Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ingibjörg fundar með starfssystkinum á allsherjarþingi SÞ Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra átti gær sex tvíhliða fundi með utanríkisráðherrum annarra landa auk óformlegra funda með ýmsu forystufólki sem sækir allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í New York sem sett var í gær. 26.9.2007 13:59
Rafmagnlaust í Hálsahverfi í Árbæ Rafmangslaust er í Hálsahverfi í Árbæ vegna rekstrartruflunar eins og Orkuveita Reykjavíkur orðar það. Verið er að vinna að því að koma rafmagni á að nýju sem verður vonandi fljótlega. 26.9.2007 13:53
Enn ekki yfirheyrt meintan höfuðpaur Lögreglan hefur enn ekki hafið yfirheyrslur á Bjarna Hrafnkelssyni, sem grunaður er um að vera annar af höfuðpaurunum í Fáskrúðsfjarðarmálinu. 26.9.2007 13:38
Fá 30 þúsund aukalega á mánuði vegna álags Björn Bjarnason dómsmálaráðherra hefur ákveðið að greiða öllum starfandi lögreglumönnum sérstakt tímabundið álag upp á 30 þúsund krónur á mánuði samkvæmt samkomulagi sem Landssamband lögreglumanna hefur gert við stjórnvöld. Þetta kemur fram á vef landssambandsins. 26.9.2007 13:22
118 sektaðir fyrir hraðakstur í Hafnarfirði 118 ökumenn eiga von á sektum vegna hraðaksturs en brot þeirra voru mynduð í Hafnarfirði í gær. 26.9.2007 13:15
Vilja fá að skjóta ref á Ströndum Skotveiðifélag Íslands ætlar að beita sér fyrir því með heimamönnum að friðun á ref á Ströndum verði aflétt. Hún sé vanhugsuð náttúruvernd. 26.9.2007 13:00
Ráðist inn í sorg sjötugrar ekkju Ekkja sem missti mann sinn fyrir þremur mánuðum fékk í vikunni senda könnun þar sem hún er meðal annars beðin um að svara spurningum um kynlíf sitt og áfengis- og lyfjanotkun eftir missinn. Ekkjan, sem er á sjötugsaldri, er enn í sárum eftir fráfall manns síns og segir dóttir hennar að könnunin beri vitni um fullkomið dómgreindarleysi af hálfu þeirra sem að henni standa. Könnunin er liður í lokaverkefni sálfræðinema en ábyrgðarmaður er sálfræðingur á öldrunarsviði Landspítalans. 26.9.2007 12:52
Lundinn finnur griðland í Flatey á Skjálfanda Lundinn virðist vera búinn að finna sér griðland norður í Flatey á Skjálfandaflóa, samkvæmt rannsóknum Náttúrustofu Norðausturlands. 26.9.2007 12:45
Var vanhæfur til að fjalla um ráðningu aðstoðarskólastjóra Fulltrúi Samfylkingar í skólanefnd Kópavogs var vanhæfur til að taka þátt í afgreiðslu á ráðningu aðstoðarskólastjóra Smáraskóla. Að þessu kemst bæjarlögmaður Kópavogs sem kynnti niðurstöður sínar á bæjarstjórnarfundi í gær. 26.9.2007 12:30
Mál Vilhelms Þorsteinssonar fyrir rétt í Noregi Norska strandgæslan sleppti fjölveiðiskipinu Vilhelm Þorsteinssyni EA úr haldi í Norður-Noregi í gærkvöldi gegn tryggingu. Útgerðin hafnaði dómssátt og fer málið fyrir rétt í Noregi. 26.9.2007 12:25
Ræðir við öldungadeild Bandaríkjaþings um orkumál Forseti Íslands kemur í dag á fund fastanefndar Öldungadeildar Bandaríkjaþings til að ræða hvernig nýta megi jarðvarma og miðla reynslu Íslendinga. Ætla má að þetta sé í fyrsta sinn sem íslenskur forseti kemur fyrir þingnefnd í Bandaríkjunum eða annars staðar. 26.9.2007 12:16
Ekki samstíga um hvort taka eigi upp flatan skatt Formaður Samfylkingarinnar og viðskiptaráðherra eru ekki samstíga í því hvort taka beri upp flatan skatt. Viðskiptaráðherra vill slíkan skatt og sér fylgismenn í Sjálfstæðisflokknum og hjá Viðskiptaráði. 26.9.2007 12:04
Ekki ekið á manninn í Hraunbergi Rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í svokölluðu Hraunbergsmáli hefur leitt í ljós að ekki var ekið á manninn í umræddu máli. Grunur beindist strax að ákveðnum bíl og var ökumaðurinn yfirheyrður. Við rannsókn málsins kom ekkert það fram sem bendir til að hann hafi átt hlut að máli. Sama á við um farþega sem voru í bílnum en umrætt ökutæki var rannsakað ítarlega. Það er jafnframt álit sérfróðra aðila að áverkar á hinum slasaða séu ekki tilkomnir vegna umferðarslyss. Málavextir voru á þá leið að lögreglan var kölluð að Hraunbergi í Breiðholti föstudagskvöldið 4. ágúst sl. Þar lá karl á sjötugsaldri illa á sig kominn en grunur lék á að ekið hefði verið á hann. 26.9.2007 11:41
Vara við ferðum á Snæfellsnesi Lögreglan hafði rétt í þessu samband við Vísi til þess að vara fólk við að vera að óþörfu á ferðinni á norðanverðu Snæfellsnesi í dag vegna hvassviðris. Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfræðingur á Veðurstofu Stöðvar 2 tekur undir þessu varnaðarorð. "Já það má búast við vindhraða á bilinu 20-30 m/s á norðanverðu nesinu í dag og að hviður geti slegið í um eða yfir 40 m/s," segir Sigurður" 26.9.2007 11:18
Þjónusta skert á fjórum leikskólum Þjónusta hefur verið skert á fjórum leikskólum á höfuðborgarsvæðinu vegna manneklu. Í morgun fengu foreldrar barna í Brekkuborg bréf þar sem þeim er tilkynnt að þau þurfi að hafa börnin sín heima í tvo daga í byrjun október. Leikstjóraskóli vonar að um tímabundið ástand sé að ræða. 26.9.2007 10:57
Fluttur á sjúkrahús eftir harðan árekstur á Suðurnesjum Einn var fluttur á sjúkrahús í Reykjanesbæ eftir harðan árekstur tveggja fólksbíla á mótum Sandgerðisvegar og Miðnesheiðarvegar um klukkan hálftíu í gærkvöld. 26.9.2007 09:31
Auglýsing Umferðarstofu að erlendri fyrirmynd Þær sögur hafa undanfarið gengið á Netinu að auglýsing Umferðarstofu sem sýnd hefur verið undanfarin misseri sé stolin. Vísað hefur verið í erlenda auglýsingu sem er sláandi lík henni, því til sönnunar. Einar Magnús Magnússon hjá Umferðarstofu vísar þessum sögum alfarið á bug. Fullt leyfi hafi verið fengið til að endurgera auglýsinguna. 25.9.2007 21:48
Spítalinn fer gegn stefnu ríkisstjórnarinnar Ásta Möller, formaður heilbrigðis- og trygginganefndar Alþingis, segir að áform Landspítalans um að ráða til sín erlenda hjúkrunarfræðinga til starfa sé andstætt stefnu ríkisstjórnarinnar. Það sé yfirlýst stefna að auka samstarf við einkaaðila í heilbrigðisþjónustu. Hún segist ekki hafa trú á því að spítalanum takist að fá 90 erlenda hjúkrunarfræðinga til starfa hér á landi. 25.9.2007 20:05
Mannekla Landspítalans versnar Mannekluvandi Landspítalans mun aukast á næstu mánuðum segir talsmaður ráðningafyrirtækis, sem spítalinn sagði upp samningi við. Landspítalinn verði því verr í stakk búinn að taka við erlendum hjúkrunarfræðingum. 25.9.2007 19:00
Feginn að fá faðernið loksins staðfest Lúðvík Gizurarson er feginn að faðernismáli hans, til staðfestingar á að hann er sonur Hermanns Jónassonar fyrrverandi forsætisráðherra, er lokið. Dóttir hans á síður von á að hann muni eftirleiðis kenna sig við Hermann. 25.9.2007 18:45
Brottvísun fyrir mótmæli? Breskur jarðfræðingur sem tekið hefur þátt í aðgerðum Saving Iceland á yfir höfði sér að vera vísað úr landi vegna mótmæla sinna á grundvelli almannaöryggis og allsherjarreglu. 25.9.2007 18:45
Byggingarréttur ætti að fyrnast Formaður Torfusamtakanna segir óeðlilegt að byggingarréttur sé óafturkræfur. Þá geti hluti gamla bæjarins í Reykjavík glatast. Hann vill að sett verði á fót embætti umboðsmanns íbúa til að gæta hagsmuna þeirra við breytinga á skipulagi. 25.9.2007 18:45
Skuggaráðuneyti Samfylkingarinnar Samfylkingin í Reykjavík hefur komið á fót skuggaráðuneytum í Reykjavík. Borgarstjórnarflokkurinn hefur skipt með sér verkum og skipað talsmenn í einstökum málaflokkum. 25.9.2007 18:38
Engar fyrirliggjandi breytingar á peningastefnu Seðlabankans Forsætisráðherra segir ekkert liggja fyrir um breytingar á peningastefnu Seðlabankans, en segir engin lög það merkileg að ekki megi breyta þeim. Varðandi gagnrýni utanríkisráðherra á síðustu ríkisstjórn segir hann að kosningabaráttunni hafi lokið 12.maí. 25.9.2007 18:27
Fimm milljónir gegn dauðarefsingu Á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í október 2007 verður lögð fram ályktun um að aftökur verði stöðvaðar um heim allan. Talið er að ályktunin verði fyrsta skrefið í átt að afnámi dauðarefsingarinnar. Hægt er að skrá sig á sérstaka bænaskrá gegn dauðarefsingum og hafa nú þegar 5 milljónir manna gert slíkt. 25.9.2007 18:09
Þeir sem deila um Norðurpólinn gætu lært af landhelgisdeilunni Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra er staddur í Tromsö í Noregi á ráðstefnu um öryggi og auðlindir á Norðurslóðum. Þar hélt hann erindi þar sem fram kom að lausn deilunnar um yfirráð yfir Norðurpólnum gæti falist í því hvernig Íslendingar leystu landhelgisdeiluna á sínum tíma. 25.9.2007 18:00
Staða tjónþola bætt um milljónir kr. Drög að lagafrumvörpum vegna breytinga á hafnalögum, siglingalögum og lögum um skipan ferðamála voru kynnt í ríkisstjórn í morgun og samþykkt að þau færu til umfjöllunar í þingflokkum ríkisstjórnarflokkanna. Meðal annars á að stórbæta stöðu tjónþola við slys eða dauðsföll. 25.9.2007 17:45
Vilja bjóða grunnskólabörnum frítt inn á skíðasvæði Stjórn skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins hefur uppi hugmyndir um að bjóða grunnskólabörnum allra aðildarsveitarfélaga skíðasvæðanna frítt inn á skíðasvæðin frá áramótum og til reynslu til tveggja ára. Þá stefnir stjórnin áfram að undirbúningi snjóframleiðslu í bæði Bláfjöllum og Skálafelli. 25.9.2007 17:12
Ökumaður sem velti ekki undir áhrifum fíkniefna Í frétt Vísis af bílveltu í Þrengslunum á laugardaginn var því haldið fram í fyrirsögn að ökumaðurinn hefði verið undir áhrifum fíkniefna. Fyrirsögnin var í engum takti við innhald greinarinnar þar aðeins kom fram að lögreglan grunaði ökumanninn um hafa verið undir áhrifum fíkniefna. Slíkt reyndist ekki vera raunin og biður ritstjórn Vísis hlutaðeigandi ökumann afsökunar á tilhæfulausri fyrirsögn. 25.9.2007 17:09
Lögreglu gefið hjartastuðtæki Í dag var lögreglunni á Vestfjörðum fært að gjöf hjartastuðtæki af gerðinni Samaritan PAD. Tækið færði Helga Guðbjartsdóttir lögreglustjóranum, Kristínu Völundardóttur, en það er gefið lögreglunni til minningar um eiginmann Helgu, Hjört Jónsson bakarameistara frá Flateyri. 25.9.2007 17:08
Ríkið fór allt að 87 prósent fram úr fjárhagsáætlunum Dæmi eru um að framkvæmdir á vegum hins opinbera síðustu ár hafi farið allt að 87 prósent fram úr fjárhagsáætlunum. Ríkisendurskoðun hefur ítrekað gert sömu athugasemdir við ýmsar framkvæmdir á vegum ríkisins. 25.9.2007 16:28
Íhugar að fara á topp Cho Oyu án súrefnis Íslenski fjallaleiðsögumaðurinn Leifur Örn Svavarsson íhugar nú að fara án súrefnis á topp Cho Oyu, sjötta hæsta fjalls heims sem er á landamærum Tíbets og Nepals. 25.9.2007 16:16
Enska draumadeildin hafin á Vísi Vísir hefur hleypt af stokkunum ensku draumadeildinni fyrir lesendur vefjarins eftir frábærar viðtökur í íslensku draumadeildinni. Í ensku draumadeildinni geta þátttakendur stillt upp sínu draumaliði og fá leikmenn stig eftir frammistöðu sinni í raunverulegum leikjum í ensku úrvalsdeildinni. 25.9.2007 16:00
Vefpóstur Vísis liggur niðri Vefpóstur Vísis liggur niðri þessa stundina og hefur fréttastofa fengið nokkrar fyrirspurnir frá notendum af þeim sökum. Tæknimenn vinna nú að því að koma vefpóstinum í lag en ekki liggur fyrir hvenær þeirri vinnu lýkur. 25.9.2007 15:40
Löggudólgur dæmdur í hálfs árs skilorðsbundið fangelsi Tvíttugur karlmaður var í Héraðsdómi Norðurlands eystra í dag dæmdur í hálfs árs fangelsi sem skilorðsbundið er til þriggja ára fyrir að hafa í tvisvar á rúmum tveimur mánuðum í sumar ráðist á lögreglumenn sem höfðu afskipti af honum. 25.9.2007 15:30
SÞ styður herferð gegn Norðurlöndunum Fjölmörg stór hjálparsamtök hefja í dag, með stuðningi frá Sameinuðu þjóðunum, herferð gegn flóttamannastefnu Norðurlanda. Jóhanna Eyjólfsdóttir framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Amnesty International segir að hér á landi muni deildin ásamt Rauða krossinum og Mannréttindastofu standa að herferðinni. 25.9.2007 15:09
Vefmælir sýnir svifryk í borginni Borgaryfirvöld hafa ákveðið að birta niðurstöður mælinga á svifryki með nýstárlegum hætti á heimasíðum Umhverfissviðs borgarinnar og Reykjavíkurborgar. Sérstakur vefmælir á síðunum mun sýna nýjust niðurstöður á hálftíma fresti frá mælistöðinni við gatnamót Grensásvegar og Miklubrautar. 25.9.2007 15:04
Skilanefnd lýkur ekki störfum fyrr en á næsta ári Skilanefnd eignarhaldsfélagsins Samvinnutrygginga mun ekki ljúka störfum á næstu vikum heldur jafnvel ekki fyrr en á næsta ári. Þetta kemur fram í tilkynningu frá formanni skilanefndarinnar, Kristini Hallgrímssyni. 25.9.2007 14:27
Norðmenn vilja kaupa beituverksmiðju Hópur af norskum fjárfestum auk fulltrúa frá einu öflugasta matvælafyrirtækinu þar í landi munu koma hingað til lands í vikunni til viðræðna um kaup á beituverksmiðjunni í Súðavík. Ómar Már Jónsson sveitarstjóri Súðavíkurhrepps segir að íslenskir fjárfestar hafi ekki sýnt málinu neinn áhuga. Hinsvegar sjá Norðmenn mikla möguleika í fyrirtækinu. 25.9.2007 14:20
Kettir í bóli húsráðanda Lögreglumenn á höfuðborgarsvæðinu þurftu að beita allri sinni kænsku til þess að glíma við tvo óboðna gesti í í fjölbýlishúsi í Hafnarfirði í síðustu viku. 25.9.2007 13:56
Stjórnsýsluhúsið of lítið fyrir auglýsingar Stjórnsýsluhús Hvalfjarðarsveitar er of lítið og því hefur verið ákveðið að deiliskipulagsauglýsingar, og aðrar sambærilegar auglýsingar, verði framvegis hengdar upp á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa í Miðgarði og hætt að hengja þær upp í stjórnsýsluhúsi Hvalfjarðarsveitar að Innrimel 3 í Melahverfi. 25.9.2007 13:51
Rekur verslun í Grímsey af hugsjón Verslunarstjórinn í Grímsey segir að tekist hafi að koma í veg fyrir fólksflótta úr eynni með því að endurreisa matvörubúðina. Búðin er rekin af hugsjón. 25.9.2007 13:15
Foreldrar kaupa málningu til veggjakrots Dæmi eru um að foreldrar hafi mafi keypt málningu handa sonum sínum til veggjakrots í borginni. Þetta segja Einar Ásbjörnsson og Ásdís Haraldsdóttir, lögreglumenn í Grafarvogi, í hugvekju á vef lögreglunnar. 25.9.2007 13:04
Fjórfalt fleiri ófaglærðir hér en í Danmörku Mun fleiri ófaglærðir eru á íslenskum vinnumarkaði en í Danmörku. Hátt í fjörutíu prósent Íslendinga á aldrinum 16-64 ára hafa ekki lokið framhaldsnámi á meðan ófaglærðir Danir eru um 10 prósent. Nú er boðið upp á úrræði fyrir þá sem aldrei hafa lokið námi hér á landi. 25.9.2007 12:37
Hafnar því að þýðingarþjónusta sé niðurgreidd Einar Skúlason, framkvæmdastjóri Alþjóðahúss, hafnar því alfarið að það niðurgreiði túlka- og þýðingarþjónustu með styrkjum frá ríki og borg eins og forsvarsmenn Þýðingarstofunnar Skjals halda fram. 25.9.2007 12:25