Fleiri fréttir Norðmenn opna heimasíðu um þyrlukaup Norsk yfirvöld hafa opnað sérstaka heimasíðu um samstarf þeirra og Íslendinga um kaup og rekstur nýrra langdrægra björgunarþyrlna. 18.2.2008 09:31 Tveir teknir eftir innbrot í söluturn Tveir menn brutust inn í söluturninn Bláturn við Háaleitisbraut í nótt og komust undan með þýfi. 18.2.2008 07:20 Loðnan farin að ganga á grunnslóð Loðna virðist nú vera að ganga upp á grunnslóð suðaustur af landinu og eru nokkur skip þegar búin að fá all góðann afla. 18.2.2008 07:14 Þjóðvegurinn í Norðurárdal í Borgarfirði er lokaður Þjóðvegurinn í Norðurárdal í Borgarfirði rofnaði seint í gærkvöldi vegna vatnavaxta í Álalæk, skammt frá Svignaskarði. Ekki eru líkur á að hann opnist aftur fyrr en í kvöld. 18.2.2008 06:17 Samningar í höfn í Karphúsinu Skrifað var undir kjarasamninga á milli Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins nú á níunda tímanum í Karphúsinu eftir langan dag. 17.2.2008 21:00 Rétt framkvæmd samninga geti leitt til lækkunar vaxta og verðbólgu Samtök atvinnulífsins segja mikilvægt að fyrirtæki geri ekki aðrar launabreytingar nú en þær sem ákveðnar eru í samningum sem skrifað var undir í kvöld. Segja samtökin að með réttri framkvæmd kjarasamninga og framlagi stjórnvalda séu góðar horfur á að starfskilyrði atvinnulífsins batni, vextir lækki og verðbólga minnki og raunverulegar kjarabætur verði tryggðar. 17.2.2008 21:35 Skemmdir á vegum á Suður- og Vesturlandi vegna leysinga Lögreglan á Hvolsvelli segir mikið verða að gera hjá starfsmönnum Vegagerðarinnar á næstunni við að gera við vegi sem farið hafa illa í miklum leysingum undanfarna daga í umdæmi lögreglunnar. 17.2.2008 21:47 Slasaðist þegar hestur fældist vegna torfæruhjóla Stúlka féll af hestbaki í Grindavík í dag og hlaut áverka á baki þegar hestur hennar fældist við hávaða frá torfæruhjólum sem ekið var um í næsta nágrenni við hesthúsahverfið þar í bæ. 17.2.2008 20:06 Vegfarendur á Vesturlandi sýni varúð Við viljum biðja vegfarendur um að sýna varúð vegna skemmda á vegum vegna mikils vatnsveðurs, bæði í Borgarfirði, Norðurárdal sem og í Hrútafirði. Bæði er um að ræða vatn sem að rennur þvert yfir vegi sem og stórar holur í vegi, segir í tilkynningu frá Vegagerðinni. 17.2.2008 19:38 Persónuafsláttur hækkar um 7 þúsund krónur Persónuafsláttur hækkar um 7 þúsund krónur á næstu þremur árum, umfram almenna verðuppfærslu. Skerðingarmörk barnabóta verða hækkuð og tekjuskattur fyrirtækja verður lækkaður í 15%. Þetta er meðal þess sem kemur fram í viljayfirlýsingu sem ríkisstjórnin hefur samþykkt vegna kjarasamninga sem til stendur að undirrita í kvöld. 17.2.2008 19:32 Stjórnvöld og aðilar vinnumarkaðarins hafa fundað Fundi forystumanna ríkisstjórnarinnar með fulltrúum aðila vinnumarkaðarins er lokið. 17.2.2008 18:11 Umferðalagabrot leiddi til fíkniefnafundar Lögreglumenn á Akureyri höfðu afskipti af ökumanni á Akureyri seinni partinn í gær vegna umferðarlagabrots. Við afskiptin vaknaði einnig grunur um að ökumaðurinn hefði verið að aka undir áhrifum fíkniefna og var hann handtekinn í kjölfarið. 17.2.2008 16:20 Pólverjinn farinn úr landi Pólverjinn, sem grunaður er um vera valdur að andláti fjögurra ára drengs á Vesturgötu í Keflavík í byrjun desember, fór úr landi í morgun. 17.2.2008 16:05 Vonast til að framtíð Vilhjálms ráðist í vikunni Geir H. Haarde forsætisráðherra segist vonast til þess að framtíð Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar, formanns borgarráðs, ráðist í þessari viku. Hann segir mikilvægt að Vilhjálmur taki ákvörðun sem fyrst því að óvissan skapi erfiðleika. 17.2.2008 13:36 Fundur ríkisstjórnarinnar og fulltrúa atvinnulífsins hafinn Formenn stjórnarflokkanna funda nú með forystumönnum Alþýðusambandsins og Samtaka atvinnulífsins í stjórnarráðinu til að kynna fyrir þeim aðgerðir sem ríkisstjórnin er tilbúin að grípa til í tengslum við nýja kjarasamninga. 17.2.2008 13:25 Fráleitt að Vilhjálmur segi af sér sem borgarfulltrúi Illugi Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segist telja það vera algerlega fráleitt að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson segi af sér sem borgarfulltrúi. 17.2.2008 12:47 Rafmagnslaust í Kópavogi og Garðabæ í nótt Rafmagnslaust varð í vesturhluta Kópavogs og hluta af Garðabæ á öðrum tímanum í nótt vegna bilunar í háspennuleiðslu og tókst ekki að komas rafmagni á fyrr en rétt fyrir klukkan fimm. Orsök bilunarinnar er ekki kunn. 17.2.2008 10:23 Líklegt að ríkisstjórnin og aðilar vinnumarkaðarins fundi Búist er við að ríkisstjórnin spili út sínum tillögum í tengslum við kjarasamninga í dag og boði aðila vinnumarkaðarins til fundar. Hugnist þeim tillögurnar gæti farið svo að það takist að skrifa undir kjarasamninga áður en þessi dagur verður allur. 17.2.2008 10:17 Fjörutíu sjúkraflutningar í nótt Það var mikið að gera hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins í gærkvöldi og nótt. Sjúkraflutningamenn fóru í um 40 sjúkraflutninga, sem að sögn slökkviliðsmanna er allt að því tvöfalt meira en venjulega. 17.2.2008 10:12 Stunginn með hnífi á Gauki á Stöng Karlmaður um tvítugt var stunginn í bakið á veitingastaðnum Gauki á Stöng í borginni á sjötta tímanum í nótt. Hann var færður á sjúkrahús en ekki er talið að hann sé alvarlega slasaður. Rúmlega þrítugur karlmaður er í haldi lögreglu, grunaður um árásina. Mikill erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt sökum ölvunar og voru fangageymslur fullar. 17.2.2008 10:04 Fréttablaðið með tvær tilnefningar 17.2.2008 06:00 Tveir menn rændu veitingastað Tveir karlmenn um tvítugt ruddust inn á veitingastað við Ingólfstorg á sjötta tímanum í kvöld og börðu afgreiðslumann með barefli. Þeir rændu síðan peningum úr sjóðsvél. Ræningjarnir komust undan og leitar lögreglan þeirra nú. Afgreiðslumaðurinn slapp með minniháttar meiðsl, samkvæmt upplýsingum lögreglu. 16.2.2008 20:08 Ölvaður maður tekinn í Leifsstöð Ölvaður maður var handtekinn í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í dag en sá hafði látið ófriðlega í komusal flugstöðvarinnar. Hann gistir fangaklefa þar til áfengisvíman rennur af honum. 16.2.2008 19:36 Lögreglan fann bruggverksmiðju Lögreglan á Suðurnesjum haldlagði bruggtæki og nokkurt magn af ætluðu sterku heimagerðu áfengi í dag. Kona nokkur hafði hringt í lögreglu og taldi að reynt hefði verið að brjótast inn á heimili hennar. Lögreglumenn fóru á staðinn en sáu ekki ummerki innbrotstilraunar. Þeir fundu hins vegar áfengið og bruggtækin sem fyrr segir frá. Konan sem tilkynnti um innbrotið verður kærð fyrir ólöglegan tilbúning áfengis. 16.2.2008 19:39 Enn beðið eftir tillögum ríkisstjórnarinnar Undirritun kjarasamninga er ekki í augsýn fyrr en í fyrsta lagi seinni partinn á morgun, segir forseti Alþýðusambands Íslands - og þá aðeins ef ríkisstjórnin kemur fram með viðunandi tillögur. Tillögur ríkisstjórnarinnar voru ekki kynntar nú síðdegis eins og vonast hafði verið eftir. 16.2.2008 18:51 Reykjafoss nálgast höfn Varðskip kom í Faxaflóahöfn með flutningaskipið Reykjarfoss í eftirdragi um fjögurleytið í dag og hefur hafsögumaður nú tekið við skipinu. Reykjafoss varð aflvana um 10 sjómílur norðvestur af Reykjanesi og barst stjórnstöð Landhelgisgæslunnar boð frá skipverjum á þriðja tímanum í nótt. 16.2.2008 17:04 Ráðgert að ríkisstjórnin og aðilar vinnumarkaðarins fundi í dag Reiknað er með að ríkisstjórnin boði forystumenn Alþýðusambandsins og Samtaka atvinnulífsins til fundar síðar í dag, til viðræðna eða kynningar á tillögum stjórnvalda um aðkomu þeirra að gerð kjarasamninga. 16.2.2008 14:56 Tilnefningar til blaðamannaverðlauna tilkynntar Kristján Már Unnarsson, fréttamaður á Stöð 2, Pétur Blöndal, blaðamaður á Morgunblaðinu, og Óli Kristján Ármansson, blaðamaður á Fréttablaðinu, eru tilnefndir til blaðamannaverðlauna ársins 2007. Tilnefningarnar voru opinberaðar í dag en verðlaunin sjálf verða afhent í næstu viku. 16.2.2008 13:43 Háskóladagurinn settur í dag Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra setti háskóladaginn í Ráðhúsi Reykjavíkur í morgun. Prúðbúnir hestamenn tóku á móti ráðherra við Ráðhúsið í tilefni dagsins. Á háskóladeginum kynna háskólar landsins námsframboð sitt fyrir næsta skólaár. Kynningin fer fram á tveimur stöðum í borginni. 16.2.2008 13:32 Beðið eftir viðbrögðum frá ríkisstjórninni Forseti Alþýðusambands Íslands útilokar ekki að skrifað verði undir kjarasamninga í kvöld eða nótt - það verði þó aðeins gert komi viðunandi tillögur frá ríkisstjórninni. Alþýðusambandið og Samtök atvinnulífsins funduðu framundir miðnætti í gærkvöldi og settust aftur að samningaborðinu klukkan tíu í morgun. 16.2.2008 13:25 Aflvana skip norðvestur af Reykjanesi Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst boð frá flutningaskipinu Reykjafossi á þriðja tímanum í nótt um að skipið hefði orðið aflvana um 10 sjómílur norðvestur af Reykjanesi. 16.2.2008 13:19 Adrenalínferð gegn fordómum Tuttugu og fimm manna hópur níundu og tíundu bekkinga úr Austurbæjarskóla og Laugarnesskóla lögðu af stað í ferð á vegum samtakanna Adrenalín gegn rasisma í gær. Íslensk ungmenni og ungmenni af erlendu bergi brotin eru í samtökunum og er markmið þeirra að sporna á móti fórdómum gegn útlendingum í samfélaginu. 16.2.2008 12:59 Litháískir fangar ánægðir með launin á Litla Hrauni „Það er mín tilfinning að þeim finnst þeir ekki hafa neinu að tapa. Ef smyglið tekst koma þeir út í gróða en ef það mistekst fá þeir vinnu í fangelsi á launum sem þykja bærileg í Litháen," segir Einar Loftur Högnason, fangavörður á Litla Hrauni, í samtali við Fréttablaðið í dag. 16.2.2008 11:51 Mótmælir pólitískum fundi í Fríkirkjunni Fyrrverandi stjórnarmaður úr safnaðarstjórn Fríkirkjunnar í Reykjavík mótmælir því að Samtökin Sól á Suðurlandi efni til fundar í Frkirkjunni á morgun. Tilefni fundarins er að mótmæla áformum um að virkja Þjórsá. 16.2.2008 11:13 Fundir halda áfram í Karphúsinu Fulltrúar Samtaka atvinnulífsins og Alþýðusambands Íslands funduðu langt fram á kvöld í gær og hefjast fundarhöld að nýju í Karphúsinu nú klukkan 10. 16.2.2008 09:59 Þorstinn var hinn sami þrátt fyrir rafmagnsleysi Bilun í háspennustreng í Hallveigarstíg setti strik í reikninginn hjá skemmtanaglöðum borgarbúum í gærkvöldi. Rafmagn fór af hluta Laugavegarins frá Snorrabraut og á Hverfisgötu að Lækjartorgi laust upp úr klukkan ellefu, um það leyti sem næturlífið í miðbænum er venjulega að glæðast. Posar veitingastaða og kráa duttu þar með út - en þorstinn var hinn sami og venjulega hjá bargestum. 16.2.2008 09:56 Hringdi af stöðinni og seig niður í reipi Annþór Karlsson fékk að nota síma á lögreglustöðinni við Hverfisgötu daginn áður en hann strauk. Annþór var handtekinn undir kvöld í gær þar sem hann faldi sig í skáp í húsi í Mosfellsbæ. Hann var síðar úrskurðaður í gæsluvarðhald. 16.2.2008 09:00 Rafmagn komið aftur á í miðbænum Rafmagn komst aftur á í miðbænum um hálfeitt leytið eftir að það hafði farið af í klukkutíma á Laugavegi og Hverfisgötu. Um háspennubilun var að ræða. 16.2.2008 01:11 Samtals 32 ára fangelsi í Pólstjörnumáli Sex menn voru í gær dæmdir í samtals 32 ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í einu umfangsmesta fíkniefnasmygli sem upp hefur komið hér á landi. Sá sem þyngsta dóminn hlaut, Einar Jökull Einarsson, fékk níu og hálft ár. 16.2.2008 00:01 Í einangrun í fjóra mánuði í Færeyjum Íslenskur karlmaður hefur setið í einangrun í færeysku fangelsi í um fjóra mánuði. Hann var handtekinn í september í tengslum við Pólstjörnumálið. Hjá honum fundust tvö kíló af fíkniefnum. Hann verður ákærður í byrjun apríl. 16.2.2008 00:01 Bjórdælur virka en posar ekki Rafmagnlaust hefur verið í miðbænum undanfarin stundarfjórðung. Að sögn bilanavaktar Orkuveitunnar er um að ræða háspennubilun sem verið er að vinna í að laga. 15.2.2008 23:32 Annþór í þriggja vikna gæsluvarðhald Annþór Kristján Karlsson var í kvöld úrskurðaður í þriggja vikna gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjaness. Annþór flúði frá Lögreglustöðinni á Hverfisgötu í morgun en náðist um klukkan 18 í húsi Mosfellsbæ. 15.2.2008 20:06 Of fullur til að fljúga frá Keflavík Lögreglan á Suðurnesjum handtók í dag karlmann í Flugstöð Leifs Eiríkssonar en sá svaf áfengissvefni í flugstöðinni. 15.2.2008 21:36 Árekstur á Olísplani á Selfossi Engin slys urðu á fólki þegar árekstur varð á Olísplaninu á Selfossi í kvöld. Keyrt var inn í hlið kyrrstæðs bíls og var hann óökufær á eftir að sögn lögreglunnar á Selfossi. 15.2.2008 21:26 Enn fundað í Karphúsinu Samtök atvinnulífsins og aðildarfélög ASÍ sitja enn á fundi í Karphúsinu þar sem reynt er að ná lendingu í kjaraviðræðum á almennum vinnumarkaði. 15.2.2008 20:57 Sjá næstu 50 fréttir
Norðmenn opna heimasíðu um þyrlukaup Norsk yfirvöld hafa opnað sérstaka heimasíðu um samstarf þeirra og Íslendinga um kaup og rekstur nýrra langdrægra björgunarþyrlna. 18.2.2008 09:31
Tveir teknir eftir innbrot í söluturn Tveir menn brutust inn í söluturninn Bláturn við Háaleitisbraut í nótt og komust undan með þýfi. 18.2.2008 07:20
Loðnan farin að ganga á grunnslóð Loðna virðist nú vera að ganga upp á grunnslóð suðaustur af landinu og eru nokkur skip þegar búin að fá all góðann afla. 18.2.2008 07:14
Þjóðvegurinn í Norðurárdal í Borgarfirði er lokaður Þjóðvegurinn í Norðurárdal í Borgarfirði rofnaði seint í gærkvöldi vegna vatnavaxta í Álalæk, skammt frá Svignaskarði. Ekki eru líkur á að hann opnist aftur fyrr en í kvöld. 18.2.2008 06:17
Samningar í höfn í Karphúsinu Skrifað var undir kjarasamninga á milli Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins nú á níunda tímanum í Karphúsinu eftir langan dag. 17.2.2008 21:00
Rétt framkvæmd samninga geti leitt til lækkunar vaxta og verðbólgu Samtök atvinnulífsins segja mikilvægt að fyrirtæki geri ekki aðrar launabreytingar nú en þær sem ákveðnar eru í samningum sem skrifað var undir í kvöld. Segja samtökin að með réttri framkvæmd kjarasamninga og framlagi stjórnvalda séu góðar horfur á að starfskilyrði atvinnulífsins batni, vextir lækki og verðbólga minnki og raunverulegar kjarabætur verði tryggðar. 17.2.2008 21:35
Skemmdir á vegum á Suður- og Vesturlandi vegna leysinga Lögreglan á Hvolsvelli segir mikið verða að gera hjá starfsmönnum Vegagerðarinnar á næstunni við að gera við vegi sem farið hafa illa í miklum leysingum undanfarna daga í umdæmi lögreglunnar. 17.2.2008 21:47
Slasaðist þegar hestur fældist vegna torfæruhjóla Stúlka féll af hestbaki í Grindavík í dag og hlaut áverka á baki þegar hestur hennar fældist við hávaða frá torfæruhjólum sem ekið var um í næsta nágrenni við hesthúsahverfið þar í bæ. 17.2.2008 20:06
Vegfarendur á Vesturlandi sýni varúð Við viljum biðja vegfarendur um að sýna varúð vegna skemmda á vegum vegna mikils vatnsveðurs, bæði í Borgarfirði, Norðurárdal sem og í Hrútafirði. Bæði er um að ræða vatn sem að rennur þvert yfir vegi sem og stórar holur í vegi, segir í tilkynningu frá Vegagerðinni. 17.2.2008 19:38
Persónuafsláttur hækkar um 7 þúsund krónur Persónuafsláttur hækkar um 7 þúsund krónur á næstu þremur árum, umfram almenna verðuppfærslu. Skerðingarmörk barnabóta verða hækkuð og tekjuskattur fyrirtækja verður lækkaður í 15%. Þetta er meðal þess sem kemur fram í viljayfirlýsingu sem ríkisstjórnin hefur samþykkt vegna kjarasamninga sem til stendur að undirrita í kvöld. 17.2.2008 19:32
Stjórnvöld og aðilar vinnumarkaðarins hafa fundað Fundi forystumanna ríkisstjórnarinnar með fulltrúum aðila vinnumarkaðarins er lokið. 17.2.2008 18:11
Umferðalagabrot leiddi til fíkniefnafundar Lögreglumenn á Akureyri höfðu afskipti af ökumanni á Akureyri seinni partinn í gær vegna umferðarlagabrots. Við afskiptin vaknaði einnig grunur um að ökumaðurinn hefði verið að aka undir áhrifum fíkniefna og var hann handtekinn í kjölfarið. 17.2.2008 16:20
Pólverjinn farinn úr landi Pólverjinn, sem grunaður er um vera valdur að andláti fjögurra ára drengs á Vesturgötu í Keflavík í byrjun desember, fór úr landi í morgun. 17.2.2008 16:05
Vonast til að framtíð Vilhjálms ráðist í vikunni Geir H. Haarde forsætisráðherra segist vonast til þess að framtíð Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar, formanns borgarráðs, ráðist í þessari viku. Hann segir mikilvægt að Vilhjálmur taki ákvörðun sem fyrst því að óvissan skapi erfiðleika. 17.2.2008 13:36
Fundur ríkisstjórnarinnar og fulltrúa atvinnulífsins hafinn Formenn stjórnarflokkanna funda nú með forystumönnum Alþýðusambandsins og Samtaka atvinnulífsins í stjórnarráðinu til að kynna fyrir þeim aðgerðir sem ríkisstjórnin er tilbúin að grípa til í tengslum við nýja kjarasamninga. 17.2.2008 13:25
Fráleitt að Vilhjálmur segi af sér sem borgarfulltrúi Illugi Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segist telja það vera algerlega fráleitt að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson segi af sér sem borgarfulltrúi. 17.2.2008 12:47
Rafmagnslaust í Kópavogi og Garðabæ í nótt Rafmagnslaust varð í vesturhluta Kópavogs og hluta af Garðabæ á öðrum tímanum í nótt vegna bilunar í háspennuleiðslu og tókst ekki að komas rafmagni á fyrr en rétt fyrir klukkan fimm. Orsök bilunarinnar er ekki kunn. 17.2.2008 10:23
Líklegt að ríkisstjórnin og aðilar vinnumarkaðarins fundi Búist er við að ríkisstjórnin spili út sínum tillögum í tengslum við kjarasamninga í dag og boði aðila vinnumarkaðarins til fundar. Hugnist þeim tillögurnar gæti farið svo að það takist að skrifa undir kjarasamninga áður en þessi dagur verður allur. 17.2.2008 10:17
Fjörutíu sjúkraflutningar í nótt Það var mikið að gera hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins í gærkvöldi og nótt. Sjúkraflutningamenn fóru í um 40 sjúkraflutninga, sem að sögn slökkviliðsmanna er allt að því tvöfalt meira en venjulega. 17.2.2008 10:12
Stunginn með hnífi á Gauki á Stöng Karlmaður um tvítugt var stunginn í bakið á veitingastaðnum Gauki á Stöng í borginni á sjötta tímanum í nótt. Hann var færður á sjúkrahús en ekki er talið að hann sé alvarlega slasaður. Rúmlega þrítugur karlmaður er í haldi lögreglu, grunaður um árásina. Mikill erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt sökum ölvunar og voru fangageymslur fullar. 17.2.2008 10:04
Tveir menn rændu veitingastað Tveir karlmenn um tvítugt ruddust inn á veitingastað við Ingólfstorg á sjötta tímanum í kvöld og börðu afgreiðslumann með barefli. Þeir rændu síðan peningum úr sjóðsvél. Ræningjarnir komust undan og leitar lögreglan þeirra nú. Afgreiðslumaðurinn slapp með minniháttar meiðsl, samkvæmt upplýsingum lögreglu. 16.2.2008 20:08
Ölvaður maður tekinn í Leifsstöð Ölvaður maður var handtekinn í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í dag en sá hafði látið ófriðlega í komusal flugstöðvarinnar. Hann gistir fangaklefa þar til áfengisvíman rennur af honum. 16.2.2008 19:36
Lögreglan fann bruggverksmiðju Lögreglan á Suðurnesjum haldlagði bruggtæki og nokkurt magn af ætluðu sterku heimagerðu áfengi í dag. Kona nokkur hafði hringt í lögreglu og taldi að reynt hefði verið að brjótast inn á heimili hennar. Lögreglumenn fóru á staðinn en sáu ekki ummerki innbrotstilraunar. Þeir fundu hins vegar áfengið og bruggtækin sem fyrr segir frá. Konan sem tilkynnti um innbrotið verður kærð fyrir ólöglegan tilbúning áfengis. 16.2.2008 19:39
Enn beðið eftir tillögum ríkisstjórnarinnar Undirritun kjarasamninga er ekki í augsýn fyrr en í fyrsta lagi seinni partinn á morgun, segir forseti Alþýðusambands Íslands - og þá aðeins ef ríkisstjórnin kemur fram með viðunandi tillögur. Tillögur ríkisstjórnarinnar voru ekki kynntar nú síðdegis eins og vonast hafði verið eftir. 16.2.2008 18:51
Reykjafoss nálgast höfn Varðskip kom í Faxaflóahöfn með flutningaskipið Reykjarfoss í eftirdragi um fjögurleytið í dag og hefur hafsögumaður nú tekið við skipinu. Reykjafoss varð aflvana um 10 sjómílur norðvestur af Reykjanesi og barst stjórnstöð Landhelgisgæslunnar boð frá skipverjum á þriðja tímanum í nótt. 16.2.2008 17:04
Ráðgert að ríkisstjórnin og aðilar vinnumarkaðarins fundi í dag Reiknað er með að ríkisstjórnin boði forystumenn Alþýðusambandsins og Samtaka atvinnulífsins til fundar síðar í dag, til viðræðna eða kynningar á tillögum stjórnvalda um aðkomu þeirra að gerð kjarasamninga. 16.2.2008 14:56
Tilnefningar til blaðamannaverðlauna tilkynntar Kristján Már Unnarsson, fréttamaður á Stöð 2, Pétur Blöndal, blaðamaður á Morgunblaðinu, og Óli Kristján Ármansson, blaðamaður á Fréttablaðinu, eru tilnefndir til blaðamannaverðlauna ársins 2007. Tilnefningarnar voru opinberaðar í dag en verðlaunin sjálf verða afhent í næstu viku. 16.2.2008 13:43
Háskóladagurinn settur í dag Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra setti háskóladaginn í Ráðhúsi Reykjavíkur í morgun. Prúðbúnir hestamenn tóku á móti ráðherra við Ráðhúsið í tilefni dagsins. Á háskóladeginum kynna háskólar landsins námsframboð sitt fyrir næsta skólaár. Kynningin fer fram á tveimur stöðum í borginni. 16.2.2008 13:32
Beðið eftir viðbrögðum frá ríkisstjórninni Forseti Alþýðusambands Íslands útilokar ekki að skrifað verði undir kjarasamninga í kvöld eða nótt - það verði þó aðeins gert komi viðunandi tillögur frá ríkisstjórninni. Alþýðusambandið og Samtök atvinnulífsins funduðu framundir miðnætti í gærkvöldi og settust aftur að samningaborðinu klukkan tíu í morgun. 16.2.2008 13:25
Aflvana skip norðvestur af Reykjanesi Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst boð frá flutningaskipinu Reykjafossi á þriðja tímanum í nótt um að skipið hefði orðið aflvana um 10 sjómílur norðvestur af Reykjanesi. 16.2.2008 13:19
Adrenalínferð gegn fordómum Tuttugu og fimm manna hópur níundu og tíundu bekkinga úr Austurbæjarskóla og Laugarnesskóla lögðu af stað í ferð á vegum samtakanna Adrenalín gegn rasisma í gær. Íslensk ungmenni og ungmenni af erlendu bergi brotin eru í samtökunum og er markmið þeirra að sporna á móti fórdómum gegn útlendingum í samfélaginu. 16.2.2008 12:59
Litháískir fangar ánægðir með launin á Litla Hrauni „Það er mín tilfinning að þeim finnst þeir ekki hafa neinu að tapa. Ef smyglið tekst koma þeir út í gróða en ef það mistekst fá þeir vinnu í fangelsi á launum sem þykja bærileg í Litháen," segir Einar Loftur Högnason, fangavörður á Litla Hrauni, í samtali við Fréttablaðið í dag. 16.2.2008 11:51
Mótmælir pólitískum fundi í Fríkirkjunni Fyrrverandi stjórnarmaður úr safnaðarstjórn Fríkirkjunnar í Reykjavík mótmælir því að Samtökin Sól á Suðurlandi efni til fundar í Frkirkjunni á morgun. Tilefni fundarins er að mótmæla áformum um að virkja Þjórsá. 16.2.2008 11:13
Fundir halda áfram í Karphúsinu Fulltrúar Samtaka atvinnulífsins og Alþýðusambands Íslands funduðu langt fram á kvöld í gær og hefjast fundarhöld að nýju í Karphúsinu nú klukkan 10. 16.2.2008 09:59
Þorstinn var hinn sami þrátt fyrir rafmagnsleysi Bilun í háspennustreng í Hallveigarstíg setti strik í reikninginn hjá skemmtanaglöðum borgarbúum í gærkvöldi. Rafmagn fór af hluta Laugavegarins frá Snorrabraut og á Hverfisgötu að Lækjartorgi laust upp úr klukkan ellefu, um það leyti sem næturlífið í miðbænum er venjulega að glæðast. Posar veitingastaða og kráa duttu þar með út - en þorstinn var hinn sami og venjulega hjá bargestum. 16.2.2008 09:56
Hringdi af stöðinni og seig niður í reipi Annþór Karlsson fékk að nota síma á lögreglustöðinni við Hverfisgötu daginn áður en hann strauk. Annþór var handtekinn undir kvöld í gær þar sem hann faldi sig í skáp í húsi í Mosfellsbæ. Hann var síðar úrskurðaður í gæsluvarðhald. 16.2.2008 09:00
Rafmagn komið aftur á í miðbænum Rafmagn komst aftur á í miðbænum um hálfeitt leytið eftir að það hafði farið af í klukkutíma á Laugavegi og Hverfisgötu. Um háspennubilun var að ræða. 16.2.2008 01:11
Samtals 32 ára fangelsi í Pólstjörnumáli Sex menn voru í gær dæmdir í samtals 32 ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í einu umfangsmesta fíkniefnasmygli sem upp hefur komið hér á landi. Sá sem þyngsta dóminn hlaut, Einar Jökull Einarsson, fékk níu og hálft ár. 16.2.2008 00:01
Í einangrun í fjóra mánuði í Færeyjum Íslenskur karlmaður hefur setið í einangrun í færeysku fangelsi í um fjóra mánuði. Hann var handtekinn í september í tengslum við Pólstjörnumálið. Hjá honum fundust tvö kíló af fíkniefnum. Hann verður ákærður í byrjun apríl. 16.2.2008 00:01
Bjórdælur virka en posar ekki Rafmagnlaust hefur verið í miðbænum undanfarin stundarfjórðung. Að sögn bilanavaktar Orkuveitunnar er um að ræða háspennubilun sem verið er að vinna í að laga. 15.2.2008 23:32
Annþór í þriggja vikna gæsluvarðhald Annþór Kristján Karlsson var í kvöld úrskurðaður í þriggja vikna gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjaness. Annþór flúði frá Lögreglustöðinni á Hverfisgötu í morgun en náðist um klukkan 18 í húsi Mosfellsbæ. 15.2.2008 20:06
Of fullur til að fljúga frá Keflavík Lögreglan á Suðurnesjum handtók í dag karlmann í Flugstöð Leifs Eiríkssonar en sá svaf áfengissvefni í flugstöðinni. 15.2.2008 21:36
Árekstur á Olísplani á Selfossi Engin slys urðu á fólki þegar árekstur varð á Olísplaninu á Selfossi í kvöld. Keyrt var inn í hlið kyrrstæðs bíls og var hann óökufær á eftir að sögn lögreglunnar á Selfossi. 15.2.2008 21:26
Enn fundað í Karphúsinu Samtök atvinnulífsins og aðildarfélög ASÍ sitja enn á fundi í Karphúsinu þar sem reynt er að ná lendingu í kjaraviðræðum á almennum vinnumarkaði. 15.2.2008 20:57