Fleiri fréttir Kompás afhendir lögreglu umbeðin gögn Fréttastofa Stöðvar tvö afhendir lögreglu í dag gögn, sem lögregla telur sig þurfa, til að bera kennsl á fimm einstaklinga sem myndaðir voru í tengslum við umfjöllun Kompáss um karlmenn sem leita eftir samneyti við börn í gegnum Netið. Fréttastofan afhendir almennt ekki vinnugögn sín en undantekning er gerð vegna alvarleika málsins og ríkra almannahagsmuna. 26.1.2007 16:34 Lögreglan fær bíla og mótorhjól Ríkislögreglustjóri afhenti lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins fyrr í dag þrjá nýja og vel útbúna lögreglubíla og eitt mótorhjól. Þetta eru fyrstu bílarnir af þeim tíu sem höfuðborgarlögreglan hefur óskað eftir á þessu ári. 26.1.2007 16:13 Hátt í 300 myndaðir við hraðakstur á viku Nærri þrjú hundruð ökumenn voru myndaðir í myndavélabílum lögreglunnar við Stekkjarbakka í Reykjavík og í Hvalfjarðargöngum í þessari viku þar sem þeir óku of hratt. Frá þessu er greint á vef lögreglunnar. 26.1.2007 15:50 Náhval relur á land í Lónafirði Sjaldgæfa sjón bar fyrir augu í botni Lónafjarðar í Þistilfirði á dögunum þegar náhval rak þar á land. Slíkan hval hefur ekki rekið á land hér frá árinu 1976, eða í rúm þrjátíu ár, eftir því sem segir á vef Hafrannsóknarstofnunarinnar, en þá rak eitt eða tvö dýr rak á land í Geldinganesi í Reykjavík. 26.1.2007 15:33 Samþykkja aukinn stuðning við Afganistan Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra sat í dag utanríkisráðherrafund Atlantshafsbandalagsins sem haldinn var í Brussel. Eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá ráðuneytinu var meginumræðuefni fundarins aðgerðir bandalagsins í Afganistan og staða mála í Kósóvó. 26.1.2007 14:57 Heildarsamtök aldraðra og fatlaðra koma ekki að framboði Heildarsamtök aldraðra og fatlaðra koma á engan hátt að undirbúningi framboða til Alþingis sem kynnt hafa verið sem framboð öryrkja og aldraðra. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá formönnum Landssambands eldri borgara, Sjálfsbjargar - landssambands fatlaðra og Öryrkjabandalags Íslands. 26.1.2007 14:43 Landsbankinn vex hraðar erlendis en innalands Landsbanki Íslands kynnti uppgjör á besta ári í sögu bankans í London í morgun. Hagnaður eftir skatta var 40,2 milljarðar króna sem er 61 prósent meiri hagnaður en í fyrra. Ríflega helmingur af tekjum bankans, eða fimmtíu og tvö prósent, kemur af erlendri starfsemi. Þetta hlutfall var bara 17 prósent fyrir ári. Halldór J Kristjánsson bankastjóri, segir að velgengni bankans í Bretlandi eigi stóran hlut að máli í velgengninni. 26.1.2007 14:15 Ekki farið ískönnunarflug í dag Landhelgisgæslan mun ekki fara ískönnunarflug til Vestfjarða í dag þar sem það er orðið of áliðið til að fara af stað. Rafall í Fokker-vél Gæslunnar bilaði í gær og var ekki lokið við að gera við hann fyrr en nú. Birta fer nú þverrandi og því telja Gæslumenn að þeir eigi ekkert erindi á Vestfjarðamið. 26.1.2007 14:07 Eggert ekki endurkjörinn í framkvæmdastjórn UEFA Eggert Magnússon, formaður KSÍ, var ekki endurkjörinn í framkvæmdastjórn Knattspyrnusambands Evrópu en kosið var í dag. Eftir því sem fram kemur á vef KSÍ hafnaði Eggert áttunda sæti af þrettán frambjóðendum með 23 atkvæði en sex efstu náðu kjöri. 26.1.2007 13:34 Vilja fá að skjóta refi í friðlandi á Hornströndum Stjórn Skotveiðifélags Íslands vill að umhverfisráðherra beiti sér fyrir því að refaveiðar verði heimilaðar í friðlandinu á Hornströndum þar sem þeir telja að hann haldi niðri rjúpnastofninum á svæðinu. 26.1.2007 13:00 Rúnar í stað Haraldar í skattrannsókn tengdri Baugi Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra hefur í dag sett Rúnar Guðjónsson, sýslumann í Reykjavík, til þess að vera ríkislögreglustjóri við rannsókn á meintum skattalagabrotum fimm manna tengdum Baugi. 26.1.2007 12:47 Skipafélög nær alveg samstíga í verðhækkunum Stjórnendur Samskipa og Eimskips eru nær alveg samstíga í verðhækkunum, tímasetningu þeirra og í álagningu aukagjalds, samkvæmt athugun Neytendasamtakanna 26.1.2007 12:45 Fá 175 þúsund krónur í ríkisstyrk á mánuði Nýr búvörusamningur tryggir hverjum sauðfjárbónda að jafnaði um 175 þúsund krónur í ríkisstyrk á mánuði. Bóndinn fær auk þess til viðbótar allar tekjur af afurðum búsins. 26.1.2007 12:30 Hótar hertum samkeppnislögum ef matarverð lækkar ekki Fjármálaráðherra hótar hertum samkeppnisreglum ef aðgerðir stjórnvalda til að lækka matarverð skila ekki árangri. 26.1.2007 12:24 Tæpar 60 milljónir í málvarnarkostnað í Baugsmáli Ríkissjóður greiðir verjendum í hinu upphaflega Baugsmáli tæpar 58 milljónir króna í laun og útlagðan kostnað. Þá er ótalinn kostnaður vegna rannsóknar málsins. 26.1.2007 12:00 Vinstri - grænir stærri en Samfylkingin skv. könnun Frjálsrar verslunar Vinstri - grænir mælast stærri en Samfylkingin samkvæmt skoðanakönnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vefsvæðið heimur.is dagana 17. til 22. janúar. Samkvæmt könnuninni nýtur Sjálfstæðisflokkurinn fylgis tæplega 39 prósenta landsmanna, Vinstri grænir koma næstir með 20,5 prósent og þar á eftir kemur Samfylkingin með tveimur prósentum minna fylgi en Vinstri grænir. 26.1.2007 11:51 Bændur í Eyjafjarðarsveit vilja fá bætur vegna flóða Um tuttugu og fimm aðilar vilja fá bætur vegna tjóns sem hlaust af flóðum í Eyjafjarðarsveit fyrir jólin. Óvíst er hversu mikið fæst bætt. Norðlenski fréttavefurinn Vikudagur hefur eftir Bjarna Kristjánssyni, sveitarstjóra í Eyjafjarðarsveit, að Bjargráðasjóður taki öll málin til skoðunar en sennilega fái ekki allir sem óska eftir bætur. 26.1.2007 11:30 Landssamtök Landeigenda á Íslandi stofnuð Stofnfundur Landssamtaka Landeigenda á Íslandi var haldin í Sunnusal Hótels Sögu í dag. Salurinn var fullur út úr dyrum og aðstandendur fundarins telja að skráðir stofnfélagar séu hátt í 300 talsins. Guðný Sverrisdóttir, sveitastjóri Grýtubakkahrepps, var kjörin formaður samtakanna. 25.1.2007 21:35 „Vörnin ekki nógu góð“ segir Alfreð Alfreð Gíslason segir dómgæsluna í leiknum við Pólverja hafa verið mjög sérstaka á köflum en vill þó ekki kenna dómurunum alfarið um tapið. „Við vorum bara ekki að spila vel í vörninni", segir Alfreð sem einnig hefur nokkrar áhyggjur af meiðslum íslensku leikmannana enda sé breiddin ekki mikil. 25.1.2007 20:48 Drekkum vatn og verndum tennurnar Lýðheilsustöð stendur fyrir árlegri tannverndarviku í næstu viku, 29. janúar til 2. febrúar. Slagorð vikunnar verða „Drekkum vatn“ og á það að minna fólk á að vatn er betri svaladrykkur en gosdrykkur. Samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar á tannheilsu íslenskra ungmenna á aldrinum sex, tólf og fimmtán ára er tannheilsa töluvert vandamál hjá þessum hópi. 25.1.2007 20:29 Heimamenn eignast Hraðfrystistöð Þórshafnar Fræ ehf., eignarhaldsfélag í eigu Langanesbyggðar, hefur keypt 30% eignarhlut FSP hf. í Hraðfrystistöð Þórshafnar hf. og fer nú með 60% eignarhlut í félaginu en 30% eru í eigu Þórskaupa og 10% í eigu Þórshafnar fjárfestingar. 25.1.2007 20:14 Tap fyrir Pólverjum Íslenska landsliðið tapaði í kvöld 35-33 fyrir Þjóðverjum í milliriðli 1 á HM. Íslenska liðið hafði yfir í hálfleik 14-12, en Pólverjar sigu framúr í lokin og tryggðu sér mikilvægan sigur. Lukkan var einfaldlega ekki á bandi íslenska liðsins í kvöld, spænsku dómararnir áttu ekki góðan dag og þá urðu þeir Logi Geirsson og Guðjón Valur fyrir meiðslum eftir fólskuleg brot Pólverja. 25.1.2007 19:45 Deilt um stækkun Andstæðingar stækkunar álversins í Straumsvík saka bæjarstjórann í Hafnarfirði um blekkingar og telja víst að meirihluti Hafnfirðinga muni hafna stækkuninni í íbúakosningu. Bæjarstjórinn segist hlynntur fyrirliggjandi áformum en setur þó nokkra fyrirvara. 25.1.2007 19:28 Baugsmenn sýknaðir Það urðu tímamót í Baugsmálinu í dag þegar Hæstiréttur sýknaði sakborningana í Baugsmálinu, þau Jón Ásgeir Jóhannesson - systur hans Kristínu og endurskoðendurna Stefán Hilmarsson og Önnu Þórðardóttur. Hinu upprunalega Baugsmáli er því í raun lokið en málið er búið að fara allt í tvo hringi í íslenska dómskerfinu, en málið hófst með húsleit í ágúst 2002. 25.1.2007 19:14 Samgöngubætur hækka fasteignaverð og lækka vöruverð Samgöngubætur hækka fasteignaverð, fjölga störfum, lækka vöruverð og auka vöruúrval og framboð þjónustu. Þetta sýna rannsóknir sem gerðar hafa verið hérlendis og kynntar voru á ráðstefnu um samgöngumál í dag. 25.1.2007 19:07 Málaferli í uppsiglingu um eignarhald á Vatnsenda Samningur Kópavogsbæjar um lóðir í Vatnsendalandi gæti fært eiganda jarðarinnar tólf milljarða króna tekjur, að mati oddvita Samfylkingarinnar í bæjarstjórn. Málaferli eru hins vegar í uppsiglingu um hver eigi jörðina en þau snúast um ákvæði sjötíu ára gamallar erfðaskrár. 25.1.2007 19:00 Fá ríflegan skattafslátt en njóta allra réttinda Eitt hundrað og fimm hjón sem höfðu lifibrauð sitt einungis af fjármagnstekjum, samkvæmt skattframtali höfðu tæpar níu milljónir á ári að meðaltali í árstekjur, en mikill munur er á þeim tekjulægstu og tekjuhæstu í hópnum. Fjármagnseigendur greiða minna en þriðjung þeirra skatta sem venjulegir launþegar þurfa að borga. Þeir njóta hins vegar sambærilegra réttinda til að fá barnabætur og vaxtabætur. 25.1.2007 18:30 Utanríkisráðherra fundar í Lichtenstein Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra átti í dag fund með Ritu Kieber–Beck utanríkisráðherra Liechtenstein. Á fundinum voru sameiginleg hagsmunamál landanna rædd, meðal annars stækkun evrópska efnahagsvæðisins og málefni EFTA og Heimsviðskiptastofnunarinnar. Þá ræddu ráðherrarnir um þróunarmál og möguleika á auknum samskiptum á sviði menningarmála. 25.1.2007 17:30 Mikil stemning í liðinu segir læknirinn 25.1.2007 17:21 „Settur saksóknari situr í forinni“ „Þetta er mjög ánægjuleg niðurstaða og í samræmi við það sem ég vissi í hjarta mínu að myndi gerast,“ segir Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, í yfirlýsingu eftir að Hæstiréttur sýknaði í dag hann og þrjá aðra tengda Baugi af sex ákæruliðum sem eftir voru af upprunalega Baugsmálinu. 25.1.2007 16:59 Einn grunaður um íkveikju í húsi í Þorlákshöfn Bráðabirgðarannsókn lögreglunnar á Selfossi á brunanum í Þorlákshöfn um síðustu helgi hefur leitt í ljós að notaður hafi verið eldfimur vökvi til þess að kveikja í húsinu. Ein maður er grunaður um íkveikjuna og situr hann enn í gæsluvarðhaldi vegna málsins en það rennur út þann 5. febrúar. 25.1.2007 16:46 Eins og hálfs árs fangelsi fyrir veskisþjófnað Hæstiréttur staðfesti í dag eins og hálfs árs fangelsisdóm hérðasdóms yfir karlmanni sem sakfelldur var fyrir að hafa stolið veski úr verslun sem hann vann hjá og tekið út tíu þúsund krónur af debetkorti í veskinu. Með þessu rauf hann skilorð dóms þar sem hann hafði hlotið 18 mánaða fangelsi. 25.1.2007 16:35 Tvítugur maður dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir manndrápstilraun Hæstiréttur Íslands staðfesti í dag fimm ára fangelsisdóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir Daníel Þór Gunnarssyni fyrir tilraun til manndráps. Daníel réðst karlmann á veitingastað í miðborg Reykjavíkur í mars á síðasta ári og stakk hann með hnífi. 25.1.2007 16:30 Sýkna í Baugsmálinu í Hæstarétti Hæstiréttur sýknaði í dag fjórar manneskjur tengdar Baugi af sex ákæruliðum sem eftir stóðu af upprunalega Baugsmálinu. Þar með komst dómurinn að sömu niðurstöðu og Héraðsdómur Reykjavíkur. 25.1.2007 16:11 Þjófar á kreiki Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók nokkra þjófa í Reykjavík í gær og í nótt. Tveir karlar og unglingsstúlka voru handtekin í gærkvöldi þar sem þau óku um á stolnum bíl. Í fórum annars mannsins fundust munir sem hann gat ekki gert grein fyrir. 25.1.2007 16:04 Vilja að stofnað verði sérstakt menningarráðuneyti Bandalag íslenskra listamanna vill að stofnað verði sérstakt menningarráðuneyti þar sem margt bendi til þess að verðmætasköpun framtíðarinnar verði hvað mest í hinum skapandi atvinnugreinum. Ályktun þessa efnis var samþykkt á aðlfundi bandalagsins um síðustu helgi. 25.1.2007 15:59 Skrifað undir samninga vegna Djúpvegar á Vestfjörðum Vegagerðin og verktakafyrirtækin KNH ehf. og Vestfirskir verktakar sömdu í dag um vegagerð á Djúpvegi í framhaldi af útboði sem fram fór í lok síðasta árs. Samningurinn tekur til 14,5 kíómetra kafla Djúpvegar milli Reykjaness og Hörtnár utarlega við vestanverðan Mjóafjörð. 25.1.2007 15:30 Deiliskipulagstillagan þýðir vatnaskil í stækkunarmáli Alcan Lúðvík Gerissson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, segir að vatnaskil hafi orðið með tillögu að nýju og gjörbreyttu deiliskipulagi sem breitt samkomulag hafi náðst um innan Hafnarfjarðarbæjar og gagnvart Alcan. Hann segist vera mjög ánægður með deiliskipulagstillöguna. Forsendur ýmis lykilsatriði í með allt öðrum hætti en fólk hefur mótað afstöðu sína útfrá hingað til. Í hádegisviðtalinu á Stöð 2 í dag sagðist hann sáttur og ánægður með málið eins og það lægi fyrir núna,og í þeim anda sem bæjarstjórn hefði samþykkt. En að tvö til þrjú skilyrði þyrfti þó enn að uppfylla. Þessir fyrirvarar lytu að kostnaðarhlutdeild í færslu Reykjanesbrautar, hver ætti að bera kostnað við tilfærslu og breytingar á raflínum og skattauppgjöri álversins eins og það er stafrækt í dag. Að þessum kröfum uppfylltum yrði hann sáttur við fara fram með málið Í viðhorfskönnun sem Capacent Gallup gerði í desember fyrir Alcan, voru tæp 51,5 prósent Hafnfirðinga andvíg stækkun álversins í Straumsvík en rúm 39 prósent hlynnt stækkun. 25.1.2007 15:17 Fimmtungur leikskóla án opinberrar uppeldisstefnu Um fimmtungur leikskóla hefur ekki opinbera uppeldisstefnu og annars eins hópur hefur ekki mótað eigin skólanámskrá samkvæmt könnun sem menntamálaráðnuneytið gerði í fyrra. Fram kemur í vefriti menntamálaráðuneytisins að auk þess hafi um sjö prósent leikskóla hvorki opinbera uppeldisstefnu né eigin skólanámskrá. 25.1.2007 14:44 Netperri áreitir unglingsstúlkur á Vestfjörðum Lögreglan á Ísafirði rannsakar nú mál þar sem ókunnur aðili eða aðilar hafa beðið um leyfi til þess að eiga samtal við unglingsstúlkur í gegnum Netið og hafa síðan jafnvel berað sig í vefmyndavél sem birtist óvænt á tölvuskjá viðkomandi stúlkna. Bendir lögregla á að slíkt geti geti varðað við kynferðisbrotakafla almennra hegningarlaga. 25.1.2007 14:32 Stöðvaði umferð á gatnamótum vegna símtals Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu þurfti í gær að hafa afskipti af ökumanni sem tafði umferð á gatnamótum. Maðurinn hélt kyrru fyrir eftir að græna ljósið kom á umferðarljósin en svo vildi til að lögreglubíll var meðal þeirra sem biðu fyrir aftan bílinn. 25.1.2007 14:24 Saka bæjarstjóra um að taka þátt í kosningabaráttu Alcan Samtökin Sól í Straumi, sem berjast gegn stækkun álvers Alcan í Straumsvík, saka Lúðvík Geirsson, bæjarstjóra í Hafnarfirði, um að vera í grímulausri kosningabaráttu með Alcan fyrir stækkun álversins og sömuleiðis um að fara með ósannindi í umræðunni. 25.1.2007 13:49 Byggja þjónustuhús fyrir fiskimenn á Srí Lanka Framkvæmdir eru hafnar á vegum Þróunarsamvinnustofnunar Íslands við ellefu byggingar á sex löndunarstöðum á vestur- og suðurströnd Srí Lanka. Fram kemur í tilkynningu frá stofnuninni að um sé að ræða fiskmarkaðshús, fjarskiptahús og salerni fyrir sjómenn og fiskverkendur sem nýta löndunarstaðina. 25.1.2007 13:29 HÍ og KHÍ sameinist á næsta ári Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir mælti fyrir frumvarpi um sameinginu Kennaraháskóla Íslands og Háskóla Íslands á Alþingi nú fyrir hádegi. Samkvæmt frumvarpinu er gert ráð fyrir að þeir sameinist undir nafni Háskóla Íslands og að sameiningin verði að veruleika 1. júlí á næsta ári. 25.1.2007 12:45 Ráðherrar sakaðir um að lítilsvirða þingið Þingmenn stjórnarandstöðunnar mótmæltu því harðlega í morgun að stefnumótun ríkisstjórnarinnar í innflytjendamálum yrði ekki tekin til meðferðar í þinginu. Þingmaður Samfylkingarinnar sagði þetta lítilsvirðingu við þingið og þingflokksformaður Vinstri - grænna sagði óþolandi að ráðherrar ríkisstjórnarinnar breyttu ráðuneytum sínum í kosningaskrifstofur þegar alþingiskosningar væru í nánd. 25.1.2007 12:17 Sjá næstu 50 fréttir
Kompás afhendir lögreglu umbeðin gögn Fréttastofa Stöðvar tvö afhendir lögreglu í dag gögn, sem lögregla telur sig þurfa, til að bera kennsl á fimm einstaklinga sem myndaðir voru í tengslum við umfjöllun Kompáss um karlmenn sem leita eftir samneyti við börn í gegnum Netið. Fréttastofan afhendir almennt ekki vinnugögn sín en undantekning er gerð vegna alvarleika málsins og ríkra almannahagsmuna. 26.1.2007 16:34
Lögreglan fær bíla og mótorhjól Ríkislögreglustjóri afhenti lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins fyrr í dag þrjá nýja og vel útbúna lögreglubíla og eitt mótorhjól. Þetta eru fyrstu bílarnir af þeim tíu sem höfuðborgarlögreglan hefur óskað eftir á þessu ári. 26.1.2007 16:13
Hátt í 300 myndaðir við hraðakstur á viku Nærri þrjú hundruð ökumenn voru myndaðir í myndavélabílum lögreglunnar við Stekkjarbakka í Reykjavík og í Hvalfjarðargöngum í þessari viku þar sem þeir óku of hratt. Frá þessu er greint á vef lögreglunnar. 26.1.2007 15:50
Náhval relur á land í Lónafirði Sjaldgæfa sjón bar fyrir augu í botni Lónafjarðar í Þistilfirði á dögunum þegar náhval rak þar á land. Slíkan hval hefur ekki rekið á land hér frá árinu 1976, eða í rúm þrjátíu ár, eftir því sem segir á vef Hafrannsóknarstofnunarinnar, en þá rak eitt eða tvö dýr rak á land í Geldinganesi í Reykjavík. 26.1.2007 15:33
Samþykkja aukinn stuðning við Afganistan Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra sat í dag utanríkisráðherrafund Atlantshafsbandalagsins sem haldinn var í Brussel. Eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá ráðuneytinu var meginumræðuefni fundarins aðgerðir bandalagsins í Afganistan og staða mála í Kósóvó. 26.1.2007 14:57
Heildarsamtök aldraðra og fatlaðra koma ekki að framboði Heildarsamtök aldraðra og fatlaðra koma á engan hátt að undirbúningi framboða til Alþingis sem kynnt hafa verið sem framboð öryrkja og aldraðra. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá formönnum Landssambands eldri borgara, Sjálfsbjargar - landssambands fatlaðra og Öryrkjabandalags Íslands. 26.1.2007 14:43
Landsbankinn vex hraðar erlendis en innalands Landsbanki Íslands kynnti uppgjör á besta ári í sögu bankans í London í morgun. Hagnaður eftir skatta var 40,2 milljarðar króna sem er 61 prósent meiri hagnaður en í fyrra. Ríflega helmingur af tekjum bankans, eða fimmtíu og tvö prósent, kemur af erlendri starfsemi. Þetta hlutfall var bara 17 prósent fyrir ári. Halldór J Kristjánsson bankastjóri, segir að velgengni bankans í Bretlandi eigi stóran hlut að máli í velgengninni. 26.1.2007 14:15
Ekki farið ískönnunarflug í dag Landhelgisgæslan mun ekki fara ískönnunarflug til Vestfjarða í dag þar sem það er orðið of áliðið til að fara af stað. Rafall í Fokker-vél Gæslunnar bilaði í gær og var ekki lokið við að gera við hann fyrr en nú. Birta fer nú þverrandi og því telja Gæslumenn að þeir eigi ekkert erindi á Vestfjarðamið. 26.1.2007 14:07
Eggert ekki endurkjörinn í framkvæmdastjórn UEFA Eggert Magnússon, formaður KSÍ, var ekki endurkjörinn í framkvæmdastjórn Knattspyrnusambands Evrópu en kosið var í dag. Eftir því sem fram kemur á vef KSÍ hafnaði Eggert áttunda sæti af þrettán frambjóðendum með 23 atkvæði en sex efstu náðu kjöri. 26.1.2007 13:34
Vilja fá að skjóta refi í friðlandi á Hornströndum Stjórn Skotveiðifélags Íslands vill að umhverfisráðherra beiti sér fyrir því að refaveiðar verði heimilaðar í friðlandinu á Hornströndum þar sem þeir telja að hann haldi niðri rjúpnastofninum á svæðinu. 26.1.2007 13:00
Rúnar í stað Haraldar í skattrannsókn tengdri Baugi Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra hefur í dag sett Rúnar Guðjónsson, sýslumann í Reykjavík, til þess að vera ríkislögreglustjóri við rannsókn á meintum skattalagabrotum fimm manna tengdum Baugi. 26.1.2007 12:47
Skipafélög nær alveg samstíga í verðhækkunum Stjórnendur Samskipa og Eimskips eru nær alveg samstíga í verðhækkunum, tímasetningu þeirra og í álagningu aukagjalds, samkvæmt athugun Neytendasamtakanna 26.1.2007 12:45
Fá 175 þúsund krónur í ríkisstyrk á mánuði Nýr búvörusamningur tryggir hverjum sauðfjárbónda að jafnaði um 175 þúsund krónur í ríkisstyrk á mánuði. Bóndinn fær auk þess til viðbótar allar tekjur af afurðum búsins. 26.1.2007 12:30
Hótar hertum samkeppnislögum ef matarverð lækkar ekki Fjármálaráðherra hótar hertum samkeppnisreglum ef aðgerðir stjórnvalda til að lækka matarverð skila ekki árangri. 26.1.2007 12:24
Tæpar 60 milljónir í málvarnarkostnað í Baugsmáli Ríkissjóður greiðir verjendum í hinu upphaflega Baugsmáli tæpar 58 milljónir króna í laun og útlagðan kostnað. Þá er ótalinn kostnaður vegna rannsóknar málsins. 26.1.2007 12:00
Vinstri - grænir stærri en Samfylkingin skv. könnun Frjálsrar verslunar Vinstri - grænir mælast stærri en Samfylkingin samkvæmt skoðanakönnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vefsvæðið heimur.is dagana 17. til 22. janúar. Samkvæmt könnuninni nýtur Sjálfstæðisflokkurinn fylgis tæplega 39 prósenta landsmanna, Vinstri grænir koma næstir með 20,5 prósent og þar á eftir kemur Samfylkingin með tveimur prósentum minna fylgi en Vinstri grænir. 26.1.2007 11:51
Bændur í Eyjafjarðarsveit vilja fá bætur vegna flóða Um tuttugu og fimm aðilar vilja fá bætur vegna tjóns sem hlaust af flóðum í Eyjafjarðarsveit fyrir jólin. Óvíst er hversu mikið fæst bætt. Norðlenski fréttavefurinn Vikudagur hefur eftir Bjarna Kristjánssyni, sveitarstjóra í Eyjafjarðarsveit, að Bjargráðasjóður taki öll málin til skoðunar en sennilega fái ekki allir sem óska eftir bætur. 26.1.2007 11:30
Landssamtök Landeigenda á Íslandi stofnuð Stofnfundur Landssamtaka Landeigenda á Íslandi var haldin í Sunnusal Hótels Sögu í dag. Salurinn var fullur út úr dyrum og aðstandendur fundarins telja að skráðir stofnfélagar séu hátt í 300 talsins. Guðný Sverrisdóttir, sveitastjóri Grýtubakkahrepps, var kjörin formaður samtakanna. 25.1.2007 21:35
„Vörnin ekki nógu góð“ segir Alfreð Alfreð Gíslason segir dómgæsluna í leiknum við Pólverja hafa verið mjög sérstaka á köflum en vill þó ekki kenna dómurunum alfarið um tapið. „Við vorum bara ekki að spila vel í vörninni", segir Alfreð sem einnig hefur nokkrar áhyggjur af meiðslum íslensku leikmannana enda sé breiddin ekki mikil. 25.1.2007 20:48
Drekkum vatn og verndum tennurnar Lýðheilsustöð stendur fyrir árlegri tannverndarviku í næstu viku, 29. janúar til 2. febrúar. Slagorð vikunnar verða „Drekkum vatn“ og á það að minna fólk á að vatn er betri svaladrykkur en gosdrykkur. Samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar á tannheilsu íslenskra ungmenna á aldrinum sex, tólf og fimmtán ára er tannheilsa töluvert vandamál hjá þessum hópi. 25.1.2007 20:29
Heimamenn eignast Hraðfrystistöð Þórshafnar Fræ ehf., eignarhaldsfélag í eigu Langanesbyggðar, hefur keypt 30% eignarhlut FSP hf. í Hraðfrystistöð Þórshafnar hf. og fer nú með 60% eignarhlut í félaginu en 30% eru í eigu Þórskaupa og 10% í eigu Þórshafnar fjárfestingar. 25.1.2007 20:14
Tap fyrir Pólverjum Íslenska landsliðið tapaði í kvöld 35-33 fyrir Þjóðverjum í milliriðli 1 á HM. Íslenska liðið hafði yfir í hálfleik 14-12, en Pólverjar sigu framúr í lokin og tryggðu sér mikilvægan sigur. Lukkan var einfaldlega ekki á bandi íslenska liðsins í kvöld, spænsku dómararnir áttu ekki góðan dag og þá urðu þeir Logi Geirsson og Guðjón Valur fyrir meiðslum eftir fólskuleg brot Pólverja. 25.1.2007 19:45
Deilt um stækkun Andstæðingar stækkunar álversins í Straumsvík saka bæjarstjórann í Hafnarfirði um blekkingar og telja víst að meirihluti Hafnfirðinga muni hafna stækkuninni í íbúakosningu. Bæjarstjórinn segist hlynntur fyrirliggjandi áformum en setur þó nokkra fyrirvara. 25.1.2007 19:28
Baugsmenn sýknaðir Það urðu tímamót í Baugsmálinu í dag þegar Hæstiréttur sýknaði sakborningana í Baugsmálinu, þau Jón Ásgeir Jóhannesson - systur hans Kristínu og endurskoðendurna Stefán Hilmarsson og Önnu Þórðardóttur. Hinu upprunalega Baugsmáli er því í raun lokið en málið er búið að fara allt í tvo hringi í íslenska dómskerfinu, en málið hófst með húsleit í ágúst 2002. 25.1.2007 19:14
Samgöngubætur hækka fasteignaverð og lækka vöruverð Samgöngubætur hækka fasteignaverð, fjölga störfum, lækka vöruverð og auka vöruúrval og framboð þjónustu. Þetta sýna rannsóknir sem gerðar hafa verið hérlendis og kynntar voru á ráðstefnu um samgöngumál í dag. 25.1.2007 19:07
Málaferli í uppsiglingu um eignarhald á Vatnsenda Samningur Kópavogsbæjar um lóðir í Vatnsendalandi gæti fært eiganda jarðarinnar tólf milljarða króna tekjur, að mati oddvita Samfylkingarinnar í bæjarstjórn. Málaferli eru hins vegar í uppsiglingu um hver eigi jörðina en þau snúast um ákvæði sjötíu ára gamallar erfðaskrár. 25.1.2007 19:00
Fá ríflegan skattafslátt en njóta allra réttinda Eitt hundrað og fimm hjón sem höfðu lifibrauð sitt einungis af fjármagnstekjum, samkvæmt skattframtali höfðu tæpar níu milljónir á ári að meðaltali í árstekjur, en mikill munur er á þeim tekjulægstu og tekjuhæstu í hópnum. Fjármagnseigendur greiða minna en þriðjung þeirra skatta sem venjulegir launþegar þurfa að borga. Þeir njóta hins vegar sambærilegra réttinda til að fá barnabætur og vaxtabætur. 25.1.2007 18:30
Utanríkisráðherra fundar í Lichtenstein Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra átti í dag fund með Ritu Kieber–Beck utanríkisráðherra Liechtenstein. Á fundinum voru sameiginleg hagsmunamál landanna rædd, meðal annars stækkun evrópska efnahagsvæðisins og málefni EFTA og Heimsviðskiptastofnunarinnar. Þá ræddu ráðherrarnir um þróunarmál og möguleika á auknum samskiptum á sviði menningarmála. 25.1.2007 17:30
„Settur saksóknari situr í forinni“ „Þetta er mjög ánægjuleg niðurstaða og í samræmi við það sem ég vissi í hjarta mínu að myndi gerast,“ segir Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, í yfirlýsingu eftir að Hæstiréttur sýknaði í dag hann og þrjá aðra tengda Baugi af sex ákæruliðum sem eftir voru af upprunalega Baugsmálinu. 25.1.2007 16:59
Einn grunaður um íkveikju í húsi í Þorlákshöfn Bráðabirgðarannsókn lögreglunnar á Selfossi á brunanum í Þorlákshöfn um síðustu helgi hefur leitt í ljós að notaður hafi verið eldfimur vökvi til þess að kveikja í húsinu. Ein maður er grunaður um íkveikjuna og situr hann enn í gæsluvarðhaldi vegna málsins en það rennur út þann 5. febrúar. 25.1.2007 16:46
Eins og hálfs árs fangelsi fyrir veskisþjófnað Hæstiréttur staðfesti í dag eins og hálfs árs fangelsisdóm hérðasdóms yfir karlmanni sem sakfelldur var fyrir að hafa stolið veski úr verslun sem hann vann hjá og tekið út tíu þúsund krónur af debetkorti í veskinu. Með þessu rauf hann skilorð dóms þar sem hann hafði hlotið 18 mánaða fangelsi. 25.1.2007 16:35
Tvítugur maður dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir manndrápstilraun Hæstiréttur Íslands staðfesti í dag fimm ára fangelsisdóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir Daníel Þór Gunnarssyni fyrir tilraun til manndráps. Daníel réðst karlmann á veitingastað í miðborg Reykjavíkur í mars á síðasta ári og stakk hann með hnífi. 25.1.2007 16:30
Sýkna í Baugsmálinu í Hæstarétti Hæstiréttur sýknaði í dag fjórar manneskjur tengdar Baugi af sex ákæruliðum sem eftir stóðu af upprunalega Baugsmálinu. Þar með komst dómurinn að sömu niðurstöðu og Héraðsdómur Reykjavíkur. 25.1.2007 16:11
Þjófar á kreiki Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók nokkra þjófa í Reykjavík í gær og í nótt. Tveir karlar og unglingsstúlka voru handtekin í gærkvöldi þar sem þau óku um á stolnum bíl. Í fórum annars mannsins fundust munir sem hann gat ekki gert grein fyrir. 25.1.2007 16:04
Vilja að stofnað verði sérstakt menningarráðuneyti Bandalag íslenskra listamanna vill að stofnað verði sérstakt menningarráðuneyti þar sem margt bendi til þess að verðmætasköpun framtíðarinnar verði hvað mest í hinum skapandi atvinnugreinum. Ályktun þessa efnis var samþykkt á aðlfundi bandalagsins um síðustu helgi. 25.1.2007 15:59
Skrifað undir samninga vegna Djúpvegar á Vestfjörðum Vegagerðin og verktakafyrirtækin KNH ehf. og Vestfirskir verktakar sömdu í dag um vegagerð á Djúpvegi í framhaldi af útboði sem fram fór í lok síðasta árs. Samningurinn tekur til 14,5 kíómetra kafla Djúpvegar milli Reykjaness og Hörtnár utarlega við vestanverðan Mjóafjörð. 25.1.2007 15:30
Deiliskipulagstillagan þýðir vatnaskil í stækkunarmáli Alcan Lúðvík Gerissson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, segir að vatnaskil hafi orðið með tillögu að nýju og gjörbreyttu deiliskipulagi sem breitt samkomulag hafi náðst um innan Hafnarfjarðarbæjar og gagnvart Alcan. Hann segist vera mjög ánægður með deiliskipulagstillöguna. Forsendur ýmis lykilsatriði í með allt öðrum hætti en fólk hefur mótað afstöðu sína útfrá hingað til. Í hádegisviðtalinu á Stöð 2 í dag sagðist hann sáttur og ánægður með málið eins og það lægi fyrir núna,og í þeim anda sem bæjarstjórn hefði samþykkt. En að tvö til þrjú skilyrði þyrfti þó enn að uppfylla. Þessir fyrirvarar lytu að kostnaðarhlutdeild í færslu Reykjanesbrautar, hver ætti að bera kostnað við tilfærslu og breytingar á raflínum og skattauppgjöri álversins eins og það er stafrækt í dag. Að þessum kröfum uppfylltum yrði hann sáttur við fara fram með málið Í viðhorfskönnun sem Capacent Gallup gerði í desember fyrir Alcan, voru tæp 51,5 prósent Hafnfirðinga andvíg stækkun álversins í Straumsvík en rúm 39 prósent hlynnt stækkun. 25.1.2007 15:17
Fimmtungur leikskóla án opinberrar uppeldisstefnu Um fimmtungur leikskóla hefur ekki opinbera uppeldisstefnu og annars eins hópur hefur ekki mótað eigin skólanámskrá samkvæmt könnun sem menntamálaráðnuneytið gerði í fyrra. Fram kemur í vefriti menntamálaráðuneytisins að auk þess hafi um sjö prósent leikskóla hvorki opinbera uppeldisstefnu né eigin skólanámskrá. 25.1.2007 14:44
Netperri áreitir unglingsstúlkur á Vestfjörðum Lögreglan á Ísafirði rannsakar nú mál þar sem ókunnur aðili eða aðilar hafa beðið um leyfi til þess að eiga samtal við unglingsstúlkur í gegnum Netið og hafa síðan jafnvel berað sig í vefmyndavél sem birtist óvænt á tölvuskjá viðkomandi stúlkna. Bendir lögregla á að slíkt geti geti varðað við kynferðisbrotakafla almennra hegningarlaga. 25.1.2007 14:32
Stöðvaði umferð á gatnamótum vegna símtals Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu þurfti í gær að hafa afskipti af ökumanni sem tafði umferð á gatnamótum. Maðurinn hélt kyrru fyrir eftir að græna ljósið kom á umferðarljósin en svo vildi til að lögreglubíll var meðal þeirra sem biðu fyrir aftan bílinn. 25.1.2007 14:24
Saka bæjarstjóra um að taka þátt í kosningabaráttu Alcan Samtökin Sól í Straumi, sem berjast gegn stækkun álvers Alcan í Straumsvík, saka Lúðvík Geirsson, bæjarstjóra í Hafnarfirði, um að vera í grímulausri kosningabaráttu með Alcan fyrir stækkun álversins og sömuleiðis um að fara með ósannindi í umræðunni. 25.1.2007 13:49
Byggja þjónustuhús fyrir fiskimenn á Srí Lanka Framkvæmdir eru hafnar á vegum Þróunarsamvinnustofnunar Íslands við ellefu byggingar á sex löndunarstöðum á vestur- og suðurströnd Srí Lanka. Fram kemur í tilkynningu frá stofnuninni að um sé að ræða fiskmarkaðshús, fjarskiptahús og salerni fyrir sjómenn og fiskverkendur sem nýta löndunarstaðina. 25.1.2007 13:29
HÍ og KHÍ sameinist á næsta ári Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir mælti fyrir frumvarpi um sameinginu Kennaraháskóla Íslands og Háskóla Íslands á Alþingi nú fyrir hádegi. Samkvæmt frumvarpinu er gert ráð fyrir að þeir sameinist undir nafni Háskóla Íslands og að sameiningin verði að veruleika 1. júlí á næsta ári. 25.1.2007 12:45
Ráðherrar sakaðir um að lítilsvirða þingið Þingmenn stjórnarandstöðunnar mótmæltu því harðlega í morgun að stefnumótun ríkisstjórnarinnar í innflytjendamálum yrði ekki tekin til meðferðar í þinginu. Þingmaður Samfylkingarinnar sagði þetta lítilsvirðingu við þingið og þingflokksformaður Vinstri - grænna sagði óþolandi að ráðherrar ríkisstjórnarinnar breyttu ráðuneytum sínum í kosningaskrifstofur þegar alþingiskosningar væru í nánd. 25.1.2007 12:17