Fleiri fréttir

Verðlaunahundur lögfræðings týndur í Rockville

Hætta er á að púðluhundurinn Larry, sem er bandarískur verðlaunahundur, missi af sinni fyrstu hundasýningu hér á landi, þar eð hann týndist við Rockville á suðurnesjum í gærkvöld. Til stóð að hann myndi fara á hundasýningu Hundaræktunarfélagsins um næstu helgi.

Indefence segir væga fyrirvara um Icesave stórhættulega

Indefence hópurinn segir væga fyrirvara í Icesavesamningunum vera stórhættulega. Þeir gagnrýna orð Jóhönnu Sigurðardóttur sem hefur lýst yfir að fyrirvarar við ríkisábyrgð skuli rúmast innan samninganna. Veikir fyrirvarar gætu verið skildir sem ítrustu kröfur Íslendinga.

Eigendur smurstöðva ósáttir við vinnubrögð N1

Eftir að hafa rekið smurstöð í Stórahjalla í þrjátíu ár var feðgunum Inga Hannessyni og Snjólfi Fanndal Kristbergssyni, sagt upp leigusamningi sínum við N1 með sex mánaða fyrirvara. N1 ætlaði þess í stað að reka smurstöð áfram á staðnum, án þess að borga nokkuð fyrir það orðspor sem fyrirtækið var búið að koma sér upp á þrjátíu árum. Fleiri hafa sömu sögu að segja.

Þórður biðst afsökunar á agabrotunum

Þórður Þorgeirsson, sem rekinn var úr íslenska landsliðinu í hestaíþróttum, hefur sent frá sér opinbera afsökunarbeiðni. Þórður var rekinn úr íslenska landsliðinu vegna agabrota.

Lögreglan stöðvaði kannabisræktun í miðborginni

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í dag ræktun á 65 kannabisplöntum í heimahúsi í miðborginni. Í tilkynningu frá lögreglunni kemur fram að larlmaður á þrítugsaldri hafi verið handtekinn og verði hann yfirheyrður vegna málsins.

Stórtækir innbrotsþjófar handteknir

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í fyrrakvöld þrjá menn af erlendum uppruna grunaða um að hafa brotist inn í hús í miðborg Reykjavíkur. Í framhaldi af handtöku mannanna voru gerðar húsleitir og fannst í þeim töluvert magn skartgripa, tölvubúnaðar, myndavéla og fleira.

Seðlabankastjóri lýsti aðdáun á störfum lögreglumanna

Ingimundur Friðriksson seðlabankastjóri setti sig í samband við Stefán Eiríksson í lok janúarmánaðar síðastliðins til þess að skila þakklæti til lögreglumanna og annarra starfsmanna lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu frá bankastjórn og starfsmönnum bankans.

Innbrotið hjá Íslandspósti í lögreglurannsókn

Lögreglan rannsakar ennþá innbrot á aðalskrifstofur Íslandspósts á Stórhöfða í nótt. Ágústa Hrund Steinarsdóttir segir að málið sé allt óljóst ennþá. ekki sé víst hvort þjófarnir hafi komist inn í skúffur og skápa á skrifstofunum eins og fullyrt hafði verið í fréttum Bylgjunnar og Vísis. Hún segir þó ljóst að ekki hafi verið komist í neinar póstsendingar því að þær séu ekki geymdar á aðalskrifstofum.

SFR samþykkti kjarasamninga við ríkið

Kjarasamningur SFR- stéttarfélags í almannaþjónustu og ríkisins sem undirritaður var 3. júlí síðastliðinn var samþykktur í dag, en atkvæðagreiðslu lauk á hádegi. Á kjörskrá voru 6391 og var svarhlutfall 17.94%. Alls sögðu 54,06% þeirra sem greiddu atkvæði já, nei sögðu 39,04% en 6,90% skiluðu auðu.

Útsvar Hannesar ekki í samræmi við tekjur

Hannes Hólmsteinn Gissurarson segir að upplýsingar Skattstjórans í Reykjavík um útsvar hans, gefi ekki rétta mynd af þeim tekjum sem hann vann sér inn í fyrra.

Dapurlegt að vinnugögn leki til fjölmiðla

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir ákaflega dapurlegt að viðkvæm vinnugögn sem búið var að samþykkja að trúnaður ríkti um, skuli lekið í fjölmiðla. Ekki sé búið að kynna breytingartillögur fjárlaganefndar fyrir Bretum og Hollendingum. Hann segir grátlega lítið vanta upp á breiða samstöðu um málið á Alþingi.

Trúnaðarbrestur milli flokksformanna á Alþingi

Trúnaðarbrestur er milli forystumanna stjórnmálaflokkanna á Alþingi vegna ítrekaðs leka á trúnaðarupplýsingum, nú síðast vegna Icesave. Stefnt er að því að afgreiða Icesave-frumvarpið úr fjárlaganefnd í dag. Tvísýnt er um hvort Sjálfstæðismenn og Borgarahreyfing standi að málinu með stjórnarflokkunum en fullvíst talið að Framsóknarflokkurinn verði á móti.

Þráinn segir sig úr þingflokknum

Þráinn Bertelsson hyggst hætta í þingflokki Borgarahreyfingarinnar. Þetta kom fram í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins og sagt að von sé á yfirlýsingu frá Þráni vegna málsins.

Þjónusta lögreglunnar mun skerðast

Boðaður niðurskurður í lögreglunni í ár og á næsta ári, nái hann fram að ganga óbreyttur, mun augljóslega koma niður á þjónustustigi lögreglunnar um allt land, segir í ályktun stjórnar Landssambands lögreglumanna . Lögreglan mun þurfa, enn frekar, að forgangsraða verkefnum sínum og ljóst að einhverjum þeim verkefnum, sem lögreglan er að sinna í dag mun ekki verða sinnt á næsta ári.

Margrét hefur enn áhyggjur af Þráni

„Mér gekk gott eitt til. Ég hef áhyggjur af Þráni og hef þær enn. Viðbrögð hans við þessu hafa ekki slegið á þessar áhyggjur," segir Margrét Tryggvadóttir þingmaður Borgarahreyfingarinnar.

Formaður Borgarahreyfingarinnar hættur

Herbert Sveinbjörnsson hefur látið af embætti sem formaður Borgarahreyfingarinnar. Herbert gerir málinu skil á vefsíðu sinni. Þar segist hann eiga erfitt með að horfa á barnið sitt verða að athlægi og gera sig að fífli, horfa á það breytast í það sem hann fyrirlíti.

Frægasti glæpamaður Brasilíu handtekinn á Íslandi

Einn þekktasti glæpamaður Brasilíu, lýtalæknirinn Hosmany Ramos, situr nú í gæsluvarðhaldi á Íslandi en hann var tekinn með falskt vegabréf á Keflavíkurflugvelli þann 9. ágúst. Hann er eftirlýstur í Brasilíu eftir að hafa fengið heimfararleyfi yfir jólahátíðina síðustu og ekki snúið aftur.

Lýsir áhyggjum af heilsu Þráins í tölvupósti

Margrét Tryggvadóttir þingmaður Borgarahreyfingarinnar óttast að Þráinn Bertelsson þingmaður í sama flokki sé með alzheimer á byrjunarstigi og að hann hafi snemma í sumar verið að síga inn í þunglyndi. Þetta kemur fram í tölvupósti sem Margrét sendi fyrir mistök á nokkra félagsmenn í Borgarahreyfingunni. Hún ætlaði að senda póstinn á varamann Þráins inni á þingi.

Engin þverpólitísk sátt í sjónmáli

Engin þverpólitísk sátt virðist í sjónmáli á Alþingi í Icesave deilunni eftir tíðindi gærdagsins og næturinnar. Þingmenn ríkisstjórnarfllokkanna höfðu vonast til þess að hægt yrði að ljúka umfjöllun um málið í fjárlaganefnd í gær.

Þrír Bretar felldir í Afganistan

Þrír breskir hermenn létust í Afganistan í gær þegar sprengja sprakk nærri þeim en þeir voru fótgangandi á eftirlitsferð í Helmand héraði. Bretar hafa nú misst 199 hermenn í landinu frá því Bretar hófu ásamt öðrum löndum hernaðaraðgerðir í landinu árið 2002.

Segja Hollendinga og Breta hóta því að koma í veg fyrir ESB inngöngu

Sænska dagblaðið Dagens Nyheter fullyrðir í grein á vef sínum í gær sem fjallar um Ísland og icesave málið, að Hollendingar og Bretar hóti að beita neitunarvaldi sínu gegn því að Ísland fái inngöngu í Evrópusambandið verði ekki samið um Icesave reikningana.

Komu göngukonu til aðstoðar

Björgunarsveitarmenn voru kallaðir út í gærkvöldi til að aðstoða fjallgöngukonu, sem hafði snúið sig illa á fæti í hlíðum Helgafells, sunnan við Hafnarfjörð. Leiðangurinn gekk vel, enda veður gott, og var konunni komið undir læknis hendur. Óvenju mikið hefur verið um það að undanförnu, að göngufólki hlekkist eitthvað á, en kunnugir segja að það megi eflaust rekja til þess að sjaldan eða aldrei hafi jafn margt göngufólk verið á ferðinni og í sumar, bæði Íslendingar og útlendingar

Brotist inn hjá Póstinum

Brotist var inn í aðalskrifstofur Íslandspósts í Stórhöfða i Reykjavík í nótt og komst þjófurinn undan. Hann rótaði víða í skúffum og skápum í leit að verðmætum , en ekki er enn vitað hvort, eða hvað hann hafði upp úr krafsinu. Þá er líka óljóst hvort hann hefur gramsað eitthvað í póstsendingum.

Icesave enn fast í fjárlaganefnd

Fjárlaganefnd Alþingis frestaði fundi sínum um Icesave málð um klukkan hálf tvö í nótt og kemur aftur saman í hádeginu. Þingflokkum voru kynnt drög að nefndaráliti í gærkvöldi og reyndust mjög skiptar skoðanir um þau.

Ógnuðu manni með riffli í Höfðahverfi

Fjórir ungir menn voru handteknir seint í gærkvöldi, eftir að þeir höfðu beint riffli að manni, sem var við vinnu sína í Höfðahverfi í Reykjavík. Manninum var að vonum brugðið.

Níu ára drengur rekinn úr fótboltaliði

Níu ára gamall drengur hefur verið rekinn úr 6. flokki ÍR í fótbolta vegna hegðunarvandamála. Hann má því ekki mæta á æfingar hjá félaginu. Foreldrar hans voru látnir vita af brottrekstrinum í bréfi. Móðir hans gagnrýnir þetta harðlega. Að sögn Halldórs Þ. Halldórssonar, yfirþjálfara yngri flokka ÍR, var þetta síðasta úrræði félagsins.

Talsmenn neytenda fordæma verðmerkingar

„Ég vil fá þetta burt. Það hefur lengi verið skoðun Neytendasamtakanna að það eigi að banna forverðmerktar vörur. Stærsti ágallinn er sá að þær halda uppi verði. Því fyrr sem þær verða bannaðar, því betra," segir Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna. Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda, segir löngu tímabært að stöðva forverðmerkingar á matvöru.

Hækkun álverðs mikið ánægjuefni fyrir orkufyrirtækin í landinu

Verðið á áli hefur hækkað um 59 prósent frá því í mars og kostaði tonnið 1.997 dali í gær. „Þetta er mikið ánægjuefni fyrir orkufyrirtækin og hefur jákvæð áhrif á tekjurnar,“ segir Stefán Pétursson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Landsvirkjunar.

Kvótaúthlutun á makríl: Samningsstaða Íslands er óljós

„Ekki er enn ljóst hvort Íslandi verður meinuð þátttaka í fundum hinna strandríkjanna um stjórnun veiða úr makrílstofninum fyrir árið 2010. Þar til þau viður­kenna Ísland sem fullgildan aðila að stjórn veiðanna og réttmæta hlutdeild okkar munum við stunda lögmætar makrílveiðar á okkar forsendum," segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, í niðurlagi greinar sem birtist í Fiskifréttum í gær.

Stöð 2 Sport: Leikdögum fjölgar í Meistaradeildinni

„Þetta er auðvitað mikið fagnaðarefni fyrir knattspyrnu­áhugamenn hér landi, en ekki síður viðurkenning fyrir fyrirtækið. Það hefur komið skýrt fram hjá sölu­aðilum þessa efnis að þeir telja að við höfum verið að þjóna markaðnum mjög vel og séum besti samstarfsaðilinn á markaðnum. Þeir líta á það sem sína hagsmuni að við komumst í gegnum þetta," segir Ari Edwald, forstjóri 365 miðla.

Eftirlit á miðunum: Um borð í 23 báta

Fiskistofa og Landhelgisgæslan fóru í júlí í sameiginlegan leiðangur í eftirliti á grunnslóð við landið. Leiðangurinn stóð í átta daga, en á þeim fimm dögum sem nýttust til verksins var farið um borð í alls 23 báta; tuttugu handfærabáta, einn togbát, einn línubát og einn netabát.

Með riffil út um bílgluggann

Lögregla fékk tilkynningu um að verið væri að ógna vegfarendum með skotvopni út úr bíl í grennd við Bíldshöfða um klukkan hálftíu í kvöld.

Lögreglukona gagnrýnir Stefán Eiríksson í opnu bréfi

Lögreglukonan Bylgja Hrönn Baldursdóttir sendir Stefáni Eiríkssyni, lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu, tóninn í opnu bréfi sem hún sendi honum í dag. Hún segir lögreglustjórann því miður á góðri leið með að missa lögreglumennina frá sér.

Jóhanna tekur til varna í grein á vef FT

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra gagnrýnir beitingu hryðjuverkalaganna og þrýsting Hollendinga vegna láns Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í varnargrein sem birtist á vef Financial Times rétt fyrir klukkan sjö í kvöld.

Enn fundað í fjárlaganefnd

Kristján Þór Júlíusson, einn fulltrúa Sjálfstæðisflokks í fjárlaganefnd, segir enn unnið að fyrirvaraleiðinni í nefndinni. Enn hefur nefndin ekki náð saman.

Tollverðir felldu líka kjarasamninga

Tollverðir felldu í dag nýjan kjarasamning félagsins sem undirritaður var 3. júlí síðastliðinn. Á kjörskrá voru 115, en alls greiddu 48 atkvæði í rafrænni kosningu á heimasíðu Tollvarðafélagsins.

Fjórir lögreglubílar stöðvuðu einn á Sæbrautinni

Fjórir lögreglubílar stöðvuðu einn fólksbíl á Sæbrautinni milli klukkan 21 og 22 í kvöld. Lögregla vildi ekki gefa neinar upplýsingar um hvað væri á seyði, en staðfesti hins vegar að slíkur fjöldi bíla hefði farið í mál á svæðinu.

Dýrbítur gengur laus í Mosfellsdalnum

Hreinn Ólafsson, bóndi í Helgadal segir að bændur á svæðinu hafi síðasta hálfa mánuðinn fundið sex dauðar ær sem augljóslega hafi veið drepnar af hundi.

Sjá næstu 50 fréttir