Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Davíð Oddsson á Austurvelli Um þrjúþúsund manns eru mættir á samstöðufund á Austurvelli, en þar á meðal er Davíð Oddsson, fyrrverandi Seðlabankastjóri. 13.8.2009 17:49
Búsáhaldabylting í ítölskum smábæ Kirkjuklukkurnar í ítalska smáþorpinu Mezzema hljóðnuðu fyrr í mánuðinum fyrir tilstuðlan prestsins á staðnum. Ástæðan var sú að ferðamaður hafði kvartað yfir hávaðanum sem þær framkölluðu snemma á morgnana. 13.8.2009 17:32
Hundruð manna að safnast saman á Icesave fundi Um 2- 300 manns hafa safnast saman á Austurvelli þar sem samstöðufundur vegna Icesave samninganna hefst klukkan fimm. 13.8.2009 16:57
Óvíst að Reykvíkingar fái mjólk á morgun Bilun kom upp í dag í stjórnbúnaði sem stýrir framleiðslu á mjólk hjá Mjólkursamsölunni í Reykjavík. 13.8.2009 17:04
Mikilvægt að kanna hvað veldur fjölgun barnaverndarmála Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra, lítur það mjög alvarlegum augum að tilkynningum til barnaverndayfirvalda séu að aukast. 13.8.2009 16:25
Langflestir ganga niður Laugaveginn Langflestir vegfarendur á Laugavegi og Skólavörðustíg í júlí eru fótgangandi samkvæmt könnun sem voru gerð var á ferðavenjum þeirra. „Veðrið hefur leikið við okkur í sumar og margir gengið Laugaveginn til að versla, skoða í glugga, fá sér matarbita eða bara til að njóta mannlífsins," segir Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir formaður umhverfis- og samgönguráðs í tilkynningu. 13.8.2009 15:34
Lögfræðingar á fundi fjárlaganefndar Hópur lögfræðinga sem fenginn var til þess að útbúa breytingar á frumvarpi um ríkisábyrgð vegna Icesave settist á fund með fjárlaganefnd rétt uppúr klukkan þrjú í dag. 13.8.2009 15:14
Annað innbrotið í Langholtskirkju á skömmum tima Innbrotið í Langholtskirkju í nótt er annað innbrotið í kirkjuna á skömmum tíma. Brotamennirnir sem fóru inn í kirkjuna í nótt höfðu ekkert upp úr krafsinu nema ef vera skyldi að hafa svalað skemmdarfýsn sinni en þeir komust inn með því að brjóta rúðu á skrifstofu kirkjunnar. 13.8.2009 15:07
Lögreglumenn höfnuðu kjarasamningi Lögreglumenn höfnuðu með miklum meirihluta kjarasamningi sem gerður var við hið opinbera í sumar. Mikil óánægja hefur verið meðal lögreglumanna undanfarin misseri með launakjör og starfsaðstæður. Því höfnuðu rúmlega 91% félaga í Landssambandi lögreglumanna samningnum. 13.8.2009 14:52
Torfæruhjólin fundin - eigandi stendur við fundarlaunin Torfæruhjólin sem lýst var eftir á Vísi í morgun eru komin í leitirnar. Eigandinn stendur við fundarlaunin, en ætlar að rukka þjófana um þau seinna meir. 13.8.2009 13:44
Hörður Arnarson ráðinn forstjóri Landsvirkjunar Hörður Arnarson, forstjóri Sjóvár, hefur verið ráðinn forstjóri Landsvirkjunar. Hann tekur við af Friðriki Sophussyni sem hefur verið forstjóri Landsvirkjunar undanfarin tíu ár eigi síðar en 1. janúar 2010. 13.8.2009 13:40
Bíræfnir brotamenn brutust inn í kirkju Brotist var inn í Langholtskirkju í nótt eða í morgun, en lögreglan fékk tilkynningu um málið um tíuleytiið. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni er ekki vitað hvort einhverju var stolið. 13.8.2009 12:50
Blómasali í Mosfellsbæ grunaður um græsku Lögreglu barst í morgun tilkynning um par af erlendum uppruna sem gekk milli húsa í Mosfellsbæ og seldi plastblóm til styrktar rúmenskum börnum. Íbúar hverfisins fengu þá tilfinningu að um svik væri að ræða og gerðu lögreglu viðvart. 13.8.2009 12:38
Varaði Icelandair Cargo við vopnaflutningum til Georgíu Sendiherra Rússlands segist hafa varað Icelandair Cargo við vopnaflutningum til Georgíu eftir að stríð milli Rússa og Georgíumanna skall á fyrir rúmu ári. Framkvæmdastjóri Icelandair Cargo kannast ekki við það. 13.8.2009 12:33
Ekki mistök að láta Svavar leiða Icesave nefndina Fjármálaráðherra segir það ekki hafa verið mistök að láta Svavar Gestsson leiða Icesave samningarnefndina í stað þess að fá erlendan sérfræðing í verkið. 13.8.2009 12:02
InDefence með samstöðufund vegna Icesave Indefence hópurinn stendur fyrir samstöðufundi vegna Icesave samkomulagsins á Austurvelli í dag. Hópurinn vill sanngjarnan Icesave samning sem þjóðin geti staðið við. 13.8.2009 11:59
Uppsagnir munu ekki hafa áhrif á þjónustu Krabbameinsfélagsins Skipulagsbreytingar á Leitarsviði Krabbameinsfélagsins munu ekki hafa nein áhrif á þá þjónustu sem Krabbameinsfélag Íslands veitir skjólstæðingum sínum, hvorki í þéttbýli né dreifbýli. Vísir greindi frá því í gær að sex geislafræðingar á Leitarsviði myndu missa vinnuna. 13.8.2009 11:43
Tveimur mótorhjólum stolið - 300 þúsund í fundarlaun Tveimur torfærumótorhjólum var stolið úr bílakjallaranum við Helluvað 13 í fyrrinótt, milli klukkan tvö og þrjú að því er eigandinn telur. Um er að ræða Honda hjól og Yamaha hjól, annað blátt og hvítt og hitt rautt og hvítt. Þeir sem gætu vitað hvar hjólin eru niður komin eru beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000 13.8.2009 10:59
Sigrún ráðin framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar Stjórn Samfylkingarinnar hefur ráðið Sigrúnu Jónsdóttur stjórnmálafræðing sem framkvæmdastjóra flokksins frá með septembermánuði næstkomandi. Hún gegndi tímabundið störfum framkvæmdastjóra eftir að Skúli Helgason lét af störfum í vor. 13.8.2009 10:52
Vatnsleki í Öskju Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út um níuleytið í morgun vegna vatnsleka í Öskju, náttúrufræðihúsi Háskóla Íslands. Þegar slökkvilið kom á staðinn var kalt vatn á rúmlega 200 fermetra stórum gólffleti á annarri hæð hússins sem er rúmlega 8500 fermetrar að stærð. Dælu- og sjúkrabíll fóru á staðinn og gekk vel að dæla vatninu úr húsinu, samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá slökkviliðinu. 13.8.2009 10:46
Fjárlaganefnd lýkur Icesave umfjöllun í dag Fjárlaganefnd Alþingis mun ljúka umfjöllun um Icesave málið í dag eða í kvöld, segir Guðbjartur Hannesson, formaður nefndarinnar í samtali við fréttastofu. Fjárlaganefnd fundaði um málið í morgun og ákvað nefndin að fá með sér hóp til að vinna texta að breytingum á frumvarpinu í samræmi við óskir nefndarinnar. 13.8.2009 10:31
Framkvæmdastjóri Borgarahreyfingarinnar hættur Jóhann Kristjánsson hefur látið af störfum sem framkvæmdastjóri þingflokks Borgarahreyfingarinnar eftir þrjá mánuði í starfi. Hann segist hætta í góðri sátt. „Það stóð aldrei til að ég yrði þarna til eilífðarnóns.“ 13.8.2009 10:22
Faðir íslensks drengs verður sendur til Íraks - óttast um líf sitt Barnsfaðir íslenskrar konu var á meðal þeirra nítján Íraka sem handteknir voru í kirkju á Norðurbrú í Kaupmannahöfn í nótt. Hann óttast að verða sendur til Íraks. Hann saknar sonar síns og vill búa á Íslandi. 13.8.2009 10:21
Hinir vilja Þráin af þingi Þrír af fjórum þingmönnum Borgarahreyfingarinnar vilja að fjórði þingmaðurinn, Þráinn Bertelsson taki sér frí frá Alþingi og kalli inn varamann. Þetta kemur fram á heimasíðu hreyfingarinnar, þar sem birt er bréf frá þingmönnunum þremur, sem sent var á stjórnarfund hreyfingarinanr á þriðjudag. 13.8.2009 08:33
Málningu skvett á hús Karls Werners og Hreiðars Más - myndir Rauðri málningu var skvett á íbúðarhús athafnamannsins Karls Wernerssonar við Engihlíð í Reykjavík í nótt. Þá fékk heimili Hreiðars Más Sigurðssonar fyrrverandi forstjóra Kaupþings í Hlyngerði rauða málningargusu í annað sinn á stuttum tíma. Ekki er vitað hver eða hverjir voru þar að verki. 13.8.2009 08:26
Ammoníakleki hjá Íslandspósti Einn starfsmaður dreifingarstöðvar Íslandspósts við Stórhöfða í Reykjavík var fluttur á Slysadeild í gærkvöldi, eftir að ammoníak barst þar út í andrúmsloftið. Hann hresstist brátt og hlaut ekki varnlegan skaða af. 13.8.2009 08:19
Þjófar staðnir að verki Lögregla greip þrjá innbrotsþjófa með fangið fullt af þýfi, þar sem þeir voru á leið út úr fjölbýlishúsi við Lindargötu í Reykjavík í gærkvöldi. Þeir gista nú fangageymslur og verða yfirheyrðir í dag. Þá var brotist inn í leikskóla í Grafarholti og þaðan stolið sjónvarpsskjá. Þjófurinn komst undan og er hann ófundinn. 13.8.2009 08:17
Bátur bilaði norður af Rifi Vélarbilun varð í strandveiðibáti þegar hann var hátt í 50 sjómílur norður af Rifi í gærkvöldi. Nálægur bátur kom til aðstoðar og dró bilaða bátinn til Rifs. Gott veður var á svæðinu og því ekki hætta á ferð. Strandveiðikvótinn á svæðinu frá Snæfellsnesi að Skagafirði, er búinn, enda voru lang flestir strandveiðibátarnir á því svæði og aflinn var góður. 13.8.2009 08:02
Átta teknir fyrir hraðakstur á Suðurlandsvegi Lögreglan á Selfossi stöðvaði átta ökumenn á Suðurlandsvegi í gær og fram á nótt. Þeir sem hraðast óku voru á 150 og 155 kílómetra hraða og verða þeir báðir sviftir ökuréttindum í einn mánuð og verður hvorum þeirra gert að greiða 130 þújsund krónur í sekt. 13.8.2009 07:58
Óvissa ríkir um starfsleyfi Menntaskólans „Það er nokkuð bratt að halda að menntaráð afgreiði svo stórt mál, eins og stofnun nýs grunnskóla, bara sisvona. Yfirleitt höfum við tekið okkur mun lengri tíma í svona lagað og það segir sig sjálft að við munum taka okkur allan þann tíma sem við þurfum til að skoða þessa umsókn. Það má ekki taka styttri tíma að stofna grunnskóla en að opna bar. Það eru ekki góð skilaboð," segir Oddný Sturludóttir, borgarfulltrúi Samfylkingar, sem situr í menntaráði Reykjavíkurborgar. 13.8.2009 05:45
Sprautuðu lakkeyði á bíla forstjóra OR Milljónatjón varð á húsi og bílum Hjörleifs H. Kvaran, forstjóra Orkuveitunnar, þegar aðgerðasinnar unnu skemmdarverk á heimili hans aðfaranótt mánudags. Svo virðist sem þeir séu farnir að færa sig upp á skaftið, því þeir létu sér ekki nægja að skvetta málningu sem hægt er að spúla burt, heldur voru bílarnir líka eyðilagðir með lakkeyði. 13.8.2009 05:30
Rannsaka verðmerkingar Ólöglegar verðmerkingar á matvöru virðast viðgangast í stórum stíl í íslenskum matvöruverslunum, þrátt fyrir að samkeppnisyfirvöld hafi ítrekað hvatt til þess að látið verði af þeim. Samkeppniseftirlitið hefur hafið stjórnsýslumál sem beinast að smásöluverslunum, framleiðendum matvöru og birgjum. 13.8.2009 05:00
Leggja áherslu á handþvott nema Heilbrigði Allt skólastarf í landinu getur hafist með eðlilegum hætti á næstunni þrátt fyrir heims-faraldur svínaflensu en 112 hafa nú greinst með flensuna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá landlæknisembættinu. 13.8.2009 05:00
Almenningur sýni biðlund „Það er ekki hægt að byrja á því að frysta eignir fólks, fyrst verður að sanna glæpsamlega hegðun þess,“ segir Eva Joly, ráðgjafi sérstaks saksóknara vegna bankahrunsins. 13.8.2009 05:00
Bjartsýnn á að fylla turninn við Höfðatorg Búið er að leigja út þrjátíu prósent af tuttugu þúsund fermetrum turnsins við Höfðatorg. Pétur Guðmundsson, eigandi Höfðatorgs, sem á og leigir út turninn, er bjartsýnn á að það náist að leigja út allt húsið, hvort sem það taki hálft, eitt eða tvö ár. 13.8.2009 04:30
Eva Joly í viðtali: Enginn skaði vegna lekans úr Kaupþingi Eva Joly segir almenning verða að sýna þolinmæði þó að eigur auðmanna hafi ekki verið frystar. Rannsaka verði málin áður en eignir verði kyrrsettar. Hún segir mjög gott að settur hafi verið sérstakur ríkissaksóknari, en Valtýr Sigurðsson eigi samt að segja af sér. 13.8.2009 04:00
Skaðlegt að afnema verðtryggingu Ekki er ráðlegt að afnema verðtrygginguna með lagasetningu, að mati Seðlabanka Íslands. Forsenda þess að dregið sé úr notkun verðtryggingarinnar er annað hvort stöðugleiki til lengri tíma eða upptaka nýrrar myntar. 13.8.2009 04:00
Háskólanemum fjölgar um þriðjung á milli ára Um 23 þúsund manns eru skráðir í háskólanám í haust í fjóra stærstu háskóla landsins; Háskóla Íslands, Háskólann á Akureyri, Háskólann í Reykjavík og Háskólann á Bifröst. Um 17 þúsund stunduðu nám í skólunum haustið 2008, samkvæmt tölum Hagstofu Íslands. Fjölgunin er því um 35 prósent. 13.8.2009 03:30
Geitungar fleiri en í fyrrasumar Trjágeitungar hafa komið upp mun fleiri búum sunnanlands en í fyrrasumar og er það einmuna blíðu að þakka. Erling Ólafsson, skordýrafræðingur Náttúrufræðistofnunar, segir á heimasíðu stofnunarinnar að bú þeirra hafi vaxið með undrahraða í júlí. Stundum hafa fundist fleiri en eitt bú í einum og sama garðinum. 13.8.2009 03:15
Maraþonfundi fjárlaganefndar lokið „Þetta eru miklir maraþonfundir," segir Höskuldur Þórhallsson, fulltrúi Framsóknar í fjárlaganefnd, en hann var að koma út af rúmlega þriggja tíma löngum nefndarfundi um Icesave málið þegar fréttastofa náði af honum tali. 12.8.2009 21:29
Aukinn kostnaður við velferðarmál nemur 25 milljörðum á árinu Kostnaður við velferðarkerfið hefur aukist um meira en 25 milljarða á þessu ári. Þetta kom fram í svari Steingríms J. Sigfússonar, fjármálaráðherra, við fyrirspurn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, þingmanni Sjálfstæðisflokksins. 12.8.2009 20:15
700 heimili leituðu til hjálparsamtaka eftir sumarlokun Um sjö hundruð heimili sem eiga ekki fyrir mat leituðu á náðir Mæðrastyrksnefndar og Fjölskylduhjálpar í dag. Sumarlokun hefur verið á báðum stöðum síðan í júní og segir kona sem leitaði sér aðstoðar að ástandið hafi verið skelfilegt hjá sér á meðan. 12.8.2009 20:18
Hærri þjónustugjöld vegna riftunar Glaðheimasölu Tekjutap Kópavogsbæjar vegna riftunar kaupsamnings á Glaðheimalandinu mun þyngja skuldabyrði bæjarins töluvert að sögn bæjarfulltrúa. Íbúar bæjarins megi búast við að þurfa að borga hærri þjónustugjöld í kjölfarið. 12.8.2009 19:28
Kannast ekki við að hafa hafnað Rússaláni Hvorki Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra, né Tryggvi Þór Herbertsson, fyrrverandi efnahagsráðgjafi forsætisráðherra, kannast við að ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar hafi hafnað milljarða láni frá Rússum. Sendiherra Rússa segir að ríkisstjórnin hafi óskað eftir fjögurra milljarða evra láni og síðan afþakkað það. 12.8.2009 19:22
Lánasjóðssvikarar vildu komast í Fáfni Mennirnir sem sviku út fjörutíu milljónir króna úr Íbúðalánasjóði eru allir tengdir vélhjólaklúbbnum Fáfni. Þeir tilheyra svokölluðum "wannabe´s" hópi sem leysir verkefni fyrir klúbbinn með það að markmiði að verða meðlimir í honum. 12.8.2009 18:53