Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Um 40 ólöglegir iPhone símar í notkun á Íslandi Samkvæmt heimildum Vísis eru um fjörutíu óskráðir og ólöglegir iPhone símar í notkun hér á landi. Símarnir voru keyptir í Bandaríkjunum en vegna samnings sem Apple gerði við farsímafyrirtæki þar í landi eru símarnir læstir fyrir notkun erlendis. Tölvuhakkarar hafa fundið leið til að komast framhjá þessari læsingu og lekið þeim upplýsingum á netið. Svo virðirst sem allnokkrir óþreyjufullir aðilar hér á landi hafi nýtt sér þerssar upplýsingar, aflæst Iphone símanum og hafið notkun á honum hér á landi. 18.9.2007 12:16
Ísland í hópi menntuðustu OECD þjóða Ísland er meðal níu landa innan OECD, Efnahags- og framfarastofnunarinnar, þar sem fjórir af hverjum tíu útskrifast úr háskóla. 18.9.2007 12:05
SBA - Norðurleið, Hagvagnar og Kynnisferðir fá ekki að sameinast Samkeppniseftilitið hefur úrskurðað að hópferðafyrirtækin SBA - Norðurleið, Hagvagnar og Kynnisferðir fái ekki að sameinast. Í lok marsmánaðar síðastliðinn keypti eignarhaldsfélagið Reynimelur ehf., sem er í eigu SBA-Norðurleiðar og Hagvagna fyrirtækið Kynnisferðir ehf. af FL Group. Viðskiptin voru tilkynnt Samkeppniseftirlitinu sem samruni. 18.9.2007 10:49
Afkoma ríkissjóðs versnar Á öðrum ársfjórðungi 2007 nam tekjuafgangur hins opinbera 9,7 milljörðum króna en það er nokkuð óhagstæðari afkoma en á öðrum ársfjórðungi 2006 er hann mældist 15,7 milljarðar króna. 18.9.2007 09:15
Ekið á hross Bíl var ekið á hross á Grenivíkurvegi í gærkvöldi og meiddist hesturinn svo mikið að það þurfti að aflífa hann á staðnum. Ökumann bílsins sakaði ekki, en hann var ný búinn að mæta bíl og ók enn á lágu ljósunum, þegar hesturinn stökk upp á veginn í veg fyrir hann. Myrkur var þegar slysið varð en nú fer í hönd sá tími, sem þessu slysum fjölgar jafnan.- 18.9.2007 08:05
Unglingar í hraðakstri Lögreglan á Akureyri stöðvaði í gærkvöldi tvo sautján ára pilta eftir að þeir höfðu mælst á rúmlega hundrað kílómetra hraða innanbæjar, þar sem hámarkshraði er 50 kilómetrar á klukkustund. Báðir fengur þeir ökuskírteini í sumar og voru þeir að reyna með sér hæfni sína til hraðaksturs, en missa nú að líkindum ökuréttindin. 18.9.2007 08:03
Ölvaðir teknir úr umferð Lögreglan í Reykjavík tók þrjá menn úr umfrð í gærkvöldi, einn vegna gruns um að hafa ekið undir áhrifum lyfja og tvo vegna ölvunaraksturs. Annar þeirra var að halda upp á að vera ný sloppinn út af Litla Hrauni eftir afplánun dóms. 18.9.2007 08:01
Alvarlega slasaður eftir bílveltu Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti í kvöld mann til Reykjavíkur eftir bílslys í Reykhólasveit. Að sögn lögreglu er maðurinn alvarlega slasaður. Tildrög slyssins urðu með þeim hætti að maðurinn, sem var einn í bíl sínum, ók út af veginum við Klukkufell með þeim afleiðingum að bíllinn valt. 17.9.2007 19:13
Grindvíkingar undrandi og óánægðir Á aukabæjarstjórnarfundi í Grindavík sem haldinn var í dag lýsti bæjarstjórnin yfir undrun og óánægju sinni með mótvægisaðgerðir ríkisstjórnarinnar vegna aflaskerðingar á þorski. Bæjarfulltrúarnir segja að Grindavík verði verst úti vegna skerðingarinnar en þrátt fyrir það sé hvergi minnst á bæinn í boðuðum aðgerðum. 17.9.2007 18:46
Ók yfir á rauðu Harður árekstur varð á mótum Miklubrautar og Háaleitisbratuar laust fyrir klukkan hálf sex í kvöld. Þrennt lenti í árekstrinum og þurfti að flytja farþega annarar bifreiðarinnar á slysadeild. Slysið varð með þeim hætti að annar ökumaðurinn ók yfir á rauðu ljósi. 17.9.2007 18:35
Vill loka klukkan tvö Stefán Eiríksson, lögreglustjóri Höfuðborgarsvæðisins, boðar stórhertar aðgerðir lögreglu í miðborginni. Hann vill láta takmarka opnunartíma skemmtistaða í miðbænum til klukkan tvö á nóttunni. Stefán segir að þeir staðir sem vilji hafa opið lengur verði að vera annarsstaðar í borginni. Þetta kom fram á Miðborgarþingi. 17.9.2007 18:21
Leitin að Hörpunni heldur áfram Jónas Garðarsson er á leið í fangelsi. Hann mun afplána þriggja ára dóm fyrir að bera ábyrgð á dauða þeirra Friðriks Hermannssonar og Matthildar Harðardóttur í sjóslysi í september 2005 þegar bátur hans Harpan steytti á skeri. Hér fyrir neðan er málið rakið frá nóttinni örlagaríku til dagsins í dag. 17.9.2007 17:32
Treystir Svöfu fyrir milljarðinum Róbert Wessman, forstjóri Actavis, hefur ákveðið að leggja fram 1 milljarð króna sem hlutafé og framlag í Þróunarsjóð Háskólans í Reykjavík, sem verið er að stofna. Róbert sagði í samtali við Vísi að hann teldi mikil tækifæri til þess að byggja upp samkeppnishæft alþjóðlegt háskólaumhverfi á Íslandi. 17.9.2007 17:24
Saklaus maður sviptur frelsi Liðlega tvítugur karlmaður hefur stefnt dómsmálaráðherra og fjármálaráðherra fyrir hönd íslenska ríkisins vegna ólögmætrar frelsissviptingar. Maðurinn var stöðvaður af lögreglu í Árnessýslu að morgni þriðjudagsins 22. mars 2005 vegna of hraðs aksturs. Hann var beðinn að koma í lögreglubifreið þar sem hann játaði brot sín. Hann var síðar sakaður um aðild að ólöglegri veru og vinnu útlendinga. 17.9.2007 16:52
Slagsmál unglinga mynduð og sett á Netið Slagsmál á meðal reykvískra unglinga voru tekin upp á myndband og sett á Netið. Samkvæmt heimildum Vísis eru unglingarnir á aldrinum 14-15 ára og nemendur í Réttarholtsskóla. Aðalbjörg Traustadóttir, framkvæmdastjóri hjá Þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis, hafði ekki séð myndbandið þegar blaðamaður Vísis benti henni á það. 17.9.2007 16:45
Aðgerðarleysi tefur byggingu Allt bendir til þess að framkvæmdir vegna byggingu hjúkrunarheimilis við Eiðisgranda tefjist um eitt til tvö ár vegna aðgerðarleysis heilbrigðisráðuneytisins. Bæjarstjóri Seltjarnarness segir brýnt að framkvæmdirnar hefjist sem fyrst. Hann sendi heilbrigðismálaráðherra bréf fyrir þremur vikum þar sem óskað var eftir afstöðu hans til málsins. Ekkert svar hefur borist. 17.9.2007 16:28
Sýndi löggunni beran afturendann Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í mörg horn að líta um helgina og hafði alls afskipti af 46 einstaklingum sem brutu gegn lögreglusamþykktum Reykjavíkurborgar. Meðal annars var einn borgari tekinn fyrir að girða niður um sig buxurnar og bera á sér afturendann. 17.9.2007 16:13
Frávísunarkrafa olíufélaganna samþykkt Máli útgerðarfélagsins Dala-Rafns frá Vestmannaeyjum á hendur Keri og Olíuverslun Íslands var vísað frá í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Lögmaður útgerðarfélagsins segir úrskurðinn koma mjög á óvart og býst við að hann verði kærður til Hæstaréttar. Skeljungur fór ekki fram á frávísun í málinu, heldur sýknu, en óljóst er hvort málið heldur áfram gegn félaginu. 17.9.2007 15:43
Rangar fullyrðingar um lyfjaverð á Íslandi Allar fullyrðingar um að lyfjaverð á Íslandi sé hærra en í nágrannalöndum okkar eru úr lausu lofti gripnar. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Samtökum framleiðenda frumlyfja. Þau benda á að frumlyf á íslenskum markaði séu ódýrari en í Danmörku. Samtökin vilja að stjórnvöld felli niður eða lækki virðisaukaskatt á lyfjum. 17.9.2007 15:00
Slökkviliðið kallað að trésmíðaverkstæði Betur fór en á horfðist þegar glóð kviknaði í loftræstikerfi á trésmíðaverkstæði vð Hvaleyrabraut í Hafnarfirði um hálftíuleytið í morgun. Enginn meiriháttar eldur varð en glóð logaði í sagi í loftræstikerfinu. Að sögn slökkviliðsins gerist slíkt nokkuð oft á smíðaverkstæðum og hafa stundum kviknað miklir eldar. Í þetta skiptið hafi farið vel og engar stórskemmdir orðið. 17.9.2007 14:50
Fangi sýknaður af ákæru um smygl Héraðsdómur Suðurlands sýknaði í dag fanga á Litla Hrauni af ákæru vegna brota á tolla- og lyfsölulögum. Í dómnum er vitnað í skýrslu fangavarða frá 24. nóvember 2006. Þar kemur fram að klefaleit hafi verið gerð hjá ákærða þann sama dag. „Hafi ákærða verið boðið að vera viðstaddur leitina, sem hann þáði. Þá hafi fundist ein sprauta, tvær nálar, níutíu og átta bleikar litlar töflur í plastpoka og tvær ambúlur með svörtum miða sem á stóð „supertest og trenbolone acetate“. 17.9.2007 14:20
Hið ógurlega hernaðarleyndarmál Íslands Ekki eru veittar upplýsingar um hvernig hið nýja varðskip sem verið er að smíða fyrir Landhelgisgæsluna verður vopnað. Það er sagt trúnaðarmál. Í uppflettibókum og á netinu er hægt að fá upplýsingar um það í smáatriðum hvernig öflugustu herskip Bandaríkjanna, Breta, Frakka og Rússa eru vopnuð. Raunar er hægt að fá þar upplýsingar um búnað allra herskipa og varðskipa um allan heim. 17.9.2007 14:16
Flugþjónustan tekur fyrsta evruposann í notkun Fyrirtækið Kortaþjónustan hefur sett upp fyrstu posana hér á landi sem taka við evrum. Það var Flugþjónustan á Reykjavíkurflugvelli sem tók fyrstu posana í notkun en evruposar gagnast til að byrja með helst fyrirtækjum í ferðaþjónustu. Fleiri fyrirtæki hafa þegar beðið um að fá slíka evruposa. Þetta þýðir að viðskiptavinir fyrirtækjanna fá uppgefið verð vöru eða þjónustu í evrum og greiða í þeirri mynt. 17.9.2007 13:43
Sonur minn var meira en bara fangi “Þetta hefur veitt mér mikinn styrk,” segir Ragnheiður Hilmarsdóttir sem undanfarnar vikur hefur vakið athygli fyrir einlæg og opinská skrif á heimasíðu sinni. Sonur Ragnheiðar, Hilmar Már, féll fyrir eiginn hendi á Litla-Hrauni fyrir skömmu og hefur Ragnheiður notað skrifin til að halda minningu hans á lofti. 17.9.2007 13:21
Forseti Íslands til Rúmeníu Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson mun á morgun þriðjudaginn 18. september halda í opinbera heimsókn til Rúmeníu. Heimsóknin stendur dagana 19.-20. september og er þetta er í fyrsta skipti sem forseti Íslands fer í opinbera heimsókn til Rúmeníu. Á undanförnum árum hafa myndast allmikil tengsl milli landanna og viðskipti þeirra farið vaxandi. 17.9.2007 13:01
Nauðgari átti að vera í farbanni Brynjar Níelsson hæstaréttarlögmaður segir að varla sé hægt að benda á nokkurn einn aðila sem beri ábyrgð á því þegar dæmdir menn strjúki burt úr landi eftir að hafa hlotið fangelsisrefsingu. Hann segir að farbannsúrskurðir þurfi að lúta ákveðnum skilyrðum sem kveðið sé á um í lögum. Farbann sé mikil refsing. DV greindi frá því í morgun að Portúgalinn Americo Luis Da Silva Concalves væri farinn úr landi. Concalves var dæmdur fyrir hrottalega nauðgun fyrir helgi. 17.9.2007 11:38
Einelti hjá fimmta hverjum ríkisstarfsmanni Starfsmannaskrifstofa ríkisstofnanna vinnur nú að stefnumótun og verkefnaáætlun sem miðar að því að bæta starfsumhverfi ríkisstarfsmanna. Einelti á vinnustöðum ríkisins er eitt þeirra atriði sem gefinn verður aukinn gaumur. Samkvæmt könnun í fyrra á einelti telur nær fimmti hver ríkisstarfsmaður, eða 17%, sig hafa orðið fyrir einelti í starfi. Þar af 10% sem segja að eineltið hafi átt sér stað oftar en einu sinni. 17.9.2007 11:32
Borgarstjóri vinnur gegn stefnunni Ungir sjálfstæðismenn telja Vilhjálm Þ. Vilhjálmssonar borgarstjóra vinna gegn sjálfstæðisstefnunni. Máli sínu til stuðnings nefna þeir nokkur mál sem borgarstjóri hefur staðið að, svo sem „klámráðstefnumálið, afskipti af ÁTVR og spilakassamálið svokallaða,“ eins og segir í ályktun SUS um innanríkis- og stjórnsýslumál. 17.9.2007 10:46
Tveir stöðvaðir vegna fíkniefnaaksturs Tveir ökumenn voru teknir úr umferð í Reykjavík í gærkvöldi vegna aksturs undir áhrifum fíkniefna. Annar var svo vankaður að ökumenn gerðu lögreglu viðvart um skrikkjótt ökulag hans. Í bíl hins, sem upphaflega var tekinn fyrir of hraðann akstur, fannst auk þess amfetamín. Engin ökumaður var hinsvegar tekinn úr umferð vegna neyslu áfengis í gærkvöldi eða í nótt.- 17.9.2007 09:17
Má búast við ísingu á þjóðvegum Ísing var á götum í efri byggðum á Akureyri í morgun, en búist er við að hana taki upp þegar líður á morguninn. Í ljósi þessa má búast við ísingu eða hálkublettum víða á þjóðvegum framan af degi.- 17.9.2007 09:13
Blóðdropinn, ný glæpasagnaverðlaun Stjórn Hins íslenska glæpafélags hefur stofnað til Íslensku glæpasagnaverðlaunanna. Þau verða veitt í fyrsta sinn sunnudaginn 23. september nk. í Iðu, bókaverslun í Lækjargötu og hefst athöfnin klukkan 17.00. Félagið hefur látið búa til verðlaunagrip sem hefur hlotið nafnið Blóðdropinn. 17.9.2007 08:16
Fjórir sluppu ómeiddir frá strandi Fjórir menn sluppu ómeiddir þegar hraðbátur þeirra steytti á skeri á milli Vatnsfjarðar og Mjóafjarðar við innanvert Ísafjarðardjúp á tíunda tímanum í gærkvöldi. Leki kom að bátnum og sendu skipverjar út neyðarkall. Síðan blésu þeir út gúmmíbjörgunarbát og fóru yfir í hann. 17.9.2007 07:19
Á fimmta tug erlendra ferðamanna meðal hinna látnu Áttatíu og átta hið minnsta eru nú sagðir látnir eftir flugslysið á Phuket-eyju á Taílandi í morgun, þar af á fimmta tug erlendra ferðamanna. Alls voru 130 manns í vélinni sem var á vegum taílenska lággjaldaflugfélagsins One-Two-Go, 123 farþegar og sjö manna áhöfn. 16.9.2007 22:07
Hjörvar Steinn ósigraður á Evrópumóti ungmenna Skákmaðurinn ungi Hjörvar Steinn Grétarsson er efstur ásamt fjórum öðrum með fullt hús vinninga á Evrópumóti ungmenna skák sem fram fer í Zagreb í Króatíu. Fram kemur í tilkynningu að Hjörvar, sem teflir í flokki 14 ára og yngri, hafi sigrað Þjóðverjann Felix Graf í 3. umferð mótsins í dag. 16.9.2007 21:33
Sjö handteknir vegna tilræðis í Tyrklandi Lögreglan í Tyrklandi handtók í dag sjö manns sem hún grunar um að hafa lagt á ráðin um sprengjuárás í höfuðborginni Ankara í síðustu viku. Lögreglu tókst að koma í veg fyrir árásina á þriðjudaginn var þegar hún fann bíl fullan af sprengiefni í bílageymslu í verslunarmiðstöð. 16.9.2007 21:14
Vistun fanga á Sólheimum gefur góða raun Það hefur gefið góða raun að vista fanga á Sólheimum í Grímsnesi en þar hafa fyrirmyndarfangar afplánað hluta af fangavist sinni. Færst hefur í vöxt að önnur úrræði en fangelsun sé notuð við betrun fanga á Íslandi. 16.9.2007 19:45
Segja Hörpuna í Bandaríkjunum Aðstendur þeirra sem létust þegar skemmtibáturinn Harpan steytti á Skarfaskeri fyrir um tveimur árum hafa lagt fram kæru á hendur Jónasi Garðarssyni fyrir að hafa selt bátinn og þannig komið í veg fyrir að þau hlytu þær skaðabætur sem Hæstiréttur dæmdi hann til að greiða. Aðstandendurnir segja bátinn í Bandaríkjunum. 16.9.2007 19:28
Lögmaður Færeyja fékk ekki þjóðhöfðingjaorðu Allir þjóðhöfðingjar Norðurlandanna hafa fengið fimmta og æðsta stig hinnar íslensku fálkaorðu - stórkross með keðju. Lögmaður Færeyja er ekki í þeim hópi. 16.9.2007 19:15
Fólk fær að kaupa í Símanum fyrir áramót Engin áform eru uppi hjá Símanum um að fá undanþágu til að fresta því að selja almenningi þrjátíu prósenta hlut í félaginu. Fyrirtækið verður skráð í Kauphöllinni fyrir áramót. 16.9.2007 18:45
Hópur fjárfesta styrkir skóla fyrir fatlaða Fjársterk kona leiðir hóp einstaklinga sem hyggst styrkja byggingu á nýjum skóla fyrir fatlaða í Mjóddinni. Öskjuhlíðarskóla og Safamýrarskóla verður því lokað innan fárra ára þegar nýi skólinn verður tekinn í notkun. 16.9.2007 18:45
Jafnlaunavottun úr sögunni? Ákvörðun verður tekin í kvöld um það hvort ráðherraskipuð nefnd sem ætlað var að undirbúa jafnlaunavottun fyrirtækja, heldur áfram störfum. Fyrrverandi félagasmálaráðherra skipaði nefndina til að vinna gegn kynbundnum launamun, en hana vantar 75 milljónir til að ljúka verkinu. 16.9.2007 18:30
Samgönguvika sett í borginni Samgönguvika Reykjavíkurborgar var sett með formlegum hætti í Perlunni í dag þar sem jafnframt voru veitt verðlaun í Kappakstrinum mikla sem fram fór í borginni í síðustu viku. 16.9.2007 15:45
Þungfært um Nesjavallaleið Vegagerðin varar við því að þungfært er um Nesjavallaleið. Þá er ófært yfir Öxarfjarðarheiði og hálka eða hálkublettir eru víða á heiðum á Norðaustur- og Austurlandi. Enn fremur er þungfært upp að Dettifossi. 16.9.2007 13:23
Skipulagslög eru gölluð Skipulagslög eru gölluð að mati formanns samtakanna Betri byggð á Kársnesi, sem telur að samráð við nágranna þurfi að koma mun fyrr inn en nú er. 16.9.2007 13:15
Ekki skýr ákvæði um bann við að pissa úti á götu Í lögreglusamþykkt borgarinnar er ekki tekið sérstaklega fram að bannað sé að kasta af sér vatni úti á götu en margir hafa verið sektaðir fyrir það undanfarnar tvær helgar í miðborginni. Tuttugu og fjórir voru handteknir í nótt fyrir að haga sér illa - flestir fyrir að pissa úti á götu. Alls hafa þrjátíu og átta verið handteknir í miðborginni um helgina fyrir slík minniháttar brot. 16.9.2007 12:45