Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Matur er mannsins megin Matarsjúkdómar og hættur tengdar þeim er einn þeirra málaflokka sem krufnir verða til mergjar á ráðstefnunni Matur, öryggi og heilsa sem Matís og Matvælastofnun standa sameiginlega að á Hótel Hilton Nordica á morgun. 15.4.2008 15:27
Tilbúinn að ræða flutning lögreglu á Höfn yfir í Suðurkjördæmi Björn Bjarnason dómsmálaráðherra er tilbúinn að ræða þá hugmynd að lögreglan á Höfn í Hornafirði verði fremur hluti af lögregluliði Suðurlands en Austurlands ef það er vilji heimamanna og lögreglu að tengjast lögreglustjóra innan sama kjördæmis. Þetta kemur fram í svari hans við fyrirspurn Bjarna Harðarsonar, þingmanns Framsóknarflokksins, um löggæslu á Austurlandi. 15.4.2008 15:26
Saksóknari í Póllandi segist hafa sannanir fyrir sekt Plank Fulltrúi saksóknara í Bydgoszcz í Póllandi segist hafa órækar sannanir fyrir því Premyslaw Plank sé sekur um hrottalegt morð sem framið var í borg síðasta sumar. 15.4.2008 15:15
18 mánuðir fyrir að rjúfa endurkomubann 28 ára gamall Lithái var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í 18 mánaða fangelsi fyrir að rjúfa endurkomubann sem Útlendingastofnun setti hann í árið 2006. 15.4.2008 15:00
Tíðinda að vænta í skattlagningu á eldsneyti á næstunni Tíðinda er að vænta í tillögum nefndar fjármálaráðherra sem skipuð var til þess að endurskoða skattlagningu hins opinbera á olíu og bensín. Þetta kom fram í máli Þórunnar Sveinbjarnardóttur umhverfisráðherra í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag. 15.4.2008 14:35
Kompás í kvöld: Sömu aðilar og fyrir tíu árum Fyrir áratug, í tíð Finns Ingólfsonar þáverandi iðnaðarráðherra, var kannaður möguleiki á því að reisa hér olíuhreinsistöð. Aðallega var horft til Reyðarfjarðar en áformunum var ýtt útaf borðinu þegar ákveðið var að einbeita sér að áliðju og stórvirkjun. 15.4.2008 14:00
Enginn ágreiningur um að auka gjaldeyrisforða Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra segir undirbúning hafinn að því að styrkja gjaldeyrisforða Seðlabankans en niðurstaða sé ekki fengin í það mál. Ráðherra segir ekki ágreining um málið við Seðlabankann en spurning sé hvenær og hvernig forðinn verði aukinn. 15.4.2008 13:54
Að minnsta kosti 1200 teknir af lífi á síðasta ári Að minnsta kosti 1.200 einstaklingar voru teknir af lífi árið 2007 og ríkisvaldið tekur marga aðra til viðbótar af lífi með leynd í löndum eins og Kína, Mongólíu og Víetnam. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Íslandsdeild Amnesty International. 15.4.2008 13:47
Brýnt að tryggja aðgengi banka að ódýru lánsfé Fjármálaráðuneytið segir í nýrri þjóðhagsspá sinni til næstu fimm ára að brýnt sé að Seðlabankinn, hið opinbera og bankarnir sjálfir stígi nauðsynleg skref til að tryggja að kostnaður við fjármögnun erlendis frá endurspegli betur stöðu íslenskra fjármálafyrirækja og hagkerfisins í heild. 15.4.2008 13:32
Telur að undirskrift bróður á erfðaskrá hafi verið fölsuð Maður á Akureyri telur sig hafa orðið af stórfé þar sem undirskrift á erfðaskrá bróður hans hafi verið fölsuð. Líknarfélög missa vænan spón úr aski sínum ef þetta reynist rétt. 15.4.2008 12:26
Trúaði trúbadorinn hýsti bæði morðingja og flóttamann Pólverjarnir Slawomir Sikora, sem myrti tvo mafíósa í Póllandi, og Premyslaw Plank sem sjálfur er grunaður um að vera mafíósi og handtekinn var í gær grunaður um óupplýst í Póllandi voru þar til nýlega báðir leigjendur hjá Guðlaugi Laufdal athafnamanni. 15.4.2008 12:16
Segja röngum verðmerkingum stríð á hendur Röngum verðmerkingum í verslunum verður sagt stríð á hendur. Neytendasamtökin segja alltof algengt að verðupplýsingar í verslunum séu rangar og að verð í hillu sé annnað en verð við kassa. 15.4.2008 12:13
Ákæra í átta liðum Sælgætisþjófnaður, ræktun kannabisplantna, ítrekaður akstur undir áhrifum fíkniefna og tilraun til að smygla fíkniefnum inn í fangelsið í Kópavogi er meðal þess sem tæplega fertugum karlmanni er gefið að sök í ákæru sem þingfest var í gær við Héraðsdóm Reykjavíkur. 15.4.2008 12:07
Sjötíu þúsund bílar á þremur árum Það lætur nærri að 70 þúsund bílar hafi verið fluttir inn til landsins á árunum 2005-2007 og nýjum íbúðum fjölgaði um 10.300 á sama tíma. Hins vegar fjölgaði landsmönnum um tæplega 20 þúsund manns á sama tímabili. 15.4.2008 12:04
Hluti Fífuhvammsvegar lokaður í tvær nætur vegna framkvæmda Fífuhvammsvegur milli Dalvegar og Reykjanesbrautar verður lokaður frá klukkan 19 í kvöld og fram til klukkan níu í fyrramálið vegna steypuvinnu við brú. Sama á við annað kvöld samkvæmt verktakanum sem vinnur að verkinu. 15.4.2008 11:13
Segir eftirlaunafrumvarpið ekki þurfa slímsetu í þingnefnd Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri - grænna, segir að eftirlaunafrumvarp Valgerðar Bjarnadóttur, varaþingmanns Samfylkingarinnar, þurfi ekki neina slímsetu í þingnefnd. 15.4.2008 10:42
Ákærður fyrir vörslu kókaíns Í gær var þingfest ákæra í Héraðsdómi Reykjavíkur á hendur manni á þrítugsaldri sem gefið er að sök að hafa haft í vörslum sínum í söluskyni 30,88 grömm af kókaíni sem lögregla fann við leit. 15.4.2008 10:36
Þrennt dæmt fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi Héraðsdómur Suðurlands dæmdi í dag karlmann í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi með því að hafa verið valdur að hörðum árekstri. 15.4.2008 10:33
Fjármálaráðuneytið bjartsýnna en Seðlabankinn í fasteignamálum Í Þjóðarbúskapnum, þjóðhagsspá fjármálaráðuneytisins er því spáð að fasteignaverð muni lækka um 16 til 17 prósent fram til ársins 2010. Þetta er um helmingi minni lækkun en Seðlabankinn gerir ráð fyrir í nýjustu útgáfu Peningamála. 15.4.2008 10:20
Tafir af völdum umferðaróhapps í nærri klukkustund Töluverðar tafir urðu á umferð á Vesturlandsvegi í Ártúnsbrekku á níunda tímanum vegna umferðaróhapps sem varð laust fyrir klukkan átta. 15.4.2008 09:25
Kompás í kvöld: Rússar fara frjálslega með staðreyndir Katamak, samstarfsaðilar Íslensks hátækniiðnaðar í undirbúningi olíuhreinsistöðvar á Vestfjörðum, fara frjálslega með niðurstöður skoðannakönnunar sem gerð var um áhuga Vestfirðinga og annarra á olíuhreinsistöð. 15.4.2008 09:06
Töluverðar umferðartafir í Ártúnsbrekku vegna slyss Töluverðar umferðartafir eru nú í Ártúnsbrekkunni sökum umferðarslyss sem þar varð fyrir stuttu síðan. 15.4.2008 08:44
Flutningabíll ók inn í hrossastóð, eitt hross aflífað Eitt hross drapst samstundis og aflífa þurfti annað vegna áverka, eftir að flutningabíll ók inn í hrossastóð á þjóðveginum á móts við bæinn Steinstaði í Öxnadal um klukkan ellefu í gærkvöldi. 15.4.2008 07:42
Grunaður um að hafa kveikt í sumarbústað Karlmaður, sem var fluttur á sjúkrahús vegna gruns um reykeitrun, eftir að eldur kom upp í sumarbústað í Miðfellslandi við Þingvallavatn aðfararnótt sunnudags, er grunaður um að hafa kveikt í bústaðnum. 15.4.2008 07:38
Margir ökumenn teknir á of miklum hraða í Kópavogi Sjötíu og tvö prósent ökumanna, sem óku um Dalsmára í Kópavogi á einni klukkustund í gær, mældust á of miklum hraða. 15.4.2008 07:34
Þrettán ungmenni fengu hvatningarverðlaun forseta Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, afhenti 13 ungmennum „Hvatningu forseta Íslands til ungra Íslendinga“ í heimsókn sinni til Skagafjarðar í dag. 14.4.2008 21:30
Neitar aðild að pólsku mafíunni Przemyslaw Plank, sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í kvöld vegna gruns um aðild að hrottalegu morði í Póllandi, segist vera saklaus. 14.4.2008 20:23
Búið að handtaka eftirlýsta Pólverjann Búið er að handtaka Premyslaw Plank sem eftirlýstur var í Póllandi vegna gruns um aðild að morði þar í landi, eftir því sem Friðrik Smári Björgvinsson yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni í Reykjavík segir. 14.4.2008 19:13
Segir ástandið í miðbæ Reykjavíkur mjög alvarlegt Öryggismiðstöðin hefur þurft að fjölga öryggivörðum á ýmsum vaktstöðum á höfuðborgarsvæðinu til að bregðast við vaxandi ofbeldi. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins segir ástandið í miðbæ Reykjavíkur vera mjög alvarlegt. 14.4.2008 18:59
Sex teknir fyrir of hraðan akstur Sex ökumenn voru teknir fyrir of hraðan akstur á Reykjanesbrautinni í dag. Þeir mældust allir á meira en 120 kílómetra hraða á klukkustund þar sem hámarkshraðinn er 90 km/klst. Sá sem hraðast ók fór á 135 km/klst. 14.4.2008 18:38
Samið við ríkisstjórn Djíbúti um hagkvæmnisathugun á nýtingu jarðhita Gengið hefur verið frá samkomulagi milli Reykjavik Energy Invest og ríkisstjórnar Afríkuríkisins Djíbútí um gerð ítarlegrar hagkvæmniathugunar á nýtingu jarðhita í landinu. 14.4.2008 17:24
Krúnukúgarar fyrir rétt í Lundúnum Íslendingurinn Paul Aðalsteinsson kom fyrir rétt í Bretlandi í dag ásamt félaga sínum Sean McGuigan. Þeim er gefið að sök að hafa reynt að kúga fé út úr meðlim bresku konungsfjölskyldunnar. 14.4.2008 17:11
Síminn stuðlar að ábyrgari Netnotkun Síminn hefur ákveðið að bjóða ADSL viðskiptavinum sínum á einstaklingsmarkaði ókeypis aðgang að Websense. Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að Websense sé „ein besta netvörn sem völ er á í heiminum í dag." Lausnin hefur fengið nafnið Netvari Símans og er veigamikill liður í að börn geti leitað sér upplýsinga og skemmtunar á Netinu á jákvæðan og öruggan hátt um leið og Netvarinn ver þau gegn viðsjárverðu efni. 14.4.2008 16:51
Tvennt dæmt fyrir aðild að TR-fjársvikum Þrítugur karlmaður var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í átta mánaða fangelsi fyrir aðild sína að stórfelldu fjársvikamáli í Tryggingastofnun ríkisins. Þá var 52 ára kona dæmd í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir aðild sína að málinu. 14.4.2008 16:39
Einn áfram í gæsluvarðhaldi en hinir í farbann Einn af þeim sex sem setið hafa í gæsluvarðhaldi vegna Keilufellsmálsins svokallaða var úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald nú síðdegis. Hinir fimm voru úrskurðaðir í farbann til 5.maí næstkomandi. 14.4.2008 16:39
Ráðist á ungan mann við skemmtistað á Selfossi Ungur maður var fluttur á heilsugæslustöðina á Selfossi aðfaranótt sunnudags eftir að ráðist var á hann við skemmtistaðinn Hvítahúsið í bænum. 14.4.2008 15:43
Grunaður brennuvargur fluttur á sjúkrahús með reykeitrun Lögreglan á Selfossi rannsakar nú bruna í sumarbústað í Þingvallasveit þar sem grunur er um að kveikt hafi verið í. 14.4.2008 15:36
Lýsismenn segjast tilbúnir með mengunarbúnað Lögmaður Lýsis kannar nú réttarstöðu þess með málshöfðun í huga vegna orða talsmanns íbúa í Þorlákshöfn sem mótmælt hafa því að fyrirtækið reki fiskhausaþurrkunarverksmiðju í bænum með tilheyrandi lyktarmengun. 14.4.2008 15:20
Hvalfjarðargöng lokuð næstu nætur Hvalfjarðargöng verða lokuð næstu nætur vegna viðhalds. Göngunum verður fyrst lokað í nótt og svo allar nætur til og með aðfaranótt föstudags. 14.4.2008 14:37
Rak meintan morðingja Premyslaw Plank, sem grunaður er um aðild að hrottalegu morði í Póllandi, hefur unnið sem iðnaðarmaður í Hafnarfirði undanfarnar vikur. Honum var sagt upp störfum á laugardaginn eftir að Fréttablaðið greindi frá því að handtökuskipan hefði verið gefin út á hendur honum. 14.4.2008 14:30
Dæmdur fyrir að slá mann í höfuðið með glerflösku Héraðsdómur Austurlands dæmdi í dag karlmann í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás með því að hafa slegið annan mann í höfuðið með glerflösku þannig að hann hlaut skurð á höfði. 14.4.2008 14:22
Geð- og kvensjúkdómalæknar spá í spilin „Konan á frjósemisskeiði til tíðahvarfa“ var yfirskrift ráðstefnu sem Geðlæknafélag Íslands stóð fyrir á Hótel Sögu á laugardag í samvinnu við Félag íslenskra fæðinga- og kvensjúkdómalækna. 14.4.2008 14:09
Þrír af hverjum fjórum óku of hratt Þrír af hverjum fjórum ökumönnum sem óku um Grænatún í Kópavogi á einni klukkustund á föstudag óku of hratt samkvæmt mælingum lögreglu. 14.4.2008 13:37
Falið að ræða við HB Granda vegna leigu á kvóta frá Akranesi Bæjarráð Akraness hefur falið formanni verkalýðsfélagsins á staðnum og bæjarstjóra að leita skýringa á því hjá HB Granda, hvers vegna fyrirtækið hefur leigt frá sér umtalsverðar veiðiheimildir á sama tíma að það sagði fjölda fiskvinnslufólks upp á Akranesi. 14.4.2008 13:00
Áhyggjuefni að ríkissjóður komi nær tómhentur út úr góðæri Þorvaldur Gylfason, prófessor í hagfræði, segir það áhyggjuefni að ríkissjóður komi nær tómhentur út úr góðæri síðustu ára þar sem hann hefði átt að nota tímann í að byggja upp gjaldaeyrisforðann. 14.4.2008 12:32