Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Einn látinn eftir að aurskriða féll í Þrændarlögum Einn er látinn eftir að aurskriða féll í Þrændarlögum í Noregi í dag en aurskriðan eyðilagði hús sem varð á vegi hennar og á helmingur hússins að hafa flust burt með skriðunni. 2.9.2022 21:58
„Traust til ráðherra hefur beðið stórkostlega hnekki í faginu“ Formaður BHM segir óeðlilegt að skipa í stöðu þjóðminjavarðar, staðan hefði átt að vera auglýst. Formaður félags fornleifafræðinga telur að traust fólks til menningarmálaráðherra hafi beðið mikinn hnekki vegna málsins. 2.9.2022 21:02
Fátt um svör eftir margra ára töf á uppbyggingu í Vesturbugt Ekkert bólar á uppbyggingu tæplega tvö hundruð íbúða í Vesturbugt á slippsvæðinu í Reykjavík þótt tilkynnt hafi verið með athöfn fyrir fimm árum að framkvæmdir ættu að hefjast innan átján mánaða. Deilur verktaka við borgina virðast tefja verkið en í vor hótaði borgarstjóri að lóðin yrði dregin til baka. 2.9.2022 20:23
Óvíst hvenær gas muni flæða um Nord Stream 1 leiðsluna á ný Á dögunum tilkynnti orkurisinn Gazprom að flæði á gasi um Nord Stream 1 leiðsluna yrði stöðvað vegna viðhalds í þrjá daga eða þar til 3. september. Nú hefur komið í ljós að fyrirtækið muni ekki standa við fyrri áætlun. 2.9.2022 20:08
„Fólk gerir sér ekki grein fyrir því hversu alvarlegt þetta er“ Fólk gerir sér ekki grein fyrir því hversu alvarlegt það er að fjórtán hjúkrunarfræðingar hafi sagt upp störfum á bráðamóttöku Landspítala. Þetta segja tveir hjúkrunarfræðinganna. Uppsögn var að þeirra sögn síðasta úrræðið. 2.9.2022 19:33
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Hjúkrunarfræðingar í hópi þeirra fjórtán sem hættu á Landspítalanum í gær segir fólk ekki gera sér grein fyrir hversu alvarleg staða sé komin upp á bráðamóttökunni. Þær segja að uppsögn hafi verið síðasta úrræði sem þær hafi haft. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. 2.9.2022 18:00
Á leið út úr dyrunum þegar kviknaði í spjaldtölvu heimilisins Móðir á Akureyri virðist hafa brugðist hárrétt við aðstæðum þegar eldur kviknaði í spjaldtölvu heimilisins. Litlu hefði mátt muna að afleiðingarnar hefðu orðið alvarlegar. 2.9.2022 17:44
„Ósanngjarnt að hengja sig í smáatriðum“ Forstöðumaður kjarasviðs Fagfélaganna segir ósanngjarnt af veitingastöðunum Flame og Bambus að ætla að fara að hengja sig í smáatriðum í launaþjófnaðarmáli sem höfðað hefur verið gegn þeim. Kjarni málsins sé sá að farið hafi verið illa með fólk - og því borgað of lítið fyrir of mikla vinnu. 2.9.2022 17:36
Vígðu fyrsta heimagerða flugmóðurskipið Indverjar vígðu í dag fyrsta heimabyggða flugmóðurskip ríkisins. INS Vikrant er eitt af tveimur starfræktum flugmóðurskipum Indverja en ráðamenn í Indlandi vilja auka mátt flota ríkisins og auka skipasmíðagetu Indlands til að sporna gegn auknum umsvifum Kína. 2.9.2022 17:16
Þriðjungur kvenna orðið fyrir áreitni eða ofbeldi á vinnustað Þriðjungur kvenna á Íslandi hefur orðið fyrir kynferðislegri áreitni eða ofbeldi á vinnustað einhvern tímann á lífsleiðinni samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar á vegum vísindamanna Háskóla Íslands. 2.9.2022 16:16
Fundu fjölmargar tómar möppur utan af leynigögnum Meðal þess sem starfsmenn Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) lögðu hald á við húsleit í Mar-a-Lago, sveitaklúbbi og heimili Donalds Trump, fyrrverandi forseta, í síðasta mánuði, voru tugir tómra mappa sem voru utan af leynilegum gögnum. 2.9.2022 16:14
Grunaður um að hafa nauðgað eiginkonu sinni í bíl Karlmaður hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 27. september fyrir að hafa meðal annars ógnað eiginkonu sinni með hníf og nauðgað henni í bíl sem lagður var á malarsvæði. Maðurinn hefur einnig verið ákærður fyrir eignaspjöll og líkamsárásir. 2.9.2022 14:55
Eigandinn hafi mætt með leyfi MAST til að flytja hryssuna og folaldið: „Fólk er við það að taka völdin í sínar hendur“ Íbúi í Borgarnesi sem hefur ítrekað kvartað vegna slæmrar meðferðar á hestum í Borgarfirði segir íbúa öskuilla þar sem eigendur hafi fengið leyfi MAST til að flytja illa haldna hryssu og folald sem höfðu verið innilokuð. Samkvæmt upplýsingum frá matvælaráðuneytinu sé málið til skoðunar og samráðsfundur fari fram síðar í mánuðinum. Tilkynning Ríkisendurskoðunar um úttekt á eftirliti MAST hafi verið áfangasigur. 2.9.2022 14:15
Prawie 1200 dzieci na liście oczekujących Tej jesieni, łącznie 3368 dzieci otrzymało miejsce w ośrodkach pozaszkolnych w Reykjaviku, a 1155 wciąż jest na liście oczekujących. 2.9.2022 12:41
Fyrrverandi starfsmenn lýsa afar ófaglegum vinnubrögðum safnstjórans Nokkrir fyrrverandi starfsmenn Listasafns Íslands lýsa afar ófaglegum stjórnunarstíl fyrrum safnsstjóra sem hefur nú verið skipuð án auglýsingar sem þjóðminjavörður. Nefndarmaður Pírata í stjórnskipunar-og eftirlitsnefnd Alþingis vill fá menningarmálaráðherra fyrir nefndina vegna ráðningarinnar. 2.9.2022 12:22
Opóźnienie w lądowaniu z powodu zablokowanego pasa Samolot obsługiwany przez Icelandair musiał wczoraj odwołać lądowanie na lotnisku Keflavík, ponieważ inny samolot był na pasie startowym. 2.9.2022 11:56
Hádegisfréttir Bylgjunnar Deilur í kringum nýskipaðan þjóðminjavörð, ill meðferð á hrossum, launaþjófnaður og kjarnorkumál í Úkraínu verða meðal umfjöllunarefna í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag. 2.9.2022 11:38
Ekki líðandi að Zaporizhzhia kjarnorkuverinu sé ógnað Forstjóri Alþjóðakjarnorkustofnunarinnar segir ekki líðandi að öryggi kjarnorkuversins í Zaporizhzhia haldi áfram að vera ógnað af stríðandi fylkingum í Úkraínu. Eftirlitsmenn stofnunarinnar væru komnir til að vera í kjarnorkuverinu sem er það stærsta í Evrópu og hefur þegar verið ógnað með sprengjuárásum. 2.9.2022 11:21
Afla upplýsinga vegna atviksins á Keflavíkurflugvelli Rannsóknarnefnd samgönguslysa hefur hafið upplýsingaöflun vegna flugatviks sem varð á Keflavíkurflugvelli í fyrradag, þegar hætt var við lendingu flugvélar Icelandair á leið frá München í Þýskalandi. 2.9.2022 11:11
Segir MAGA-Repúblikana ógna Bandaríkjunum Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, fór hörðum orðum um Donald Trump, forvera sinn og stuðningsmenn hans, í ræðu sem hann hélt í gærkvöldi. Biden sagði að svo lengi sem Trump stjórnaði Repúblikanaflokknum ógnaði flokkurinn lýðræði í Bandaríkjunum. 2.9.2022 10:53
Gámur eyðilagðist á Reykjanesbraut Hreinsunarstarf stendur nú yfir á Reykjanesbraut eftir að gámur, sem verið var að flytja á palli vörubíls, hafnaði undir brúnni milli Smiðjuhverfisins og Staldursins í Reykjavík. 2.9.2022 10:39
Segir hryssu og folald enn innilokuð án dagsbirtu Íbúi í Borgarnesi segir hryssu og folald enn innilokuð í hesthúsi í Borgarnesi, þar sem ekki sjáist til sólar. Eigandinn var tilneyddur í gær að færa önnur hross sín, sem voru vannærð og illa haldin, á beit en hryssa með folald er enn innilokuð í hesthúsinu. 2.9.2022 10:29
Samræmdum prófum slaufað og „Matsferill“ kemur í þeirra stað Samræmd könnunarpróf í grunnskóla verða ekki lögð fyrir á þessu skólaári og fram til ársins 2024. Í stað prófanna verður unnið með svokallaðan „Matsferil“, nýtt samræmt námsmat, sem mun leysa samræmdu prófin af hólmi. 2.9.2022 10:11
Allt sem þú þarft vita um sænsku þingkosningarnar Níu dagar eru nú þar til að Svíar ganga að kjörborðinu en þingkosningar fara fram í landinu sunnudaginn 11. september. Spennan er mikil og ekki víst hvernig mál muni þróast þegar búið er að telja öll atkvæði. Þegar kemur að myndun næstu stjórnar hefur sjónum sérstaklega verið beint að Miðflokknum og svo Svíþjóðardemókrötum sem eru komnir inn í hlýjuna á hægri vængnum eftir að hafa verið einangraðir á sænska þinginu allt frá því að þeir náðu fyrst inn mönnum árið 2010. 2.9.2022 09:00
1.200 börn á biðlista og fjöldi staða ómannaður Alls hafa 3.368 börn fengið pláss á frístundaheimilum í Reykjavík í haust en 1.155 eru enn á biðlista. Enn hefur ekki tekist að manna nema 75 prósent staða á frístundaheimilunum og sértækum félagsmiðstöðvum borgarinnar. 2.9.2022 08:58
Kjarnorkuverið í Zapoizhzhia ítrekað orðið fyrir hnjaski Formaður eftirlitsnefndar Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar segir byggingu kjarnorkuversins í Zapoizhzhia í Úkraínu hafa orðið fyrir hnjaski ítrekað. Hann hafi áhyggjur af öryggismálum í verinu, sem er undir yfirráðum rússneskra hersveita. 2.9.2022 08:22
Suu Kyi fær enn einn fangelsisdóminn Dómstóll í Mjanmar hefur dæmt Aung San Suu Kyi, fyrrverandi leiðtoga landsins, í þriggja ára fangelsi fyrir kosningasvindl í tengslum við þingkosningarnar í nóvember 2020. 2.9.2022 07:54
Hlaðinni byssu beint að höfði varaforsetans Litlu munaði að varaforseti Argentínu væri ráðinn af dögum í gær þegar maður beindi hlaðinni byssu að höfði hennar og tók í gikkinn en byssan stóð á sér. 2.9.2022 07:39
Hyggst verja 32 milljónum dollara í að þjálfa her bardagamanna Taívanski auðkýfingurinn Robert Tsao, stofnandi og eigandi örflöguframleiðandans United Microelectronics Corp, hefur greint frá því að hann hyggist verja jafnvirði 32 milljón dollara í að þjálfa 3,3 milljónir almennra borgara til að verja Taívan ef Kínverjar gera innrás. 2.9.2022 07:38
Hiti gæti náð sautján stigum á Suðurlandi Veðurstofan spáir norðaustanátt í dag, þar sem reikna megi með strekkingi sums staðar en lægir svo með kvöldinu. Væta verður um landið austanvert, en bjartviðri suðvestantil. 2.9.2022 07:19
Í tíu ára fangelsi fyrir að ráðast á lögreglumann í árásinni á þinghúsið Fyrrverandi lögreglumaður frá New York borg hefur verið dæmdur í tíu ára fangelsi fyrir að hafa ráðist á lögreglumann í óeirðunum og áhlaupinu á bandaríska þinghúsið 6. janúar 2021. Maðurinn hélt því fram við kviðdóm að hann hafi gripið til ofbeldisins í sjálfsvörn. 2.9.2022 07:17
„Aðrir eru rændir möguleika á starfinu og þar liggur vandinn“ Félag fornleifafræðinga hefur kvartað til umboðsmanns Alþingis vegna ákvörðunar Lilju Alfreðsdóttur, ráðherra menningarmála, að skipa Hörpu Þórsdóttur þjóðminjavörð án þess að auglýsa embættið. 2.9.2022 07:11
Polestar 6 LA Concept selst upp á einni viku Sænski bílaframleiðandinn Polestar kynnti Polestar 6 LA Concept bílinn í ágúst og opnaði svo í framhaldinu fyrir pantanir á bílnum. Einungis 500 eintök verða framleidd og þau eru nú uppurin. 2.9.2022 07:01
Ráðherra og aðstoðarmaður sakaðir um kynferðisofbeldi Ekki var brugðist við ásökunum gegn ráðherra og aðstoðarmanni í ríkisstjórn Boris Johnson forsætisráðherra Bretlands þegar þeir voru sakaðir um kynferðisofbeldi á kjörtímabilinu. 2.9.2022 06:49
Krefjast 13 milljóna í ógreidd laun Hildur Ýr Viðarsdóttir, lögmaður eigenda veitingastaðanna Bambus og Flame, segir rangt af forsvarsmönnum Fagfélaganna að halda því fram að starfsmenn staðanna, hvers stöðu Fagfélögin hafa til skoðunnar, hafi unnið allt að sextán tíma á dag. 2.9.2022 06:47
Sýna geitur í húsdýragarði og selja gestum svo geitaost beint frá býli Bændur á einu stærsta sauðfjárbúi við austanverðan Skagafjörð eru búnir að stofna húsdýragarð og bjóða gestum að kaupa geitaost beint frá býli. Brúnastaðir í Fljótum eru fyrsti og eini bær landsins sem framleiðir eigin geitaosta. 1.9.2022 23:00
Flugvél á flugbraut þegar önnur vél átti að lenda Flugvél á vegum Icelandair þurfti að hætta við lendingu á Keflavíkurflugvelli í gær þar sem önnur vél var á flugbrautinni. Atvikið er til skoðunar hjá rannsóknarnefnd samgönguslysa. 1.9.2022 22:39
Árangurinn í suðri dýrkeyptur Úkraínumönnum Úkraínskir hermenn sem tekið hafa þátt í gagnárásum Úkraínumanna í Kherson-héraði í suðurhluta Úkraínu, segja herinn sækja fram gegn Rússum. Framsóknin hafi þó verið dýrkeypt og bardagar séu gífurlega harðir. 1.9.2022 22:34
Landverðir taki við af björgunarsveitum Lítil virkni er á Reykjanesskaga og gosórói mælist ekki lengur en samkvæmt almannavörnum hætta björgunarsveitir nú gæslustörfum á svæðinu. 1.9.2022 22:32
Læknar harma áhugaleysi stjórnvalda Læknafélag Reykjavíkur harmar áhugaleysi stjórnvalda á sjúkratryggðum íbúum landsins. Síðasti samningur ríkisins og sjálfstætt starfandi lækna var gerður árið 2013 og rann út í lok árs 2018. 1.9.2022 22:17
Áfall þegar hún sá myndir af hryssunum sínum í fjölmiðlum Fyrrverandi eigandi þriggja hrossa úr stóði, sem sagt er hafa sætt illri meðferð núverandi eigenda, segir það hafa verið gríðarlegt áfall að sjá myndir af hrossunum í fjölmiðlum í gær. Hún leitar nú leiða til að fá hrossin aftur til sín. 1.9.2022 21:00
Skrifar sögu landhelgismálsins til þess að slaka á Fimmtíu ár eru liðin síðan landhelgin var færð út í fimmtíu mílur. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson sem er jafnframt sagnfræðingur hefur nú skrifað bók um sögu landhelgismálsins sem spannar árin 1961 til 1971. 1.9.2022 21:00
Evrópuþingið hættir við nýjan bar í nafni orkusparnaðar Til þess að reyna að spara orkukostnað hefur Evrópuþingið hætt við framkvæmdir og úrbætur á húsnæði í kringum starfsemi þingsins sem nema 6,7 milljónum evra eða um 947,7 milljónum íslenskra króna. 1.9.2022 19:30
„Af hverju er ekki búið að gera eitthvað?“ Móðir stúlku sem varð fyrir bíl á rafmagnshlaupahjóli kallar eftir hjálmum á Hopp-hlaupahjól og bættu umferðaröryggi á hættulegustu gatnamótum landsins. Stúlkan mjaðmabrotnaði en hún kveðst þakklát fyrir að ekki hafi farið verr. 1.9.2022 19:18
Bandarísk nunna á níræðisaldri laus úr haldi hryðjuverkamanna Bandaríska nunnan Suellen Tennyson var á mánudaginn leyst úr haldi hryðjuverkamanna í Búrkína Fasó í vesturhluta Afríku. Tennyson hafði verið í haldi mannanna í fimm mánuði en hún er 83 ára gömul. 1.9.2022 19:16