Fleiri fréttir

Bílvelta nærri Hvalfjarðargöngum

Bíll valt á veginum skammt frá Hvalfjarðargöngum, sunnanmegin, fyrir stundu. Lögegla og sjúkralið frá Reykjavík og Akranesi eru komin á staðinn. Tvennt er fast í bílnum og er tækjabíll frá Reykjavík rétt ókominn á vettvang.

Málþing um skólagöngu hjartveikra barna

Skólaganga hjartveikra barna er um margt ólík skólagöngu heilbrigðra barna og koma þarf til móts við þau í skólakerfinu. Í dag verður haldið málþing í Gerðubergi þar sem skólaganga þeirra verður til umfjöllunar. Tilefnið er tíu ára afmæli Neistans, styrktarfélags hjartveikra barna.

Veður að versna á Suður- og Vesturlandi

Veturinn hefur heldur betur minnt á sig á Suður- og Vesturlandi í nótt og í morgun. Borgarbúar vöknuðu við fyrstu snjókomuna þetta haustið og nokkuð var um árekstra í morgun. Spáð er stormi á Suður- og Vesturlandi þegar líður á daginn með töluverðri ofankomu sem færir sig svo yfir á Norðurland en búist er við að veðrið gangi niður eftir hádegi á morgun.

Rætt um stöðuna í varnarviðræðunum

Utanríkismálanefnd Alþingis kom saman til fundar klukkan kortér yfir átta í morgun, til að ræða stöðuna í viðræðum Íslendinga og Bandaríkjamanna um herstöðina á Keflavíkurflugvelli og varnarmál Íslands almennt.

Bærinn vill kaupa starfsstöðina

Halldór Halldórsson, bæjarstjóri í Ísafjarðarbæ, hefur óskað eftir viðræðum við stjórnendur Já Símaskrár, um að kaupa vinnustöð fyrirtækisins á Ísafirði. Beiðni Halldórs kemur í kjölfar þess að fyrirtækið ákvað að leggja starfsstöðina niður og flytja starfsemina annað en þar með glatast fimm störf á Ísafirði.

Fyrstu íbúðirnar fyrir eldri borgara

Vinna er hafin við byggingu fyrstu íbúðanna fyrir eldri borgara sem reistar eru í Snæfellsbæ. Í gær var tekin skóflustunga að fyrra af tveimur parhúsum sem verða reist. Húsin verða á Ólafsvík en að því er fram kemur á vef Skessuhorns eru það Grundfirðingar sem sjá um bygginguna.

Allt flug til og frá höfuðborginni liggur niðri

Allt flug til og frá Reykjavíkurflugvelli hefur legið niðri í morgun vegna hvassviðrisins sem er á Suður- og Vesturlandi. Samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá Flugfélagi Íslands verður næst kannað hvort hægt verði að fljúga klukkan tíu mínútur yfir ellefu.

Tafir á umferð í morgun vegna hálku

Talsverðar umferðartafir urðu víða á Reykjavíkursvæðinu í morgun vegna hálku og særok og ágjöf eru á Sæbrautinni. Nokkrir árekstrar hafa orðið, en ekki er vitað um slys. Þá er búist við hvassviðri Suðvestanlands þannig að vanbúnum bílum getur verið hætt.

Varað við óveðri á vesturhluta landsins

Vegagerðin varar við óveðri á Kjalarnesi, Holtavörðuheiði, Snæfellsnesi og á Klettshálsi. Hálkublettir og skafrenningur eru á Hellisheiði og í Þrengslum og hálkublettir á Reykjanesi.

Samþykkt að selja hitaveitu Ólafsfjarðar

Meirihluti bæjarstjórnar Ólafsfjarðar samþykkti á fundi sínum í gærkvöldi að selja hitaveitu bæjarins til Norðurorku á Akureyri fyrir 535 milljónir króna. Talsverð andstaða hefur verið meðal bæjarbúa við þessum áformum, en megnið af söluandvirðinu verður notað til að greiða niður skuldir bæjarins.

Aðalbjörg sæmd umhverfisverðlaunum

Útgerðin Aðalbjörg sf. í Reykjavík hlaut umhverfisverðlaun Landssambands íslenskra útvegsmanna. Bræðurnir Sigurður, Guðbjartur og Stefán Einarssynir, sem eiga Aðalbjörgu, tóku við verðlaununum úr hendi Einars K. Guðfinnssonar sjávarútvegsráðherra á landsfundi LÍÚ í gær.

Volvo og Atlas grunuð um mútur

Sænsku fyrirtækin Volvo og Atlas Copco og tuttugu og eitt danskt fyrirtæki, eru í hópi 2,400 fyrirtækja í 66 löndum, sem grunuð eru um mútustarfsemi í olíuviðskiptunum við Íraka. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu um áætlunina Olía fyrir mat.

Heimamenn afar ósáttir

Vestmannaeyingar eru ósáttir við að heimsókn þingmanna Suðurkjördæmis, sem hefjast átti í dag, skyldi vera frestað fram í næstu viku vegna slæms veðurútlits.

Einstaklingar tvöfalda lántökur

Lántökur einstaklinga voru meira en tvöfalt hærri undir lok síðasta mánaðar en þær voru árið áður. Þetta kemur fram í Hagvísum Seðlabankans þar sem kemur fram að útlán bankanna jukust um 59 prósent á einu ári. Útlán til fyrirtækja jukust um 42 prósent á sama tíma og útlán til einstaklinga jukust um 118 prósent.

Búast við hækkun vaxta af húsnæðislánum

Allt stefnir í að vextir af húsnæðislánum hækki alveg á næstunni þar sem vextir á skuldabréfamarkaði hækka nú daglega. Sérfræðingar KB banka segja að miðað við stöðuna núna þyrftu vextir Íbúðalánasjóðs til dæmis að vera 4,65 prósent en ekki 4,15, eins og þeir eru nú.

Tvískattlagt á leið til Reykjavíkur

Umræðan um lagningu Sundabrautar hefur að undanförnu legið nokkuð í skugga flugvallarumræðunnar. Þrjár lausnir hafa verið kannaðar á fyrsta áfanganum sem er þverun Kleppsvíkur frá Gufuneshöfða. Þær eru í fyrsta lagi hábrú sem kæmi niður við Sæbraut, í öðru lagi göng undir sundið og í þriðja lagi innri leið, nær Elliðaárdal, með lábrú.

Áfengisauglýsingar hafa aukist í íslenskum prentmiðlum

Í skýrslum sem Lýðheilsustöð lét gera yfir auglýsingar, kynningar og umfjöllun um áfengi og léttöl í íslenskum prentmiðlum, kemur fram að áfengisauglýsingar hafa aukist töluvert í íslenskum prentmiðlum á síðustu árum.

Háskóli Íslands hlýtur viðurkenningu Jafnréttisráðs

Háskóli Íslands hlýtur viðurkenningu Jafnréttisráðs árið 2005. Meginástæða þeirrar ákvörðunar er þau tímamót sem urðu í sögu skólans nú í sumar, þegar kona var í fyrsta skipti kjörin rektor við Háskóla Íslands.

Verið að meta tjón af völdum vatnavaxta

Búið er að tilkynna um tjón í 16 byggingum á Höfn í Hornafirði. Ekki liggur enn fyrir hversu mikið tjón varð af völdum þeirra miklu vatnavaxta sem áttu sér stað á Hornafirði nýverið en mat stendur yfir.

Endurnýjaður réttur með helgarferð til útlanda

Vinnumálastofnun synjaði beiðni starfsmanna 2B ehf. um atvinnuleyfi fyrir 36 Pólverja sem hér hafa verð við störf á hennar vegum. "Ætli verði ekki bara notað þetta klassíska úrræði að menn fari í helgarferð til Köben og komi svo aftur," segir Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður 2B, en við það myndi hefjast nýtt þriggja mánaða tímabil ferðamannaáritunar.

Nýtt skip í stað Jaxlisins

Flutningaskipið Jaxlinn sem selt var til Danmerkur um miðjan þennan mánuð fær fljótlega arftaka. "Og það verður enginn eftirbátur hans," segir Ragnar Magnús Traustason, framkvæmdastjóri Sæskipa sem gerðu út Jaxlinn.

Situr inni í tvo mánuði

Maður sem viðhafði kynferðislegt og klámfengið tal í fjöl­mörgum smáskilaboða í far­síma tveggja ungra stúlkna þarf að greiða þeim 400.000 krónur í bæt­ur og var dæmdur í fimm mánaða fangelsi. Hæstiréttur staðfesti í gær fang­els­is­dóm Héraðsdóms Vest­ur­lands yfir manninum, en hækk­aði bóta­greiðslur til hvorrar stúlku um 150.000 krónur.

Meira að gera eftir rannsókn

"Við höfum fengið ný viðskipti frá því að málið kom upp og höfum enga viðskiptavini misst þannig að málið hefur ekki haft tiltakanleg áhrif á reksturinn," segir Jóhannes B. Skúlason, framkvæmdastjóri Skúlason ehf. Húsleit var gerð í húsakynum fyrirtækisins í byrjun mánaðarins að frumkvæði breskrar efnahagsbrotalögreglu í tengslum við meintar blekkingar í viðskiptum og peningaþvætti.

Reglur tilbúnar fyrir áramót

Hrafnkell V. Gísla­son, for­stjóri Póst- og fjarskiptastofnunar, segir unnið að því að fara yfir lagaákvæði sem lúta að vernd fjarskip­ta og starfsháttum fjar­skipta­fyrirtækja með það fyrir aug­um að búa hugsanlega til vinnu­reglur þar að lútandi. Þetta er gert í kjölfar þess að Sturla Böðvars­son samgöngu­ráðherra fól stofnun­inni að bregð­ast sérstaklega við vegna frétta í Frétta­blaðinu um upphaf Baugs­málsins, en þær byggðu á skjölum sem blaðið komst yfir.

Lamdi dyravörð

Átján ára piltur brást harkalega við þegar dyravörður á Gauki á Stöng meinaði honum inngöngu skömmu eftir miðnætti í fyrrinótt. Sló hann þá dyravörðinn í skyndingu milli augnanna. Lögreglan kom á svæðið og handsamaði piltinn sem sparkaði í lögreglubílin við handtökuna.

Próflaus á stolnum bíl

Rúmlega þrítugur maður var dæmdur í fimm mánaða fangelsi fyrir að stela bíl við Barónsstíg í Reykjavík og aka um borgina. Hann hafði áður verið sviptur ökuréttindum. Ökuferðin endaði í Breiðholti, en til að komast inn í bílinn braut maðurinn í honum hliðarrúðu.

Ofsaakstur í Ártúnsbrekku

Ökumaður var tekinn á 155 kílómetra hraða á klukkustund í Ártúnsbrekkunni fyrr í kvöld. Ökumaðurinn var sviptur réttindum á staðnum og getur búist við að þurfa að greiða vænar sektir fyrir athæfið.

Ólíklegt að gerð verði undantekning fyrir Íslendinga

Það þarf ekki að vera slæmt fyrir Íslendinga að þjóðaröryggisráðgjafa Bandaríkjanna hafi verið falið að leiða varnarmálin á Íslandi til lykta. Þó er ólíklegt að gerð verði undantekning fyrir Íslendinga og ekki dregið saman í varnarviðbúnaði hér á landi, að sögn sérfræðings í öryggismálum.

Brosað í gegnum tárin

Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti, sagði Flateyringum að þeir ættu vináttu sína, þegar hún flutti ávarp á minningarfundi um þá sem fórust í snjóflóðinu fyrir tíu árum. Íbúar bæjarins gátu ekki haldið aftur af tárunum, þegar björgunarsveitarmenn og sjóliðar Landhelgisgæslunnar, komu til fundarins.

Norrænt samstarf að verða útflutningsvara

Norðurlandasamstarfið og norrænt samfélag er að verða að útflutningsvöru, segir Rannveig Guðmundsdóttir, forseti Norðurlandaráðs, en þingi ráðsins lauk í Reykjavík í dag. Hún segir að hrakspár um að samstarf norrænu landanna yrði óþarft við inngöngu sumra þeirra í ESB, hafi ekki gengið eftir.

Aðkeypt sérfræðiaðstoð hefur tvöfaldast

Aðkeypt sérfræðiaðstoð ríkisstofnana og ráðuneyta hefur nærri tvöfaldast frá árinu 1998 samkvæmt úttekt ríkisendurskoðunar. Jóhanna Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, telur nær að takmarka þessi útgjöld í stað þess að skera niður hjá þeim sem minnst hafa.

Starfsmenn Flögu ósáttir

Starfsmenn Flögu eru ósáttir við hvernig staðið var að uppsögnum en fjörtíu manns misstu vinnuna í vikunni. Starfsemin flyst í auknum mæli til Bandaríkjanna.

Hagkerfið komið að ystu mörkum

Forstöðumaður Hagfræðistofnunar telur íslenska hagkerfið komið að þolmörkum varðandi útgáfu erlendra aðila á skuldabréfum í íslenskum krónum en hún fór yfir hundrað milljarða króna í gær. Hann segir þó ástandið ekki alslæmt.

Hagkerfið komið að þolmörkum

Forstöðumaður Hagfræðistofnunar telur íslenska hagkerfið komið að þolmörkum varðandi útgáfu erlendra aðila á skuldabréfum í íslenskum krónum en hún fór yfir hundrað milljarða króna í gær. Hann segir þó ástandið ekki alslæmt.

Eldsvoði á Schiphol-flugvellinum

Ellefu manns létu lífið og fimmtán slösuðust í eldsvoða í fangageymslu á Schiphol-flugvelli í Amsterdam í nótt. Flestir þeirra sem létust voru fíkniefnasmyglarar eða ólöglegir innflytjendur.

Íhugar að stofna eigið flugfélag

Andri Már Ingólfsson eigandi Heimsferða íhugar að stofna sitt eigið flugfélag. Hann útilokar kaup á Iceland Express en félagið er nú til sölu.

Umferðarstofa braut samkeppnislög

Samkeppniseftirlitið hefur komist að þeirri niðurstöðu að Umferðarstofa hafi misnotað markaðsráðandi stöðu sína á markaði fyrir upplýsingamiðlun úr ökutækjaskrá. Umferðarstofa hafi þannig brotið gegn samkeppnislögum.

Dómur héraðsdóms staðfestur

Hæstiréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í máli útgerðarfélagsins Gunnvarar gegn manni sem starfaði áður hjá fyrirtækinu.

Samræma aðgerðir varðandi fjárhættuspil

Norðurlöndin verða að samræma aðgerðir svo hvert land geti stjórnað fjárhættuspilamarkaðnum. Þetta samþykkti Norðurlandaráð á fundi sínum í dag. Þá hlaut íslenskur hlutverkaleikur fyrstu verðlaun í samkeppni um námsefni sem Norræna ráðherranefndin efndi til.

Flug til suður Grænlands í biðstöðu

Flugsamgöngur milli Íslands og suður Grænlands eru í biðstöðu eftir að loftferðasamningur milli landanna rann úr gildi fyrr í haust. Ef ekki nást samningar milli heimastjórnar Grænlendinga og Flugfélags Íslands gæti svo farið að flugsamgöngur milli Íslands og suður Grænlands leggist af um óákveðinn tíma.

Suðurflug tekur við rekstri flugstöðvar varnarliðsins

Suðurflug, dótturfélag Avion Group, hefur verið valið til að taka við rekstri flugstöðvar varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli. Samningurinn felur í sér daglegan rekstur flugstöðvar varnarliðsins og afgreiðslu á öllum herflugvélum sem um völlinn fara.

Sjá næstu 50 fréttir