Fleiri fréttir

Reykur úr kjallara reyndist vera gufa
Slökkvilið höfuðborgvarsvæðisins var kallað að Þverbrekku í Kópavogi í morgun vegna reyks sem lagði úr kjallara verslunar við götuna.

Fundu fíkniefni í kjölfar umferðaróhapps
Karlmaður var í Héraðsdómi Norðurlands eysta dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa í fórum sínum ýmiss konar fíkniefni þegar lögregla leitaði á honum eftir umferðaróhapp.

Torrent-mál tekið fyrir 12. desember
Mál nokkurra höfundarréttarsamtaka á hendur eiganda skráardeilingarsíðunnar torrent.is verður tekið fyrir hjá dómstólum þann 12. desember

Kæra vörusvik á ginsengi til Neytendastofu
Neytendasamtökin hafa kært til Neytendastofu vörusvik við sölu á ginsengi. Eftir því sem segir á vef Neytendasamtakanna er um að ræða rautt ginseng sem ekki hefur haft þá virkni sem ætla mætti.

Bingó meira fjárhættuspil en pókermót
Þór Bæring Ólafsson, rekstrarfræðingur og pókerspilari, segir að mótapóker sé löglegur og ekki fjárhættuspil. Hann undrast æsifréttamennsku af slíkri tómstundaiðju sem hann segir að hafi verið stunduð undanfarin sólarhring.

Brimborg lagar Volvó dísel
Brimborg hefur fengið í hendur öll gögn vegna eldhættu í Volvo dísel fólksbílum og býst við að lagfæringum hér á landi ljúki á tveim vikum.

Konu veitt dvalarleyfi vegna gruns um mansal
Dæmi er um að kona hafi fengið dvalarleyfi á Íslandi vegna vísbendinga um að hún hafi verið seld mansali hingað til lands. Þetta fullyrðir Guðrún Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands.

Tvö þúsund golfkúlum stolið við Svarfhólsvöll
Þau eru margvísleg málin sem lögreglumenn á landinu glíma við, þar á meðal merkileg þjófnaðarmál.

Útilokar ekki málefnasamning nýs meirihluta
Borgarstjóri útilokar ekki að gerður verði málefnasamningur milli meirihlutans í borginni á næstu vikum. Hann bendir þó á að fjárhagsáætlun sem hann mælti nýlega fyrir sé í raun málefnaskrá.

Þinglýstum kaupsamningum fækkar óverulega
Þinglýstum kaupsamningum vegna íbúðakaupa á höfuðborgarsvæðinu fækkaði óverulega í síðustu viku.

Nýr formaður LSS
Vernharð Guðnason, formaður Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS), lét af embætti formanns á stjórnarfundi sem haldinn var fyrir helgi.

Fárviðri gekk yfir Grundarfjörð í nótt
Björgunarsveitarmenn voru kallaðir út í Grundarfirði í nótt þegar fárviðri gekk yfir bæinn og vindhraðinn fór þrisvar í 42 metra á sekúndu.

Mátti grafa í sundur veg
Héraðsdómur Suðurlands sýknaði dag karlmann af ákæru um eignaspjöll og brot á vegalögum með því að fela verktaka að grafa í sundur veg í sumarbústaðalandi í Grímsnes- og Grafningshreppi.

Bílainnbrot upplýst
Lögreglan á Akureyri hefur upplýst innbrot í bílasöluna Bílasalinn.is við Hjalteyrargötu á Akureyri og þjófnað á bíl sem þar var til sölu.

Biskup Íslands var viðstaddur fyrstu biskupsvígsluna í Færeyjum
Biskup Íslands, hr. Karl Sigurbjörnsson, var vígsluvottur í fyrstu biskupsvígslu sem fram hefur farið í Færeyjum, þegar Jógvan Fríðriksson var vígður nýr biskup Færeyja við messu í Þórshöfn í gær.

Vonast til þess að geta lagt fram orkumálafrumvarp fyrir jól
Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra segist vonast til að geta lagt fram frumvarp um orkumál fyrir jólahlé þingsins en á ekki von á því að það verði afgreitt fyrir jól.

Vindurinn feykti bíl aftur upp á hjólin
Ökmaður sendibíls slasaðist á baki þegar bíll hans fauk út af veginum undir Hafnarfjalli um fjögurleytið í nótt. Að sögn lögreglunnar á Selfossi fór bíllinn eina eða tvær veltur út af veginum og lá hann á hliðinni þegar lögreglu bar að garði.

Varað við flughálku þar sem nú er að hlána
Vegagerðin varar við flughálku á nokkrum stöðum þar sem er að hlána.

Slasaðist í bílveltu við Kaplakrika
Einn maður slasaðist lítillega þegar fólksbíll valt við Kaplakrika í Hafnarfirði um níuleytið í morgun.

Varað við umferð undir Hafnarfjalli vegna veðurofsa
Lögreglan í Borgarnesi vill vara fólk við að aka undir Hafnarfjall sökum veðurs. Mikill vindur er á svæðinu, allt að 40 metrar á sekúndu, en í nótt fór vindhraðinn á þessum slóðum í yfir 50 metra á sekúndu.

Fárviðri undir Hafnarfjalli
Vindur hefur farið yfir 40 metra á sekúndu, sem er meira en tólf vindstig og þar með fárviðri samkvæmt eldri mælingu, alveg síðan í gærkvöldi. Það var fyrst undir morgun að heldur var farið að draga úr. Lengst af nætur hefur stöðugur vindur mælst um og yfir 30 metar á sekúndu, eða ofsaveður. Samkvæmt fyrstu athugunum í morgun virðist ekki hafa orðið umtalsvert tjóin, en eitthvað af lausamunum fauk til. Mjög hvasst hefur líka verið undir Hafnarfjalli, og áður en lengra er haldið er hér viðvörun frá Vegagerðinni.

Haldið sofandi í öndunarvél
Maðurinn, sem bjargað var úr hálf sokknum bíl sínum úti í Höfðabrekkutjörn, skammt austan Víkur í Mýrdal í gær, var haldið sofandi í öndunarvél í gærkvöldi.

Ferðalangarnir væntanlegir frá Kúbu
Íslenskur ferðamannahópur, sem var á heimleið frá Kúbu í gær en tafðist í Halifax í Kanada, er væntanlegur til landsins nú í morgunsárið, samkvæmt tilkynningu frá heimsferðum.

Offitufaraldur þjóðarinnar kostar tvo milljarða á ári
Offitufaraldur geisar á Íslandi og er þróunin einna verst hjá börnum og unglingum.

Friðarsvifflugan enn ógreidd í Nauthólsvík
Sviffluga sem Rudolf Schuster, talsmaður Friðarstofnunar Reykjavíkur, fékk að gjöf við komu til landsins í fyrra er enn í geymslu Svifflugsfélagsins ári síðar. Borgarstjóri afhenti sviffluguna en enginn veit hver á að borga fyrir hana.

Pókerheimurinn á Íslandi veltir hundruðum milljóna á ári
Gríðarlegar fjármunir velta á milli handanna á íslenskum pókerspilurum á ári hverju. Heimildamenn Vísis í pókerheiminum telja fullvíst að árleg velta hlaupi á hundruðum milljóna.

Þrír bílar útaf í hálku á Suðurlandi
Tveir bílar fóru út af í hálku á Biskupstungnabraut við gatnamótin á Suðurlandsvegi og annar fór út af á brautinni við Laugarbakka undir Ingólfsfjalli. Þá voru tvær aftanákeyrslur á Suðurlandsvegi, önnur við litlu Kaffistofuna og hin í Svínahrauni.

Járnplötur og jólatré á flugi í Kópavogi
Lausamunir fjúka á byggingarsvæði við Hlíðarsmára og Arnarnesveg í Kópavogi samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Járnplötur fuku af nýbyggingasvæði og ógnuðu umferð sem keyrði um Arnarnesveg. Tilkynningar bárust lögreglu frá ökumönnum. Þá fuku jólatré á sama stað.

Kerra fauk á Kjalarnesi - hávaðarok víða
Kerra fauk á hliðina í sterkri vindhviðu þegar ökumaður kom upp úr Hvalfjarðargöngunum sunnan megin nú fyrir skömmu. Þá tilkynnti sendibílstjóri lögreglu að engu hefði mátt muna að illa færi í hviðu sem skall á honum á sama stað. Fjöldi manns hefur tilkynnt lögreglu að litlu hafi munað að slys yrðu í veðrinu í vindhviðum á Kjalarnesi.

Enn strandaglópar í Halifax
Hátt í tvöhundruð farþegar á leið frá Kúbu til Íslands eru strandaglópar í Halifax í Kanada eftir stigabíll á ók utan í flugvélina þegar hún millilenti þar.

Helmingur innlána bankanna frá útlendingum
Innlán íslensku bankanna hafa þrefaldast á tæplega tveimur árum en rúmlega helmingur þeirra kemur frá útlendingum.

Ísinn á Tjörninni ótraustur
Þrátt fyrir að ís sé farið að leggja yfir tjörnina í Reykjavík sér lögreglan ástæðu til að vara fólk við að fara út á hann.

Óráðin afstaða Sjálfstæðismanna
Sjálfstæðismenn í borgarstjórn voru afdráttarlausir í yfirlýsingum um að opinber fyrirtæki ættu ekki að standa í áhættusömum fjárfestingum áður en meirihlutinn féll fyrir hálfum öðrum mánuði - þótt borgarfulltrúi Sjálfstæðismanna haldi öðru fram í dag.

Í öndunarvél á gjörgæslu eftir bílslys við Vík
Líðan mannsins sem fluttur var með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Slysadeild í Fossvogi eftir að bifreið hans hafnaði í lóni skammt frá Vík er stöðug. Maðurinn er í öndunarvél á gjörgæslu samkvæmt upplýsingum vakthafandi læknis á Landsspítalanum.

Kanna möguleika á millilandaflugi frá Ísafirði
Vestfirðingar eru að kanna möguleika á að hefja millilandaflug til og frá Ísafirði. Með slíku flugi telja þeir sig geta fengið fleiri ferðamenn vestur og aukið útflutningsmöguleika fjórðungsins. Málið er til alvarlegrar skoðunar í samgönguráðuneytinu.

Segir íslenskar eftirlitsstofnanir óvirkar
Guðmundur Gunnarsson formaður Rafiðnaðarsambandsins sagði í Silfri Egils í dag að íslenskar eftirlitsstofnanir hefðu ekki gengt hlutverki sínu varðandi erlenda verkamenn á Kárahnjúkum. Guðmundur sem er í stjórn Evrópusambands byggingarmanna sagði afar slæmt orð fara af aðbúnaði erlendra verkamanna hér á landi í Evrópu.

Fluttur með þyrlu eftir bílslys við Vík
Tæplega áttræður karlmaður var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar á slysadeild Landsspítalans í Fossvogi eftir að bifreið hans hafnaði í lóni skammt frá Vík í morgun. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á Hvolsvelli virtist maðurinn missa stjórn á bílnum og fara út af þjóðveginum í lónið sem kemur úr Kerlingardalsá austan við Vík.

Hitaveita tekin í notkun í Grýtubakkahreppi
Tímamót urðu í Grýtubakkahreppi þegar ný hitaveita var formlega tekin í notkun. Sveitarstjóri Grýtubakkahrepps segir þetta ævintýri líkast. Heita vatnið kemur frá borholu á Reykjum í Fnjóskadal og ferðast um langan veg eða allt að 50 kílómetra.

Guðni segir framkomu Halldórs ódrengilega
Guðni Ágústsson lýsir því í nýrri ævisögu sinni að ódrengilegt hafi verið af formanni Framsóknarflokksins, Halldóri Ásgrímssyni, að hafa varaformann sinn ekki með í ráðum þegar Halldór og Davíð Oddsson ákváðu að styðja innrás Bandaríkjamanna í Írak.

Franskur vísindamaður fannst eftir leit á hálendinu
Víðtæk leit var gerð í gærkvöldi af frönskum vísindamanni sem fór í ferðalag um hálendið á fimmtudag til að safna GPS landmælingartækjum raunvísindastofnunar Háskóla Íslands. Maðurinn fannst heill á húfi klukkan hálf tvö í nótt í bíl sínum, sem hafði festst í vatni og krapa á miðri Fjallabaksleið.

Hálka og snjókoma í Reykjavík
Nú snjóar í Reykjavík en hálka og hálkublettir eru víða um landi. Meðal annars á Hellisheiði og í Þrengslum. Hálka er á Holtavörðuheiði, Bröttubrekku og á Fróðárheiði. Hálkublettir eru víða á Snæfellsnesi. Hálka eða hálkublettir eru einnig víða á Vestfjörðum og ófært er um Hrafnseyrarheiði og þungfært um Dynjandisheiði.

Missti stjórn og valt á Grindavíkurvegi
Ökumaður, sem grunaður er um ölvun við akstur, missti stjórn á bíl sínum á Grindavíkurvegi í nótt með þeim afleiðingum að bifreiðin valt á veginum. Ökumaðurinn slapp án teljandi meiðsla og gistir nú fangageymslu. Þá var annar ökumaður, grunaður um ölvun, stöðvaður í Reykjanesbæ í nótt en sá brást skjótt við og reyndi að komast undan lögreglu á hlaupum. Ekki var hann þó frárri á fæti en svo að lögreglan hljóp hann uppi og handsamaði. Hann gistir nú einnig fangageymslu.

Átak gegn kynbundnu ofbeldi
Í dag er alþjóðlegur dagur Sameinuðu þjóðanna gegn kynbundnu ofbeldi. Af því tilefni er efnt til 16 daga átaks á alþjóðavísu. Fjölbreytt dagskrá er að þessu tilefni hér á landi á vegum Mannréttindaskrifstofu Íslands.

Víða hálka
Hálka og hálkublettir er víða um land. Hálkublettir eru á Hellisheiði og í Þrengslum. Á Austur- og Norðurlandi er hálka og hálkublettir á flestum leiðum.

Flugi JetX frestað vegna beyglu á búk
Fresta varð flugi flugvélar JetX flugfélagsins, sem flýgur fyrir Heimsferðir, frá Halifax í nótt vegna beyglu sem uppgötvaðist á búki vélarinnar. Hún var að koma frá Kúbu með millilendingu í Halifax í Kanada á leið heim til Íslands. Í Halifax urðu menn varir við beygluna, sem mun samkvæmt heimildum fréttastofunnar vera á afturhluta vélarinnar. Allt bendir til að ekið hafi verið utan í flugvélina á flugvellinum á Kúbu.