Innlent

Ammoníakleki hjá Íslandspósti

Einn starfsmaður dreifingarstöðvar Íslandspósts við Stórhöfða í Reykjavík var fluttur á Slysadeild í gærkvöldi, eftir að ammoníak barst þar út í andrúmsloftið. Hann hresstist brátt og hlaut ekki varnlegan skaða af.

Eiturefnakafarar slökkviliðsins hreinsuðu vettvanginn og loftræstu húsnæðið. Ástæða þessa var sú að starfsmaður missti lyfjasendingu í gólfið, en í henni var meðal annars þriggja lítra ammoníaksflaska, sem brotnaði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×