Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Björgunarsveitamenn aðstoða konu við Helgafell Björgunarsveitarmenn af höfuðborgarsvæðinu eru á leið að Helgafelli til að aðstoða konu sem féll ofan í fjögurra metra djúpa sprungu. Konan sem féll var á göngu með annarri konu þegar að óhappið varð. Björgunarsveitamenn hafa heyrt í þeim í gegnum síma. Samkvæmt þeim upplýsingum sem björgunarsveitamenn hafa fengið er konan ekki alvarlega slösuð. 2.3.2010 12:00
Helmingur strandveiðibáta braut reglur um hámarksafla "Það er staðreynd að a.m.k. helmingur þeirra 554 báta sem stunduðu svokallaðar strandveiðar á síðasta sumri braut gegn ákvæðum reglugerðar um hámarksafla," segir Friðrik Friðriksson, lögmaður Landssambands íslenskra útvegsmanna. 2.3.2010 11:52
Sophia Hansen áfrýjar skilorðsdómi Sophia Hansen hefur áfrýjað dómi Héraðsdóms Reykjavíkur sem dæmdi hana sex mánaða fangelsi, skilorðsbundið til þriggja ára, fyrir að bera rangar sakir á Sigurð Pétur Harðarson. Dómur var felldur í héraði yfir Sophiu þann 12 febrúar síðastliðinn. 2.3.2010 11:46
Rætt um transfitu og transfólk á Alþingi Þingfundur hefst í dag klukkan hálftvö og eru tíu mál á dagskrá fundar. Þar á meðal má finna þingsályktunartillögu um transfitusýrur og aðra um transfólk. 2.3.2010 11:31
Erkiengillinn búinn að kæra brottvísun sína Íslenskur lögmaður Leifs Ivar Kristiansen, leiðtoga norsku Vítisenglanna, er búinn að kæra brottvísun hans frá Íslandi til dóms- og mannréttindamálaráðuneytisins. 2.3.2010 10:38
Árekstur á Háleitisbraut Nokkuð harður árekstur varð á gatnamótum Bústaðarvegar og Háaleitisbrautar í morgun. Að sögn vaktstjóra hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins rákust tveir bílar saman og eru þeir töluvert skemmdir. Slys á fólki voru hinsvegar minniháttar. 2.3.2010 10:32
Forseti afhendir Nýsköpunarverðlaunin í dag Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands verða afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag klukkan fjögur. Í tilkynningu frá embættinu segir að markmið verðlaunanna sé að heiðra námsmenn sem unnið hafa framúrskarandi starf við úrlausn verkefna sem styrkt eru af Nýsköpunar-sjóði námsmanna. 2.3.2010 10:09
Svör á íslensku um umhverfismál Umhverfisráðuneytið hefur látið þýða á íslensku svör ráðuneytisins við spurningalista framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um umhverfismál. Spurningalistinn var unninn í tengslum við aðildarumsókn Íslands að sambandinu. Hægt er að nálgast svörin á heimasíðu umhverfisráðuneytisin og með því að smella hér. 2.3.2010 10:08
Þráinn Bertelsson: Fimm prósent þjóðarinnar eru fábjánar Þeir sem eru á móti því að ríkið greiði listamannalaun eru fábjánar, sagði Þráinn Bertelsson þingmaður í bítinu á Bylgjunni. Þetta sagði hann í tilefni af því að netkönnun sem gerð var á Vísi bendir til þess að mikill meirihluti er á móti því að ríkið greiði. 1183 tóku þátt í könnuninni. Um 80% sögðust vera á móti því að ríkið greiddi listamannalaun. 2.3.2010 09:46
Guðbjarni enn ófundinn Strokufanginn, sem leitað hefur verið að síðan um helgi, að hann skilaði sér ekki úr bæjarleyfi um helgina, er enn ófundinn. Lögregla telur enn að hann sé á höfuðborgarsvæðinu og telur sig hafa vissu fyrir því að hann sé ekki farinn úr landi. Ekki hefur verið lögð ofur áhersla á leitina þar sem maðurinn er ekki talinn hættulegur, en hann hlaut dóm fyrir aðild að stórfelldu fíkniefnasmygli til landsins. Lögregla hefur fengið ýmsar vísbendingar um ferðir hans, en þær hafa ekki enn leitt til handtöku. 2.3.2010 08:18
Grundafjörður fullur af síld Grundarfjörður er nú fullur af síld og verður hennar vart alveg upp undir bryggjurnar. Stundum veður hún í yfirborðinu og er hún þá sjáanleg. Það er líka mikið af henni i Kolgrafarfirði og þar hafa háhyrningar verið að gæða sér á henni. 2.3.2010 07:11
Sameinað á forsendum landslags og legu Umfangsmikil vinna er nú farin af stað varðandi sameiningu sveitarfélaga. Ætlunin er að fara hringinn í kringum landið og kanna hvar eðlilegast er að sameina eftir legu og landslagi. Ráðherra er þó eftir sem áður tilbúinn í lögþvingaða sameiningu, en sveitarfélög hafa verið andsnúin henni. 2.3.2010 06:00
Bíða þess vopnaðir að komast á brott Ekkert amar að tveimur íslenskum starfsmönnum Landhelgisgæslunnar (LHG) og fjórum dönskum sérfræðingum sem voru á hennar vegum í borginni Concepcion í Chile þegar jarðskjálftinn dundi yfir á laugardag. Mennirnir hafa komið sér fyrir heima hjá einum af Dönunum, segir Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar. 2.3.2010 06:00
Með heila frystiklefa í geymslu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur þurft að taka á leigu viðbótarhúsnæði til geymslu á tækjum og tólum sem hald hefur verið lagt á hjá kannabisræktendum um land allt á undanförnum misserum. Húsnæðið sem notað hefur verið í þessu skyni er löngu sprungið. 2.3.2010 06:00
Vonast er eftir fundi síðla dags í London Bjartsýni ríkir um það í stjórnkerfinu að til formlegra funda komi hjá Bretum og Íslendingum í London. Íslenska sendinefndin frestaði för sinni heim í gær. Vonast er eftir fundi síðdegis í dag. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra var í samskiptum við Paul Myners, bankamálaráðherra Breta, seinni partinn í gær. 2.3.2010 06:00
Sakar Símann um blekkingu Birgir Rafn Þráinsson, framkvæmdastjóri Gagnaveitu Reykjavíkur, gagnrýnir Símann fyrir framsetningu á svokölluðu Ljósneti sem sagt var frá í Fréttablaðinu í gær. 2.3.2010 06:00
Potaði í auga lögreglumanns Karlmaður á sjötugsaldri hefur verið ákærður fyrir að pota í auga lögreglumanns á Blönduósi. Ríkissaksóknari ákærir manninn fyrir brot gegn valdstjórninni. 2.3.2010 06:00
Skuldirnar yfir viðunandi mörkum Þótt eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga ætli ekki að aðhafast í málefnum Hafnarfjarðar að svo stöddu telur hún skuldir og skuldbindingar bæjarins yfir „þeim mörkum sem talist getur viðunandi og sveitarfélagið getur búið við til lengri tíma litið" eins og segir í bréfi eftirlitsnefndarinnar til bæjarstjórnar Hafnarfjarðar. 2.3.2010 05:30
Gefa grænt ljós á tvöföldun Bæjarráð Kópavogs hefur nú snúið fyrri ákvörðun sinni um að synja Vegagerðinni um breikkun á Suðurlandsvegi ofan við Lögberg og heimilað framkvæmdina. 2.3.2010 05:30
Birta þarf upplýsingar um styrkþega Í greiningarskýrslu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins er fundið að því að markvissa stefnu í málefnum dreifbýlisins skorti á Íslandi. Miklar aðfinnslur eru gerðar við stjórnsýslu landbúnaðarmála, ekki síst það að stjórnvöld feli Bændasamtökunum lykilhlutverk í stjórnsýslu málaflokksins og engar opinberar upplýsingar séu aðgengilegar um það hverjir njóta landbúnaðarstyrkja. Fjölmargar stuðningsaðgerðir stangist á við reglur ESB um samkeppni og ríkisstyrki. 2.3.2010 05:00
Um 25 milljarðar í bætur á einu ári Vinnumálastofnun greiddi í gær rúmlega 2,1 milljarð króna í atvinnuleysistryggingar til um 15.500 manns. 2.3.2010 04:45
Töldu ekki allar eignir í ársreikningnum 2007 Sjálfstæðisflokkurinn tók ekki tillit til fasteigna aðildarfélaga sinna vítt og breitt um landið í ársreikningi 2007, heldur einungis til eigna flokksins sjálfs. Í reikningnum fyrir 2008 birtist heildarmyndin. 2.3.2010 04:45
Flestir styðja Sjálfstæðisflokk Sjálfstæðisflokkurinn er stærsti stjórnmálaflokkurinn og fengi 32 prósent atkvæða yrði gengið til kosninga nú. Þetta er niðurstaða skoðanakönnunar Capacent Gallup sem sagt var frá í fréttum Sjónvarpsins í gær. 2.3.2010 04:30
Áhyggjur af stöðu dómstóla Í grundvallaratriðum er íslensk stjórnsýsla skilvirk og málefnaleg og laus undan pólitískum afskiptum. Hún stendur traustum fótum í sömu grunngildum og einkenna stjórnsýslu Evrópusambandsríkjanna, að því er fram kemur í greiningarskýrslu Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins vegna aðildarumsóknar Íslands. 2.3.2010 04:00
Þorsteinn Geirsson látinn Þorsteinn Geirsson, ráðuneytisstjóri í dómsmálaráðuneytinu, er látinn. Þorsteinn fæddist í Reykjavík 15. febrúar 1941. Hann lauk stúdentsprófi frá MA 1961 og prófi í lögfræði frá HÍ 1966. 2.3.2010 04:00
Ólafur Þór Gunnarsson efstur hjá VG Ólafur Þór Gunnarsson hlaut flest atkvæði í prófkjöri Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs (VG) í Kópavogi um helgina. Hann leiðir því lista flokksins í bæjarstjórnarkosningunum í vor. 2.3.2010 03:45
Sum sveitarfélögin borga ekki tíundina Mörg sveitarfélög virðast ekki hafa brugðist við lögum um fjármál stjórnmálasamtaka, sem sett voru 1. janúar 2007. 2.3.2010 03:45
Fjöldinn langt framar vonum Skíðasvæði höfuðborgarsvæðisins í Bláfjöllum opnaði í gær í fyrsta skipti í vetur. Rúmlega 2.000 manns renndu sér á skíðum og snjóbrettum í þeim fimm brekkum sem hægt var að opna. 2.3.2010 03:30
Þrír ákærðir Þrír tæplega þrítugir menn hafa verið ákærðir fyrir Héraðsdómi Reykjaness fyrir kannabisræktun í Hafnarfirði. 2.3.2010 03:15
Áhyggjur af sjaldgæfri veiki Allmargir Færeyingar búsettir á Íslandi og fólk af færeyskum ættum hefur að undanförnu komið á Landspítalann til að athuga hvort það hafi erfðasjúkdóminn CTD. Færeyska landsstjórnin hefur gefið út tilmæli um að hver og einn Færeyingur láti skima sig fyrir veikinni. Um þriðjungur þjóðarinnar, eða 15.000 manns, hefur gengist undir blóðrannsókn til að leita sjúkdómsins. 2.3.2010 03:00
Milljarðar króna töpuðust á síðasta ári Það er einróma skoðun hagsmunaaðila í sjávarútvegi að stjórn, eða stjórnleysi, makrílveiðanna árið 2009 hafi verið sóun á verðmætum. Þetta kom fram á málstofu um veiðar og vinnslu á makríl sem sjávarútvegsráðuneytið stóð fyrir fyrir skömmu. 2.3.2010 02:45
Fíkniefnasmyglarar dæmdir Tveir fíkniefnasmyglarar voru dæmdir í fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Tvítugur karlmaður frá Rúmeníu var dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi og pólskur ríkisborgari var dæmdur í tólf mánaða fangelsi. 2.3.2010 02:30
Áhorfendur tíu milljónir talsins Franski náttúrulífssjónvarpsþátturinn Ushuaia Nature verður laugardaginn 13. mars tileinkaður Íslandi. Þátturinn er hálftíma langur og verður sýndur á sjónvarpsstöðinni TF1. 2.3.2010 02:00
Með húmor að vopni í herferð „Við teljum að nálgast þurfi karlmenn öðruvísi en konur þegar kemur að svona málum,“ segir Gústaf Gústafsson hjá Krabbameinsfélagi Íslands, sem fer þá óvenjulegu leið að nota grín til að vekja athygli á árverkniátakinu Karlmenn og krabbamein. 2.3.2010 01:45
Fá 2,9 milljarða í Danmörku Eyrir Invest seldi á hlutabréfamarkaði í Kaupmannahöfn í Danmörku í gær 16,9 milljónir hluta í stoðtækjafyrirtækinu Össuri á genginu 7,25 danskar krónur á hlut, jafnvirði 170 íslenskra króna. Söluandvirðið þessu samkvæmt nemur tæpum 2,9 milljörðum króna. 2.3.2010 01:30
50 danskir hermenn komnir Loftrýmisgæsla á vegum Atlantshafsbandalagsins hefst á ný hér við land í dag og stendur til 30. mars. Flugsveit frá danska flughernum sinnir gæslunni að þessu sinni. 2.3.2010 01:00
Bifreið fór ofan í Rauðavatn Bíll fór ofan í vök á Rauðavatni um kvöldmatarleytið en ökumaðurinn var einn í bílnum. Hann hafði ekið út á ísinn og svo virðist sem hann hafi skyndilega gefið undan þunga bílsins þegar ökumaður hafði ekið um 30-40 metra frá bakkanum. 1.3.2010 19:55
Kona frá Chile getur ekki sofið vegna áhyggjanna Kona frá Chile sem búsett er hér á landi hefur ekkert heyrt í fjölskyldu sinni sem lenti í jarðskjálftanum þar í landi á laugardag. Hún segist ekkert hafa sofið síðustu sólarhringa og lítið getað gert annað en beðið og vonað það besta. 1.3.2010 18:28
Skoðanakönnun Gallup: Icesave-samningur verður kolfelldur Nýjasta könnun Gallup varðandi þjóðaratkvæðagreiðsluna þá ætla 74 prósent að fella lögunum en það var RÚV sem greindi frá könnuninni í kvöldfréttum sínum í útvarpinu. 1.3.2010 18:05
Sighvatur: Áfall fyrir stofnunina Sighvatur Björgvinsson framkvæmdastjóri Þróunarsamvinnustofnunar Íslands segir að fjármálamisferli Jóhanns Pálssonar, fyrrverandi umdæmisstjóra Þróunarsamvinnustofnunar Íslands í Mósambík sé áfall fyrir stofnunina og starfsfólk hennar. 1.3.2010 16:23
Enn leitað að Guðbjarna - mynd Lögreglan á Selfossi leitar enn að Guðbjarna Traustasyni, fanga af Litla Hrauni, sem skilaði sér ekki úr dagsleyfi á laugardag. Talið er að hann haldi til einhversstaðar á höfuðborgarsvæðinu, en hann hefur ekki fundist þrátt fyrir talsverða eftirgrennslan. 1.3.2010 06:58
Meiðslin ekki alvarleg Iðnaðarmaðurinn sem féll úr stiga í Háskólanum í Reykjavík í hádeginu í dag reyndist ekki alvarlega slasaður eins og talið var í fyrstu. Samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum er líðan hans ágæt og meðsl hans ekki alvarleg. 1.3.2010 15:40
Jóhanna óviss um tilgang þjóðaratkvæðagreiðslunnar Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir engin áform um annað en að fyrirhuguð þjóðaratkvæðagreiðsla í Icesave-málinu fari fram næstkomandi laugardag. Hún segist samt velta fyrir sér tilgangi þess að kjósa um málið það sem fyrir liggi betra tilboð frá Bretum og Hollendingum. 1.3.2010 15:33
Fjármálamisferli í Mósambík til rannsóknar Efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra rannsakar nú fjármálamisferli hjá fyrrverandi umdæmisstjóra Þróunarsamvinnustofnunar Íslands í Mósambík. Maðurinn lét af störfum um miðjan janúar síðastliðinn þar eð ráðningartímabili hans var lokið og nýr umdæmisstjóri tók við starfinu. 1.3.2010 15:19
Olíuleit á Drekasvæði boðin út að nýju 2011 Iðnaðarráðherra hefur ákveðið að 2. útboð sérleyfa til rannsókna og vinnslu kolvetnis á Drekasvæðinu muni fara fram árið 2011 á tímabilinu 1. ágúst til 1. desember. Í tilkynningu frá Iðnaðarráðuneytinu segir að síðustu mánuði hafi Orkustofnun verið í sambandi við olíufélög sem sýndu fyrsta útboði til olíuleitar á Drekasvæðinu áhuga en sóttu ekki um. 1.3.2010 14:38
Trump hellir sér yfir flokksbróður sinn: „MAGA ætti að losa sig við þennan aumkunarverða aumingja“ Erlent