Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Búið að opna Óshlíð - vegfarendur beðnir um að fara varlega Á Vestfjörðum er búið að opna veginn um Súðavíkurhlíð og Óshlíð og er fólk beðið um að fara varlega. Á Sunnanverðum Vestfjörðum er lokað um Klettsháls, Ódrjúgsháls og Hjallaháls. 12.2.2008 22:00
Verð á eldsneyti hefur aldrei verið hærra Eldsneyti hækkaði verulega í dag og hefur aldrei verið hærra að sögn Runólf Ólafssonar framkvæmdastjóra Félags íslenskra bifreiðaeigenda. Frekari hækkanir virðast vera framundan, eftir því sem fram kom í fréttum Stöðvar 2. 12.2.2008 19:35
Jóhanna Vilhjálms hætt í Kastljósi Jóhanna Vilhjálmsdóttir sagði upp störfum sem fréttamaður hjá Kastljósi Ríkissjónvarpsins í morgun. 12.2.2008 18:40
Óánægja blaðamanna skiljanleg Andri Óttarsson, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, segir að sú óánægja sem hafi orðið á meðal blaðamanna sem biðu viðbragða hjá borgarfulltrúm sjálfstæðisflokksins að loknum fundi þeirra í valhöll í gær sé skiljanleg. 12.2.2008 18:07
Fórnarlömb Guðmundar í Byrginu vilja 10 milljónir í bætur Vísir hefur undir höndum ákærur Ríkissaksóknara gegn Guðmundi Jónssyni í Byrginu sem þingfestar voru í Héraðsdómi Suðurlands í dag. Í þeim kemur meðal annars fram að fjórar stúlkur sem Guðmundi er gefið að sök að hafabrotið gegn kefjast alls 10 milljóna króna í skaðabætur. 12.2.2008 18:06
Laus úr farbanni Pólskur karlmaður sem grunaður er um að hafa ekið á fjögurra ára dreng í Keflavík skömmu fyrir jól, með þeim afleiðingum að drengurinn lést, er laus úr farbanni. Hæstiréttur framlengdi farbann yfir manninum í lok janúar. 12.2.2008 17:12
Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum fíkniefnasmyglurum Héraðsdómur Reykjaness framlengdi í dag gæsluvarðhald yfir bræðrunum Ara Gunnarssyni og Jóhannesi Páli Gunnarssyni til 22. febrúar næstkomandi. 12.2.2008 17:10
Bremsur í ólagi á rútunni sem fór út af í Bessastaðabrekku Umferðarslysið í Bessastaðabrekku í Fljótsdal í lok ágúst í fyrra má rekja til þess að bremsurnar á rútunni sem um ræddi voru í ólagi og þá var ástand sæta, sætisfestinga og bílbelta einnig ábótavant. 12.2.2008 16:56
Hvetja stjórnmálamenn til að hætta að rífast um Orkuveituna Stjórn starfsmannafélags Orkuveitu Reykjavíkur hvetur stjórnendur fyrirtækisins og borgarstjórn Reykjavíkur til þess að setja niður deilur um fyrirtækið til þess að skaða ekki starfsanda og ímynd fyrirtækisins 12.2.2008 16:26
Karl á níræðisaldri stöðvaður réttindalaus á bíl sínum Karlmaður á níræðisaldri var meðal þeirra sjö réttindalausu ökumanna sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði um helgina. 12.2.2008 16:22
Vorkennir Vilhjálmi Gunnar Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, segist vorkenna Vilhjálmi Þ. Vihjálmssyni, oddvita sjálfstæðismanna, að standa í þeirri orrahríð sem staðið hefur yfir að undanförnu. „Ég óska honum bara alls hins besta," segir Gunnar, sem finnst Vilhjálmur hafa sætt ómaklegum árásum af hálfu pólitískra andstæðinga og fjölmiðlamanna að undanförnu. 12.2.2008 16:17
Ólíðandi framkoma í Valhöll Arna Schram, formaður Blaðamannafélags Íslands, segir að sú framkoma sem fjölmiðlar hafi mætt í Valhöll í gær, þar sem Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson ávarpaði fjölmiðla, sé að hennar mati með öllu ólíðandi. 12.2.2008 15:54
Rætt við aðila vinnumarkaðarins á næstu dögum Geir H. Haarde forsætisráðherra á von á því að ríkisstjórnin ræði við aðila vinnumarkaðarins um aðkomu að kjarasamningum á næstu dögum. Þessi orð lét hann falla í utandagskrárumræðu um kjarasamninga og efnahagsmál á Alþingi í dag. 12.2.2008 15:22
Enn leitað að bandarísku ferjuflugvélinni Leit stendur enn yfir að bandarísku ferjuflugvélinni sem talið er að hafi hrapað í sjó um 50 sjómílur vestur af Keflavík í gær. 12.2.2008 15:19
Verður aftur forstjóri OR nema það vanti sökudólg Guðmundur Þóroddsson, forstjóri REI, segist ekki eiga von á öðru en að hann taki aftur við forstjórastöðu Orkuveitu Reykjavíkur þann 1. apríl næstkomandi þegar sjö mánaða leyfi hans lýkur. 12.2.2008 15:12
Unglingagengi stal og skemmdi fyrir rúmar fjórar milljónir Fjórir piltar á aldrinum 16-19 ára hafa verið ákærðir fyrir að hafa á löngu tímabili meðal annars eyðilagt fjórtán bíla og brotist þrisvar inn í sömu sjoppuna. Drengirnir hafa skilið eftir sig skilaboð á sumum bílanna þar sem þeir hafa krotað orðin “D-Dog” og “Fuck Five”. 12.2.2008 15:01
Skipulagsstjóri Reykjavíkur fer í Kópavog Birgir H. Sigurðsson, skipulagsstjóri Reykjavíkurborgar, hefur sagt upp störfum sínum hjá borginni. Samkvæmt heimildum Vísis stendur til að ráða Birgi í sambærilegt starf hjá Kópavogsbæ, sem hann gegndi áður. 12.2.2008 14:58
Samningar um sölu á Fríkirkjuvegi 11 tefjast vegna tíðra stjórnarskipta Samningum vegna sölu á Fríkirkjuvegi 11 er enn ekki lokið þrátt fyrir að samþykkt hafi verið í borgarráði fyrir um ári að selja það til Novators. Ástæðan fyrir seinagangnum eru tíð meirihlutaskipti í borginni. 12.2.2008 14:24
Eldsneytisverð hækkar í dag N1 hækkaði verð á bensíni og olíu í hádeginu í dag. Verð á bensíni hækkaði um tvær krónur og kostar 95 okt. nú kr. 137, 9 eftir breytingarnar en 98 okt kostar 143, 3 krónur. 12.2.2008 14:24
Sammála menntamálaráðherra um laun kennara Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar, segist fullkomlega sammála Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, varaformanni Sjálfstæðisflokksins, um að hækka þurfi laun kennara. Þetta kom fram í umræðum um störf þingsins í dag. 12.2.2008 14:16
Dyravörður á skilorði dæmdur fyrir að berja feðga Fyrrverandi dyravörður á Kaffi Viktor var í héraðsdómi Reykjavíkur í morgun dæmdur til fimm mánaða fangelsisvistar. Fjórir mánuðir af þeim eru þó skilorðsbundnir. Dyravörðurinn fyrrverandi réðist að feðgum fyrir utan skemmtistaðinn í semptember 2006. 12.2.2008 13:26
Atvinnuleysi jókst um 14% á milli mánaða Skráð atvinnuleysi í janúar 2008 var 1% eða að meðaltali 1.545 manns. Þetta eru 188 fleiri en í desember síðastliðinn eða um 14% aukning, samkvæmt tölum Vinnumálastofnunar. 12.2.2008 13:13
Skilorðsbundið fangelsi fyrir að slá mann með hafnaboltakylfu Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag 18 ára karlmann í fjögurra ára skilorðsbundið fangelsi fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás með hafnaboltakylfu. 12.2.2008 13:13
Icelandair helst vel á töskum farþega sinna Icelandair týnir 11,1 tösku á hverja þúsund farþega samkvæmt samantekt Sambands evrópskra flugfélaga. Og Icelandair stendur sig bara býsna vel miðað við önnur flugfélög. 12.2.2008 12:57
Minningarbók um Fischer í Þjóðmenningarhúsinu Búið er að setja upp minningarbók um skáksnillinginn Bobby Fischer í Þjóðmenningarhúsinu. Fyrirhuguð minningarstund í Laugardælakirkju þar sem hinn látni hvílir á laugardag kl. 13. 12.2.2008 12:50
Ákærur á hendur Guðmundi í Byrginu þingfestar Ákærur á hendur Guðmundi Jónssyni í Byrginu voru þingfestar í héraðsdómi Suðurlands í dag. Um er að ræða fjórar konur og mun ein þeirra hafa verið undir lögaldri. 12.2.2008 12:42
Neikvæður fréttaflutningur meginorsök andúðar Framkvæmdastjóri Alþjóðahússins segir að fyrir nokkrum árum hafi útlendingaandúð hér á landi beinst að fólki af asískum uppruna en nú beinist hún að Pólverjum og Litháum 12.2.2008 12:36
Segir orð Vilhjálms aumkunarverð Yfirlýsingar Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar um að borgarfulltrúar Samfylkingar hafi ekki axlað ábyrgð í REI málinu, eru aumkunarverðar. Þetta segir Sigrún Elsa Smáradóttir borgarfulltrúi Samfylkingar sem var varamaður í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur. 12.2.2008 12:32
Þórólfur segist engin ráð hafa fyrir Vilhjálm „Ég held að það sé ómögulegt að gefa manni ráð í þeirri stöðu sem Vilhjálmur er," segir Þórólfur Árnason, fyrrverandi borgarstjóri og forstjóri Skýrr. 12.2.2008 12:27
Aldrei hefur heyrst í neyðarsendi Leit að flugvélinni, sem brotlenti 50 sjómílur vestur af Reykjanesi í gær, hefur engan árangur borið. Aldrei hefur heyrst í neyðarsendi hennar, sem gæti bent til að hún hafi sokkið strax. 12.2.2008 12:10
Vilhjálmur vildi að Þórólfur segði af sér vegna ósannsögli Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti Sjálfstæðismanna í borgarstjórn, skoraði á Þórólf Árnason, fyrrverandi borgarstjóra, að segja af sér á sínum tíma, vegna tengsla hans við verðsamráð olíufélaganna. Þá sagði Vilhjálmur alvarlegt ef stjórnmálamenn segðu ekki satt. 12.2.2008 12:01
Reyndi að komast inn um brotna rúðu á nærbuxunum Ölvaður maður í Vestmannaeyjum þykir hafa sloppið vel þegar hann reyndi að komast inn í hús í bænum í gegnum brotna rúðu. 12.2.2008 11:13
Fokker-vél farin til leitar að flugvél vestur af Reykjanesi Verið er að búa Fokker-vél Landhelgisgæslunnar til leitar úr lofti að flugvélinni sem brotlenti vestur af Reykjanesi í gær. 12.2.2008 10:31
Beðið með mokstur á Vestfjörðum vegna slæms veðurs Beðið er með mokstur á öllum leiðum á Vestfjörðum vegna slæms veðurs og þá eru Gemlufallsheiði, Óshlíð og Súðavíkurhlíð lokaðar. 12.2.2008 10:03
Dregur úr flutningi erlendra ríkisborgara til landsins Fjöldi aðfluttra erlendra ríkisborgara umfram brottflutta var um 3.350 á síðasta ári samkvæmt tölum Hagstofunnar. 12.2.2008 09:27
Leit hafin að nýju Flugvél frá danska flughernum hélt frá Keflavíkurflugvelli klukkan átta í morgun til leitar úr lofti að flugvélinni, sem brotlenti vestur af Reykjanesi síðdegis í gær, en leit úr lofti var hætt um klukkan hálfníu í gærkvöldi. Leit dönsku vélarinnar verður stjórnað frá varðskipinu Ægi sem leitaði í nótt ásamt þremur togurum. 12.2.2008 08:44
Óku inn í snjóflóð Tveir menn , sem óku inn í nýfallið snjóflóð á Óshlíðarvegi í gærkvöldi , sakaði ekki og kom lögregla þeim til hjálpar. Björgunarsveitarmenn frá Bolungarvík sóttu svo bílinn. Veginum var lokað og verður ekki reynt að opna hann fyrr en veður lægir. Ekki er vitað um fleilri snjóflóð vestra, en mikill snjór er í Súðavíkurhlíð og var veginum lokað í morgun. 12.2.2008 08:24
Slasaðist alvarlega á hendi Sjómaður slaðaðist alvarlega á hendi við vinnu sína um borði í fiskibáti, sem var við veiðar á Álftafirði við Ísafjarðardjúp í gær. Bátnum var þegar siglt til Ísafjarðar og var sjómaðurinn fluttur á sjúkrahnúsið þar. Ekki liggur fyrir hver tildrög slyssins voru, en lögreglan á Ísafirði rannsakar það. 12.2.2008 08:13
Myndir af vélinni sem fórst undan ströndum Íslands í gær Cessna 310 vélin sem fórst seinnipartinn í gær var seld þann 1. febrúar síðastliðinn til fyrirtækis í Bandaríkjunum að nafni ILS inc. Ekki hefur náðst í forsvarsmenn fyrirtækisins til að fá upplýsingar um ferðir vélarinnar en heimildarmenn Vísis segja að líklega hafi verið um svokallað ferjuflug að ræða. 12.2.2008 00:43
Óshlíð lokað vegna snjóflóðahættu Veginum um Óshlíð hefur verið lokað vegna snjóflóðahættu. Vegagerðin biður vegfarendur að vera ekki á þar á ferð að nauðsynjalausu. 11.2.2008 22:13
Leit úr lofti hætt Leit úr lofti að Cessna vélinni sem saknað hefur verið síðan klukkan 16:10 í dag hefur verið hætt vegna myrkurs. Varðskip og þrír togarar munu halda leit áfram. 11.2.2008 21:10
Cessna vélin var nýseld - Líklega í ferjuflugi Cessna 310 flugvélin sem fórst í dag var að öllum líkindum í svokölluðu ferjuflugi. Hún var samkvæmt heimildum Vísis nýlega seld og því er talið að seljandi vélarinnar, eða einhver á hans vegum, hafi verið að fljúga henni til síns nýja eigenda þegar flugslysið varð í dag. 11.2.2008 20:38
Lýst eftir stúlku Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Sigrúnu Maríu Líndal 14 ára. Hún fór heiman frá sér á sunnudag um kl. 12:00. Ekkert hefur til hennar spurst síðan. 11.2.2008 21:44
Hætt við málssókn á hendur HB Granda Verkalýðsfélag Akraness hefur í samráði við ASÍ ákveðið að hætta við fyrirhugaða málssókn á hendur HB Granda vegna uppsagna félagsins á Akranesi. Þetta kemur fram á vef ASÍ. 11.2.2008 21:31
Slæmar aðstæður til leitar - Notast við nætursjónauka Í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni segir að aðstæður til leitar að Cessna vélinni sem fór í sjóinn um 50 sjómílum vestur Keflavík klukkan 16:10 í dag séu slæmar. 11.2.2008 20:16