Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Varað við stormi á Vestfjörðum síðdegis Gul viðvörun vegna norðaustan hvassviðris eða storms með snjókomu tekur gildi á Vestfjörðum síðdegis. Spáð er 15-23 metrum á sekúndu og rigningu eða slyddu en snjókomu á fjallvegum 10.11.2022 09:08
Bein útsending: BHM kynnir áherslur sínar í kjaraviðræðum Fulltrúar BHM munu kynna sameiginlegar áherslur allra aðildarfélaga sinna í kjaraviðræðunum framundan á opnum fundi í Grósku í Reykjavík sem hefst klukkan 9:30. 10.11.2022 09:00
Ein þekktasta leikkona Íran sviptir sig slæðunni og ögrar stjórnvöldum Ein þekktasta leikkona Íran hefur hætt frelsi sínu og lífi með því að birta mynd af sér á Instagram, þar sem hún ber ekki höfuðslæðu en heldur á áróðursskilti þar sem segir „Kona. Líf. Frelsi.“ 10.11.2022 08:54
Repúblikanar þokast nær meirihluta í fulltrúadeildinni Meirihluti í fulltrúadeild Bandaríkjaþings er nú innan seilingar fyrir repúblikana. Talningu er enn ólokið í fleiri en þrjátíu kjördæmum en repúblikana vantar aðeins sjö sæti til viðbótar. Ekki er búist við að úrslit í öldungadeildinni liggi fyrir fyrr en í fyrsta lagi eftir nokkra daga. 10.11.2022 08:37
Listaverkasafn stofnanda Microsoft selt fyrir metfé í þágu góðgerðarmála Listaverkaverkasafn í eigu Paul Allens heitins, annars stofnanda Microsoft, er nú í söluferli hjá uppboðshaldaranum Christies. 10.11.2022 08:25
Mikil fjölgun hagsmunavarða jarðefnaeldsneytisfyrirtækja á COP27 Áætlað er að um sex hundruð hagsmunaverðir jarðefnaeldsneytisiðnaðarins séu viðstaddir COP27-loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Egyptalandi, um fjórðungi fleiri en tóku þátt í síðustu ráðstefnu í Glasgow. 10.11.2022 07:45
Talið að 200 þúsund hermenn hafi fallið eða særst í Úkraínu Æðsti herforingi Bandaríkjamanna, Mark Milley, áætlar að rúmlega 100 þúsund rússneskir hermenn hafi nú fallið eða særst í Úkraínu síðan Rússar hófu innrás sína í landið. 10.11.2022 07:22
Hafa áhyggjur af frumvarpi um aukna lausasölu lyfja og benda meðal annars á tíðni parasetamóleitrana Parasetamóleitranir eru algengasta ástæða bráðrar lifrarbilunar á Vesturlöndum en 542 slíkar eitranir áttu sér stað á Íslandi á árunum 2010 til 2017. 10.11.2022 07:11
„Þetta er eins og einhver leikur sem gengur allt of langt“ „Vegir dómstólanna eru órannsakanlegir og það má alltaf vona það besta. Ég mun, og minn umbjóðandi, mótmæla þessu harkalega. Þetta er eins og einhver leikur sem gengur allt of langt.“ 10.11.2022 06:51
4.048 Íslendingar hafa hafnað því alfarið að gefa líffæri Frá því að breytt lög um líffæragjafir tóku gildi í byrjun árs 2019 hafa 4.048 einstaklingar alfarið hafnað líffæragjöf en 2.013 hafnað líffæragjöf að hluta. Lítill munur er á milli kynjanna hvað þetta varðar; 2.018 karlar hafa alfarið hafnað líffæragjöf en 1.940 konur. 10.11.2022 06:38
Yfirdráttarlán heimilanna að aukast Samkvæmt hagtölum Seðlabanka Íslands eru bæði innlán og yfirdráttarlán heimilanna að aukast. 10.11.2022 06:36
Reyndu að hlaupa undan og fela sig í garði Svo virðist sem gærkvöldið og nóttin hafi verið með rólegra móti hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, ef marka má yfirlit yfir verkefnin á svæðinu. 10.11.2022 06:12
Sporvagn skreyttur norðurljósum í tilefni af formennsku Íslands Ísland tók í dag formlega við formennsku Evrópuráðsins af Írum á fundi ráðherraráðsins í Strassborg. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra er nýr formaður ráðherranefndarinnar. Þetta er í þriðja sinn sem Ísland tekur við formennsku ráðsins. 9.11.2022 23:17
„Mér líður ekki vel yfir því sem er að gerast“ Þorvaldur Gylfason prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands segir marga telja að Bandaríkin rambi beinlínis á barmi nýrrar borgarastyrjaldar, en að engu að síður virðist demókrötum hafa tekist að afstýra stórsigri repúblikana í þingkosningum þar vestra. 9.11.2022 23:01
Biden hrósaði varnarsigri Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, hrósaði varnarsigri Demókrata, er hann kom fyrst fram opinberlega eftir þingkosningar þar í landi í gær. Hann segir ekkert annað í kortunum en að hann bjóði sig aftur fram í forsetakosningunum 2024. 9.11.2022 22:44
Verðlaun afhend fulltrúa íranskra kvenna ásamt fleirum Í dag voru hin ýmsu verðlaun veitt til framúrskarandi kvenna í Hörpu á Heimsþingi kvenleiðtoga. Þingið var haldið hér á landi í sjöunda sinn en hundruð kvenleiðtoga komu saman. 9.11.2022 22:27
Þrjú ríki munu ráða úrslitum Niðurstöður öldungadeildarkosninganna í Arisóna, Nevada og Georgíu-ríkjum í Bandaríkjunum munu skera úr um hvort Demókratar eða Repúblikanar ná meirihluta í efri deild Bandaríkjaþing. 9.11.2022 21:45
Hafa lagt út milljónir vegna ófrjósemi Kona sem greitt hefur sjö milljónir króna í meðferðir og annan kostnað vegna ófrjósemi segir mikilvægt að fólk í sömu sporum fái meiri fjárhagslegan stuðning. 9.11.2022 21:00
Þverpólitísk sátt um ofskynjunarsveppi Þingmenn úr öllum flokkum standa að baki þingsályktunartillögu sem var mælt fyrir á Alþingi í dag um að heimila notkun efnisins sílósíbín í geðlækningaskyni. Efnið er svokallað hugvíkkandi efni og er virka efnið í 250 mismunandi sveppategundum, sem stundum eru nefndir ofskynjunarsveppir. 9.11.2022 20:21
Fáheyrt að stjórnarandstaðan nái ekki tökum á báðum þingdeildum Bandaríska þjóðin bíður nú í ofvæni eftir niðurstöðum þingkosninganna sem fóru fram í gær. Ljóst er að einhver bið getur verið eftir endanlegum niðurstöðum. Silja Bára Ómarsdóttir, prófessor í stjórnmálafræði og sérfræðingur í bandarískum stjórnmálum segir fáheyrt að stjórnarandstaðan nái ekki tökum á báðum deildum þingsins. 9.11.2022 19:49
Mikilvægt að efla samskiptanet kvenna í leiðtogastörfum Sima Sami Bahous aðalframkvæmdastjóri UN Women og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segja mikilvægt að tengja saman konur í leiðtogastöðum til að efla og hvetja allar konur til að bjóða sig fram til leiðtogastarfa. 9.11.2022 19:30
Maðurinn sem lýst var eftir fundinn Karlmaður sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir í kvöld er fundin, heill á húfi. 9.11.2022 19:23
Leigjendum fórnað á altari fasteignafélaga Formaður Leigjendasamtakanna segir áform Reykjavíkurborgar um uppbyggingu íbúðarhúsnæðis á næstu árum lítið gagnast leigjendum vegna þess að hún væri öll á forsendum fasteignafélaga. Eina vonarglætan fyrir leigjendur væri í uppbyggingu verkalýðsfélaganna sem enn væru aðeins með lítinn hluta leigumarkaðarins. 9.11.2022 19:20
Harma það að tilmælin hafi ekki verið nógu skýr Embætti Ríkislögreglustjóra og Isavia harma það að tilmæli lögreglu á Keflavíkurflugvelli í síðustu viku, þegar starfsmenn Isavia, komu í veg fyrir myndatöku fjölmiðla af brottvísun flóttafólks, hafi ekki verið nógu skýr. 9.11.2022 18:18
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Úrslit nýafstaðinna þingkosninga í Bandaríkjunum velta á niðurstöðum í þremur ríkjum, þar sem gríðarmjótt er á munum. Hin svokallaða rauða bylgja repúblikana reið varla yfir, að sögn stjórnmálaskýrenda, og demókratar unnu hálfgerðan varnarsigur - þó að þeir bíði nú milli vonar og ótta. 9.11.2022 18:00
Mótmæltu brottvísunum hælisleitenda á málþingi um ofbeldi Fámennur hópur fólks mætti á Landssamráðsfund um ofbeldi sem stendur yfir á Grand hóteli. Hópurinn mótmælti brottvísunum hælisleitenda og kallaði „Refugees are welcome here“ og „brottvísanir eru ofbeldi“. 9.11.2022 17:00
Stálu frægum uppvakningagervifæti af Gunnjóni Uppvakningagervifæti var stolið úr draugahúsi Fjölskyldu- og húsdýragarðsins á mánudaginn. Eigandi fótarins saknar hans mjög enda er hann hluti af kvikmyndasögunni. 9.11.2022 16:45
Boða til kosninga í Færeyjum eftir útgöngu Miðflokksins Bárður á Steig Nielsen, lögmaður Færeyja, hefur boðað til þingkosninga þann 8. desember næstkomandi. Miðflokkurinn sagði sig úr ríkisstjórnarsamstarfi í gær eftir að Jenis av Rana var vikið úr embætti utanríkis- og menntamálaráðherra. 9.11.2022 16:08
Fara fram á áframhaldandi gæsluvarðhald Héraðssaksóknari mun fara fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir tveimur mönnum sem grunaðir eru um skipulagningu hryðjuverka. Mennirnir hafa verið í gæsluvarðhaldi í sjö vikur. 9.11.2022 15:55
Rússar segjast ætla að hörfa frá Kherson Sergei Surovkin, herforingi sem er yfir innrás Rússa í Kherson, lýsti því yfir í dag að hann ætli að flytja alla rússneska hermenn frá vesturbakka Dniproár. Rússar munu þar með yfirgefa Kherson-borg, sem er eina héraðshöfuðborgin sem þeir hafa hernumið frá því innrásin hófst í febrúar. 9.11.2022 15:19
Icelandair będzie latał do Pragi i Barcelony Latem przyszłego roku linie Icelandair wprowadzą dwa nowe kierunki lotów międzynarodowych: Pragę i Barcelonę. 9.11.2022 15:16
Óvissa varðandi leikskólann Hlíð: „Erum í raun á hrakhólum“ Loka þurfti stærstum hluta húsnæðis leikskólans Hlíðar í lok október vegna myglu. Börn, foreldrar og starfsfólk þurfa að ferðast langar leiðir daglega á leikskóla í önnur hverfi borgarinnar. Bugaðir foreldrar þrýsta á Reykjavíkurborg og vilja að mögulega verði slakað á kröfum tímabundið varðandi húsnæði. 9.11.2022 15:00
Reyndi að kasta eggjum í konunginn Karlmaður var í dag handtekinn fyrir að kasta eggjum í átt að Karli III Bretlandskonungi í borginni York. Maðurinn náði ekki að hitta konunginn í þremur köstum. 9.11.2022 14:22
Skjálfti 3,3 að stærð skammt frá Hveradölum Skjálfti af stærðinni 3,3 varð um einum kílómetra austur af Skíðaskálanum í Hveradölum klukkan 13:34 í dag. 9.11.2022 13:59
Kann að enda með að boðað verði til þingkosninga Færeyski Miðflokkurinn hefur sagt skilið við ríkisstjórn landsins eftir að Bárður á Steig Nielsen, lögmaður Færeyja, ákvað að reka formann Miðflokksins, Jenis av Rana, úr embætti utanríkis- og menntamálaráðherra í gær. Miklar líkur eru á að boðað verði til þingkosninga í Færeyjum til að leysa úr þeirri stöðu sem upp er komin í færeyskum stjórnmálum. 9.11.2022 13:51
Ingibjörg Sólrún svartsýn í öryggis- og friðarmálum Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fyrrverandi utanríkisráðherra segist ekki bjartsýn í friðar- og öryggismálum heimsins. Erfitt sé fyrir konur að koma að samningaborðinu þar sem í raun væri ekkert samningaborð til staðar. Forsætisráðherra segir mikilvægt að jafnréttismál hafi verið flutt til forsætisráðuneytisins. 9.11.2022 13:50
Sviss útvistar loftslagsmarkmiðum til snauðari þjóða Stjórnvöld í Sviss hafa gert samninga við nokkur fátækari ríki um að þau dragi úr losun gróðurhúsalofttegunda en að Sviss fái heiðurinn af samdrættinum. Sérfræðingar vara við því að samningar af þessu tagi gætu tafið loftslagsaðgerðir í auðugri ríkjum heims. 9.11.2022 13:49
W Smáralind powstanie pierwszy park rozrywki dla miłośników piłki nożnej W styczniu w galerii handlowej Smáralind zostanie otwarty pierwszy park rozrywki dla miłośników piłki nożnej, Fótboltaland. W parku znajdzie się prawie dwadzieścia różnych punktów rozrywki. 9.11.2022 13:27
Húsleit hjá sálfræðingi sem sætir nú lögreglurannsókn Sálfræðingurinn Jón Sigurður Karlsson sætir lögreglurannsókn. Húsleit hefur verið gerð á heimili hans. Hann fór á dögunum í skýrslutöku til lögreglu. 9.11.2022 13:25
Gul viðvörun gefin út á Vestfjörðum Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun á Vestfjörðum vegna norðaustan hvassviðris eða storms og snjókomu sem sé í vændum. 9.11.2022 12:45
Fleiri skili skömminni og tilkynni ofbeldisbrot en áður Þrátt fyrir að skráðum brotum um ofbeldi meðal barna og ungmenna hafi fjölgað þýðir það ekki endilega aukningu slíkra brota að sögn sviðsstjóra hjá Ríkislögreglustjóra. Hún telur að hærra hlutfall slíkra mála sé að skila sér inn í kerfið og fólk tilkynni frekar slík brot en áður. Opin umræða og hvatning um að skila skömminni sé að skila sér. 9.11.2022 12:44
Penn lánar Selenskí Óskarsverðlaunin Leikarinn og leikstjórinn Sean Penn er staddur í Úkraínu, þar sem hann fundaði meðal annars með Vólódímír Selenskí Úkraínuforseta og lánaði honum annan af tveimur Óskarsverðlaungripum sínum. Bað hann Selenskí að skila styttunni til Malibu þegar Úkraínumenn hefðu haft sigur af Rússum. 9.11.2022 12:25
Meiri líkur á að demókratar geti stöðvað Trump-málin Prófessor í sagnfræði segir varnarsigur demókrata í nýafstöðnum þingkosningum í Bandaríkjunum hafa komið sér talsvert á óvart. Demókratar gætu vel haldið meirihluta í öldungadeildinni, einkum í ljósi mikilvægs sigurs í Pennsylvaníu, en repúblikanar taka líklegast yfir fulltrúadeildina, sem verður Biden þungur baggi. 9.11.2022 12:12
Loka að næturlagi til að koma í veg fyrir bílahittinga Búið er að setja upp hlið við bílaplanið við Norðurturn Smáralindar. Hliðið kemur í veg fyrir að bílahittingar eigi sér stað þar í skjóli nætur. 9.11.2022 12:09
Sagðir sækja fram úr nokkrum áttum í Kherson Hersveitir Úkraínu hafa náð árangri gegn Rússum í Kherson-héraði í dag og í gær. Rússar eru sagðir hafa verið sigraðir í nokkrum þorpum á vesturbakka Dniproár og hafa sprengt upp nokkrar brýr til að gera Úkraínumönnum erfitt um vik. 9.11.2022 11:48