Fleiri fréttir

Þyrlur, bátar og flugvél taka þátt í leit að flugmanni

Björgunarþyrla og leitarflugvél frá Landhelgisgæslunni leita nú að manninum sem var í tveggja hreyfla Cessnu sem steyptist í hafið um 50 mílur vestur af Keflavíkurflugvelli. Von er á bátum og annarri þyrlu til leitarinnar.

Lítil Cessna í neyð

Lítil aflavana tveggja hreyfla Cessna-flugvél lenti í sjónum um 50 mílur vestur af Keflavík fyrir stundu og hafa bæði björgunarflugvél og björgunarþyrla verið sendar á vettvang. Einn maður var um borð en frekari deili á honum eru ókunn.

Staða Vilhjálms hefur veikst

„Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík hefur fengið á sig ákveðna ágjöf og tekið vissa dýfu við þessar aðstæður. Það hefur hinsvegar ekki komið fram á landsvísu og ég vona að það gerist ekki,“ sagði Geir H Haarde forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins niður í Alþingishúsi rétt í þessu.

Vilhjálmur bláþráðurinn eða haldreipið sem meirihlutinn hangir á

„Ég held að ástæðan fyrir því að Vilhjálmur nýtur trausts sexmenninganna sé sú að hann er tengingin við Ólaf F. Magnússon í núverandi meirihluta borgarinnar. Menn verða að meta hvort hann sé sá bláþráður eða haldreipi sem heldur meirihlutanum saman," segir Óskar Bergsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, um nýjustu vendingar í borgarpólitíkinni.

Sjálfstæðisflokkurinn kominn ofan í kjallara

„Mér fannst þetta í raun bara raunarlegt og áframhald af þeirri dapurlegu málsvörn sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur viðhaft síðustu daga,“ sagði Dagur B Eggertsson oddviti Samfylkingarinnar eftir blaðamannafund Vilhjálms Þ Vilhjálmssonar í Valhöll fyrr í dag.

Vilhjálmur hættir ekki sem borgarfulltrúi

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti sjálfstæðismanna í Reykjavíkurborg, sagði á blaðamannafundi í Valhöll í dag að hann hygðist ekki hætta sem borgarfulltrúi en að hann myndi meta stöðu sína á næstunni varðandi það hvort hann tæki við borgarstjórnarstólnum.

Forsetinn fundaði með Soniu Gandhi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, átti á laugardag fund með Soniu Gandhi, leiðtoga Kongressflokksins, á heimili hennar. Var það við hins svokallaða Delí-leiðtogafundar.

Blaðamannafundi úr Valhöll lokið

Vilhjálmur Þ Vilhjálmsson borgarfulltrúi og oddviti sjálfstæðismanna mun ekki víkja sæti. Vísir sýndi beint frá blaðamannafundi úr Valhöll þar sem Vilhjálmur ræddi við fjölmiðla.

Ekki eins góður tónn í öllum viðræðum

Guðmundur Gunnarsson, formaður Rafiðnaðarsambandsins, segir fréttir af góðum tóni í viðræðum Alþýðusambandsins og Samtökum atvinnulífsins gefi ranga mynd af gangi mála.

Óskað eftir gögnum um skattamál fyrrv. stjórnarformanns Baugs

Ríkislögreglustjóri mun í dag óska eftir því að ríkisskattstjóri afhendi gögn varðandi skattamál fyrrverandi stjórnarformanns Baugs, en Hæstiréttur úrskurðaði á fösudag og Ríkislögreglustjóra væri heimilt að gera húsleit hjá Ríkisskattstjóra til að ná í gögnin.

Sjálfstæðismenn hittast í Valhöll - Vilhjálmur með ávarp klukkan eitt

Fyrirhugaður fundur borgarstjórnarflokks Sjálfstæðismanna sem halda átti í ráðhúsi Reykjavíkur klukkan tólf verður haldinn í Valhöll. Ekki er vitað hvað olli því að ákveðið var að breyta um fundarstað en nú rétt í þessu bárust þær fréttir að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson muni ávarpa fréttamenn klukkan eitt.

Sex mánaða fangelsi fyrir kókaínsmygl

Kona var í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun dæmd til sex mánaða fangelsisvistar, þar af fjóra mánuði skilorðsbundna, fyrir að reyna að smygla til landsins 113 grömmum af kókaíni.

Búið að læsa síðu sem hét Félag gegn Pólverjum á Íslandi

Búið er að læsa vefsvæði sem hýsti hóp sem kallaði sig Félag gegn Pólverjum á Íslandi. Í frétt sem birt var í gær var sagt frá því að um sjöhundruð manns, mikið til ungt fólk, hafi skráð sig í hópinn frá því hann var stofnaður á föstudaginn.

Sjálfstæðismenn funda í Ráðhúsinu

Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins fundar í Ráðhúsinu í hádeginu. Um hefðbundin fund borgarstjórnarflokksins er að ræða sem yfirleitt er haldinn á þessum tíma.

Grjóthrun í Þvottárskriðum

Vegurinn um Þvottárskriður er lokaður vegna grjóthruns. Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að unnið sé að hreinsun og verður vegurinn opnaður eins fljótt og hægt er.

Bræla kemur í veg fyrir loðnuveiðar

Umþaðbil fjörutíu norsk loðnuskip, sem eru að veiðum hér við land, hafa aðeins fengið fimm þúsund tonn af þeim tæplega 40 þúsund tonnum sem þau mega veiða í íslenskri lögsögu. Þrálátar brælur hafa komið í veg fyrir veiðarnar og hafa skipin hvað eftir annað legið inni á Austfjaðrahöfnum vegna óveðurs.

Rúður brotnar í bílum og par handtekið fyrir innbrot

Rúður voru brotnar í fimm bílum, sem stóðu á bílastæðinu við Háskólabíó seint í gærkvöldi. Einhverju smálegu var stolið úr þremur bílum en einskis er saknað úr tveimur. Eignaspjöll eru hinsvegar umtalsverð því nýjar rúður og vinna við að setja þær í, kosta tugi þúsunda króna. Spellvirkjarnir eru ófundnir.

Vilhjálmur verður áfram í borgarstjórn

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson hefur ráðfært sig við Davíð Oddsson um pólitíska framtíð sína. Honum er ráðlagt að sitja af sér mestu orrahríðina vegna REI-málsins. Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins fundar í Ráðhúsinu í dag.

Vilhjálmur situr sem fastast - í bili

Allt bendir til þess að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson víki ekki til hliðar á næstunni sem oddviti sjálfstæðismanna í borginni. Ekki er þó víst að hann taki við borgarstjórastólnum að ári.

Félag gegn Pólverjum

Hátt í sjöhundruð manns, mikið til ungt fólk, hafa skráð sig í hóp á netinu sem kallar sig Félag gegn Pólverjum á Íslandi. Þar er farið niðrandi orðum um Pólverja sem búsettir eru hérlendis.

Landeigendur vænta nýs útspils frá fjármálaráðherra

Landsamtök landeigenda vænta þess að fjármálaráðherra mæti til leiks með nýtt útspil af hálfu ríkisins í átt til samkomulags í deilunni við landeigendur, ekki síst í ljósi þess að núna fyrir lok febrúarmánaðar birtir ríkisvaldið þjóðlendukröfur sínar á vestanverðu Norðurlandi svokölluðu svæði 7.

Brattabrekka ófær sökum vonskuveðurs

Vonskuveður er á Bröttubrekku og er hún nú orðin ófær, samkvæmt tilkynningu Vegagerðarinnar, sem bendir fólki á að aka um Heydal, milli Skógarstrandar og Hnappadals.

Vík í Mýrdal er að drukkna í sandi

Mikill fjörusandur hefur fokið yfir Vík í Mýrdal í óveðrinu sem geisað hefur á landinu undanfarið. Heimamenn segja að þorpið sé að drukkna í sandi en flæðarmálið færist nær þorpinu með hverju árinu.

Góðar líkur á nýjum kjarasamningi í vikunni

Jákvæður tónn er í talsmönnum beggja samningsaðila á vinnumarkaðnum eftir fund í Karphúsinu síðdegis í gær og taldar góðar líkur á að skrifað verði undir nýja kjarasamninga þegar líður á vikuna. Bæði Alþýðusambandið og Samtök atvinnulífsins hyggjast þó fyrst banka upp á hjá ríkisstjórninni til að knýja á um framlag stjórnvalda.

Flugvél snérist í vindhviðu á Keflavíkurflugvelli

Flugvél JetX á leið frá Salzburg fyrir Primera Air sem lagt var á stæði við Leifsstöð um kl. 18.45 í gær snérist skyndilega um fjórðung úr hring í vindhviðu þegar aka átti landgöngubrú upp að henni. Óskað var eftir aðstoð þar sem afgreiðsluaðili treysti sér ekki til þess að snúa vélinni aftur vegna vinds.

Gunnar Birgisson pumpaði járn í turninum

Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri Kópavogs opnaði nýja 700 fm heilsuræktarstöð World Class á 15. hæð í nýja turninum á Smáratorgi í gærdag. Við það tækifæri brá bæjarstjórinn sér í eina tækjasamstæðuna og pumpaði járn um stund.

Sjá næstu 50 fréttir