu á grunnlaunum vélstjóra á skipum Hafró. 19.8.2010 09:03
Sigurður segist vera með hreina samvisku Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, er kominn til yfirheyrslu hjá sérstökum saksóknara, en hann kom til landsins frá Bretlandi síðdegis i gær. 19.8.2010 09:03
Innbrot í skóla Tilkynnt var innbrot í Digranesskóla í Kópavogi klukkan hálfsjö í morgun. Ekki liggur fyrir hvort einhverju hafi verið stolið en lögregla rannsakar málið. Þá var bifreið stolið nú í morgunsárið í Hafnarfirði og er það mál einnig í rannsókn. 19.8.2010 07:13