Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bætt þekking er lykilatriði Sænski lýðheilsuprófessorinn Stig Wall við Háskólann í Umeå hlaut norrænu lýðheilsuverðlaunin þetta árið. 16.6.2006 06:45
Læknir kvað brotið ólíklegt Karlmaður á fimmtugsaldri var í Héraðsdómi Reykjavíkur á miðvikudag sýknaður af ákæru um að hafa nauðgað dóttur sinni fyrir tæpum tveimur árum, þá tíu ára gamalli. 16.6.2006 06:45
Kona hætt komin í eldsvoða Kona var hætt komin þegar nágrannar hennar komu henni til hjálpar í brennandi íbúðarhúsi að bænum Hólmaseli í Villingaholtshreppi, fyrir austan Selfoss laust fyrir miðnætti. Þegar nágrannanrir komu á vettvang heyrðist kallað á hjálp og brutu þeir glugga og hjálpuðu konunni út. Hana sakaði ekki. Þegar slökkvilið kom á vettvang skömmu síðar var húsið alelda og brann allt sem brunnið gat. Eldsupptök eru ókunn, en ekki er útilokað að kviknað hafi í út frá kerti. 16.6.2006 06:45
Flóttamenn vegna bágrar stöðu sjónskertra á Íslandi Móðir flúði land til Svíþjóðar vegna bágrar stöðu í skólamálum sjónskertra á Íslandi. Hún segir ótrúlegan mun á stöðu sjónskertra hér og í Svíþjóð og að Íslendinga vanti helst af öllu þekkingarmiðstöð. 16.6.2006 06:30
Kríuna skortir æti Krían hefur ekki enn hafið varp sunnan- og vestanlands en það er venjulega hafið á þessum tíma árs. Austanlands hefur þó eitthvað verið um varp, að sögn Kristins Skarphéðinssonar, fuglafræðings hjá Náttúrufræðistofnun. 16.6.2006 06:30
Vilja heildarendurskoðun Stjórnarandstöðuflokkarnir í Reykjavík vilja heildarendurskoðun á hreinsunar- og fegrunarmálum borgarinnar svo að hægt sé að tryggja jafna hreinsun á borginni allt árið um kring. Þetta kemur fram í bókun stjórnarandstöðunnar úr borgarráði í gær. 16.6.2006 06:30
Formlegt samráð sjálfsagt Stjórnarandstaða borgarstjórnar telur sjálfsagt að efna til formlegs samráðs við samtök eldri borgara í kjölfar þeirra viðræðna sem átt hefur verið við þau á undanförnum vikum. Ekki sé ástæða til að takmarka samráðið við neina ákveðna þætti enda hafi eldri borgarar lagt áherslu á að geta tekið við hvaða málum sem er sem snúast að hagsmunum þeirra. 16.6.2006 06:15
Umferðarátak heldur áfram Átak lögreglu í umferðarmálum á landsvísu sem hófst í fyrrasumar mun halda áfram í ár með aukinni fjárveitingu. Í sumar fengust áttatíu milljónir króna frá samgöngumálaráðuneytinu til að halda áfram sérstöku eftirliti á þjóðvegunum með hraðakstri og ölvunarakstri. Þetta kemur ofan á öll hefðbundin löggæslustörf. 16.6.2006 06:00
Segist vera saklaus af smygli Þrítugur litháískur karlmaður sagðist fyrir dómi í gær saklaus af því að flytja inn rúma tvo lítra af amfetamínbasa auk tæplega 700 millilítra af brennisteinssýru, til söludreifingar hér á landi. Mál Ríkissaksóknara gegn honum var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. 16.6.2006 06:00
Frjálslyndir auglýstu oftast Frjálslyndi flokkurinn birti flestar dagblaðaauglýsingar fyrir nýafstaðnar sveitarstjórnarkosningar, eða 124, en næst á eftir kemur Sjálfstæðisflokkurinn með 113 auglýsingar. Aðrir flokkar eru með mun færri auglýsingar; á milli fimmtíu og sextíu. 16.6.2006 05:45
Köflótt rigning og hægviðri Helga Jónsdóttir, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir að höfuðborgarbúar megi búast við "týpísku íslensku" þjóðhátíðarveðri á 17. júní. 16.6.2006 05:45
Fá sjaldan þyngri dóm en skilorð Þeir sem ráðast á lögreglumenn eru sjaldan dæmdir til þyngri refsingar en skilorðsbundinnar fangelsisvistar. Það er að segja ef málið fer yfirleitt fyrir dóm, en að sögn talsmanns Landssambands lögreglumanna eru 90-95 prósent þessara mála felld niður áður en þau fara fyrir dóm. 16.6.2006 05:30
Stjórnarskrárdeilu slegið á frest Leiðtogar Evrópusambandsríkjanna 25, sem sitja nú á rökstólum á hálfsárslegum fundi sínum í Brussel, ætla að gefa sér minnst eitt ár til viðbótar til að íhuga hvað gera skuli við stjórnarskrársáttmálann strandaða. 16.6.2006 05:30
Jafnréttisgleraugu frá Jóni Jón Kristjánsson, fyrrverandi félagsmálaráðherra, afhenti Magnúsi Stefánssyni, eftirmanni sínum, svokölluð jafnréttisgleraugu þegar Magnús tók við lyklum að ráðuneytinu í gær. 16.6.2006 05:15
Ljótur blettur á bænum Þegar ekið er inn í Reyðarfjörð má sjá stóran og mikinn ruslahaug sem samanstendur af brotajárni, gömlum dekkjum og ýmsu öðru drasli. Landið, sem er einn hektari að stærð, er í eign Fjarðabyggðar en endurvinnslufyrirtækið Hringrás leigir það af bænum. 16.6.2006 05:15
Vaxmyndasafnið til sýnis Vaxmyndasafn Þjóðminjasafnsins verður til sýnis í sumar en það hefur löngum verið sveipað ævintýraljóma. Margir gestir safnsins hafa því hvatt til þess að vaxmyndirnar verði settar fram til að þjóðin fái að berja þær augum. 16.6.2006 05:00
Lykillinn skilinn eftir í bílnum Héraðsdómur Norðurlands vestra vísaði í fyrradag frá dómi máli konu á hendur eiganda bifreiðaverkstæðis. Konan sakaði eigandann um að bera ábyrgð á því að bíl hennar var stolið fyrir framan verkstæðið eftir að starfsmaður verkstæðisins skildi bílinn eftir þar með lykilinn í svissinum. 16.6.2006 04:45
Svikahrappar segjast safna fé til góðgerðarmála Borið hefur á því að svikahrappar hafa undanfarið hringt í fólk og sagst vera að safna fé til styrktar Fjölskylduhjálp og sagst munu koma heim til fólks og sækja féð. Fólk er beðið að tortryggja þá sem stunda þessi vinnubrögð því hið rétta er að fjársöfnun Fjölskylduhjálpar fer öll í gegnum banka og það er einungis BM-ráðgjöf sem safnar fé fyrir Fjölskylduhjálp með sölu geisladiska. 15.6.2006 23:00
Eldur kviknaði við olíutankana á Akranesi Slökkvilið Akranes var kallað út á tíunda tímanum í kvöld vegna elds sem logaði við birgðastöð Olís á Akranesi. Allt bendir til að eldurinn hafi verið kveiktur af mannavöldum og að einhver hafi farið inn á lokað svæði en eldurinn logaði í plastgámi sem innihélt tjöruhreinsi. Greiðlega gekk að slökkva eldinn en mikið mildi þykir að eldurinn náði ekki að breiðast út. Lögreglan á Akranesi fer með rannsókn málsins. 15.6.2006 22:49
Uppselt á Hróarskeldu Uppselt er á tónlistarhátíðina vinsælu í Hróarskeldu í Danmörku, sem haldin verður dagana 29.júní til 2.júlí. 75 þúsund miðar voru seldir á hátíðina og þar af rúmlega þúsund á Íslandi og er það sölumet fyrir miða á Íslandi. Þá eru ótaldir miðar Íslendinga sem keyptir eru í útlöndum eða í gegnum netið. Það er því ljóst að það verður talsverður fjöldi Íslendinga á svæðinu. 15.6.2006 22:45
Verslað með húsbyggingafyrirtæki í Akrahverfi Phoenix fjárfestingar hafa selt dótturfyrirtæki sitt, Laugarakur, sem hefur séð um rúmlega 70% byggingarframkvæmda í hinu nýja Akrahverfi í Garðabæ. Það er nýstofnað fyrirtæki, Laugarnes hf, sem keypti Laugarakur og með því byggingarverkefnið, sem fullklárað verður ríflega 45 þúsund fermetrar af húsnæði. 15.6.2006 22:24
Erfitt en ánægjulegt að hjóla í kringum landið Það er ekki alltaf tekið út með sældinni að hjóla í íslenskri veðráttu. Því hafa hjólagarparnir Bjarki Birgisson og Gyða Rós Bragadóttir fengið að kynnast en þau hjóla nú hringinn í kringum Ísland. 15.6.2006 22:00
Skvísa keyrir búkollu 21 árs kona fékk nóg af lágum hárgreiðslunemalaunum, tók meirapróf og keyrir nú vörubíl af stærstu gerð, svokallaða búkollu. Á níu dögum fékk hún rúmlega mánaðarlaun hárgreiðslunemans og sér ekki eftir skiptunum. 15.6.2006 19:00
Búa í tjaldi Pólverji sem vinnur á hóteli í Reykjavík hefur þurft að hírast í tjaldi í tvær vikur og sér ekki fyrir endann á því. Nokkrir aðrir Pólverjar sem komu hingað í leit að vinnu eftir fyrsta maí eru nágrannar hans á tjaldstæðinu í Laugardal. 15.6.2006 18:45
Vísitala íbúðaverðs lækkaði í maí Vísitala íbúðaverðs lækkaði örlítið í maímánuði, um 0,2 prósent. Þetta kemur fram í Vegvísi Landsbankans í dag. Verð á fjölbýli lækkaði meira á milli mánaða en verð á sérbýli. Þetta er fyrsta lækkun fasteignavísitölu síðan í desember síðastliðnum en vísitalan hækkaði talsvert á fyrstu mánuðum ársins. 15.6.2006 17:59
Skildi kött eftir fæðulausan í einn mánuð Karlmaður var í dag dæmdur fyrir brot gegn lögum um dýravernd í Héraðsdómi Vesturlands. Maðurinn skildi kött eftir einan í íbúð sinni og án fæðu í einn mánuð árið 2005. Refsing hans þykir hæfileg 40.000 króna sekt sem greiða skal í ríkissjóð en verði sektin ekki greidd innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dómsins, skal maðurinn sæta fjögurra daga fangelsi. 15.6.2006 17:57
Vonar að sátt verði um næsta formann Halldór Ásgrímsson, fyrrverandi forsætisráðherra og fráfrandi formaður Framsóknarflokksins, segir það ekki í sínum verkahring að hafa áhrif á val á næsta formanni flokksins. Hann segist vona að sátt og friður verði um næsta formann innan flokksins. 15.6.2006 16:15
Halldór ekki á leið í Seðlabankann Halldór Ásgrímsson, fyrrverandi forsætisráðherra segist ekki á leið í Seðlabankann nú þegar hann segir skilið við stjórnmálin. Halldór lét af ráðherraembætti á ríkisráðsfundi á Bessastöðum í dag og hyggst segja af sér þingmennsku að loknu flokksþingi Framsóknarflokksins í ágúst. Halldór segir óráðið hvað taki við eftir það. 15.6.2006 15:27
Engir reikningar þegar heim er komið Nú geta viðskiptavinir í Og Vodafone Frelsi hringt frá helstu nágrannalöndum án þess að skrá númerið sitt sérstaklega. Jafnframt eru símtöl gjaldfærð af inneign um leið og því þurfa viðskiptavinir ekki að hafa áhyggjur af bakreikningum þegar heim er komið. 15.6.2006 12:52
Þokast í samkomulagsátt Ýmsir þættir þokast í samkomulagsátt hjá aðilum vinnumarkaðarins og talsmenn þar telja að samkomulag geti legið fyrir eftir viku, ef stjónrvöld koma með raunhæft innlegg til samkomulags. 15.6.2006 12:45
Sjálfstæðismenn í forsætisráðuneytinu í 39 ár af 52 Sjálfstæðismenn hafa setið í forsætisráðherrastóli í tæp 39 ár í fimmtíu og tveggja ára sögu lýðveldisins og Framsóknarmenn í um 18 ár. Ráðuneyti Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherra er það 24. frá stofnun lýðveldisins og er hann 15. maðurinn til að gegna embætti forsætisráðherra frá árinu 1944. 15.6.2006 12:15
Áhyggjur af fríblaði Dagsbrúnar Danskir stjórnmálamenn virðast hafa nokkrar áhyggjur af fríblaðinu sem Dagsbrún er að byrja að gefa út í Danmörku. Margir danskir þingmenn eru sagðir tilbúnir til að endurskoða stuðning sinn við hin hefðbundnu dagblöð. 15.6.2006 10:15
Hugmyndin andvana fædd Framkvæmdarstjóri Landssamtaka Lífeyrissjóða segir það ekki vera hlutverk lífeyrissjóðanna að byggja og reka húsnæði fyrir eldri borgara. Hann segir hugmyndina vera andvana fædda. 15.6.2006 10:00
Framlegð í sjávarútvegi aukist Framlegð í sjávarútvegi hefur aukist áberandi meira en í öðrum greinum síðastliðna sex mánuði og horfur til næstu sex mánaða eru einnig bestar í sjávarútvegi, samkvæmt ársfjórðungslegri könnun, sem Gallup gerir í samvinnu við Samtök atvinnulífsins. 15.6.2006 09:45
Forsætisráðherraskipti í dag Í dag lætur Halldór Ásgrímsson af störfum sem forsætisráðherra og ríkisstjórn Geirs H. Haarde tekur við. Ríkisráðsfundur hófst kl. 12 á hádegi og eftir það verður gengið til hádegisverðar í boði forseta Íslands. Þá sest ný ríkisstjórn á ríkisráðsfund þar sem Geir H. Haarde tekur við forsætisráðherraembættinu. 15.6.2006 09:30
Kjaraviðræður í hnút blasa við nýrri ríkisstjórn Kjaraviðræður í hnút blasa við nýrri ríkisstjórn, sem formlega tekur til starfa eftir ríkisráðsfund á Bessastöðum í hádeginu. Verkalýðshreyfingin hefur lagt mikla áherslu á sérstakt skattþrep fyrir hina lægst launuðu, en því hefur ríkisstjórnin hafnað. Það kom svo verkalýðshreyfingunni í opna skjöldu í gær þegar Samtök atvinnulífsins sögðust ekki styðja lægra skattþrep, þannig að endurskoðun kjarasamninga er komin í hnút að mati þeirra sem að henni standa. 15.6.2006 08:15
Næsta lágvöruverslun við Höfn í yfir 300 km fjarlægð Konu, sem var á ferð á Höfn í Hornafirði, blöskraði hátt verðlag á staðnum og hafði samband við Neytendasamtökin vegna málsins. Á Höfn hefur einu lágvöruverslun staðarins, Krónunni, verið lokað og nú er einungis matvöruverslun 11-11 á staðnum. 15.6.2006 08:00
Forystuháskóli á alþjóðavísu í mótun Menntamálaráðherra opnaði í gær nýja stofnun um sjálfbæra þróun og þverfaglegar rannsóknir við Háskóla Íslands. Stofnuninni er ætlað að leika stórt hlutverk í að leysa mörg af alvarlegustu vandamálum alþjóðasamfélagsins. 15.6.2006 08:00
Fíkniefni fundust við leit í bílum á Akureyri Lögreglan á Akureyri fann fíkniefni við leit í tveimur bílum sem stöðvaðir voru við eftirlit í nótt. Í hvorugu tilvikinu var þó um verulegt magn að ræða, en ökumenn beggja bílanna voru handteknir en sleppt að loknum yfirheyrslum. 15.6.2006 08:00
Vonast eftir afsökunarbeiðni Dómsmál Ríkissaksóknara, Boga Nilssyni, þykir ekki vera grundvöllur til að rannsaka það frekar hvort Jón Gerald Sullenberger hafi borið ljúgvitni gegn Jóhannesi Jónssyni í Baugsmálinu og hefur rannsókninni nú verið hætt. Þetta kemur fram í bréfi sem Bogi sendi Einari Þór Sverrissyni, lögmanni Jóhannesar, 8. júní. Jóhannes lagði fram kæru á hendur Jóni Gerald vegna þessa hinn 6. apríl. 15.6.2006 07:45
Úthýsa verkum Hornsleths Aðstandendur Q bar í Ingólfsstræti hafa brugðist við áskorunum um að taka niður listaverk danska myndlistamannsins Hornsleths, sem hafa hangið þar uppi í nokkra daga. Kvartanir bárust frá stúlkum sem hafa tekið þátt í fegurðarsamkeppnum og aðstandendum þeirra, en stúlkurnar eru sýndar í málverkunum ásamt grófum texta. 15.6.2006 07:45
Krían ekki orpin Krían er ekki enn farin að verpa, en væri orpin fyrir hálfum mánuði í venjulegu árferði. Svipaða sögu er að segja af sílamávi og ritu. Fuglaáhugamenn telja þetta stafa af skorti á sandsíli í sjónum, sem er aðalfæða þessara fuglategunda. Mikill ungadauði var hjá kríunni í fyrrasumar vegna fæðuskorts en nú gæti farið svo að hún verpti alls ekki, en um 300 þúsund kríupör komu hingað til lands í vor til að verpa. 15.6.2006 07:45
Samningar Icelandair og sænska ríkisins Icelandair hefur náð samningum við sænska ríkið um að fljúga með starfsmenn þess á milli Svíþjóðar og Íslands annars vegar, og hins vegar á milli Svíþjóðar og Bandaríkjanna. Að sögn Sigmundar Halldórssonar, starfandi upplýsingafulltrúa Icelandair, er samningurinn stór áfangi fyrir félagið. Unnið hafi verið að honum í töluverðan tíma en hann verður undirritaður í Stokkhólmi á morgun. Ekki liggja fyrir nákvæmar tölur um verðmæti samningsins en að sögn Sigmundar ræðst það fyrst og fremst af því hve mikið starfsmenn sænska ríkisins muni fljúga á áðurnefndum flugleiðum. Samningurinn er til eins árs en að sögn Sigmundar er það venja hjá sænska ríkinu hvað varðar flugsamninga að gera ekki lengri samninga en það. 15.6.2006 07:45
Rýrnað um 480 milljarða Áframhaldandi lækkun varð á innlendum hlutabréfum í gær, þriðja daginn í röð, og endaði Úrvalsvísitalan í næstlægsta gildi á árinu, 5.356 stigum. Hefur hún lækkað um 3,23 prósent frá áramótum. 15.6.2006 07:30
Albert Jónsson til Washington Albert Jónsson verður sendiherra Íslands í Bandaríkjunum frá 1. nóvember. Um þá ráðstöfun og breytingar á högum tólf annarra sendiherra var tilkynnt í gær. Var það eitt af síðustu embættisverkum Geirs Haarde sem utanríkisráðherra. 15.6.2006 07:30