Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fundur ráðherra og bankastjóra ekki krísufundur Fundur ráðherra og fulltrúa úr íslensku fjármálalífi í Ráðherrabústaðnum í dag var ekki krísufundur að sögn forsvarsmanna ríkisstjórnarinnar. Fundinum lauk fyrir stundu og sögðu þau Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra og Geir H. Haarde forsætisráðherra að hann hefði verið gagnlegur. 14.2.2008 15:34
Sjö manns tilnefndir í stýrihóp um skipulag Vatnsmýrar Borgarráð samþykkti á fundi sínum í dag tilnefna þau Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, Gísla Martein Baldursson, Kjartan Magnússon, Ástu Þorleifsdóttur, Dag B. Eggertsson, Svandísi Svavarsdóttur og Óskar Bergsson í stýrihóp um heildarskipulag Vatnsmýrarinnar. 14.2.2008 14:19
Tveir ölvaðir reyndu að aka sama bílnum Lögreglan á Akranesi hafði afskipti af tveimur mönnum í liðinni viku sem reyndu að aka sömu bifreiðinni ölvaðir. 14.2.2008 12:50
Fá ferðaávísun fyrir fullkomna mætingu Þeir starfsmenn Samherja sem missa ekki dag úr vinnu eiga nú kost á myndarlegri bónusgreiðslu. Starfsmannastjóri óttast ekki að þetta ýti undir að fólkið mæti veikt til vinnu. 14.2.2008 12:34
Skilur að Vilhjálmur vilji skoða sín mál eftir klaufaleg mistök Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra segir að ákvörðun hjá Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni um að sitja áfram í borgarstjórn hafa verið eðlileg. Hann segist skilja að hann vilji skoða sín mál eftir að hafa gert klaufaleg mistök í sjónvarpsviðtali. 14.2.2008 12:26
Samið um meginlínur nýrra kjarasamninga - SA gagnrýnir Seðlabankann Samtök atvinnulífsins segja að svo virðist sem aldrei rofi til í Seðlabankanum og rökstuðningur bankans sé veikur. Framkvæmdastjóri ASÍ hefði viljað sjá vaxtalækkun hjá Seðlabankanum en skilur að hann sé í þröngri stöðu. 14.2.2008 12:20
Annir á slysadeild vegna hálkuslysa Nokkuð hefur verið um að fólk hafi leitað á slysadeild í morgun eftir að hafa dottið í hálku. Algengir áverkar eru brotnir úlnliðir, axlir og ökklar. Fólk er beðið að fara varlega og eldri borgarar íhuga að halda sig heima í dag. 14.2.2008 11:55
Davíð: „Hvernig líst þér á Huddersfield?“ Davíð Oddson sat fyrir svörum í Seðlabankanum varðandi ákvörðun bankans um að halda stýrivöxtum óbreyttum. Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum leitaði Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti Sjálfstæðismanna í Reykjavík, ráða hjá Davíð varðandi þau vandræði sem flokkurinn og hann sjálfur hafa ratað í síðustu vikur. 14.2.2008 11:33
Stjórn BHM segir Samtök atvinnulífsins dæmalaust ósvífin Stjórn Bandalags háskólamanna (BHM) segir dæmalaust ósvífið að ætlast til þess að kjör opinberra starfsmanna verði ákveðin af öðrum en þeim sem um þau eiga að semja. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem BHM hefur sent frá sér vegna kröfu Samtaka atvinnulífsins um að ríkið fylgi sömu launastefnu og ákveðin verður í komandi kjarasamningum við samtök verkalýðsins. 14.2.2008 10:58
Starfsmenn Reykjanesbæjar fá hvatagreiðslur á árinu Rúmar 35 milljónir verða lagðar til aukalega í launagreiðslur til starfsmanna Reykjanesbæjar á þessu ári vegna aukins álags á þá samfara mikilli fjölgun íbúa bæjarins. Þetta var samþykkt á fundi bæjarráðs. 14.2.2008 10:43
SI greiðir 2,5 milljóna króna sekt til Samkeppniseftirlitsins Samtök iðnaðarins og Samkeppniseftirlitið hafa gert sátt í máli tengdu því þegar virðisaukaskattur og vörugjöld voru lækkuð 1. mars síðastliðinn. Greiða samtökin 2,5 milljóna króna sekt til eftirlitsins. 14.2.2008 10:07
Reyndu að svíkja út vörur fyrir tólf og hálfa milljón Fjármunabrotadeild lögreglunnar á höfuborgarsvæðinu hefur frá 7. febrúar sl. unnið að rannsókn stórfelldra fjársvika gagnvart nokkrum rafvöruverslunum á höfuðborgarsvæðinu. 14.2.2008 10:02
Ráðherrar og bankastjórar funda klukkan hálftvö Fundur fjögurra ráðherra ríkisstjórnarinnar með bankastjórum Glitnis, Kaupþings og Landsbankans verður í Ráðherrabústaðnum klukkan hálftvö. 14.2.2008 09:31
Fundu hass og amfetamín við húsleit í Breiðholti Fíkniefnadeild lögrelgunnar rannsakar nú mál manns, sem handtekinn var í fyrradag, eftir að fíkniefni fundust í íbúð hans við húsleit í Breiðholti. 14.2.2008 08:49
Vísaði lögreglu á rangt herbergi Hann var heldur seinheppinn karlmaðurinn sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók á dögunum fyrir tölvuþjófnað. 14.2.2008 08:45
Sneypuför norskra loðnuveiðiskipa Ljóst er að norski loðnuveiðiflotinn, sem hefur leyfi til loðnuveiða hér við land, fer hálfgerða sneypuför til Íslands að þessu sinni. 14.2.2008 08:30
Samfylkingin orðin stærst samkvæmt nýrri könnun Fylgi við Samfylkinginguna er orðið mun meira en við Sjálfstæðisflokkinn, samkvæmtkönnun, sem Talnakönnun gerði fyrir vefsvæðið heimur.is, rétt áður en skýrslan um REI kom út. 14.2.2008 08:28
Kjálka- og kinnbeinsbrotinn eftir fólskulega árás í Reykjanesbæ Nítján ára karlmaður var fluttur á slysadeild Landspítalans kjálka- og kinnbeinsbrotinn eftir fólskulega árás á hann og föður hans að Heiðarhvammi í Reykjanesbæ laust upp úr klukkan sjö í gærkvöldi. 14.2.2008 08:24
Ölvaður í Elliðaánum Ölvaður ökumaður, sem ók austur Bústaðaveg í gærkvöldi, gleymdi að beygja til hægri eða vinstri á mótum Reykjanesbrautar heldur ók þvert yfir hana og út í eina kvísl Elliðaánna. 14.2.2008 07:50
Vilja evru en ekki ESB Forsvarsmenn tveggja fyrirtækja af þremur vilja losna við krónuna. Um leið eru fleiri á móti Evrópusambandsaðild en fylgjandi. Á Viðskiptaþingi 2008 voru stjórnvöld gagnrýnd fyrir stefnuleysi í gjaldeyrismálum og lausatök í hagstjórn.Viðskiptaráð kallar eftir skýrri sýn og aðgerðum af hálfu stjórnvalda varðandi framtíðarskipan gjaldeyrismála hér á landi og aðgerðum til að styrkja efnahagslegan stöðugleika. 14.2.2008 05:00
14 mánaða fangelsi fyrir kókaínsmygl Hollenskur karlmaður var í dag dæmdur í Héraðsdómi Reykjaness í 14 mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir að reyna að smygla um 390 grömmum af kókaíni innvortis. 13.2.2008 21:40
Ætlar ekki að senda Villa til Kanada Geir H. Haarde forsætisráðherra segir ekkert til í því að Vilhjálmur Þ Vilhjálmsson oddviti Sjálfstæðismanna í borginni sé að verða sendiherra í Kanada. Þetta kom fram í Íslandi í dag fyrir stundu. 13.2.2008 19:07
Beðið í Karphúsinu eftir ákvörðun Seðlabankans Vaxtaákvörðun Seðlabankans í fyrramálið ræður miklu um framhald kjaraviðræðna, að mati Samtaka atvinnulífsins. Fulltrúar þeirra sitja þessa stundina hjá ríkissáttasemjara á fundi með fulltrúum Alþýðusambands Íslands. 13.2.2008 18:52
Tillögur um Miklubraut í stokk Miklabraut verður lögð í stokk milli Kringlumýrarbrautar og Snorrabrautar, samkvæmt tillögum vinnuhóps Vegagerðar og Reykjavíkurborgar, sem verið er að kynna í borgarkerfinu. Lagt er til að framkvæmdir hefjist á næsta ári og þeim verði að fullu lokið eftir sex ár. 13.2.2008 18:50
Guðlaugur Þór styður Vilhjálm sem borgarfulltrúa Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra styður Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson og þvertekur fyrir að vera sjálfur á leið í borgarmálin. Tveir borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks sem fréttastofa náði tali af í dag vildu ekki lýsa yfir afdráttarlausum stuðningi við Vilhjálm, en hinir fjórir hafa ekki látið ná í sig í dag. 13.2.2008 18:30
Bolvíkingar styðja Súðvíkinga í baráttu fyrir jarðgöngum Bæjarráð Bolungarvíkur tekur heilshugar undir með sveitastjórn Súðavíkur þar sem skorað er á ríkisstjórn Íslands að hefja nú þegar undirbúning að gerð jarðganga á milli Álftarfjarðar og Skutulsfjarðar. 13.2.2008 17:34
Matsmaður metur hvort farið hafi verið illa með hest Hæstiréttur hefur vísað frá kærumáli manns, sem sakaður er um að hafa farið illa með hross, á þeim grundvelli að kæra mannsins til Hæstaréttar hafi borist of seint. Matsmaður verður því kallaður til í málinu. 13.2.2008 17:22
Aldraðir fá inni í Heilsuverndarstöðinni Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra og María Ólafsdóttir, yfirlæknir eignarhaldsfélagsins Heilsuverndarstöðvarinnar, skrifuðu í dag undir samning um rekstur 20 skammtímahvíldarrýma fyrir aldraða skjólstæðinga heimahjúkrunar á höfuðborgarsvæðinu og 30 dagvistarrýma þar sem áhersla verður lögð á endurhæfingu. 13.2.2008 16:24
Geir útilokar evru „Það er einfaldlega ekki kostur að taka einhliða upp evru. Slíkt er ekki trúverðugt og því fylgir margs konar óhagræði og aukakostnaður," sagði Geir Haarde forsætisráðherra á Viðskiptaþingi Viðskiptaráðs í dag. Hann benti því á að tveir kostir væru í stöðunni. Að halda íslensku krónunni eða taka upp evru sem jafnframt þýði inngöngu í Evrópusambandið. 13.2.2008 16:21
Kýldi ellefu ára fósturson sinn fullur í útilegu Fertugur karlmaður var í dag dæmdur í eins mánaðar skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa slegið ellefu ára gamlan fósturson sinn í andlitið. 13.2.2008 16:15
Skipulagðri leit að Cessnu formlega hætt Skipulagðri leit að bandarísku flugvélinni sem hvarf af ratsjá 50 sjómílur vestur af Keflavík á mánudag hefur verið hætt. 13.2.2008 15:53
Markús Örn í Þjóðmenningarhúsið Markús Örn Antonsson, fyrrverandi borgarstjóri og útvarpsstjóri, hefur verið skipaður forstöðumaður Þjóðmenningarhússins frá og með 1. september næstkomandi. 13.2.2008 15:19
Mál Vestmannaeyjarbæjar á hendur olíufélögum þingfest í næstu viku Mál Vestmannaeyjabæjar á hendur stóru olíufélögunum þremur vegna tjóns sem bærinn telur sig hafa orðið fyrir vegna samráðs þeirra, verður þingfest í næstu viku. 13.2.2008 14:57
Barnaníðingurinn Ágúst Magnússon býr á höfuðborgarsvæðinu Barnaníðingurinn Ágúst Magnússon sást í Reykjanesbæ í gærdag. Hann mun þó ekki búa í bænum heldur er hann með dvalarstað á höfuðborgarsvæðinu. Ágúst ók um á grænni Toyotu Corollu sem er í eigu föður hans. 13.2.2008 14:54
Extra Bladet biðst aðeins afsökunar á enskri þýðingu Ritstjóri danska Extrablaðsins segir að afsökunarbeiðni blaðsins til Kaupþings nái einungis til enskrar þýðingar á greinaflokki sem blaðið skrifaði um bankann. Þýðingin var sett á vefsíðu þess. 13.2.2008 14:15
Framtíð Nasa rædd í skipulagsráði Óskar Bergsson, áheyrnarfulltrúi framsóknarmanna í skipulagsráði segir að málefni Nasa við Austurvöll hafi verið til umræðu á fundi skipulagsráðs í dag án þess að niðurstaða væri tekin í málinu. Hugmyndir eru uppi um að rífa salinn sem hýsir tónleikastaðinn í dag en gert er ráð fyrir að endurbyggja hann að nýju á sama stað, eða í kjallara þeirrar byggingar sem á að reisa á reitnum. 13.2.2008 13:13
40.000 króna aukakostnaður á hverja fjölskyldu Gengi krónunnar og heimsmarkaðsverð skýra hækkun eldsneytisverðs að undanförnu einungis að hluta til. Þetta kom fram í máli Runólfs Ólafssonar, formanns Félags íslenskra bifreiðaeigenda, í hádegisviðtalinu á Stöð 2 í dag. 13.2.2008 13:02
Hafa áhyggjur af dæmdum barnaníðingi í Reykjanesbæ Foreldrar og aðrir forráðamenn barna í Reykjanesbæ, hafa miklar áhyggjur af því að þar í bæ hefur dæmdur barnaníðingur, Ágúst Magnússon sést á ferli, en hann var nýverið var látinn laus til reynslu. 13.2.2008 12:47
Ritstjóri Kastljóss tjáir sig ekki um lögsókn Þórhallur Gunnarsson, ritstjóri Kastljóss, vildi lítið tjá sig um stefnu sonar og tengdadóttur Jónínu Bjartmarz, fyrrverandi umhverfisráðherra, á hendur útvarpsstjóra og ritstjórn Kastljóss. 13.2.2008 12:33
Ekki fyrsti misskilningur Gísla og Ástu Misskilningur leiddi til þess að kjósa þurfti tvisvar um varaformann í umhverfis og samgönguráð Reykjavíkur í gær. Sjálfstæðismenn töldu einn fulltrúa sinn tilheyra F-lista og að þess vegna ætti varaformaður nefndarinnar að koma úr röðum sjálfstæðismanna. 13.2.2008 12:25
Setur strik í kjaraviðræður ef vextir verða ekki lækkaðir á morgun Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir að það muni setja verulegt strik í kjaraviðræður ef Seðlabankinn hefur ekki vaxtalækkunarferli á morgun. Búist er við að á fundum þeirra með fulltrúum verkalýðshreyfingarinnar síðar í dag skýrist mjög hvort samningar takist á næstu sólarhringum. 13.2.2008 12:20
Þrír ákærðir fyrir að ráðast á fíkniefnalögreglumenn Algis Rucinskas, Sarunas Urniezius og Vitalij Gagin hafa verið ákærðir fyrir að ráðast með ofbeldi á lögreglumenn við fíkniefnadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem voru við skyldustörf fyrir utan veitingastaðinn Monte Carlo á Laugavegi þann 11. janúar síðastliðinn. 13.2.2008 12:05
Vilja 3,5 milljónir í bætur vegna umfjöllunar Kastljóss Sonur og tengdadóttir Jónínu Bjartmarz, fyrrverandi umhverfisráðherra, fara fram á að útvarpsstjóri og fjórir úr ritstjórn Kastljóss greiði sér samtals 3,5 milljónir króna í miskabætur og verði dæmd fyrir ærumeiðingar vegna umfjöllunar um ríkisborgararétt tengdadótturinnar í Kastljósi. 13.2.2008 11:52
Jeppi valt í Hveradalabrekku Jeppi valt í Hveradalabrekkunni á Suðurlandsvegi nú á ellefta tímanum. 13.2.2008 10:48
Hafa áhyggjur af heitavatnsskorti á Akranesi Bæjarstjórn Akraness lýsir yfir alvarlegum áhyggjum af því ástandi sem Akurnesingar hafa þurft að búa við vegna heitavatnsskorts á nýliðnum tveimur vikum. 13.2.2008 10:10