Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Þjóðstjórn besti möguleikinn Þjóðstjórn er besti möguleikinn í stöðunni að mati Steingríms J. Sigfússonar formanns Vinsti grænna. Hann segist ekki hins vegar ekkert hafa rætt við forystumenn Samfylkingarinnar í dag. Steingrímur segir að sér virðist að ríkisstjórnin sé á síðustu metrunum. Upplausnarástand sé á stjórnaheimilinu. 25.1.2009 18:51
Stefnt að framboði grasrótarhreyfinga Á fundi talsmanna fjölmargra grasrótarhreyfinga um lýðræðisumbætur í dag var samþykkt að vinna að framboði við næstu kosningar. 25.1.2009 19:54
Þyrla sækir ökklabrotinn mann við rætur Esju Þegar þyrla Landhelgisgæslunnar lenti nú á sjötta tímanum við Landspítalann með slasaðan vélsleðamann, sem féll ofan í gili við Landamannalaugir, fór hún strax í annað útkall. 25.1.2009 17:55
Jón hættir líka í Seðlabankanum Jón Sigurðsson gerir ráð fyrir að biðjast lausnar úr starfi sínu í stjórn Seðlabanka Íslands, en hann er varaformaður stjórnarinnar skipaður af Samfylkingunni. Fyrr í dag lét hann af störfum sem stjórnarformaður Fjármálaeftirlitsins. Frá þessu er greint á vefsíðu DV. 25.1.2009 17:47
Ingibjörg komin til Geirs Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, er komin til Geirs H. Haarde, formanns Sjálfstæðisflokksins, til að funda með honum á heimili hans í Vesturbænum. Með henni er Össur Skarphéðinsson. 25.1.2009 17:15
Vonar að Davíð verði látinn fara úr Seðlabankanum Ragnheiður Ríkharðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks, vonar að Sjálfstæðisflokkurinn sjái til þess að Davíð Oddsson, seðlabankastjóri og fyrrum formaður flokksins, verði látinn víkja. Hún segir að með afsögn Björgvins G. Sigurðarssonar, Viðskiptaráðherra, og stjórnar Fjármálaeftirlitsins hafi ákveðið skref verið stigið. Þetta kom fram í fréttum Ríkisútvarpsins. Ragnheiður vonar að flokkur sinn hafi kjark til að stíga sama skref með bankaráð bankastjóra Seðlabankans. 25.1.2009 17:05
Mikið að gera hjá Landhelgisgæslunni - þyrla sækir mann Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar hefur haft í nógu að snúast í dag. Klukkan rúmlega þrjú barst beiðni í gegnum Neyðarlínuna um aðstoð þyrlu við að sækja mann í Landmannalaugar sem féll ofaní gil. Að sögn félaga mannsins var vonlaust að komast að staðnum og nálægar Björgunarsveitir Slysavarnarfélagsins Landsbjargar voru kallaðar út. 25.1.2009 16:40
Nokkur hundruð mótmæltu ofbeldi Nokkur hundruð manns komu saman á Lækjartorgi í dag og mótmæltu ofbeldi og eignarspjöllum. Hugsunin á bak við fundinn var að skapa tækifæri fyrir fólk, sama hvaða stjórnmálaskoðanir þeir hafi til að mótmæla þeim ofbeldisaðferðum sem afmarkaður hópur hefur beitt að undanförnu. 25.1.2009 16:36
Jónas hættir 1. mars Stjórn Fjármálaeftirlitsins gekk í dag frá samkomulagi um starfslok Jónasar Fr. Jónssonar, forstjóra eftirlitsins, frá 1. mars. 25.1.2009 16:15
Viðurkennir að hafa ekið á mann og keyrt í burtu Karlmaður á þrítugsaldri hefur viðurkennt að hafa ekið á ungan mann á Laugaveginum í Reykjavík í fyrrinótt og stungið af. Maðurinn sem fyrir bílnum varð hlaut höfuðáverka og var fluttur lífhættulega slasaður á slysadeild þar sem hann liggur enn. 25.1.2009 15:44
Fundað á heimilum Geirs og Ingibjargar Algjör óvissa ríkir um hvort ríkisstjórnin lifi út daginn og er talið allt eins líklegt að stjórnarslit verði áður en þessi sólarhringur er allur. Forystumenn stjórnarflokkanna áttu klukkustundarlangan fund á heimili Geirs H. Haarde forsætisráðherra í hádeginu um framhald samstarfsins. 25.1.2009 15:28
Mótmælendur á Lækjartorgi og Austurvelli Mótmælafundur gegn ofbeldi og eignarspjöllum hófst á Lækjartorgi nú klukkan þrjú. Tilgangurinn er að hvetja fólk til að beita ekki ofbeldi í mótmælum. Þar eru á fimmta tug mótmælenda samankomnir. 25.1.2009 15:06
Framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar: Bíðum ekki eftir Sjálfstæðisflokknum ,,Samfylkingin hefur mikið verk að vinna á næstu 100 dögum. Við munum ekki hlaupast frá erfiðum verkum en hitt er morgunljóst að við munum ekki bíða lengur eftir því að samstarfsflokkurinn leggist á árarnar með okkur í bráðnauðsynlegum björgunaraðgerðum," segir Skúli Helgason, framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar, í leiðara á vefsíðu flokksins. 25.1.2009 14:28
Samfylkingarfólk segir afsögn Björgvins koma of seint Oddný Sturludóttir, borgarfulltrúi, fagnar afsögn Björgvins G. Sigurðssonar sem viðskiptaráðherra og segist hafa í langan tíma talað fyrir því að hann léti af embætti. ,,En mikið ósköp er þetta seint í rassinn gripið," segir Oddný á vefsíðu sinni. 25.1.2009 14:04
Utanþingsstjórn vænlegur kostur Einar Mar Þórðarson, stjórnmálafræðingur við Háskóla Íslands, segir að hér sé stjórnarkreppa og að utanþingsstjórn sé vænlegur kostur í stöðunni. Hann telur að stjórnmálaflokkarnir eigi í ljósi stjórnmálaástandsins og veikinda formanna stjórnarflokkanna að íhuga myndun utanþingsstjórnar. 25.1.2009 13:37
Ræða ekki um mannabreytingar - óvíst hvort að stjórnin haldi velli Forystumenn ríkisstjórnarinnar ræddu ekki breytingar á ríkisstjórninni eða yfirstjórn Seðlabankans, að sögn Geirs H. Haarde, forsætisráðherra. Hann teludr óvíst hvort að ríkisstjórnin haldi velli. Þetta sagði Geir við fréttamenn fyrir utan heimili sitt en þar funduðu forystumenn stjórnarnarflokkanna sem hófst fyrir hádegi. Þeim fundi er lokið. 25.1.2009 13:05
Efast um að stjórnin lifi daginn af Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, telur að Björgvin G. Sigurðsson hafi áttað sig á því að ríkisstjórnin eigi ekki langt eftir og hafi þar af leiðandi sagt af sér. Sigmundur segir að það eigi hugsanlega eftir að gagnast honum. 25.1.2009 12:47
Ákvörðun Björgvins eðlileg - vill þjóðstjórn Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, segir mikil tíðindi felast í ákvörðun Björgvins G. Sigurðssonar að láta af embætti viðskiptaráðherra. ,,Ég skil vel afstöðu Björgvins og tel að hún sé eðlileg og rétt." 25.1.2009 12:28
Funda á heimili Geirs Formenn stjórnarflokkanna, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Össur Skarphéðinsson funda nú á heimili Geirs H. Haarde, forsætisráðherra. Óvissa ríkir um ríkisstjórnarsamstarfið en afsögn Björgvins G. Sigurðssonar þykir þó hafa aukið líkur á að stjórnin haldi velli. 25.1.2009 12:12
Afsögn Björgvins kemur Ingibjörgu á óvart Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, segir að afsögn Björgvins G. Sigurðassonar sem viðskiptaráðherra hafi komið sér mjög á óvart. Hún segir að Björgvin hafi staðið sig vel sem viðskiptaráðherra. Formaðurinn segir jafnframt of snemmt að segja hver taki við viðskiptaráðuneytinu. Nánar verður rætt við Ingibjörgu í hádegisfréttum sem verður sjónvarpað beint. 25.1.2009 11:51
Þiggur ekki biðlaun Björgvin G. Sigurðsson hefur tilkynnt ráðuneytisstjóra viðskiptaráðuneytisins að hann afsali sér rétti til biðlauna ráðherra. Björgvin tilkynnti um afsögn sína sem viðskiptaráðherra á fundi með blaðamönnum áðan. 25.1.2009 11:32
Allir flokkar axli ábyrgð - vill þjóðstjórn ,,Þó fyrr hefði verið," segir Magnús Þór Hafsteinsson, varaformaður Frjálslynda flokksins aðspurður um afsögn Björgvins G. Sigurðssonar og stjórnenda Fjármálaeftirlitsins. 25.1.2009 11:22
Ríkisstjórnin er að bregðast við þrýstingi ,,Þetta er afleiðing af þeim mikla þrýstingi sem til er orðinn í samfélaginu um meiriháttar uppstokkun í stjórnsýslunni og kröfuna um lýðræðislegt uppgjör með kosningum. Ríkisstjórnin er að drattast til að stíga skref sem hún hefði átt að vera búinn að fyrir löngu síðan," segir Ögmundur Jónssonar, þingflokksformaður Vinstri grænna, um afsögn Björgvins G. Sigurðssonar. 25.1.2009 11:13
Afsögn Björgvins kemur 3 mánuðum of seint Eygló Harðardóttir, þingmaður og ritari Framsóknarflokksins, segir að afsögn Björgvins G. Sigurðssonar sem viðskiptaráðherra komi alltof seint. 25.1.2009 10:58
Hádegisfréttum sjónvarpað Hádegisfréttatími fréttastofu verður sendar út í beinni útsendingu á Stöð 2, Bylgjunni og Vísi. Rætt verður við Einar Mar Þórðarson, stjórnmálafræðing, og Steingrím J. Sigfússon, formann Vinstri grænna. 25.1.2009 10:42
Björgvin, Jónas og stjórn FME láta af störfum Björgvin G. Sigurðsson hefur sent Geir H. Haarde, forsætisráðherra, bréf þar sem hann biðst lausnar sem viðskiptaráðherra. Björgvin greindi frá þessu á fundi með blaðamönnum. Jafnframt tilkynnti hann að Jónas Fr. Jónsson, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, og stjórn Fjármálaeftirlitsins láti af störfum. 25.1.2009 10:38
Formennirnir funda á eftir Geir H. Haarde forsætisráðherra og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra ætla að hittast fundi í dag til að ræða stjórnarsamstarfið. Mikil óvissa er um framhald þess og hefur Ingibjörg fundað stíft með flokksmönnum sínum um helgina til að ræða málin. Innan Samfylkingarinnar eru skiptar skoðanir um hvort að halda eigi samstarfinu áfram og hafa nokkur aðildarfélaganna ályktað um að slíta eigi því strax. Ingibjörg Sólrún fundaði með formönnum allra aðildarfélaganna í gær og með stjórn Samfylkingarinnar. 25.1.2009 10:15
Björgvin segir líklega af sér Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra hefur boðað til fréttamannafundur nú klukkan hálfellefu. Samkvæmt heimildum fréttastofu er líklegt að Björgvin tilkynni um afsögn sína sem ráðherra. 25.1.2009 10:12
Opið í Bláfjöllum Skíðasvæðið í Bláfjöllum verður opið í dag og voru lyftur gangsettar nú klukkan tíu en þar verður hægt að skíða til klukkan fimm síðdegis. Að sögn Magnúsar Árnasonar, framkvæmdastjóra skíðasvæða, er logn í Bláfjöllum og hiti við frostmark og segir hann allt stefna í frábæran dag í fjöllunum. Þess má þó geta að Vegagerðin varar ökumenn við flughálku á Bláfjallavegi. 25.1.2009 10:02
Varað við hálku Vegagerðin varar enn við hálku víða um land, einkum á fáfarnari þjóðvegum og heiðum. Hálkublettir eru á Hellisheiði og í Þrengslum og flughált í kringum Þingvallavatn og á Bláfjalla- og Krýsuvíkurleið. Á Holtavörðuheiði gengur á með éljum, einnig á Fróðárheiði og í Svínadal og flughált er á Skógarströnd. Á Norðurlandi er skafrenningur bæði á Öxnadalsheiði og á Þverárfjalli og hálkublettir víða á vegum. 25.1.2009 10:00
Eldur í Garðinum Eldur kom upp í bílskúr í Garðinum rétt eftir klukkan ellefu í gærkvöldi. Þar hafði kviknað í jeppa, sem geymdur var í skúrnum en bíllinn var ekki á skrá. Slökkviliðið frá Brunavörnum Suðurnesja kom á staðinn og slökkti eldinn. Allt brann, sem brunnið gat í bifreiðinni, og bílskúrinn er skemmdur af sóti. 25.1.2009 09:58
Björgvin boðar til blaðamannafundar Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra hefur boðað til fréttamannafundur nú klukkan hálfellefu og er búist við tíðindum sem tengjast framhaldi stjórnarsamstarfsins. Háværar raddir hafa verið allt frá bankahruninu í haust að Björgvin viki sem ráðherra bankamála og forystumenn Seðlabanka og Fjármálaeftirlitsins færu sömuleiðis. Líklegt þykir að einhver tíðindi af þessu tagi verði kynnt í dag. 25.1.2009 09:55
Gagnrýna ákvörðun um aukningu þorskkvóta Miðstjórn Frjálslynda flokksins harmar þá ákvörðun ríkisstjórnar við aukningu þorskkvótans um 30.000 tonn skuli í ekki farið að áliti Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna um að auka jöfnuð í þjóðfélaginu með því að ráðstafa auknum afla um leigumarkað til allra sem gera út á botnfiskveiðar og að leigutekjur renni í ríkissjóð. Þannig yrði opnað fyrir nýliðun í sjávarútvegi og komið til móts við álit Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna. 25.1.2009 09:40
Rólegt hjá lögreglu Nóttin var róleg hjá lögreglu um land allt. Fjölmörg þorrablót fóru fram í gærkvöldi og virðast þau hafa farið vel fram. 25.1.2009 09:32
Utanþingsstjórn nauðsynleg Neyðarstjórn kvenna skorar á forseta, ríkisstjórn og Alþingi Íslendinga að skipa utanþingsstjórn yfir landinu hið fyrsta. ,,Ráðamenn þjóðarinnar verða að axla ábyrgð á því efnahagslega hruni sem hér hefur orðið með því að setja stjórn ríkisins í hendurnar á færustu sérfræðingum sem völ er á fram að kosningum," segir í tilkynningu. 25.1.2009 09:09
Ofbeldi mótmælt á morgun Mótmæli gegn ofbeldi og eignaspjöllum munu fara fram á morgun, sunnudag, klukkan. 15 á Lækjartorgi. ,,Tilgangur mótmælanna er að hvetja samborgara okkar til að beita ekki ofbeldi í mótmælum sínum. Þetta er hugsað sem tækifæri fyrir alla, sama hvaða stjórnmálaskoðun þeir hafa, til að sýna að þeir viðurkenna ekki ofbeldi sem aðferð til að koma skoðunum á framfæri," segir í tilkynningu. 24.1.2009 20:45
Mikið fjallað um lopapeysurnar Lopavörusöfnun fyrir aldraða Breta sem Bítíð á Bylgjunni hratt af stað á dögunum hefur vakið töluverða athygli í Bretlandi og breskir miðlar fjallað ítarlega um hana. Söfnuninni lauk á þriðjudaginn og gámur með lopavörum kemur til Hull í Bretlandi á fimmtudaginn. Fjallað verður um söfnunina í vinsælum morgunþætti BBC eftir helgi. 24.1.2009 19:28
Ísland reist við í Dimmuborgum Á fimmta tug mótmælanda komu saman á Hallarflötinni í Dimmuborgum í dag. Þema fundarinns var að hjálpast að við að reisa fallið Ísland frá jörðu. Koma undir það styrkari stoðum og gera þar með kleift að hefja uppbyggingu á ný. 24.1.2009 20:19
Lottópotturinn gekk ekki út - þrefaldur næst Lottópotturinn gekk ekki út að þessu sinni og verður þrefaldur næsta laugardag og stefnir í 15 milljónir. Tveir voru með fjórar réttar tölurauk bónustölu og hlýtur hvor þeirra 109.980 krónur. Miðarnir voru seldir í Vitanum, Laugavegi 62 í Reykjavík og Happahúsinu í Kringlunni. 24.1.2009 20:09
Teflt með Hitler á Kjarvalsstöðum Taflmaður í líki Adolfs Hitlers er meðal þess sem sjá má á óvenjulegri sýningu sem opnuð var á Kjarvalsstöðum í dag. Þar má sjá skákborð og taflmenn sem listamenn víða að úr heiminum hafa gert, einnig skáksett íslenskra listamanna, meðal annars útitaflmenn Jóns Gunnars Árnasonar. 24.1.2009 19:01
Fánagerðin á Langanesi eflist Fánarnir á forsetabílinn og fánar IDOL-keppninnar á Stöð 2 eiga það sammerkt að koma frá Þórshöfn á Langanesi en þar er stærsta fánagerð á Íslandi. Gengisfall krónunnar hefur styrkt samkeppnisstöðuna gagnvart innflutningi. 24.1.2009 18:57
Nýtt þingframboð kynnt á næstunni Hópur fólks úr ýmsum grasrótarsamtökum undirbýr nú framboð fyrir alþingiskosningar í vor og er ætlunin að kynna stefnumál og skipulag á næstum dögum. Stefnt er að framboði í öllum kjördæmum. Þetta kom fram í fréttum Ríkisútvarpsins. 24.1.2009 18:18
Þingmenn styðja Bjarna Þingmennirnir Birgir Ármansson, Ólaf Nordal og Sigurður Kári Kristjánsson styðja öll Bjarna Benediktsson, sem næsta formann Sjálfstæðisflokksins. Þetta kemur fram í sunnudagsblaði Morgunblaðsins. 24.1.2009 17:48
Fundi stjórnar Samfylkingarinnar lauk á fimmta tímanum Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, hélt skömmu fyrir klukkan fimm af heimili sínu og er talið að hún hafi verið á leið til fundar við Geir H. Haarde, formann Sjálfstæðisflokksins til að ræða um framhald stjórnarsamstarfsins. 24.1.2009 17:45
Fundi stjórnar Samfylkingarinnar lokið Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, hélt nú skömmu fyrir klukkan fimm af heimili sínu og er talið að hún hafi verið á leið til fundar við Geir H. Haarde, formann Sjálfstæðisflokksins til að ræða um framhald stjórnarsamstarfsins. 24.1.2009 17:09