Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Rannsaka þarf hvort lög hafi verið brotin hjá FL Group Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra telur að þar til bærum yfirvöldum beri að rannsaka það hvort ólöglega hafi verið staðið að flutningi á þremur milljörðum króna úr FL Group fyrir þremur árum. Þetta sagði hann í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag. 10.11.2008 16:02
Minna heimilissorp í kreppunni ,,Magn heimilissorps sem safnað var í október á þessu ári er um 16% minna en í október í fyrra,“ segir Guðmundur B. Friðriksson hjá Umhverfis- og samgöngusviði Reykjavíkurborgar í tilkynningu. 10.11.2008 16:02
Engin áform um að flýta kosningum að svo stöddu Geir H. Haarde forsætisráðherra segir engin áform um að flýta kosningum að svo stöddu. Þetta kom fram í svari hans við fyrirspurn Steingríms J. Sigfússonar, formanns Vinstri - grænna. 10.11.2008 15:37
Verð hækkar mest í lágvöruverslunum Vörukarfa ASÍ hækkaði um 9% til 28% í helsu verslunarkeðjum frá miðjum apríl til októberloka. Mestar hækkanir á verð vörukörfunnar voru í lágvöruverðsverslunum. Verðlagseftirlit ASÍ mælir breytingar á verði vörukörfu sem getur endurspeglað almenn innkaup meðalheimilis. 10.11.2008 15:24
Ekki útlit fyrir að lífeyrir skerðist hjá Lífeyrissjóði verslunarmanna Útlit er fyrir að ekki þurfi að lækka lífeyri og önnur réttindi hjá Lífeyrissjóði verslunarmanna um næstu áramót samkvæmt tryggingafræðilegri úttekt sem sjóðurinn hefur látið gera. 10.11.2008 14:47
Fá ekki að hitta Guðlaug Þór Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi og formaður SÁÁ, segir að framkvæmdastjórn SÁÁ fái ekki áheyrn hjá Guðlaugi Þór Þórðarsyni heilbrigðisráðherra. 10.11.2008 14:27
Um 400 milljóna króna styrkur til rannsókna í kerfislíffræði Dr. Bernhard Örn Pálsson, gestaprófessor við Háskóla Íslands og prófessor í lífverkfræði við University of California, San Diego hefur hlotið 2,4 milljóna evra styrk frá Evrópska rannsóknarráðinu til rannsókna í kerfislíffræði. 10.11.2008 13:16
Afhentu Gunnari undirskriftalista - Félagsfundur á fimmtudaginn Kristófer Jónsson, félagi í VR, segir mótmælastöðu við höfuðstöðvar VR í hádeginu í dag hafa heppnast vel og fleiri félagsmenn hafi mætt en fyrir helgi. 10.11.2008 12:51
Fimm fíknefnamál í Reykjavík Fimm fíkniefnamál komu til kasta lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Við sögu komu jafnmargir karlar en þeir voru allir teknir í Reykjavík, þrír í miðborginni og einn í Hlíðunum og Árbæ. 10.11.2008 12:32
Sjötíu prósent vilja flugvöllinn áfram í Vatnsmýrinni Meirihluti landsmanna, eða 70 prósent, vill að Reykjavíkurflugvöllur verði áfram á sínum stað í Vatnsmýrinni. Þetta kemur fram í skoðanakönnun sem Capacent Gallup vann í september og byrjun október fyrir Flugstoðir. 10.11.2008 12:21
Óskar: Reglum breytt svo fólk þurfi síður að skila lóðum Óskar Bergsson, formaður borgarráðs og framkvæmda- og eignaráðs, staðfestir að Reykjavíkurborg sé hætt að taka við lóðum frá fólki sem vill skila þeim inn eins og greint var frá fyrr í dag. Hann segir þetta tímabundna ákvörðun en verið sé að vinna að breytingum á skilmálum lóðaúthlutana sem hann segir miða að því að auðvelda fólki að halda lóðum sínum og byggja á þeim. 10.11.2008 12:14
Von á breskum og hollenskum sendinefndum Von er á breskri sendinefnd frá Kent sýslu í þessari viku. Ætlar fulltrúar sýslunnar að freista þess að fá til baka 50 milljónir punda, eða um tíu milljarða króna miðað við seðlabankagengi, sem lagðar voru inn á reikninga íslensku bankanna í Bretlandi. Þá er einnig von á sendinefnd frá Hollandi í þessari viku. 10.11.2008 12:08
ESB-aðild og svo evra í stað einhliða upptöku evru Valgerður Sverrisdóttir, varaformaður Framsóknarflokksins, telur að Íslendingar eigi að taka upp evruna í framhaldi af aðild að Evrópusambandinu fremur en að taka evruna einhliða upp líkt og lagt hefur verið til. 10.11.2008 11:56
Ekkert ESB-lán fyrr en Icesave-deilan leysist Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins ætlar ekki að veita Íslendingum lán nema gengið verði frá skuldbindingum vegna Icesave fyrst. Reuters fréttastofan hefur þetta eftir Johannesi Laitenberger, talsmanni framkvæmdastjórnarinnar. 10.11.2008 11:55
Lést af áverkum af mannavöldum Bráðabirgðaniðurstöður krufningar á líki mans, sem lést sumarbústað í Grímsnesi um helgina, benda ótvírætt til þess að hann hafi látist af áverkum sem hann hlaut af mannavöldum. 10.11.2008 11:42
Borgin hætt að taka við lóðum Reykjavíkurborg er hætt að taka við lóðum frá fólki og endurgreiða lóðagjöld eftir því sem segir á vef Neytendasamtakanna. 10.11.2008 11:24
Áflogaseggir handteknir í Bolungarvík Tveir menn gistu fangageymslur á Ísafirði vegna ölvunar og óspekta aðfaranótt sunnudagsins. 10.11.2008 11:11
Verið að drepa málum á dreif með tali um einhliða upptöku evru Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar, segir að verið sé að drepa málum á dreif með því að velta upp hugmyndum um einhliða upptöku evru. Kostirnir séu í raun tveir, krónan og evran, og sú fyrrnefnda eigi sér nú fáa formælendur. 10.11.2008 10:52
Mótmæli gegn VR halda áfram Mótmælastöðu verður fram haldið við höfuðstöðvar VR í Húsi verslunarinnar í hádeginu í dag. Kristófer Jónsson, félagi í VR segist vonast til að sem flestir sjái sér fært að mæta. Til stendur að afhenda undirskriftalista þar sem óskað er eftir félagsfundi í VR en mótmælendurnir eru óánægðir með framgöngu formanns VR og stjórnarinnar í heild sinni. 10.11.2008 10:23
Varað við hvassviðri á Kjalarnesi og í Staðarsveit Vegagerðin varar við hvassviðri, svo sem á Kjalarnesi og í Staðarsveit, þar sem vindhviður hafa verið yfir 30 metrum á sekúndu. 10.11.2008 08:54
Þungt haldin eftir bílslys Kona á níræðisaldri, sem varð fyrir bíl á Akranesi í gærkvöldi og var flutt á alysadeild Landspítalans í Reykjavík, liggur þungt haldin á gjörgæsludeild spítalans. 10.11.2008 07:13
Segir engin lög hafa verið brotin Hannes Smárason segir að engin lög hafi verið brotin og vísar ásökunum Morgunblaðsins um ólögmætar peningamillifærslur á bug. Morgunblaðið segir frá því í morgun að heimildir blaðsins hermi að FL, sem Hannes gegndi stjórnarformennsku í, hefði flutt 3 milljarða króna á reikning hjá Kaupþingi í Lúxemborg. Þeir fjármunir hafi síðan verið notaðir af Pálma Haraldssyni til kaupa á Sterling flugfélaginu. 9.11.2008 20:41
Vill að viðskipta- og fjármálaráðherra axli ábyrgð á ástandinu Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ sagði í Mannamáli á Stöð 2 í kvöld að viðskipta- og fjármálaráðherra ættu að axla ábyrgð á atburðum síðustu vikna og taka poka sinn. Einnig kom fram í þættinum að samtök atvinnulífsins og ASÍ vinna að efnahagspakka sem vonandi endar með þjóðarsátt. 9.11.2008 20:01
Öll úrskurðuð í gæsluvarðhald Tvær konur og einn karlmaður voru í kvöld úrskurðuð í gæsluvarðhald til 28.nóvember í tengslum við mannslát í sumarbústað í Grímsnesi í gærmorgun. Áður hafði annar karlmaður verið úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna málsins. 9.11.2008 20:34
Kreppan hér er alvarlegri en sú sem Finnar upplifðu Sú kreppa sem Íslendingar standa frammi fyrir er mun alvarlegri en það sem Finnar upplifðu á árunum 1990 til 1994. Er þá sama hvaða hagfræðilegi mælikvarði er notaður. Þetta er mat Jóns Baldvins Hannibalssonar, fyrrverandi utanríkisráðherra og sendiherra í Finnland. 9.11.2008 18:47
Hundruðum barna vísað frá heimilum ABC í Kenýa Hundruð barna sem hafa búið á heimili ABC barnahjálpar í Kenýa var í gær vísað frá. Starfsemi ABC í Kenýa er í algeru uppnámi eftir að vopnað rán var framið á skrifstofu samtakanna. 9.11.2008 18:41
Eldarnir brenna - við þurfum að skipta út krónunni á næstu vikum Við erum í kapphlaupi við tímann, eldarnir brenna enn og við þurfum að skipta út krónunni á næstu vikum. Þetta segir Baldur Pétursson, aðstoðarframkvæmdastjóri Þróunarbanka Evrópu. 9.11.2008 18:37
Ikea vísitalan hækkar um 47% Ikea vísitala Stöðvar tvö hefur hækkað um fjörutíu og sjö prósent frá því bæklingur sænsku verslanakeðjunnar var dreift á heimili landsins í fyrra. Hvort IKEA-vísitalan veitir vísbendingu um verðhækkanir á innfluttum vörum er óvíst - því kollsteypa krónunnar gagnvart evru var 90% á sama tíma. 9.11.2008 19:30
Björn um synjun forsetans á fjölmiðlalögunum Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra landsins skrifar pistil á heimasíðu sína í dag. Þar veltir hann m.a fyrir sér stöðu fjölmiðla á Íslandi og segir það ótrúleg tíðindi ef það teljist samrýmast eðlilegri skipan „fjórða valdsins“ að sami eigandi sé þungamiðjan í verslunarrekstri í landinu og öllum fjölmiðlum nema RÚV og Viðskiptalblaðsins. 9.11.2008 16:54
Kreppubrandarar óskast Sem betur fer hefur skopskynið ekki svikið Íslendinga þótt á móti blási. Allskonar brandarar eru á ferð og flugi um netið, sumir í orðum aðrir í myndum. 9.11.2008 16:10
Gæsluvarðhalds krafist yfir fjórða manninum Lögreglan á Selfossi hefur farið fram á gæsluvarðhaldsúrskurð yfir fjórða manninum sem handtekinn var síðdegis í gær vegna mannsláts í sumarbústað í Grímsnesi. Ákvörðun dómari mun liggja fyrir síðar í dag. 9.11.2008 14:44
Þýðir ekkert fyrir Breta að senda okkur Icesavereikning Það þýðir ekkert fyrir Breta að senda okkur reikninginn fyrir innistæðum sparifjáreigenda hjá Icesave, segir Geir H. Haarde forsætisráðherra. 9.11.2008 12:16
Einn í gæsluvarðhald vegna mannsláts í sumarbústað Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 28.nóvember vegna mannslát í sumarbústað í Grímsnesi í gær. Maðurinn var handtekinn ásamt tveimur öðrum konum á staðnum. Lögregla fór einnig fram á að konurnar yrðu úrskurðaðar í gæsluvarðhald en dómari tók sér frest þar til síðar í dag til þess að kveða upp úrskurð varðandi þær. 9.11.2008 11:34
Feðradagur í skugga fjármálakreppu Feðradagurinn er haldinn í dag í þriðja skiptið en það er félag Foreldra um jafnrétti sem stendur að deginum. Lúðvík Börkur Jónsson formaður félagsins segir að í upphafi hafi krafan um daginn einfaldlega komið vegna mæðradagsins. Dagurinn á að minna fólk á stöðu og réttindi barna og feðra sem ekki búa við hefðbundið fjölskyldumynstur. 9.11.2008 11:09
Ráðherrabústaðnum lokað vegna aðgerðarleysis Lögreglan fjarlægði borða sem settir höfðu verið upp við Ráðherrabústaðinn í Tjarnargötu í nótt. Samkvæmt heimildum Vísis sáu einhverjir sig knúna til þess að líma fyrir gluggana og strengja borða við innganginn með áletruninni „Lokað vegna aðgerðarleysis“. 9.11.2008 10:05
Mannslát í sumarbústað: Hinir handteknu enn í haldi Fólkið sem handtekið var í tengslum við mannslát í sumarbústað rétt fyrir utan Selfoss í gær er enn í haldi að sögn lögreglu. Um hálf níu leytið í gærmorgun hafði maður samband sem hafði komið að félaga sínum látnum í sumarbústað sem þeir gistu í ásamt tveimur konum. Lögregla og sjúkralið fóru á staðinn og var hann úrskurðaður látinn. Maðurinn er útlendingur en þrír samlandar hans voru handteknir á staðnum. Lögregla rannsakar nú málið og segir frekari frétta að vænta síðar í dag. 9.11.2008 09:46
Manni bjargað úr sjónum við Kirkjusand - annar stunginn í miðbænum Lögreglan fékk símtal frá skokkara við Kirkjusand snemma í morgun. Tilkynnti hann um mann á miðjum aldri sem kominn var út í sjó. Þegar lögregla kom á staðinn var vatnið komið upp að mitti. Honum var komið undir læknishendur. 9.11.2008 09:27
Strætisvagn og fólksbílar í hörðum árekstri - þrír fluttir á sjúkrahús Nokkkuð harður árekstur varð á gatnamótum Hringbrautar og Njarðargötu fyrir stundu. Um er að ræða strætisvagn og tvo fólksbíla. Búið er að loka Hringbrautinni í austurátt við Þjóðminjasafnið og í vesturátt á gatnamótunum við BSÍ. 8.11.2008 19:30
Alþingishúsið grýtt með eggjum - aðsúgur gerður að lögreglu Lögreglan segir að á fjórða þúsund manns sé samankominn á Austurvelli að mótmæla ástandinu. Að sögn sjónarvotta var aðsúgur gerður að lögreglunni auk þess sem eggjum rigndi yfir Alþingishúsið. 8.11.2008 15:49
Maðurinn fannst látinn í sumarbústað Í tilkynningu frá lögreglunni á Selfossi vegna mannslát rétt fyrir utan bæinn kemur fram að rétt fyrir hálf níu í morgun hafi maður haft samband og sagst hafa komið að félaga sínum látnum í sumarbústað sem þeir gistu í ásamt tveimur konum. 8.11.2008 16:31
Mikil reiði á borgarafundi í Iðnó Fullt var út úr dyrum á borgarafundi í Iðnó sem var að ljúka fyrir stundu. Þingmenn frá öllum flokkum létu sjá sig á fundinum og greinilegt var að fólki var heitt í hamsi. Enginn formaður stjórnmálaflokks lét sjá sig að Ómari Ragnarssyni frá Íslandshreyfingunni undanskildnum og Steingrími J Sigfússyni formanni Vg. 8.11.2008 14:53
Rannsaka mannslát rétt fyrir utan Selfoss Tilkynning um mannslát barst lögreglunni á Selfossi í morgun en nú fer fram vettvangsathugun. Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður á Selfossi segir að mannslát séu alltaf rannsökuðu hvort sem grunur um sakhæft athæfi sé eða ekki. Hann vill annars lítið gefa uppi um rannsóknina sem er í fullum gangi. 8.11.2008 13:13
Ekki vera þolandi, vertu þáttakandi Ekki vera þolandi, vertu þátttakandi - er yfirskrift tveggja kreppusamkoma í Reykjavík í dag. Klukkan eitt hefst opinn borgarafundur um stöðu þjóðarinnar í Iðnó. Öllum stjórnmálamönnum, seðlabankastjórum og bankastjórum er boðið að mæta til að svara spurningum Íslendinga milliliðalaust. 8.11.2008 10:07
Mikill erill í höfuðborginni - 140 bókanir Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var þónokkur erill hjá lögreglunni í nótt. Eftir gærkvöldið og nóttina liggja 140 bókanir sem telst nokkuð mikið. Níu aðilar voru teknir fyrir meinta ölvun við akstur auk þess sem 5 líkamsárásir voru tilkynntar lögreglu. 8.11.2008 09:19
Ríkið ekki trúverðugur eigandi bankanna Vilhjálmur Egilsson framkvæmdarstjóri samtaka atvinnulífsins segir ríkið ekki trúverðugan eiganda bankanna gagnvart erlendum kröfuhöfum. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í morgun. 8.11.2008 09:04