Fleiri fréttir

Notkun róandi lyfja hefur ekki aukist í kreppunni

Engin aukning hefur orðið í notkun róandi lyfja í kreppunni. Þetta kemur fram í úttekt Landlæknisembættisins sem hefur borið saman notkun geðlyfja fyrstu sjö mánuði þessa árs miðað við sömu mánuði undanfarin ár.

Héldu karlmanni föngnum - Þrír í gæsluvarðhaldi

Karlmanni á þrítugsaldri var haldið föngnum í fjölbýlishúsi á Akureyri og beittur líkamsmeiðingum. Lögreglan á Akureyri rannsakar málið og hefur handtekið þrjá karlmenn vegna þess. Þeir voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald í dag. Rannsókn málsins er á frumstigi og ekki fást frekari upplýsingar frá lögreglunni um það að svo stöddu.

Árni vísar á Seðlabankann vegna Rússaláns

Árni Mathiesen, fyrrverandi fjármálaráðherra, kannast ekki við að ríkisstjórn Geirs H. Haarde hafi hafnað milljarða láni Rússa í upphafi október í fyrra. Hann vísar á Seðlabankann.

Innbúi stolið - Tryggingafélagið neitar að borga tjónið

Einstæð þriggja barna móðir tapaði innbúi að verðmæti 2 milljónum króna þegar brotist var inn til hennar í maí síðastliðnum. Konan, sem heitir Ellen Ásdís Erlingsdóttir, bjó í Svíþjóð þegar innbrotið var framið en hafði leigt íbúðina með öllu innbúinu. Tryggingafélagið Vörður, sem konan tryggir hjá, segir að ekki hafi verið brotist inn hjá konunni og neitar að bæta henni tjónið.

Enn á gjörgæslu eftir slysið á Grundartanga

Líðan mannsins sem brenndist illa á fótum við vinnu í álverinu á Grundartanga í gær er eftir atvikum góð. Hann er enn á gjörgæslu og fór í aðgerð í gær þar sem gert var að brunasárunum. Að sögn vakthafandi læknis tókst aðgerðin vel.

Icesave úr fjárlaganefnd á morgun

Flest bendir til að Icesave samningurinn verði afgreiddur úr fjárlaganefnd á morgun. Nefndin kemur saman að minnsta kosti þrisvar í dag vegna málsins.

Ríkur stuðningur við Steingrím á átakafundi

Árni Þór Sigurðsson, þingmaður Vinstri grænna, segir ríkan stuðning hafa komið fram við Steingrím J. Sigfússon, formann flokksins, á átakafundi kjördæmisráðs flokksins í Suðvesturkjördæmi í gærkvöld.

Kreppan fer illa með geðheilsu Íslendinga

Íslendingar eru áberandi svartsýnni en aðrar þjóðir á efnahagsástandið á næstu mánuðum. Í júní síðastliðnum töldu 71% Íslendinga að efnahagsástandið myndi enn versna á næstu 3 mánuðum. Næst á eftir Íslendingum í svartsýni komu Þjóðverjar, en 46% þeirra töldu að efnahagsástandið færi versnandi. Þetta sýna niðurstöður stærstu alþjóðlegu könnunar um áhrif fjármálakreppunar á almenning sem WIN (alþjóðleg samtök óháðra markaðsrannsóknarfyrirtækja) stendur fyrir og gerir nú í þriðja sinn í 22 löndum.

N1 leitar að hugmyndum

N1 hefur hleypt af stokkunum hugmyndasamkeppninni Start09 með því markmiði að hvetja fólk og fyrirtæki til nýrrar sóknar og uppbyggingar. Upphaf hugmyndasamkeppninnar má rekja til hugmyndafundar sem var haldinn í Borgarleikhúsinu í júní.

Gunnar stýrir nefnd um tekjustofna sveitarfélaga

Gunnar Svavarsson, fyrrum þingmaður Samfylkingarinnar, er formaður nefndar sem ætlað er að vinna tillögur um að styrkja tekjustofna sveitarfélaga. Nefndin kom saman í fyrsta sinn í gær.

Magn jarðhitaefna fjórfaldast í Markarfljóti

Magn jarðhitaefna í Markarfljóti á Rangárvöllum og leiðni í fljótinu nálgast að verða fjórfalt yfir meðallagi, sem getur verið vísbending um jökulhlaup í Fremri Emstruá.

Þýskum ferðamönnum komið til byggða

Björgunarsveitarmenn Landsbjargar komu þýsku pari til hjálpar í nótt, eftir að konan hafði snúið sig illa á fæti og fólkið hafði villst af leið á Fimmvörðuhálsi á milli Skóga og Þórsmerkur.

Eldur í Flóanum í gærkvöldi

Eldur kviknaði í dæluskúr vatnsveitunnar í Hraungerðishreppi í Flóa undir kvöld í gær. Þar logaði glatt þegar slökkvilið kom á vettvang, en eldurinn var slökktur á skammri stundu. Vatnslaust varð um tíma á svæðinu, en viðgerðarmönnum tókst að koma því aftur á í gærkvöldi. Eldsupptök eru ókunn, en menn höfðu verið að vinna við dælustöðina í gær.

Lögregla opnaði hliðið í Helguvík

Lögreglan á Suðurnesjum hefur opnað starfsmönnum við álversbygginguna í Helguvík leilð inn á vinnusvæðið, eftir að 20 manna hópur á vegum Saving Iceland hlekkjaði sig þar við hliðin og byggingakrana á svæðinu.

Hlegið ef Íslendingar hótuðu að ganga úr NATO

Samningsstaða Íslendinga í þorskastríðunum var yfirleitt betri en nú um stundir, segir Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur í grein um Icesave sem birtist í Fréttablaðinu í dag.

Samstöðufundur: Íslenska þjóðin rísi úr pólitísku hjólförunum

„Við lítum svo á að það sé kominn tími til að við Íslendingar, sem erum sérfræðingar í að rífast innbyrðis, rísi upp úr pólitískum hjólförum og sýni að við erum ein þjóð sem stendur saman þegar skórinn kreppir,“ segir Jóhannes Þ. Skúlason, meðlimur í hinum svokallaða InDefence-hópi.

Þokast í átt til sáttar innan stjórnarliðsins

Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra hefur góða von um að viðunandi lausn finnist á Icesave-málinu og að það hljóti samþykki. „Ég er vongóður um að við náum sameiginlegri lausn ef menn sýna allir góðan samstarfsvilja,“ sagði hann í samtali við Fréttablaðið í gærkvöldi. Kvaðst hann hafa af því spurnir að innan fjárlaganefndar væru menn á réttri leið, að hans mati.

Forræðismál úr höndum utanríkisráðuneytis

Utanríkisráðuneytið getur ekkert aðhafst í máli Borghildar Guðmundsdóttur, sem hefur verið gert að halda til Bandaríkjanna með syni sína tvo. Þetta segir Kristín Árnadóttir, sviðsstjóri í ráðuneytinu.

Skiptar skoðanir í þingvallanefnd um Valhöll

Sjö þingmenn voru í gær kjörnir í Þingvallanefnd. Þeir þingmenn sem Fréttablaðið ræddi við í gær voru fráleitt á einu máli um fyrsta stóra málið sem bíður nefndarinnar, framtíð reitsins þar sem Hótel Valhöll stóð.

Sorpmagnið dregst saman

Ásókn borgarbúa í umhverfisvænar ruslatunnur hefur síður en svo dregist saman í kreppunni. Við það bætist að sorpmagnið frá borgarbúum hefur dregist saman í kreppunni, segir Pétur Elínarson, rekstrarfulltrúi á umhverfissviði Reykjavíkurborgar.

Bretar hafa ekki áhyggjur vegna Icesave

Icesave-málið er breskum almenningi ekki sérstaklega hugleikið og Bretar hafa ekki af því miklar áhyggjur. Þetta er meðal þess sem fram kom í máli Sverris Hauks Gunnlaugssonar, sendiherra Íslands í London, á fundi fjárlaganefndar Alþingis í gærmorgun, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins.

Nítján þúsund sigldu með ferjunni Baldri

Metaðsókn var í Breiðafjarðarferjuna Baldur í júlí en um nítján þúsund farþegar og um fjögur þúsund bílar fóru með ferjunni. Á sama tíma í fyrra sigldu rúmlega fimmtán þúsund manns með ferjunni og um 3.500 bílar.

Makríllinn dreifður um alla lögsöguna

Umfangsmestu rannsóknir á makrílgöngum á hafsvæðinu við Ísland og á Norður-Atlantshafi eru langt komnar. Rannsóknirnar eru tilkomnar vegna deilna um útbreiðslu makríls hér við land og rétt Íslendinga til veiða úr stofninum. Niður­staða þeirra mun liggja fyrir í september en ljóst er að mikið er af makríl víða í íslensku lögsögunni.

Áfram verður hlýtt á landinu

Mikið blíðskaparveður var víða á landinu í gær, og sólin skein skært í miðborg Reykjavíkur. Ljósmyndari Fréttablaðsins átti leið hjá Bæjarins bestu í Tryggvagötu og var ekki að sjá að gestir sem biðu þar létu það nokkuð á sig fá í góða veðrinu.

Vilja dreifa umferð um Esjuna

Unnið hefur verið að því í að búa til nýja göngustíga um hlíðar Esjunnar í sumar til að dreifa umferð um fjallið en ágangur þar hefur verið óvenju mikill. Að sögn Bergþóru Einarsdóttur, flokksstjóra hjá Skógræktarfélagi Reykjavíkur, sem hefur umsjón með Esjuhlíðum, hefur verið stöðugt streymi upp að Þverfellshorni, sem er vinsælasta gönguleiðin.

Fundur VG: Félagshyggjustjórnin megi ekki stranda á Icesave

Það var þétt setinn bekkurinn á félagsfundi Vinstri grænna í Kraganum, en aðstandendur fundarins telja að yfir hundrað manns hafi setið fundinn. Meðal gesta var stór hluti þingflokks Vinstri grænna og jafnvel flokksmeðlimir úr öðrum kjördæmum.

Fleiri en hundrað á félagsfundi VG í Kraganum

Yfir hundrað manns eru mættir á félagsfund Vinstri grænna í Kraganum í félagsheimili VG að Hamraborg 1-3. Meðal þeirra sem sitja fundinn eru Guðfríður Lilja Grétarsdóttir og Ögmundur Jónasson, þingmenn flokksins, sem svara spurningum félaga eftir bestu getu.

Er tilbúinn að skoða skattaafslátt gegn upplýsingum

„Ég er alveg tilbúinn að taka þetta til skoðunar," segir Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, aðspurður um þá hugmynd að veita fjármagnseigendum skattaafslátt í skiptum fyrir upplýsingar um innistæður þeirra á aflandsreikningum.

Þrisvar dópaður undir stýri á einni viku

Lögreglan á Akureyri greip tvítugan pilt í dag grunaðan um akstur undir áhrifum fíkniefna. Þetta er í annað skiptið á jafnmörgum dögum sem lögregla hefur afskipti af drengnum, því um hádegisbilið í gær var sami drengur stöðvaður fyrir sama brot. Þá tók lögregla hann einnig um síðustu helgi fyrir fíkniefnaakstur.

Vill veita skattaafslátt í skiptum fyrir upplýsingar

Bryndís Kristjánsdóttir skattrannsóknarstjóri vill að skoðaður verði möguleiki á að veita fjármagnseigendum sem eiga fé á huldureikningum erlendis skattaafslátt, veiti þeir sjálfviljugir upplýsingar um innistæður sínar.

Siggi stormur framkvæmdi tannlækningar á syni sínum

Tíu ára drengur, sem var sárþjáður af tannpínu um verslunarmannahelgina, neyddist til að leggjast undir hnífinn heima í stofu hjá föður sínum þar sem ómögulegt var að fá aðstoð tannlæknis. Varaformaður tannlæknafélagsins harmar atvikið.

Sextug kona meðal þeirra sem notaðir voru í lánasjóðssvindli

Nöfn leikskólakennara, bókasafnsfræðings, fyrrverandi verðbréfasala og manns sem skráður er til húsa í félagsbústöðum voru notuð til að svíkja út fjörutíu milljónir króna úr Íbúðalánasjóði. Sextug kona sem notuð var í svikunum segist ekki skilja af hverju hennar nafn var notað.

Ríkisstjórnarsamstarfið að veði í Icesave

Össur Skarphéðinsson segir að ef ekki verði meirihluti fyrir Icesave frumvarpi ríkisstjórnarinnar, verði stjórnin og einstakir ráðherrar að íhuga stöðu sína. Ögmundur Jónasson og Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, þurfa að rökstyðja afstöðu sína í Icesave málinu, fyrir almennum flokksmönnum í Vinstri-grænum, á félagsfundi í kvöld. Fullyrt er að ríkisstjórnin standi og falli með afstöðu þeirra í málinu.

Óvissa um gjaldeyrisforðann vegna Icesave

Hundruð milljarða króna galdeyrisforði Íslendinga gæti lent í klóm Breta ef Icesave-samningurinn gjaldfellur. Óvíst er að sá hluti forðans sem geymdur er í Bandaríkjunum njóti friðhelgi samkvæmt samningum. Aðstoðarmaður fjármálaráðherra, fellst ekki á þetta.

Vill sjá reglur um eignarhald fjölmiðla

„Það er talað um það í stjórnarsáttmálanum að endurskoða fjölmiðlalögin, en einungis nefnt sjálfstæði ritstjórna," segir Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.

Sjá næstu 50 fréttir