Fleiri fréttir Bílvelta á Möðrudalsöræfum Bíll valt á Möðrudalsöræfum í morgun. Þrír voru í bílnum og voru þeir allir fluttir á Egilsstaði til læknisskoðunar. Lögreglan segir mikla hálku hafa verið á veginum í morgun og leiðinlegt veður. Ekki hafa fengist upplýsingar um líðan fólksins. 30.10.2006 14:10 Kærir Ekstra Bladet fyrir kynþáttafordóma í garð Íslendinga Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, sagnfræðingur sem starfar í Danmörku, hefur kært danska dagblaðið Extra Bladet til lögreglu fyrir kynþáttafordóma í tengslum við umfjöllun blaðsins um viðskiptahætti íslenskra fyrirtækja í Danmörku. 30.10.2006 14:09 Á 158 kílómetra hraða á Vesturlandsvegi Liðlega sautján ára pilts bíður ökuleyfissvipting og 60 þúsund króna sekt eftir að hann var tekinn fyrir að hafa ekið á 158 kílómetra hraða á Vesturlandsvegi um helgina. 30.10.2006 13:48 Steinunn Þóra sækist eftir 4. sætinu hjá VG á höfuðborgarsvæðinu Steinunn Þóra Árnadóttir gefur kost á sér í fjórða sætið í sameiginlegu forvali Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs fyrir Suðvestur- og Reykjavíkurkjördæmin. 30.10.2006 13:39 Una María sækist eftir 2. sæti í Kraganum Una María Óskarsdóttir, varaþingmaður Framsóknflokksins í Suðvesturkjördæmi, hefur ákveðið að bjóða sig fram í 2. sæti á framboðslista flokksins í kjördæminu fyrir komandi þingkosningar. Valið verður á listann á tvöföldu kjördæmisþingi í kjördæminu um næstu helgi en kosið verður í sex efstu sætin. 30.10.2006 13:11 Kynferðisbrotadeild tekur til starfa Kynferðisbrotadeild tekur til starfa í byrjun næsta árs þegar lögregluembættin á höfuðborgarsvæðinu verða sameinuð. Guðbjartsdóttir, einn af lögmönnum neyðarmóttöku þolenda kynferðisbrota, fagnar þessu. 30.10.2006 13:00 Segir stjórnendur KB Banka í felum Danska Ekstrabladet segir að stjórnendur Kaupþings banka hafi farið í felur eftir skrif blaðsins í gær um það sem blaðið kallar skattasniðgöngukerfi bankans. Í dag birti blaðið frétt um danskan lögfræðing sem starfar með Íslendingum og er sagður viðriðinn mál um peningaþvætti. 30.10.2006 13:00 Misþyrmdu manni sem reyndi að verja eiginkonu sína Fjórir erlendir karlmenn, sem brutu upp hurð á kvennasalerni á veitingastað í Reykjavík í fyrrinótt og réðust þar á konu, misþyrmdu eiginmanni hennar þegar hann kom henni til hjálpar. 30.10.2006 12:16 Lést í eldsvoða í Grindavík Maðurinn sem lést í eldsvoða í Grindavík í gærmorgun hét Stefán Karl Kristinsson. Hann var þrjátíu og sex ára og lætur eftir sig fimmtán ára dóttur. 30.10.2006 12:09 Kæra útgáfu framkvæmdaleyfis á Stóra-Skarðsmýrarfjalli Landvernd hefur, ásamt Eldhestum og Birni Pálssyni, kært útgáfu sveitarfélagsins Ölfuss á framkvæmdaleyfi á Stóra-Skarðsmýrarfjalli. Vilja þessir aðilar að leyfið verði ógilt þar sem útgáfan samræmist ekki ákvæðum skipulags- og byggingarlaga. 30.10.2006 10:54 Tveir handteknir í Mosfellsbæ fyrir þjófnað á byggingarefni Lögregla handtók tvo menn í Mosfellsbæ í nótt þar sem þeir voru að stela byggingarefni úr nýbyggingum. 30.10.2006 10:19 Unnur Birna greinir frá árás inn á heimili sitt Í tímaritinu Ísafold, sem kemur út í fyrsta sinn á morgun, greinir fegurðardrottningin Unnur Birna frá árás sem hún og fyrrverandi unnusti hennar urðu fyrir á heimili hennar. Fleiri tímarit frá útgáfufélaginu Fögrudyrum eru væntanleg í lok vetrar 29.10.2006 18:45 Skattayfirvöld kunni að hafa áhuga Ritstjóri Ekstra-blaðsins danska telur að skattayfirvöld á Íslandi og í Danmörku kunni að hafa áhuga á upplýsingum sem blaðið hefur undir höndum um íslenska kaupsýslumenn. Í fyrstu grein blaðsins um íslensku útrásina eru birtar upplýsingar um hvernig íslensk fyrirtæki eiga að hafa komist hjá því að greiða skatta. 29.10.2006 18:30 Hvalur 9 skaut hval 5 Fimmta langreyðurin á þessari vertíð er veidd og væntanlegt að komið verið með hana til lands um klukkan ellefu í fyrramálið. Hvalurinn sem nú veiddist er fyrsti tarfurinn af þeim fimm sem búið er að veiða nú. Hann veiddist á sömu slóðum og hinir fjórir, eða um 130 mílur vestur af Snæfellsnesi. Leyft er að veiða níu hvali á þessari vertíð og með þessu áframhaldi má ætla að hvalbáturinn Hvalur 9 klári kvótann áður en langt um líður. 29.10.2006 16:21 Sólveig Pálsdóttir frá Svínafelli látin 29.10.2006 12:56 Maður lést í eldsvoða í Grindavík í nótt Maður á fertugsaldri lést í eldsvoða í Grindavík í nótt. Tvær stúlkur, dóttir mannsins og vinkona hennar komust af sjálfsdáðum út úr húsinu, sem stendur við Heiðarhraun í Grindavík. Stúlkurnar voru fluttar á slysadeild en voru útskrifaðar skömmu síðar. Eldsupptök verða rannsökuð nánar í dag. 29.10.2006 12:02 Klukkunni í Evrópu og Ameríku seinkað í nótt Vetrartími var tekinn upp í Bandaríkjunum og Evrópu í nótt, og klukkunni seinkað um eina klukkustund. Íslenskur tími er sem fyrr óbreyttur og nú er klukkan til dæmis einni klukkustund á undan í Kaupmannahöfn og París, en sami tími er í nú London og Reykjavík. Klukkan á austurströnd Bandaríkjanna er fimm tímum á eftir íslensku klukkunni. Evrópa og Ameríka leggja af sumartíma aðfaranótt síðasta sunnudags í október. 29.10.2006 11:53 Tölur kl. 22:30 - Pétur í 6. sætið í stað Ástu Þegar búið er að telja 8.464 atkvæði er Pétur Blöndal kominn upp fyrir Ástu Möller og Guðlaugur Þór Þórðarson virðist orðinn nýr leiðtogi Sjálfstæðismanna í Reykjavík. Ef ram fer sem horfir leiðir Guðlaugur annan lista flokksins í borginni í Alþingiskosningunum í vor. Geir Haarde, flokksformaður, leiðir hinn, en Björn Bjarnason lendir í þriðja sæti í prófkjörinu, sem lauk í kvöld. Sjálfstæðisflokkurinn eignast væntanlega tvo nýja þingmenn í Reykjavík í vor og Háskólinn í Reykjavík missir einn rektor. Rúmlega 10 þúsund manns tóku þátt í prófkjörinu. 28.10.2006 22:30 Fatlaður maður fannst látinn í Sundhöll Selfoss Fatlaður maður fannst látinn í Sundhöll Selfoss, þegar verið var að loka lauginni um níu-leytið á fimmtudagskvöld. Maðurinn var rúmlega fertugur heimamaður og fannst meðvitundarlaus í grunnu lauginni. Ekki er vitað hvernig hann lést, hvort um var að ræða drukknun. 28.10.2006 22:21 Tölur kl. 21:30 - Pétur vantar 10 atkvæði í 6. sætið Pétur Blöndal vantar nú aðeins 10 atkvæði til að ná 6. sætinu í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Reykjavík. Staða efstu manna hefur ekkert breyst þegar 7.909 atkvæði hafa verið talin af rúmlega 10.000. Geir Haarde er efstur, hefur hlotið 7.558, þar af 7.050 atkvæði í 1. sætið. Guðlaugur Þór Þórðarson í öðru sæti með 6.445 atkvæði, þar af 3.828 atkvæði í 1. - 2. sæti. Björn Bjarnason er í þriðja sæti með 5.493 atkvæði, þar af 3.062 atkvæði í 1. - 2. sætið. Það munar því 766 atkvæðum á þeim í 1. - 2. sæti. 28.10.2006 21:30 Tölur kl. 20:30 - Pétur virðist saxa á Ástu Pétur Blöndal virðist saxa á Ástu Möller í sjötta sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Þegar talin hafa verið 6.474 atkvæði vantar Pétur aðeins 27 atkvæði til að ná 6. sætinu af Ástu. Hún hefur hlotið samtals 5.165 atkvæði en Pétur er með samtals 4.885 atkvæði í 1. - 7. sæti. 28.10.2006 20:30 Dómsmálaráðherra gefur ekki færi á viðtali í kvöld Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, var á kosningaskrifstofu sinni þegar fréttastofa náði tali af honum kl. 20 í kvöld og bað um viðtal þegar síðustu tölur yrðu birtar. hann sagðist ekki ætla að veita fleiri viðtöl í kvöld og vildi ekki að fjölmiðlar kæmu og mynduðu á kosningaskrifstofu hans. Hann gaf ekkert uppi um hvenær hann myndi gefa færi á viðtali á morgun. 28.10.2006 20:07 Tölur kl. 20:00 - Staðan óbreytt, Björn tjáir sig ekki Guðlaugur Þór Þórðarson heldur enn öðru sætinu í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins þegar 5.759 atkvæði hafa verið talin. Guðlaugur Þór hefur hlotið 4.654 atkvæði en Björn Bjarnason er í þriðja sæti, hefur hlotið 4.060 atkvæði. Geir Haarde hefur hlotið 5.525 atkvæði í fyrsta sæti eða tæplega 96% greiddra atkvæða. Guðfinna Bjarnadóttir hedlur fjórða sætinu, Illugi Gunnarsson er í þvi fimmta og Ásta Möller í sjötta sæti. Björn Bjarnason vill ekki tjá sig um hvort hann taki 3. sætið á lista Sjálfstæðismanna ef úrslit verða á þann veg í prófkjörinu. Þessi afstaða Björns eykur á spennuna í talningu atkvæða í prófkjörinu. 28.10.2006 20:00 Afskaplega þakklátur "Ég er afskaplega þakklátur fyrir þann stuðning sem ég hef fengið í þessu prófkjöri. Það skiptir mig þó engu sérstöku máli hvort ég verð í 5. eða 6. sæti," sagði Illugi Gunnarsson í samtali við Vísi þegar tölur höfðu verið birtar klukkan 19:30. Samkvæmt þeim er Illugi í 5. sæti með 4.477 atkvæði. 28.10.2006 19:45 Spurt verður hvaðan peningarnir komi Aðalritstjóri Ekstra blaðsins danska segir marga spyrja sig hvernig svo fámenn þjóð eins og Ísland geti fjárfest eins mikið og raun beri vitni. Spurt sé hvaðan peningarnir komi og blaðið reyni að svara því. Árni Matihesen, fjármálaráðherra, segir það koma sér á óvart að blaðið boði umfjöllun um íslenska útrás. 28.10.2006 19:33 Tölur kl. 19:30 - Óræð ummæli Björns Bjarnasonar auka enn á spennuna Óræð ummæli Björns Bjarnasonar um hvort hann taki sæti á lista samkvæmt úrslitunum í prófkjörinu auka enn á spennuna í talningu atkvæða í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Reykjavík. Björn Bjarnason sagði í viðtali við NFS um klukkan 19:30, að hann myndi ræða það þegar úrslitin lægju fyrir hvaða sæti hann myndi taka. Hann játar sig þó ekki sigraðan en Guðlaugur Þór Þórðarsson er enn í öðru sæti þegar búið er að telja 5.512 atkvæði. Allt bendir svo til þess að Sjálfstæðismenn eignist tvo nýja þingmenn, Guðfinnu Bjarnadóttur, sem er nú í fjórða sæti og Illuga Gunnarsson, sem er í fimmta sæti. Í sjötta sæti núna er Ásta Möller. 28.10.2006 19:30 Tölur kl. 19:00 - Guðlaugur Þór enn í öðru sæti, Illugi í fimmta 28.10.2006 19:00 Fjórtán hundruð mættu á kjörstað Fjórtán hundruð manns hafa tekið þátt opnu prófkjöri Samfylkingarinnar í norðvesturkjördæmi sem er heldur minna en búist var við. Þrettán hundruð manns eru skráðir í flokkinn í kjördæminu. 28.10.2006 18:30 Tölur kl. 18:30 - Guðlaugur nú í öðru sæti Guðlaugur Þór Þórðarsson er í öðru sæti í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Reykjavík þegar 3057 atkvæði hafa verið talin. Björn Bjarnason er í þriðja sæti, og Guðfinna Bjarnadóttir í því fjórða. Í fimmta sæti er Ásta Möller og í sjötta Illugi Gunnarsson. 28.10.2006 18:30 Búið að slökkva eld í nótaskipinu Beiti Búið er að slökkva eld sem logaði um borð í nótaskipinu Beiti NK 123 þar sem það var statt um tólf sjómílur út af Reyðarfirði. Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni tókst áhöfn að einangra eldinn og slökkva hann og er nú verið að reykhreinsa. 14 manns eru í áhöfn. Eldurinn logaði í vélarrúmi skipsins. Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslu verður skipinu líkast til siglt til Eskifjarðar. 28.10.2006 18:08 Fyrstu tölur - Björn Bjarnason í 2. sæti Björn Bjarnason er í öðru sæti í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Reykjavík þegar 2066 atkvæði hafa verið talin. Guðlaugur Þór Þórðarsson er í þriðja sæti, og Guðfinna Bjarnadóttir í því fjórða. Í fimmta sæti er Ásta Möller og í sjötta Illugi Gunnarsson. 28.10.2006 18:00 Stórgrýti féll á veginn um Óshlíð Mikið grjóthrun varð á Óshlíð, við Sporhamar innan Óshólavita, síðdegis í gær og í gærkvöldi. Geirs Sigurðsson, rekstrarstjóri Vegagerðarinnar á Ísafirði, segir í samtali við blaðið Bæjarins besta, að stórt grjót hafi komið niður hlíðina og yfir veginn og skemmt vegrið. 28.10.2006 16:14 Pétur K. Maack skipaður flugmálastjóri Samgönguráðherra hefur skipað Pétur K. Maack í embætti flugmálastjóra frá 1. janúar 2007. Pétur hefur í tæpan áratug starfað sem framkvæmdastjóri flugöryggissviðs Flugmálastjórnar Íslands. 28.10.2006 15:34 Skráðu nöfn kjósenda í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins Á fyrri degi prófkjörs Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík sátu fulltrúar Guðlaugs Þórs Þórðarssonar, alþingismanns og frambjóðanda í prófkjörinu, í kjördeildum og skráðu niður nöfn þeirra sem kusu. Hafði Guðlaugur Þór farið fram á það á fimmtudaginn að kjörstjórn sendi upplýsingar til frambjóðenda um alla þá sem hefðu kosið að loknum kjörfundi kl. 21 í gær. 28.10.2006 15:23 Heimildir um að Ólafur Jóhannesson hafi vitað um öryggisþjónustuna Heimildir Guðna Th. Jóhannessonar, sagnfræðings, gefa til kynna, að Ólafi Jóhannessyni, forsætis- og dómsmálaráðherra árin 1971-74, hafi verið kunnugt um flesta þætti í starfsemi öryggisþjónustu lögreglunnar, sem deilt hefur verið um að undanförnu. Aðrir fyrrverandi ráðherrar, þar á meðal, Jón Baldvin Hannibalsson og Steingrímur Hermannsson, fyrrverandi utanríkis- og forsætisráðherra, segjast ekki hafa vitað um slíka starfsemi. 28.10.2006 14:19 Enn er grjóthrun í Óshlíð Vegagerðin biður fólk um að vera ekki á ferð um Óshlíð í dag að tilefnislausu. Hætta er þar enn á grjóthruni. Vegagerðin varar einnig við hálkublettum víða á Vestfjörðum og segir að hálka og hálkublettir séu líka víða á Norðaustur- og Austurlandi. Á Öxi er snjóþekja. 28.10.2006 12:42 Veit ekki um tengsl við ólögleg viðskipti í Rússlandi Fjármálaráðherra segist ekki vita um nokkuð sem tengi íslenska kaupsýslumenn við peningaþvætti eða ólögleg viðskipti í Rússlandi. Ekstrablaðið í Danmörku hefur lofað umfjöllun um íslenska útrás á morgun sem sögð taka fram villtustu spennusögum. 28.10.2006 12:27 Hrefnuveiðibátar tilbúnir á veiðar Hrefnuveiðibátarnir Halldór á Ísafirði og Njörður í Kópavogi eru tilbúnir til veiða. Njörður gerði tilraun til veiða á fimmtudag og sigldi út á Faxaflóa en varð að snúa við sökum veðurs. Til stóð að báðir bátarnir færu út í dag en líkurnar eru taldar litlar vegna brælu. Hrefnuveiðimenn hafa tíma þar til fyrsta september á næsta ári að veiða þau þrjátíu dýr sem veiða má atvinnuskyni 28.10.2006 12:24 Prófkjör Samfylkingarinnar í NV-kjördæmi hafið Prófkjör Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi hófst nú á hádegi. Kosið er á sextán stöðum í kjördæminu og verður opið til klukkan sex í dag og aftur á morgun á milli klukkan tíu og tólf. Fimm gefa kost á sér í fyrsta sæti listans og ætla má að slagurinn verði harður. Sveinn Kristinsson bíður sig aðeins fram í fyrsta sætið. Í fyrsta til annað sætið bjóða sig fram Anna Kristín Gunnarsdóttir, alþingismaður, Guðbjartur Hannesson og séra Karl Matthíasson. Sigurður Pétursson bíður sig fram í fyrsta til fjórða sæti. 28.10.2006 12:19 Fjórða langreyðurin skorin í Hvalfirði í dag Yfir tvöhundruð manns eru nú í hvalstöðinni í Hvalfirði en þar er hvalskurður að hefjast í hádeginu. Fjórða langreyðin, sem veiðst hefur á vertíðinni, var dregin þar á land klukkan hálftólf. 28.10.2006 11:19 Rifbeinsbraut lögregluþjón Maður sem tekinn var fyrir ölvunarakstur í Reykjavík í nótt brákaði rifbein í lögreglumanni. Eftir að hann hafði verið færður inn í lögreglubíl reyndi maðurinn að flýja út úr bílnum en náðist á hlaupum. Hann sló til lögregluþjónsins með þessum afleiðingum. 28.10.2006 10:48 Bíll valt í hálku á Öxnadalsheiði Bílvelta varð á Öxnadalsheiði um kl. 19 í kvöld. Að sögn lögreglu virðist sem ökumaður hafi misst stjórn á bíl sínum á lúmskum hálkukafla á 1-2 km kafla á veginum. Bíllinn fór eina og hálfa veltu og útaf veginum. 27.10.2006 23:45 Framkvæmdum á Íslandi og Trínídad og Tóbago mótmælt í Lundúnum Umhverfisverndarsinnar frá Bretlandi, Íslandi og Tríndídad og Tóbago komu saman á Sloane-torgi í Lundúnum í dag til að mótmæla stóriðjuframkvæmdum tengdum álverum í þessum þremur löndum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá náttúruverndarsamtökunum Saving Iceland. 27.10.2006 23:30 2764 höfuð greitt atkvæði kl. 21 2764 höfðu greitt atkvæði í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fyrir Alþingiskonsingarnar næsta vor þegar kjörstað í Valhöll var lokað kl. 21 í kvöld, samkvæmt upplýsingum frá starfsmönnum flokksins í kvöld. Þar af höfðu 680 greitt atkvæði utan kjörfundar. Kjörstaðir verða 7 á morgun, þar með talin Valhöll, og verða þeir opnaðir kl. 10 í fyrramálið og hægt að kjósa til kl. 18 annað kvöld. Þá verða fyrstu tölur birtar. 27.10.2006 22:18 Fagnar stuðningi við vopnaviðskiptasáttmála Íslandsdeild Amnesty International fagnar víðtækum stuðningi ríkja heims við gerð alþjóðlegs vopnaviðskiptasáttmála sem hefur þann tilgang að styrkja eftirlit með vopnaviðskiptum og koma í veg fyrir ólöglega vopnasölu. Alþjóðlegur vopnaviðskiptasáttmáli muni tryggja að vopn verði ekki seld til landa þar sem mannréttindabrot séu framin og hætta er á vopnuðum átökum. 27.10.2006 21:15 Sjá næstu 50 fréttir
Bílvelta á Möðrudalsöræfum Bíll valt á Möðrudalsöræfum í morgun. Þrír voru í bílnum og voru þeir allir fluttir á Egilsstaði til læknisskoðunar. Lögreglan segir mikla hálku hafa verið á veginum í morgun og leiðinlegt veður. Ekki hafa fengist upplýsingar um líðan fólksins. 30.10.2006 14:10
Kærir Ekstra Bladet fyrir kynþáttafordóma í garð Íslendinga Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, sagnfræðingur sem starfar í Danmörku, hefur kært danska dagblaðið Extra Bladet til lögreglu fyrir kynþáttafordóma í tengslum við umfjöllun blaðsins um viðskiptahætti íslenskra fyrirtækja í Danmörku. 30.10.2006 14:09
Á 158 kílómetra hraða á Vesturlandsvegi Liðlega sautján ára pilts bíður ökuleyfissvipting og 60 þúsund króna sekt eftir að hann var tekinn fyrir að hafa ekið á 158 kílómetra hraða á Vesturlandsvegi um helgina. 30.10.2006 13:48
Steinunn Þóra sækist eftir 4. sætinu hjá VG á höfuðborgarsvæðinu Steinunn Þóra Árnadóttir gefur kost á sér í fjórða sætið í sameiginlegu forvali Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs fyrir Suðvestur- og Reykjavíkurkjördæmin. 30.10.2006 13:39
Una María sækist eftir 2. sæti í Kraganum Una María Óskarsdóttir, varaþingmaður Framsóknflokksins í Suðvesturkjördæmi, hefur ákveðið að bjóða sig fram í 2. sæti á framboðslista flokksins í kjördæminu fyrir komandi þingkosningar. Valið verður á listann á tvöföldu kjördæmisþingi í kjördæminu um næstu helgi en kosið verður í sex efstu sætin. 30.10.2006 13:11
Kynferðisbrotadeild tekur til starfa Kynferðisbrotadeild tekur til starfa í byrjun næsta árs þegar lögregluembættin á höfuðborgarsvæðinu verða sameinuð. Guðbjartsdóttir, einn af lögmönnum neyðarmóttöku þolenda kynferðisbrota, fagnar þessu. 30.10.2006 13:00
Segir stjórnendur KB Banka í felum Danska Ekstrabladet segir að stjórnendur Kaupþings banka hafi farið í felur eftir skrif blaðsins í gær um það sem blaðið kallar skattasniðgöngukerfi bankans. Í dag birti blaðið frétt um danskan lögfræðing sem starfar með Íslendingum og er sagður viðriðinn mál um peningaþvætti. 30.10.2006 13:00
Misþyrmdu manni sem reyndi að verja eiginkonu sína Fjórir erlendir karlmenn, sem brutu upp hurð á kvennasalerni á veitingastað í Reykjavík í fyrrinótt og réðust þar á konu, misþyrmdu eiginmanni hennar þegar hann kom henni til hjálpar. 30.10.2006 12:16
Lést í eldsvoða í Grindavík Maðurinn sem lést í eldsvoða í Grindavík í gærmorgun hét Stefán Karl Kristinsson. Hann var þrjátíu og sex ára og lætur eftir sig fimmtán ára dóttur. 30.10.2006 12:09
Kæra útgáfu framkvæmdaleyfis á Stóra-Skarðsmýrarfjalli Landvernd hefur, ásamt Eldhestum og Birni Pálssyni, kært útgáfu sveitarfélagsins Ölfuss á framkvæmdaleyfi á Stóra-Skarðsmýrarfjalli. Vilja þessir aðilar að leyfið verði ógilt þar sem útgáfan samræmist ekki ákvæðum skipulags- og byggingarlaga. 30.10.2006 10:54
Tveir handteknir í Mosfellsbæ fyrir þjófnað á byggingarefni Lögregla handtók tvo menn í Mosfellsbæ í nótt þar sem þeir voru að stela byggingarefni úr nýbyggingum. 30.10.2006 10:19
Unnur Birna greinir frá árás inn á heimili sitt Í tímaritinu Ísafold, sem kemur út í fyrsta sinn á morgun, greinir fegurðardrottningin Unnur Birna frá árás sem hún og fyrrverandi unnusti hennar urðu fyrir á heimili hennar. Fleiri tímarit frá útgáfufélaginu Fögrudyrum eru væntanleg í lok vetrar 29.10.2006 18:45
Skattayfirvöld kunni að hafa áhuga Ritstjóri Ekstra-blaðsins danska telur að skattayfirvöld á Íslandi og í Danmörku kunni að hafa áhuga á upplýsingum sem blaðið hefur undir höndum um íslenska kaupsýslumenn. Í fyrstu grein blaðsins um íslensku útrásina eru birtar upplýsingar um hvernig íslensk fyrirtæki eiga að hafa komist hjá því að greiða skatta. 29.10.2006 18:30
Hvalur 9 skaut hval 5 Fimmta langreyðurin á þessari vertíð er veidd og væntanlegt að komið verið með hana til lands um klukkan ellefu í fyrramálið. Hvalurinn sem nú veiddist er fyrsti tarfurinn af þeim fimm sem búið er að veiða nú. Hann veiddist á sömu slóðum og hinir fjórir, eða um 130 mílur vestur af Snæfellsnesi. Leyft er að veiða níu hvali á þessari vertíð og með þessu áframhaldi má ætla að hvalbáturinn Hvalur 9 klári kvótann áður en langt um líður. 29.10.2006 16:21
Maður lést í eldsvoða í Grindavík í nótt Maður á fertugsaldri lést í eldsvoða í Grindavík í nótt. Tvær stúlkur, dóttir mannsins og vinkona hennar komust af sjálfsdáðum út úr húsinu, sem stendur við Heiðarhraun í Grindavík. Stúlkurnar voru fluttar á slysadeild en voru útskrifaðar skömmu síðar. Eldsupptök verða rannsökuð nánar í dag. 29.10.2006 12:02
Klukkunni í Evrópu og Ameríku seinkað í nótt Vetrartími var tekinn upp í Bandaríkjunum og Evrópu í nótt, og klukkunni seinkað um eina klukkustund. Íslenskur tími er sem fyrr óbreyttur og nú er klukkan til dæmis einni klukkustund á undan í Kaupmannahöfn og París, en sami tími er í nú London og Reykjavík. Klukkan á austurströnd Bandaríkjanna er fimm tímum á eftir íslensku klukkunni. Evrópa og Ameríka leggja af sumartíma aðfaranótt síðasta sunnudags í október. 29.10.2006 11:53
Tölur kl. 22:30 - Pétur í 6. sætið í stað Ástu Þegar búið er að telja 8.464 atkvæði er Pétur Blöndal kominn upp fyrir Ástu Möller og Guðlaugur Þór Þórðarson virðist orðinn nýr leiðtogi Sjálfstæðismanna í Reykjavík. Ef ram fer sem horfir leiðir Guðlaugur annan lista flokksins í borginni í Alþingiskosningunum í vor. Geir Haarde, flokksformaður, leiðir hinn, en Björn Bjarnason lendir í þriðja sæti í prófkjörinu, sem lauk í kvöld. Sjálfstæðisflokkurinn eignast væntanlega tvo nýja þingmenn í Reykjavík í vor og Háskólinn í Reykjavík missir einn rektor. Rúmlega 10 þúsund manns tóku þátt í prófkjörinu. 28.10.2006 22:30
Fatlaður maður fannst látinn í Sundhöll Selfoss Fatlaður maður fannst látinn í Sundhöll Selfoss, þegar verið var að loka lauginni um níu-leytið á fimmtudagskvöld. Maðurinn var rúmlega fertugur heimamaður og fannst meðvitundarlaus í grunnu lauginni. Ekki er vitað hvernig hann lést, hvort um var að ræða drukknun. 28.10.2006 22:21
Tölur kl. 21:30 - Pétur vantar 10 atkvæði í 6. sætið Pétur Blöndal vantar nú aðeins 10 atkvæði til að ná 6. sætinu í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Reykjavík. Staða efstu manna hefur ekkert breyst þegar 7.909 atkvæði hafa verið talin af rúmlega 10.000. Geir Haarde er efstur, hefur hlotið 7.558, þar af 7.050 atkvæði í 1. sætið. Guðlaugur Þór Þórðarson í öðru sæti með 6.445 atkvæði, þar af 3.828 atkvæði í 1. - 2. sæti. Björn Bjarnason er í þriðja sæti með 5.493 atkvæði, þar af 3.062 atkvæði í 1. - 2. sætið. Það munar því 766 atkvæðum á þeim í 1. - 2. sæti. 28.10.2006 21:30
Tölur kl. 20:30 - Pétur virðist saxa á Ástu Pétur Blöndal virðist saxa á Ástu Möller í sjötta sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Þegar talin hafa verið 6.474 atkvæði vantar Pétur aðeins 27 atkvæði til að ná 6. sætinu af Ástu. Hún hefur hlotið samtals 5.165 atkvæði en Pétur er með samtals 4.885 atkvæði í 1. - 7. sæti. 28.10.2006 20:30
Dómsmálaráðherra gefur ekki færi á viðtali í kvöld Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, var á kosningaskrifstofu sinni þegar fréttastofa náði tali af honum kl. 20 í kvöld og bað um viðtal þegar síðustu tölur yrðu birtar. hann sagðist ekki ætla að veita fleiri viðtöl í kvöld og vildi ekki að fjölmiðlar kæmu og mynduðu á kosningaskrifstofu hans. Hann gaf ekkert uppi um hvenær hann myndi gefa færi á viðtali á morgun. 28.10.2006 20:07
Tölur kl. 20:00 - Staðan óbreytt, Björn tjáir sig ekki Guðlaugur Þór Þórðarson heldur enn öðru sætinu í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins þegar 5.759 atkvæði hafa verið talin. Guðlaugur Þór hefur hlotið 4.654 atkvæði en Björn Bjarnason er í þriðja sæti, hefur hlotið 4.060 atkvæði. Geir Haarde hefur hlotið 5.525 atkvæði í fyrsta sæti eða tæplega 96% greiddra atkvæða. Guðfinna Bjarnadóttir hedlur fjórða sætinu, Illugi Gunnarsson er í þvi fimmta og Ásta Möller í sjötta sæti. Björn Bjarnason vill ekki tjá sig um hvort hann taki 3. sætið á lista Sjálfstæðismanna ef úrslit verða á þann veg í prófkjörinu. Þessi afstaða Björns eykur á spennuna í talningu atkvæða í prófkjörinu. 28.10.2006 20:00
Afskaplega þakklátur "Ég er afskaplega þakklátur fyrir þann stuðning sem ég hef fengið í þessu prófkjöri. Það skiptir mig þó engu sérstöku máli hvort ég verð í 5. eða 6. sæti," sagði Illugi Gunnarsson í samtali við Vísi þegar tölur höfðu verið birtar klukkan 19:30. Samkvæmt þeim er Illugi í 5. sæti með 4.477 atkvæði. 28.10.2006 19:45
Spurt verður hvaðan peningarnir komi Aðalritstjóri Ekstra blaðsins danska segir marga spyrja sig hvernig svo fámenn þjóð eins og Ísland geti fjárfest eins mikið og raun beri vitni. Spurt sé hvaðan peningarnir komi og blaðið reyni að svara því. Árni Matihesen, fjármálaráðherra, segir það koma sér á óvart að blaðið boði umfjöllun um íslenska útrás. 28.10.2006 19:33
Tölur kl. 19:30 - Óræð ummæli Björns Bjarnasonar auka enn á spennuna Óræð ummæli Björns Bjarnasonar um hvort hann taki sæti á lista samkvæmt úrslitunum í prófkjörinu auka enn á spennuna í talningu atkvæða í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Reykjavík. Björn Bjarnason sagði í viðtali við NFS um klukkan 19:30, að hann myndi ræða það þegar úrslitin lægju fyrir hvaða sæti hann myndi taka. Hann játar sig þó ekki sigraðan en Guðlaugur Þór Þórðarsson er enn í öðru sæti þegar búið er að telja 5.512 atkvæði. Allt bendir svo til þess að Sjálfstæðismenn eignist tvo nýja þingmenn, Guðfinnu Bjarnadóttur, sem er nú í fjórða sæti og Illuga Gunnarsson, sem er í fimmta sæti. Í sjötta sæti núna er Ásta Möller. 28.10.2006 19:30
Fjórtán hundruð mættu á kjörstað Fjórtán hundruð manns hafa tekið þátt opnu prófkjöri Samfylkingarinnar í norðvesturkjördæmi sem er heldur minna en búist var við. Þrettán hundruð manns eru skráðir í flokkinn í kjördæminu. 28.10.2006 18:30
Tölur kl. 18:30 - Guðlaugur nú í öðru sæti Guðlaugur Þór Þórðarsson er í öðru sæti í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Reykjavík þegar 3057 atkvæði hafa verið talin. Björn Bjarnason er í þriðja sæti, og Guðfinna Bjarnadóttir í því fjórða. Í fimmta sæti er Ásta Möller og í sjötta Illugi Gunnarsson. 28.10.2006 18:30
Búið að slökkva eld í nótaskipinu Beiti Búið er að slökkva eld sem logaði um borð í nótaskipinu Beiti NK 123 þar sem það var statt um tólf sjómílur út af Reyðarfirði. Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni tókst áhöfn að einangra eldinn og slökkva hann og er nú verið að reykhreinsa. 14 manns eru í áhöfn. Eldurinn logaði í vélarrúmi skipsins. Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslu verður skipinu líkast til siglt til Eskifjarðar. 28.10.2006 18:08
Fyrstu tölur - Björn Bjarnason í 2. sæti Björn Bjarnason er í öðru sæti í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Reykjavík þegar 2066 atkvæði hafa verið talin. Guðlaugur Þór Þórðarsson er í þriðja sæti, og Guðfinna Bjarnadóttir í því fjórða. Í fimmta sæti er Ásta Möller og í sjötta Illugi Gunnarsson. 28.10.2006 18:00
Stórgrýti féll á veginn um Óshlíð Mikið grjóthrun varð á Óshlíð, við Sporhamar innan Óshólavita, síðdegis í gær og í gærkvöldi. Geirs Sigurðsson, rekstrarstjóri Vegagerðarinnar á Ísafirði, segir í samtali við blaðið Bæjarins besta, að stórt grjót hafi komið niður hlíðina og yfir veginn og skemmt vegrið. 28.10.2006 16:14
Pétur K. Maack skipaður flugmálastjóri Samgönguráðherra hefur skipað Pétur K. Maack í embætti flugmálastjóra frá 1. janúar 2007. Pétur hefur í tæpan áratug starfað sem framkvæmdastjóri flugöryggissviðs Flugmálastjórnar Íslands. 28.10.2006 15:34
Skráðu nöfn kjósenda í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins Á fyrri degi prófkjörs Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík sátu fulltrúar Guðlaugs Þórs Þórðarssonar, alþingismanns og frambjóðanda í prófkjörinu, í kjördeildum og skráðu niður nöfn þeirra sem kusu. Hafði Guðlaugur Þór farið fram á það á fimmtudaginn að kjörstjórn sendi upplýsingar til frambjóðenda um alla þá sem hefðu kosið að loknum kjörfundi kl. 21 í gær. 28.10.2006 15:23
Heimildir um að Ólafur Jóhannesson hafi vitað um öryggisþjónustuna Heimildir Guðna Th. Jóhannessonar, sagnfræðings, gefa til kynna, að Ólafi Jóhannessyni, forsætis- og dómsmálaráðherra árin 1971-74, hafi verið kunnugt um flesta þætti í starfsemi öryggisþjónustu lögreglunnar, sem deilt hefur verið um að undanförnu. Aðrir fyrrverandi ráðherrar, þar á meðal, Jón Baldvin Hannibalsson og Steingrímur Hermannsson, fyrrverandi utanríkis- og forsætisráðherra, segjast ekki hafa vitað um slíka starfsemi. 28.10.2006 14:19
Enn er grjóthrun í Óshlíð Vegagerðin biður fólk um að vera ekki á ferð um Óshlíð í dag að tilefnislausu. Hætta er þar enn á grjóthruni. Vegagerðin varar einnig við hálkublettum víða á Vestfjörðum og segir að hálka og hálkublettir séu líka víða á Norðaustur- og Austurlandi. Á Öxi er snjóþekja. 28.10.2006 12:42
Veit ekki um tengsl við ólögleg viðskipti í Rússlandi Fjármálaráðherra segist ekki vita um nokkuð sem tengi íslenska kaupsýslumenn við peningaþvætti eða ólögleg viðskipti í Rússlandi. Ekstrablaðið í Danmörku hefur lofað umfjöllun um íslenska útrás á morgun sem sögð taka fram villtustu spennusögum. 28.10.2006 12:27
Hrefnuveiðibátar tilbúnir á veiðar Hrefnuveiðibátarnir Halldór á Ísafirði og Njörður í Kópavogi eru tilbúnir til veiða. Njörður gerði tilraun til veiða á fimmtudag og sigldi út á Faxaflóa en varð að snúa við sökum veðurs. Til stóð að báðir bátarnir færu út í dag en líkurnar eru taldar litlar vegna brælu. Hrefnuveiðimenn hafa tíma þar til fyrsta september á næsta ári að veiða þau þrjátíu dýr sem veiða má atvinnuskyni 28.10.2006 12:24
Prófkjör Samfylkingarinnar í NV-kjördæmi hafið Prófkjör Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi hófst nú á hádegi. Kosið er á sextán stöðum í kjördæminu og verður opið til klukkan sex í dag og aftur á morgun á milli klukkan tíu og tólf. Fimm gefa kost á sér í fyrsta sæti listans og ætla má að slagurinn verði harður. Sveinn Kristinsson bíður sig aðeins fram í fyrsta sætið. Í fyrsta til annað sætið bjóða sig fram Anna Kristín Gunnarsdóttir, alþingismaður, Guðbjartur Hannesson og séra Karl Matthíasson. Sigurður Pétursson bíður sig fram í fyrsta til fjórða sæti. 28.10.2006 12:19
Fjórða langreyðurin skorin í Hvalfirði í dag Yfir tvöhundruð manns eru nú í hvalstöðinni í Hvalfirði en þar er hvalskurður að hefjast í hádeginu. Fjórða langreyðin, sem veiðst hefur á vertíðinni, var dregin þar á land klukkan hálftólf. 28.10.2006 11:19
Rifbeinsbraut lögregluþjón Maður sem tekinn var fyrir ölvunarakstur í Reykjavík í nótt brákaði rifbein í lögreglumanni. Eftir að hann hafði verið færður inn í lögreglubíl reyndi maðurinn að flýja út úr bílnum en náðist á hlaupum. Hann sló til lögregluþjónsins með þessum afleiðingum. 28.10.2006 10:48
Bíll valt í hálku á Öxnadalsheiði Bílvelta varð á Öxnadalsheiði um kl. 19 í kvöld. Að sögn lögreglu virðist sem ökumaður hafi misst stjórn á bíl sínum á lúmskum hálkukafla á 1-2 km kafla á veginum. Bíllinn fór eina og hálfa veltu og útaf veginum. 27.10.2006 23:45
Framkvæmdum á Íslandi og Trínídad og Tóbago mótmælt í Lundúnum Umhverfisverndarsinnar frá Bretlandi, Íslandi og Tríndídad og Tóbago komu saman á Sloane-torgi í Lundúnum í dag til að mótmæla stóriðjuframkvæmdum tengdum álverum í þessum þremur löndum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá náttúruverndarsamtökunum Saving Iceland. 27.10.2006 23:30
2764 höfuð greitt atkvæði kl. 21 2764 höfðu greitt atkvæði í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fyrir Alþingiskonsingarnar næsta vor þegar kjörstað í Valhöll var lokað kl. 21 í kvöld, samkvæmt upplýsingum frá starfsmönnum flokksins í kvöld. Þar af höfðu 680 greitt atkvæði utan kjörfundar. Kjörstaðir verða 7 á morgun, þar með talin Valhöll, og verða þeir opnaðir kl. 10 í fyrramálið og hægt að kjósa til kl. 18 annað kvöld. Þá verða fyrstu tölur birtar. 27.10.2006 22:18
Fagnar stuðningi við vopnaviðskiptasáttmála Íslandsdeild Amnesty International fagnar víðtækum stuðningi ríkja heims við gerð alþjóðlegs vopnaviðskiptasáttmála sem hefur þann tilgang að styrkja eftirlit með vopnaviðskiptum og koma í veg fyrir ólöglega vopnasölu. Alþjóðlegur vopnaviðskiptasáttmáli muni tryggja að vopn verði ekki seld til landa þar sem mannréttindabrot séu framin og hætta er á vopnuðum átökum. 27.10.2006 21:15